Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1995, Side 26
42
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1995
Fólk í fréttum
Björn O. Steffensen
Björn Ottó Steffensen, bffvéla-
virki og körfuknattleiksmaður,
Gautlandi 7, Reykjavík, var kjör-
inn herra Scandinavia um borð í
glæsiferjunni Cinderella sl.
fimmtudagskvöld eins og fram
kom í DV-frétt á mánudaginn
var.
Starfsferill
Björn fæddist í Reykjavík 6.12.
1965 og ólst þar upp í Álfheimun-
um. Hann var í Langholtsskóla,
stundaði nám við MS einn vetur,
var í menntaskóla og keppti í
körfuknattleik í Bandaríkjunum,
lauk stúdentsprófi frá Ármúla-
skóla 1989, stundaði nám við Iðn-
skólann í Reykjavík og hefur lok-
ið námi í bifvélavirkjun.
Bjöm hefur keppt með meist-
araflokki ÍR í körfuknattleik frá
fimmtán ára aldri og varð Reykja-
víkurmeistari með liðinu á þessu
ári. Hann lék með landsliðinu í
körfuknattleik á árunum 1985 og
1988, auk þess sem hann þjáffaði
meistaraflokk lA er liðið komst i
úrvalsdeild 1992.
Fjölskylda
Sonur Björns er Davíð Aron
Björnsson, f. 9.3. 1989.
Systur Björns eru Þóra Steffen-
sen, f. 9.12.1962, læknir í Boston,
gfft Garry Mayers tölvufræðingi
og eiga þau eina dóttur; Berglind
Steffensen, f. 23.7. 1967, læknir í
Minnesota, gfft Kristjáni Odds-
syni lækni og eiga þau tvö böm.
Foreldrar Björns eru Bjöm
Steffensen, f. 21.3. 1937, bifvéla-
virkjameistari í Reykjavík, og
k.h., Agnes Steffensen, f. 2.4. 1936,
húsmóðir.
Æít
Björn er bróður Helgu Steffen-
sen brúðuleikstjóra. Björn er son-
ur Björns Steffensens, löggilts
endurskoðanda í Reykjavík, hálf-
bróður, samfeðra, Jóns Steffen-
sens læknis og hálfbróður, sam-
mæðra, Sveins Ólafssonar bruna-
varðar. Björn var sonur Valdi-
mars Steffensens, læknis á Akur-
eyri, Jónssonar Steffensens, kaup-
manns í Reykjavík, Stefánssonar.
Móðir Valdimars var Sigþrúður,
systir Helga, læknis á Sigluíirði.
Helga var dóttir Guðmundar, bæj-
arfulltrúa og útgerðarmanns á
Hólnum í Reykjavík, bróður Jóns
í Hlíðarhúsum, Þórðar, hafnsögu-
manns í Ráðagerði, og Péturs, foð-
ur Þórðar í Oddgeirsbæ. Guð-
mundur var sonur Þórðar, lóðs í
Borgarabæ í Reykjavík, Guð-
mundssonar, útgerðarmanns og
verslunarmanns í Marteinsbæ,
Bjarnasonar. Móðir Guðmundar
var Vilborg Jónsdóttir frá Arnar-
hólskoti. Móðir Sigþrúðar var
Valgerður, háffsystir Jóhannesar
Lárusar Lynge, prests á Kvenna-
brekku. Valgerður var dóttir Jó-
hanns, prests og skálds í Hesta-
þingum, Tómassonar.
Móðir Björns endurskoðanda
var Theodóra Sveinsdóttir, báta-
smiðs í Hafnarfirði, Magnússonar,
og Eyvarar, systur Lárusar, föður
Inga T. tónskálds. Systir Eyvarar
var Ágústa, móðir Lovísu, móður
Arndísar Björnsdóttur leikkonu.
Ágústa var einnig móðir Ólafar,
móður Halldórs Péturssonar
teiknara. Önnur systir Eyvarar .
var Guðrún, langamma Kristins
Hallssonar og Ágústs, föður Guð-
rúnar, forseta borgarstjórnar. Ey-
vör var dóttir Snorra, prests á
Desjarmýri Sæmundssonar, prests
á Útskálum, Einarssonar.
Móðir Björns bifvélavirkja var
Sigriður Árnadóttir, steinsmiðs
og yfirverkstjóra hjá Landssjóði,
Zakaríassonar, rennismiðs og út-
gerðarmanns í Bergi í Reykjavík,
Árnasonar. Móðir Árna var Sig-
ríður Erlendsdóttir. Móðir Sigríð-
ar var Helga, systir Ófeigs í Ráða-
gerði, fóður Tryggva útgerðar-
manns, fóður Rannveigar, móður
Herdísar Hallvarðsdóttur tónlist-
arkonu og fóður Herdísar, móður
Herdísar Þorgeirsdóttur. Helga
var dóttir Ófeigs, hreppstjóra á
Ejalli, Ófeigssonar rika, ættföður
Fjallsættarinnar Vigfússonar.
Móðir Ófeigs hreppstjóra var Ing-
unn Eiríksdóttir, ættfoður Reykja-
ættarinnar, Vigfússonar. Móðir
Helgu var Vilborg Eyjóffsdóttir,
hreppstjóra i Auðsholti, Guð-
mundssonar og Sigríðar Ólafsdótt-
ur.
Agnes er dóttir Ottós Olsens,
bílstjóra og síðan verkstjóra hjá
Björn Ottó Steffensen,
Togaraafgreiðslunni í Reykjavík,
sonar Péturs Antons Olsens, hval-
veiðiskyttu á ísafirði, af norskum
ættum, og Jarþrúðar Oddgeirs-
dóttur.
Móðir Agnesar var Gíslína Sig-
urðardóttir. Móðir Gíslínu var
Guðbjörg Guðmundsdóttir.
Andlát________________
Aagot Vilhjálmsson
Aagot Vilhjálmsson húsfreyja,
Miðleiti 5, Reykjavík, lést á Borg-
arspítalanum 15.10. sl. Útför
hennar fór fram frá Fossvogs-
kirkju í gær.
Starfsferill
Aagot fæddist á Seyðisfírði 7.4.
1900 og ólst upp í foreldrahúsum
á Reyðarfirði. Hún stundaði nám
í unglingaskóla á Seyðisfirði og
síðan viö Gagnfræðaskólann á
Akureyri.
Aagot var mikil hannyrðakona
og sérstaklega áhugasöm um
klæðagerð úr íslenskri ull. Hún
var sjálf einkar vandvirk og mik-
ilvirk við að prjóna ullarflíkur.
Þá starfrækti hún litla hannyrða-
verslun á Vopnafirði.
Aagot starfaði með Kvenfélagi
Vopnafjarðar í fjölda ára, sat í
stjórn félagsins, var lengst af
gjaldkeri þess og mörgum sinn-
um fulltrúi félagsins á sambands-
fundum austfirskra kvenna.
Fjölskylda
Aagot gfftist 3.6. 1920 Árna Vil-
hjálmssyni, f. 23.6. 1894, d. 9.4.
1977, héraðslækni. Hann var son-
ur Vilhjálms Guðmundssonar, b.
að Ytri- Brekkum á Langanesi,
og k.h., Sigríðar Davíðsdóttur, b.
að Heiði á Langanesi, Jónssonar.
Aagot og Árni eignuðust ellefu
börn. Börn þeirra: Snorri, f. 10.7.
1921, d. 21.12. 1972, lögfræðingur
á Seffossi, en ekkja hans er Eva
Þorfinsdóttir kennari og eignðust
þau sex börn; Kjartan, f. 8.12.
1922, d. 21.5. 1978, héraðslæknir á
Höfn í Hornafirði en kona hans
var Ragnhildúr Sigbjörnsdóttir
húsmæðrakennari sem einnig er
látin og eignuðust þau fjögur
börn; Árni, f. 26.11. 1924, fram-
kvæmdastjóri á Akureyri, kvænt-
ur Kristínu Tómasdóttur hús-
móður og eiga þau fjögur böm;
Kristín Sigríður, f. 30.6. 1926,
lengst af kaupkona, búsett á Sel-
tjarnarnesi, gfft Sveinbirni Jóns-
syni verslunarmanni; Sigrún, f.
6.9. 1927, ritstjóri í Reýkjavík,
ekkja eftir Óskar Halldórsson há-
skólalektor og eru börn þeirra
sex; Valborg, f. 12.2.1930, hjúkr-
unarfræðingur í Reykjavík, var
gift Inga B. Halldórssyni stýri-
manni en þau skildu og eiga þau
þrjú börn; Vilhjálmur, f. 20.4.
1933, járnsmiður í Kópavogi,
kvæntur Valgerði Stefánsdóttur
skrffstofumanni og eiga þau eina
dóttur og einn fósturson; Aagot,
f. 7.4. 1935, fulltrúi, búsett í Mos-
fellsbæ, gfft Guðmundi Halldórs-
syni, starfsmanni hjá íslenskum
sjávarafurðum, og eiga þau fimm
börn; Rolf Fougner, f. 3.11. 1937,
tæknifræðingur, búsettur á
Skagaströnd, var kvæntur Guð-
laugu Sæmundsdóttur ritara en
þau skildu og er kona hans Anna
Ármannsdóttir húsmóðir; Aðal-
björg, f. 17.1. 1939, hjúkrunar-
fræðingur í Reykjavik, gift Árna
G. Stefánssyni, lektor við KHÍ, og
eiga þau fjögur börn; Þórólfur, f.
9.11. 1941, verslunarmaður, bú-
settur á Áfftanesi, kvæntur
Magnhildi Gísladóttur þroska-
þjálfa.
Systkini Aagot urðu átta en
tveir bræður hennar dóu í frum-
bernsku.
Systini hennar: Valborg
Fougner; Sverre Fougner; Arthur
Fougner; Hákon Fougner, sem nú
er einn eftir á lffi; Johan Thulin;
Olga; Rolf, og Otto.
Foreldrar Aagot voru Rolf Jo-
hansen, kaupmaður og útgerðar-
maður á Reyðarfirði, og k.h.,
Kitty Överland húsfreyja.
Ætt
Foreldrar Aagot voru bæði frá
Noregi. Rolf var sonur Johan
Thulin Johansen, lögfræöings í
Stafangri, og k.h., Albínu Johan-
sen húsmóður.
Kitty var dóttir Orm Överland
lögfræðings, sem fór til Ameríku,
og k.h., Katrínar Överland,
fæddrar Jelsa.
Afmæli
Árni
Tómasson
Árni Tómasson, löggiltur endur-
skoðandi, Hraunbraut 20, Kópa-
vogi, er fertugur í dag.
Starfsferill
Árni fæddist i Reykjavík en ólst
upp í Kópavogi þar sem hann hef-
ur átt heima alla tíð. Hann lauk
stúdentsprófi frá MH 1975, við-
skiptafræðiprófi frá HÍ 1979 og er
löggiltur endurskoðandi frá 1984.
Árni starfaði á Endurskoðunar-
skrffstofu Björns Steffensen og
Ara Ó. Thorlaciusar 1979-85, var í
starfsnámi í Noregi 1982-83 hjá
Lorange og Brænde og Co en hef-
ur verið eigandi að Lögiltum end-
urskoðendum hf. frá 1985. Þá hef-
ur hann verið stundakennari við
viðskiptadeild HÍ frá 1985.
Árni sat í stjórn Félags löggiltra
endurskoðenda 1987-89, var form-
aður þess 1989-91 og hefur gegnt
fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir
félagið. Þá hefur hann setið í
nokkrum opinberum nefndum um
skattamál og fjármál, haldið fjöl-
mörg erindi og samið rit fyrir Fé-
lag löggiltra endurskoðenda og
Endurmenntunarstofnun HÍ.
Fjölskylda
Árni kvæntist 1.10.1977 Mar-
gréti Bimu Skúladóttur, f. 29.6.
1955, hjúkrunarfræðingi. Hún er
dóttir Skúla Guðmundssonar,
verkfræðings í Reykjavík, og k.h.,
Aðalbjargar Björnsdóttur kennara.
Börn Árna og Margrétar Birnu
eru Berglind Þóra, f. 25.7. 1978,
nemi við MH; Björn Steinar, f.
15.3. 1981, nemi; Guðný Anna, f.
28.3. 1988, nemi.
Systkini Árna: Eiríkur, f. 8.6.
1950, hrl. og prófessor við HÍ, bú-
settur í Reykjavík; Tómas Þór, f.
16.8. 1959, aðstoðarframkvæmda-
stjóri, búsettur í Kópavogi; Gunn-
ar Guðni, f. 16.2. 1963, doktor í
verkfræði og dósent við HÍ, bú-
settur í Reykjavík.
Árni Tómasson.
Foreldrar Árna eru Tómas
Árnason, f. 21.7. 1923, fyrrv. ráð-
herra og seðlabankastjóri, og k.h.,
Þóra Kristín Eiríksdóttir, f. 13.3.
1926, húsmóðir.
Til hamingju med afmælið 25. október
90 ára
Sigurragna Jónsdóttir,
Dalbraut 27, Reykjavík.
Sigþrúður Sig-
rún Eyjólfsdótt-
ir,Hrafnistu við
Kleppsveg,
Reykjavík.
Hún tekur á móti
gestum í safnað-
arheimili Ás-
kirkju sunnudag-
inn 29.10. milli kl. 15.00 og 18.00.
85 ára
Elísabet Sigurðardóttir,
Dalbraut 27, Reykjavík.
80 ára
Sigurþór Sæmundsson,
Litlagerði 14, Hvolhreppi.
75 ára
Ólafur Þórðarson,
Akursbraut 24, Akranesi.
Jónas Þórarinn Ásgeirsson,
Kópavogsbraut 1 B, Kópavogi.
70 ára
Sólveig Sigiu-ðardóttir,
Brekkulandi 4, Mosfellsbæ.
Stefanía Hinriksdóttir,
Vogagerði 1, Vatnsleysustrandar-
hreppi.
Gunnar H. Valdimarsson,
Heiðarhvammi 1 D, Keflavfk.
60 ára
Jónasína Þórey Guðnadóttir,
Asparfelli 8, Reykjavík.
Lára HaUa Jóhannesdóttir,
Látraströnd 24, Seltjarnarnesi.
Hallgerður Ásta Þórðardóttir,
Kambaseli 6, Reykjavík.
50 ára:
Guðný Björg
Þorvaldsdóttir
skrffstofumaður,
Túngötu 3, Fá-
skrúðsfirði. Eigin-
maður hennar er
Sigurður Þor-
geirsson skipaaf-
greiðslumaður.
Guðný Björg er að heiman.
Hörður Finnur Magnússon,
Drekavogi 8, geykjavík.
Þorvaldur Friðfinnur Jónsson,
Aflagranda 3, Reykjavík.
Katrín Grímsdóttir,
Steiná III, Bólstaðarhlíðarhreppi.
Guðrún Jónsdóttir,
Lerkihlíð, Hálshreppi.
40 ára
Guðjón Skarphéðinsson,
Árkvörn 2A, Reykjavík.
Jón Gxmnar Harðarson,
Víðiteigi 30, Mosfellsbæ.
Einar Tryggvi Thorlacius,
Ártröð I, Eyjafjarðarsveit.
Kristján Ólafur Hilmarsson,
Foldahrauni 2, Vestmannaeyjum.
Þórunn Hreggviðsdóttir,
Marbakkabraut 38, Kópavogi.
Svanhildur Hrönn Pétursdóttir,
Tunguhálsi, Lýtingsstaðahreppi.
Svanhildur Ágústa Ámadóttir,
Hraunbæ 188, Reykjavík.
Anna Þórey Hallgrímsdóttir,
Karlsrauðatorgi 19, Dalvík.
Ásta Margrét Eggertsdóttir,
Hjarðarlundi 7, Akureyri.