Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1995, Qupperneq 28
44
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1995
Kvenfólk minntist Kvennafrí-
dagsins í gær.
Skammtaðir
molar
„Það vantar róttæka kvenna-
hreyfingu sem neitar stöðnuðu
ástandi, sem neitar skömmtuð-
um molum.“
Birna Þórðardóttir, í Alþýðublaðinu.
Launamál hafa ekki
breyst
„Á tuttugu árum hefur ekkert
breyst í launamálum kynjanna.
Ekki neitt."
Steinunn V. Óskarsdóttir, í DV.
Ummæli
Ekki komið réttlæti
„Það er ekki sanngjarnt að að
það séu níu karlar og ein kona í
ríkisstjórn."
Gunnhildur Jónatansdóttir, 9 ára, í Al-
þýðublaðinu.
Skemmtileg vitleysa
„Það skemmtilega er að álverð
mun hafa hækkað á föstudaginn,
en ekki lækkað eins og fram kom
í Morgunblaðinu."
Finnur Ingólfsson, í Tímanum.
Fangi í fangelsi
„Ef maður þorir ekki að vera
innan um annað fólk þá er mað-
ur eins og fangi í fangelsi."
Jóhann Ingi Gunnarsson, í DV:
Stórrán eru ekki algeng nú til
dags enda öryggisgæsla mikil.
Mestu rán
sögunnar
Mesta rán sem sögur fara af
var þegar Ríkisbanki Þýskalands
var rændur í upplausninni í
stríðslokin (í apríl og maí 1945).
Meðal þeirra sem bendlaðir voru
við ránið voru bandarískir her-
menn. Fyrst voru birtar upplýs-
ingar um þetta rán I heimsmeta-
bók Guinness árið 1957 en banda-
ríska varnarmálaráðuneytið
taldi þær upplýsingar „ósannað-
an áburð“. Það var ekki fyrr en í
Blessuð veröldin
bókinni Nasistagull (Nazi Gold),
sem kom út 1984, að sagt var frá
ráninu í smáatriðum en höfund-
ar voru Ian Sayer og Douglas
Botting og þar var talið að verð-
mæti þýfsins hafl verið allt að
2.500 milljónir punda á núgild-
andi verðlagi.
Rán á listaverkum
Mona Lisa hefur aldrei verið
metin til fjár en deila má um
hvort hún kunni að vera verð-
mætasti gripur sem stolið hefur
verið fyrr og síðar. Hún hvarf úr
Louvre í París 21. ágúst 1911, en
kom aftur í leitirnará Ítalíu 1913
þegar Vincenzo Peruggia var
ákærður fyrir að hafa stolið
henni.
Ofsaveður á Norðurlandi
Norðaustan hvassviðri eða storm-
ur með slyddu eða rigningu um
landið norðanvert fram eftir morgni
en sunnan til verður vindur víðast
hægari og þurrt. Um og fyrir hádegi
bætir enn í vind. Norðaustan og
norðan ofsaveður og jafnvel fárviðri
Veðrið í dag
á Norðurlandi og síðdegis einnig á
Vestfjörðum og við Breiðafjörð. Suð-
vestanlands verður norðan stormur
en suðaustan og austan til er útlit
fyrir tiltölulega hægan vind. í nótt
dregur víðast hvar lítið eitt úr veð-
urhæð. Á höfuðborgarsvæðinu
verður norðaustan stinningskaldi
fram eftir degi, en síðan allhvöss
eða hvöss norðanátt. Úrkomulaust
að mestu. Hiti 2 til 4 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 17.36
Sólarupprás á morgun: 8.50
Síðdegisflóð í Reykjavík: 19.02
Árdegisflóð á morgun: 7.24
(Stórstreymi)
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri slydda 1
Akurnes alskýjaö 5
Bergsstaöir slydda 1
Bolungarvik slydda 0
Egilsstaöir haglél 0
Grímsey slydda 0
Keflavíkurflugvöllur hálfskýjaö 3
Kirkjubœjarklaustur alskýjaö 4
Raufarhöfn rigning 1
Reykjavíit léttskýjaö 3
Stórhöföi skýjaó 3
Helsinki þokumóda 8
Kaupmannahöfn þokumóöa 9
Ósló þokumóöa 11
Stokkhólmur þokumóöa 9
Þórshöfn rigning 7
Amsterdam skúr á síö.klst. 15
Barcelona þokumóóa 17
Chicago heiöskírt 1
Frankfurt þokumóöa 5
Glasgow skýjaö 9
Hamborg heiöskírt 7
London léttskýjaö 11
Los Angeles heiöskírt 17
Lúxemborg skýjaö 13
Madríd alskýjaó 15
Mallorca skýjaö 15
New York heióskirt 5
Nice léttskýjaö 12
Nuuk snjókoma -2
Orlando léttskýjaö 22
Valencia þokumóöa 17
Vín léttskýjað 3
Winnipeg alskýjaö 4
Vilhjálmur Einarsson, fyrrum skólastjóri og íþróttakappi:
Er svo vanur að vera númer tvö
Vilhjálmur Einarsson.
Einn frægasti íþróttakappi sem
við íslendingar höfum átt er tví-
mælalaust þrístökkvarinn Vil-
hjálmur Einarsson sem vann til
silfurverðlauna á ólympíuleikun-
um í Melbourne árið 1956 og átti
mikilli velgengni að fagna á
íþróttasviðinu þar til hann hætti
að keppa árið 1962. Það hafa sjálf-
sagt margir beðið eftir því að Vil-
hjálmur segði frá íþróttaferli sín-
um í bók. Nú er sú bið á enda því
að í næsta mánuöi er væntanleg
frá honum bókin Silfurmaðurinn
þar sem hann rekur íþróttaferil
sinn, ásamt því sem hann leggur út
frá íþróttaþjálfun. í stuttu spjalli
Maður dagsins
var Vilhjálmur fyrst spurður af
hverju hann hefði ekki skrifað
þessa bók fyrr:
„Það má segja að ég hafi ekki
gefið mér tíma til að setjast við
skriftirnar fyrr en fyrir tveimur
árum þegar ég hætti sem skóla-
stjóri. En ég fór fyrst alvarlega að
hugsa um að skrifa bókina úti í
Svíþjóð fyrir nokkrum árum þegar
ég var við nám í uppeldis- og
kennslufræðum. Þar tók ég kúrs í
uppeldisfræði íþrótta. Það var eins
og ég færi fjörutíu ár aftur í tím-
ann þegar ég fór að lesa um hvað
væri á bak við þjálfun og afrek og
setti mig ósjálfrátt inn í þá mynd.
Þetta rak á eftir mér að gera þessu
skil í bók og um leið skýra frá
hvemig aðstaðan vap þegar ég var
að byrja, miðað við hvernig hún er
nú.“
Vilhjálmi er mjög hugleikið efni
böm í íþróttum og telur að það eigi
ekki að etja börnum of fljótt út í
eina íþróttagrein, það verði að
leyfa þeim að ráða, gefa þeim tæki-
færi til að velja sjálf: „Reyndin er
oft sú að það eru foreldrarnir sem
velja íþróttagrein fyrir bamið sitt.
Hæfileikar barnsins geta legið í
annarri íþrótt, en skipulagið í hin-
um ýmsu greinum er það gott að
oft er það svo að nemandinn ánetj-
ast vissri íþróttagrein vegna þess
að hann kynnist ekki öðrum grein-
um.“
Vilhjálmur segir að hápunktur
bókarinnaer sé silfurstökkið í Mel-
bourne: „Ég hélt nokkuð nákvæma
dagbók á þessum tíma og ég læt
það fara í bókina eins og ég skrif-
aði það þá.“ Vilhjálmur gefur út
bókina sjálfur en hann stofnaði
bókaútgáfú á Egilsstöðum í fyrra
og hefur gefið út eina bók,
Magisterinn, sem er listaverkabók
og ævisaga um líf og list Steinþórs
Eirikssonar: „Silfurmaðurinn er
önnur bókina sem ég gef út og það
á vel við að þetta sé bók númer tvö
hjá mér, ég er svo vanur að vera
númer tvö.“
Myndgátan
Liggur á liði sínu
I
Heil umferð í 1.
deildinni í handbolta
íslandsmótið í handbolta hefur
farið vel af stað og margir spenn-
andi leikir verið háður í 1. deild
karla. í kvöld fer fram heil um-
ferð og verður stórleikurinn
sjálfsagt á Akureyri þar sem hin-
ir ósigruðu KA-menn taka á móti
Stjörnunni. Verður róðurinn
sjálfsagt erfiður fyrir Garðbæ-
ingana. 1 Laugardalshöllinni
leikur KR gegn Víkingi, annar
íþróttir
stórleikur verður í Kaplakrika
þegar FH-ingar taka á móti ís-
landsmeisturum Vals, ÍR leikur
gegn Selfyssingum í Árbænum, á
Seltjarnarnesi leikur Grótta
gegn Haukum og í Vestmanna-
eyjum leika heimamenn í ÍBV
við Aftureldingu.
Skák
Stórstjömur skákarinnar sitja nú
að tafli á alþjóðlegu móti í Horgen í
Sviss. Meðal þátttakenda eru
Kasparov,' Kortsnoj, Ivantsjúk,
Short, Júsupov og Timman.
Þessi staða er úr fyrstu umferð
mótsins. Vaganjan hafði svart og
átti leik gegn Timman:
33. - Rxh4! 34. Bxh4 Hf4
Endurheimtir manninn með
vöxtum og verðbótum. 35. Bxe6+
Bxe6 36. Bg3 Hg4 37. Re2 Bxg5+ 38.
Kdl h5 og Vaganjan vann létt. Skák-
inni lauk með 39. Hfl h4 40. Bf4 Be7
41. Be3 g5 42. Kel Bd5 43. Hgl Hxgl+
44. Rxgl Kf7 og Timman gafst upp.
Jón L. Árnason
Bridge
Sveitir Kínverja og Frakka mættust í
fjórðungsúrslitum í opnum flokki á HM í
bridge í Peking. Sá leikur þótti mjög
spennandi allt til loka og vakti mikla at-
hygli heimamanna sem höfðu aldrei áður
komist svo langt í heimsmeistarakeppni í
bridge. Þegar staöan í leiknum var 193-
184 fyrir Kínverja og tvö spil eftir af
leiknum kom þetta spil upp á tjaldið í
sýningarsalnum. Sagnir gengu þannig í
opnum sal, suöur gjafari og enginn á
hættu:
* 7543
«* G10
•+ 87654
4 109
* DG6
V 853
♦ D2
4 K8653
N
V A
S
4 ÁK8
«4 ÁD942
♦ 93
4 D74
4 1092
«4 K76
4 ÁKG10
4 ÁG2
Suður Vestur Norður Austur
Lebel Xu Cronier Hu
1G pass 3G p/h
Cronier ákvað að láta vaða i 3 grönd á
sína 8 punkta við 15-17 punkta grandi
Lebels. Xu byrjaði ágætlega í vörninni
þegar hann spilaði út hjartagosa. Lebel
var fljótur að spila spilið. Hu setti lítið
spil, Lebei drap strax á kóng, tók lauf-
kóng og svínaði laufgosa. Þegar það gekk
voru slagirnir allt í einu orðnir 10 tals-
ins. Á hinu borðinu opnaði Kínverjinn
Shao á einu grandi en Kínverjinn Rong
ákvað að skora aðeins á félaga sinn í tvö
grönd. Shao leist ekkert á spilið og pass-
aði. Útspilið var það sanja á þessu borði,
hjartagosi sem austur gaf. Kínverjinn
Shao tók á kónginn og íhugaöi möguleik-
ana í spilinu. Til greina kom að taka lauf-
svíninguna en ef hún mistækist myndu
tvö grönd fara niður. Hinn möguleikinn
var sá að sækja sér spaðaslag og treysta
á aö hjartað iægi 4-3. Kínverjinn spflaði
upp á þann möguleika en fór niður þegar
vörnin tók 4 slagi á hjarta og 2 á spaða og
Kínveijar töpuðu 10 impum á spilinu.
Lokatölur leiksins voru 196-193 fyrir
Frakka sem komust í undanúrslitin.
ísak Örn Slgurðsson