Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1995, Blaðsíða 32
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1995.
Lmrrm
alltaf á
Miðvikudögnm
Litla
merkivélin
Loksins
með Þ ogÐ
1.7 1 J
Nýbýlavegi 28-sími 554-4443
MUNIfi NÝTT SÍMANUMER
MUNIÐ NYTT SIMANUMER
glórulausri hríðinni
„Við sjáum enn ekkert hvemig
ástandið er hér í hlíðinni íyrir ofan
bæinn. Það er glórulaus hrið og
varla að það sjáist í næsta hús og
: spáin er slik að það rofar kannski
ekki til fyrr en á laugardag," sagöi
Snorri Hermannsson hjá almanna-
varnanefndinni á ísafiröi í samtali
við DV í morgun.
Þá hafði enn ekki gefist færi á að
meta hve miki) hætta var á snjó-
flóðum á ísafirði, Hnífsdal og á
Flateyri þar sem snjó hefur kyngt
niður í gær og nótt. Ástandið er
mun skárra í Súðavík og Bolungar-
vik enda ekki talin veruleg snjó-
flóðahætta þar í norðaustanátt
Spáð er að vindur snúist til norð-
urs með fárviðri i dag og eru menn
við öllu búnir á norðanverðum
Vestfiörðum.
Um 60 manns i 16 húsum urðu í
gær að rýma hús sín á ísafirði og
í Hnífsdal. Flest húsanna eru í
Hnífsdal þar sem snjóflóðahætta
er veruleg í þessari átt.
„Þetta minnir óþægilega mikið á
síðasta vetur. Það er sama staða
uppi í veðrakerfunum og fólk er
pirrað á að það virðist ekkert lát
ætla að verða á vandræðum hér,“
sagði Snorri.
A Flateyri urðu um 30 manns að
yfirgefa hús sín. Alls voru rýmd 11
hús efst í bænum en ekki var búið
í nokkrum þeirra vegna snjóflóða-
hættu. í morgun var ekkert vitað
um ástandið í hiíðinni en iitið snjó-
flóð féll þar í gær. Það stöðvaðist á
snjóflóðavörn.
„Það sem gerðist í fyrravetur
sýnir hvað getur gerst og því fara
menn . úr húsunum nu þótt þaö
hefði ekki veriö gert áður. Þetta er
eins og rússnesk rúlletta," sagði
Magnea Guömundsdóttir, oddviti á
Flateyri, en hún er meðal þeirra
sem flutti sig af hættusvæðinu í
Almannavarnanefndir á flestum
stöðum á norðanverðum Vestfiörö-
um koma saman um hádegið í dag
og meta stöðuna. Ekki er búist viö
að þeir sem hafa orðið að yfirgefa
heimili sin flytji heim fyrr en veðr-
inu slotar, hugsanlega ekki fyrr en
um helgi.
-GK
LOKI
Ég á líka úr!
FR ÉTTAS KOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í
síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er
notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
SigluQöröur:
Þakiðfóraf
hótelinu
Þakið fauk alveg af Hótel Læk á
Siglufirði í aftakaveðrinu í gær-
kveldi. Þá urðu víðar skemmdir á
húsum, jámplötur fuku af og gluggar
brotnuöu.
í morgun var búið að hemja flest
lausadót á flugi um bæinn en spáð
er nýju áhlaupi í dag. Er lögreglan
og björgunarsveitin því í viðbragðs-
stöðu.
Einn bátur fauk og framrúður í
tveimur bílum brotnuðu. Verst var
ástandið eftir klukkan níu í gær-
kveldi og fór ekki að slota fyrr en
komið var fram á nótt.
Lögreglan varð að sinna 25 útköll-
um vegna veðursins og voru björg-
unarsveitarmenn og í önnum alla
^ nóttina. -GK
ÞingVMSÍ:
Dómstóla-
leiðin eng-
in lausn
- sagðiBjömGrétar
Þing Verkamannasambandsins var
sett í gærkvöld að Hótel Loftleiðum.
Björn Grétar Sveinsson, formaður
sambandsins, sagði meðal annars í
setningarræðu sinni að ekkert hefði
breyst frá því að framkvæmdastjóm
VMSÍ ályktaði í Vestmannaeyjum á
dögunum að segja beri upp kjara-
samningum. Að vísa uppsögn kjara-
samninga til Félagsdóms leysti eng-
an vanda. Á hvorn veg sem úrskurð-
ur hans yrði sæti deilan eftir óleyst.
Þess vegna ættu menn að setjast nið-
ur strax'að loknu þingi Verkamanna-
sambandsins og hefia samningavið-
ræður.
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ,
sagði í ávarpi sínu að hvemig sem
Félagsdómur dæmdi væri trúnaðar-
brestur orðinn milli verkalýðshreyf-
ingarinnar annars vegar og vinnu-
veitenda og ríkisvalds hins vegar.
Aðilar kæmust ekki hjá því að setj-
ast niður og semja upp á nýtt.
Wall Street Joumal:
Ólafi vikið úr
starfi hjá Sony
Samkvæmt heimildum hins virta
dagblaðs Wall Street Joumal var
Ólafi Jóhanni Ólafssyni vikið úr
starfi sem forstjóri Sony Interactive
Entertainment í Bandaríkjunum eft-
—i ir nokkurra mánaða átök við for-
ráðamenn Sony í Japan um verð-
lagningu á vinsælum tölvuleik. Blað-
ið segir Ólaf hafa haft sigur með
verðlagninguna en misst starfið fyrir
vikið. Sony hefur ráðið nýjan for-
stjóra í hans stað en blaðið segir Ólaf
annan forstjóra hjá Sony í Banda-
ríkjunum sem missi starfið vegna
svipaöra átaka við Japani.
Ólafur Jóhann var ráðinn í annað
starf hjá Sony í Bandaríkjunum. í
samtah við DV á dögumun lýsti Ólaf-
ur því yfir að um stöðuhækkun hefði
verið að ræða með ráðningu hans
sem stjómarformanns fyrirtækis
sem hefði yfir að ráða því fyrirtæki
semhannstýröiáður. -bjb
ísafjörður:
Manni bjargað
úrhöfninni
Maður var hætt kominn í höfninni
á ísafirði í nótt þegar hann féll milh
skips og bryggju. Var hann að fara
um borð í bát um klukkan þijú í
nótt þegar óhappið varð.
Skipverjar á nærhggjandi skipi
heyrðu hróp í manninum og náðu
að kasta til hans bjarghring. Var
hann síðan hífður upp með krana og
mátti ekki tæpara standa.
Aö sögn lögreglu var maðurinn öl-
^ vaður og það með óveðrinu í nótt er
tahnorsökslyssins. -GK
Veðriöámorgun:
Hvassviðri
eða stormur
Á morgun verður norðaustan
hvassviðri eða stormur norðan-
lands og vestan en mun hægari
um austan- og suðaustanvert
landið. Snjókoma, slydduél eða
kalsarigning norðvestan- og
norðanlands en annars úrkomu-
lítiö.
Hiti 0 til 5 stig.
Veðrið í dag er á bls. 44
I stríði, eins og nú er hafið milli verkalýðshreyfingarinnar og vinnuveitenda, þykir mikilvægt að gererálar stilli
saman klukkur sínar svo þeir séu samstiga. Hér stiHa þeir klukkurnar saman Björn Grétar Sveinsson, formaður
VMSÍ og Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, við setningu þings VMSÍ í gærkvöld. DV-mynd GVA