Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Side 2
2
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1995
Fréttir _______________________________________________________________________________pv
Flateyringar flölmenntu á borgarafund í gærdag:
Hægt að koma upp þrem
sumarhúsum á 10 dögum
Reynir Traustason, DV, Flateyri:
Nokkur hundruð manns mættu á
borgarafund á Flateyri í gærkvöld.
Þar gerðu forráðamenn sveitarfé-
lagsins íbúunum grein fyrir fyrstu
ráðstöfununum í kjölfar snjóflóðsins
sem grandaði 20 manns í síðustu
viku. Mikill samhugur er meðal Flat-
eyringa, þrátt fyrir hið mikla áfall,
að hefja þegar uppbyggingu.
Fram kom í máh Magneu Guð-
mundsdóttur oddvita að grunnskól-
inn yrði starfræktur í tvennu lagi.
Annar hluti yrði í húsi Verkafýðsfé-
Reykjavlk:
Búiðaðút-
vega Flat-
eyringum
tólf ibúðir
Að sögn Bjama Kristjánssonar
hjá Rauða krossi íslands hefur
gengiö vel að útvega húsnæöi á
höfuðborgarsvæðinu fyrir þá
Flateyringa sem þess hafa óskað.
Frá því á fostudag hafa komið
óskir um 12 fbúðir og sagði Bjarni
að þeim ætti eftir að fjölga.
Bjami sagði framboð af hús-
næði meira en nóg. Einstaklingar
hefðu boðið fram íbúðir, sömu-
leiðis verkalýðsfélög með orlofs-
íbúðir og félagsmálaráöuneytið.
Þá hafa Flateyringar fengið inni
á Hótel Lind við Rauðarárstíg
sem er í eigu Rauða krossins.
-bjb
Flateyri:
Fiskvinnslan
ígangídag
Reynir Traustason, DV, Flateyri:
Fiskvinnsla hefst hjá Kambi hf.
á Flateyri í dag, aðeins þremur
dögum eftír aö snjóflóðiö féU á
staðinn. Hinrik Kristjánsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
sagðí á fundi með íbúum Flateyr-
ar að áríðandi væri að hjól at-
vinnuiifsins færu aö snúast og
lífiö færi í fastar skorður á ný.
Um 40 tonn af óunnum fiski
voru í Kambi þegar snjóflóðiö féll
og nú er tekiö til við að bjarga
aflanum ft-á skemmdum. Nýlega
tvöfaldaði fyrirtækið kvótaeign
slna.
Akureyri:
Óvenjurólegt
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það er óhætt aö segja að helgin
hafi verið óvenjuróleg hér í bæn-
um og þótt það sé ágiskun þá sefja
menn þaö f samband viö hina al-
varlegu atburði sem áttu sér stað
í síðustu viku,“ sagöi1 varðstjóri
hjá lögreglunni á Akureyri í gær.
Sem dæmi um rólegheitin gisti
enginn fangageymslu lögregl-
unnar í fyrrinótt og aðeins tveir
nóttina áöur. Óvenjuíáir voru á
öldurhúsum bæjarins og í miö-
bænum eftir að þeim var lokað.
- leikskóli og grunnskóli taka til starfa í dag
lagsins Skjaldar en hinn hlutinn í
bókasafni staðarins. Þá kom fram að
leikskólinn, sem er á svæði næst
rústunum, hefði verið færður í íbúð-
arhúsið að Hafnarstræti 13. Þar með
verður bæði grunnskóli og leikskóh
starfræktir á svæði fjarri hörm-
ungasvæðinu. Tvær fóstrur munu
koma á vegum Sambands íslenskra
sveitarfélaga til að annast rekstur
leikskólans. Sem stendur eru um 20
böm á Flateyri en það er aöeins
þriðjungur þess fjölda sem var fyrir
snjóflóðið.
Magnea sagði að þegar hefði verið
hafist handa við uppbyggingu á
staðnum. „Það er mögulegt að koma
upp þremur sumarhúsum á staðnum
innan 10 daga. Það fyrsta sem þarf
aö gera er að kanna alla möguleika
til uppbyggingar,“ sagði Magnea.
Kristján J. Jóhannesson sveitar-
stjóri gerði grein fyrir því hvað hefði
þegar verið gert. Hann sagði að bens-
ínstöð ESSO, sem flóðið lagði í rúst,
yrði endurreist neöst á eyrinni og
tilbúin á miðvikudag. Þá sagði hann
aö ný innkeyrsla á staðinn væri í
sjónmáli og strax yrði hafist handa
viö hana. Þar er um að ræöa garð
sem lagður verður yfir sjóinn og
tengir smábátahöfnina við þjóðveg-
inn skammt innan þess staðar þar
sem bensínstöðin stóð áður. Gamla
innkeyrslan er á kafi undir snjó og
braki sem ekki verður hreyft við að
svo stöddu.
Kristján sveitarstjóri sagði að þeg-
ar heföi verið óskaö eftir nýju skipu-
lagi á Flateyri neöan við Tjamargötu
utan þeirrar byggðar sem varð snjó-
flóðinu að bráð. Það væri mat stjórn-
enda sveitarfélagsins að á því svæði
rúmaðist að minnsta kosti 450 til 500
manna byggð en fyrir snjóflóðiö voru
Strax og snjóflóðahættu var aflýst hófst skipulagt hreinsunarstarf á Flateyri um helgina. Hvert þeirra húsa sem
skemmdist í flóðinu fékk úthlutað gámi og þangað fóru björgunarmenn með persónulega muni fólks í samráði
við eigendur eða tilsjónarmenn húsanna. Hér fer björgunarmaöur klyfjaður pokum í einn gámanna, sem alls voru
um 20, uppi við smábátahöfnina á Flateyri. DV-mynd GVA
Hreinsunarstarf á Flateyri:
Reynt að koma í veg fyrir
sömu mistök og í Súðavík
- segir Benedikt Alfonsson í neyðarsveit slökkviliðsins
Reynir Traustason, DV, Flateyri:
„Margir okkar voru í Súðavík og
við reynum að koma í veg fyrir að
gera sömu mistök og þar urðu,“ seg-
ir Benedikt Alfonsson, varðstjóri
Slökkviliðsins í Reykjavík.
Benedikt er einn 15 manna úr neyð-
arsveit slökkviliðsins sem nú eru að
vinna aö því að bjarga persónulegum
eigum þeirra sem áttu hús í snjóflóð-
inu á Flateyri.
Hann vitnar þama til þess að
hreinsunarstarf í Súðavík var mjög
gagnrýnt af mörgum þeirra sem áttu
eigur sínar í snjóflóðinu þar. Berg-
sveinn segir að nú veröi húseigendur
aö fylla út eyðublöð þar sem þeir
heimila leit í rústum húsa sinna eða
tilgreina umsjónarmenn sem fylgist
með leit og flokkun persónulegra
muna.
rúmlega 400 manns á staðnum. Hann
sagði aö á staðnum væru 5 til 10 íbúð-
arhús sem stæðu auð og þörfnuðust
ekki mikilla lagfæringa. Nú stæði
yfir könnun á því hver þörfin væri
fyrir íbúðarhúsnæöi. Sveitarstjórn
Flateyrarhrepps hefur óskaö eftir því
að þegar veröi gert nýtt hættumat
fyrir staðinn. Þá hefur sveitarstjórn-
in óskað eftir því að Holtsbryggja
verði endurbyggð með tilliti til ör-
yggis íbúanna ef slys ber að höndum.
Eyjafiarðarsveit:
Ók á hross
ogútaf
Gylfi Kriatjánsson, DV, Akureyri:
Fólksbifreið valt á veginum við
Melgerðismela í Eyjafjarðarsveit
á laugardagskvöld en bifreiðin
hafði ekið á hross sem var í hópi
fleiri hesta á veginum.
Ökumanninum tókst að afstýra
því að lenda í hrossahópnum en
rakst utan í eitt hrossiö með þeim
afleiðingum að hann missti stjóm
á bifreiöinni sem valt út fyrir
veginn. Engin meiðsl urðu á fólki
i bifreiöinni. Lausaganga hrossa
í Eyjafjaröarsveit er bönnuð.
Stuttar fréttir
Læknirtil Bosníu
Utanríkisráðuneytið hefur
ákveðið að HaUdór Baldursson
bæklunarskurðlæknir fari til
starfa i heilsugæslusveit norska
hersins í Bosníu-Hersegóvinu
næstu sex mánuði. Áætlað er aö
tveir íslenskir hjúkrunarfræð-
ingar fari þangað á næsta ári.
Landsfundifrestað
Vegna hörmunganna á Flateyri
hefur verið ákveðið að fresta
landsfundi Sjálfstæöisflokksins
sem vera átti um næstu helgi.
Fundurinn verður í mars eða
apríl á næsta ári.
Bræðsla í Þoriákshöfn
Forráðaraenn Vestdalsmjöls og
Hafnarmjöls hafa að undanfomu
verið í viðreeðum um byggingu
stórrar loðnubræðslu í Þorláks-
höfn. Stöð 2 greir.di frá þessu.
Stoliðfrá Laxness?
Vangaveltur eru uppi um
hvort franskur rithöfundur hafi
stolið efni úr íslandsklukku Hall-
dórs Laxness í nýútkominni bók
sinni. Samkvæmt frétt RÚV ætla
forráöamenn Vöku-Helgafells aö
kanna hvort svo sé.
SilfurhjáÆvari
Enskur silfurpeningur hefur
greinst úr pyngju Ævars frá
Skriðdal, kumlbúans sem fannst
í sumar í samnefndum dal á Aust-
urlandi. Ríkissjónvarpið greindi
fráþessu. -bjb