Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Síða 6
6
MÁNUDAGUR 30. OKTÖBER 1995
Fréttir
Flateyringar snúa heim og huga að rústum húsa sinna:
Það sem heilt er af
dóti okkar f er í gám
- segir Brynjólfur Garðarsson, íbúi við HjaUaveg 4
Reynir Tiaustason, DV, FTateyri:
„Aðkoman hérna er hræðileg, svo
ekki sé meira sagt. Það er mikið brot-
ið af búslóðinni inni í húsinu og að-
eins tveir veggir uppistandandi. Þeir
veggir hafa haldið af einhverjum
óskiljanlegum ástæðum og ef þeir
hefðu gefið sig þá værum við vart til
frásagnar," segir Brynjólfur J. Garð-
arsson sem sneri heim til Flateyrar
frá Reykjavík um helgina.
Brynjólfur, sem bjó ásamt eigin-
konu sinni, Herdísi Egilsdóttur, og
tveimur ungum dætrum aö Hjalla-
vegi 4, slapp ásamt fjölskyldu sinni
og 11 ára bróðursyni þegar snjóflóðiö
mikla lagði hús þeirra í rúst, eins og
fram kom í ítarlegu viðtali við þau í
helgarblaði DV. Þau fóru með varð-
skipi til Reykjavíkur að kvöldi
fimmtudags. Brynjólfur segir að
kvíðinn fyrir því að snúa aftur til
Flateyrar hafi verið mikill.
„Ég flaug með íslandsflugi og það
var hrikalegt að sjá eyðilegginguna
þegar við flugum yfir svæðið sem
snjóflóðið féll yfir. Mér leið mjög illa
og það lagaðist ekki fyrr 'en ég kom
til Flateyrar,“ segir Brynjólfur.
Þegar DV ræddi viö Brynjólf í gær
var fólk víða að leita í rústum húsa
sinna eftir að hafa í fyrsta sinn eftir
að hörmungarnar dundu yfir fengið
aö fara inn á svæðið. Brynjólfur seg-
ir erfitt aö átta sig á því hvað af per-
sónulegum munum fjölskyldunnar
sé heilt.
„Þaö er erfitt að átta sig á því hvaða
hlutir hafa orðið fyrir rakaskemmd-
um. Við erum með ljósmyndaalbúm
og bækur í sjónvarpsherberginu og
það er hálffullt af snjó. Það má þó
geta þess að styttur, sem við vorum
með uppi á vegg sem stúkaði af borð-
krókinn, hafa ekki haggast þrátt fyr-
ir eyðilegginguna í kring,“ segir
Brynjólfur.
Hann segir að þau hjónin hafi ekk-
ert ákveöið varðandi áframhaldandi
búsetu á staðnum.
„Við setjum það sem heilt er af
dótinu okkar í gám og framtíðin
verður að skera úr um það hvar við
setjumst að. Við munum dvelja í
Reykjavík næstu mánuðina meðan
við erum að ná áttum,“ segir Brynj-
ólfur.
Fremst á myndinni er hluti af einum útvegg hússins númer 3 við Unnarstíg á Flateyri. Þar bjó Eiríkur Finnur Greipsson, fyrrverandi oddviti, ásamt eigin-
konu sinni og tveimur sonum. Þau björguðust öll úr flóðinu. Sömuleiðis bjargaðist öll fjölskyldan úr húsinu við hliðina, Unnarstíg 1, sem var tveggja
hæða með risi. Efri hluti hússins kubbaðist frá neðri hæðinni og fiaut eina 70 metra ofan á snjóflóðinu. Á myndinni sést hvar efri hlutinn staðnæmdist en
í honum voru Guðjón Guðmundsson og Bjarnheiður ívarsdóttir ásamt þremur dætrum sinum. DV-mynd GVA
Húsiðfærðist
um 70 metra
Hetjudáðir unnar hér
- segir Einar Oddur - otrúlegur einhugur og ró, segir Einar Kristinn
„Við erum komin fram úr okkur
ef við förum aö skipuleggja hefidar-
lausn strax. Nú er verið að hjálpa,
líkna og hlúa hvert að öðru. Fólkið
verður allt að fá sinn tíma. Allir okk-
ar bestu sérfræðingar eru hér að
vinna myrkranna á milli í fjallinu.
Þeir munu koma með sínar ályktanir
eins fljótt og auðið er. Fyrr getum
við ekkert sagt. Öll störf hafa gengið
ákaflega vel - það er frábært fólk hér
á öllum vígstöðvum," sagði Einar
Oddur Krisfjánsson, þingmaður frá
Flateyri, í samtali við DV eftir aö
borgarafundi þorpsbúa lauk undir
kvöld í gær.
„Ég legg höfuðáherslu á og við sem
höfum fylgst með frá fyrstu mínútu
og erum dómbær á verkin að afit
starf hér hefur gengið frábærlega.
Hér hafa hetjudáðir verið unnar. Á
borgarafundinum kom fram aö allt
hefur verið sett í gang sem þarf að
gera og það liggur fyrir að við mun-
um hefja vinnslu í frystihúsinu á
mánudag og allir eru að vinna að því
sem þarf að sinna - það eru auðvitað
hundruð þúsunda atriða," sagði Ein-
ar Oddur.
Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður
frá Bolungarvík, sagði að aðdáunar-
vert og lærdómsríkt hefði verið að
sitja borgarafundinn og „finna þann
einhug og þá ótrúlegu ró sem var
yfir íbúunum sem hann sátu.“
„Þessi fundur var mjög gagnlegur.
Samstaðan er mjög mikil hjá íbúun-
um um að vinna að öllu með festu
en taka eitt skref í einu. Ég held að
vinnubrögðin hafi verið eins og best
verður á kosið, ekki síst hjá sveitar-
sfjóminni.
Það er enginn vafi á því að flóðin
í ár breyta óskaplega miklu fyrir
okkur sem búum á Vestíjörðum. En
ég held að við sem hér eigum heima
hugsum eingöngu um að treysta
byggðir á öruggum svæðum," sagði
Einar Kr. Guðfinnsson.
-Ótt
Sandkom
Þcgar fyrst var
fariði svokall-
að„beintflug“
^ fráAkureyri
meðfarþegatil
útlandafyrir
allmörgum
árum hófst
ferðalagiðmeð
„beinnirútu-
ferð“ til
Reykjavíkurvegnaóveðurs nyrðra.
Þaöan var haldið á vit ævintýra í
útlöndum en þegar heim kom aftur
var ekki hægt að lenda á Akureyri
svo ferðalangamir fengu gistingu í
höfuðborginni. Sl. fimmtudagskvöld
komu farþegar úr svona „beinu
flugi“ heim til Akureyrar, en ekki var
nú heimferðin „beinni“ en svo að
þeir komu frá Reykj avik þar sem
þeir höfðu mátt gista 2 eða 3 nætur
eftirheimkomuna því ekki var hægt
áð lehda á Ákureyrí. Var loks brugð-
ið á þaö ráð í borgínni að halda norð-
ur með langferðabifhnð þegar menn
voru orðnir þreyttir á að bíða eftir
ilugi til sínsheima, en ekki gaftil
ílugs noröur vegna veðurs.
»*
skiptingar"
T---: I biaöinu Múia
iölafsfirði var
viðtal\aðl5ára
bæjarbúasem
varaðkomaúr
veiðiferðmeð
togaranum
Mánabergiúr
Smugunru Sjo-
m.umsbloðið : i
ólgaríæöum
unga drengsins sem segist ákveðiim
í að verða sjómaður og hann hefur
þegar tileinkað sér talsmáta þeirrar
stéttar. M.a. segir hann í viðtalinu
að það hafi verið, ,bræla nokkra daga
en bara smá kaldaskitur". Hann seg-
ir einnig að það hafi farið í taugarnar
á sér þegar skipta þurfti um troll:
„Það vom eilífar ifi öfuls skiptingar
milli trolia, flottroll á daginn en
botntroll á nóttunni," sagði kappinn
og bætti við að í skóla vildi hann
ekki, af þeirri einfóldu ástæðu að
hann ætli sér að verða sjómaður.
Fleiri góðir
Vegna tiðra
frásagnaaíáf-
rekumrjúpna-
skyttannaPers
ogKristmund-
arAtlahérí
blaðinuverður
manniáaðætla
aðþeireigisér
fyrirmyndir
þegarþeir
halda til ljalla. Skammt er nefnilega
síðan sunnlenskm fiölmiðlamaður
starfaði á Akureyri um tíma og fór
hann títt til rjúpna ásamt kunningja
sínum sem var aö stíga sín fyrstu
skref í veiöimennskunni. Hóldu þeir
g arnan til fjalla, klyfiaðir alls kyns
tólum og tækjum, og báðir höfðu
m.a. lagt á sigað læra á áttavita svo
þeir týndust ekki á leið til byggða
með feng sinn. En þrátt fyrir mikínn
viðbúnað fengu þeir einhverra hluta
vegna ekki nema eina rj úpu eitt árið
þrátt fyrir 8 veiðiferðir á sama tíma
og aðrir skutu grimmt allt í kringum
þá.
Húnfannst
Rjúpanlétlíf
sittþannigað
fjölmiðlungur-
innsærðihana
ogeltisíðan
Misstihann
sjónaraffugl-
inumen
skömmu síðar
komfélaginná
móti honum með rjúpu í hendinni.
Sagðist hann hafa fundið hana dauða
þar skammt frá. Síðar þennan sama
dag týndist þessi fræga rj úpa þegar
félagi flölmíðiungsins lagði hana frá
sér smástund og fannst hún ekki
þrátt iyrir mikla leit Héldu þeir heim
á leið með höglin í rassinum s vo not-
uð sé samlíking við stangaveiðimenn
sem koma heim öngulsártr. En viti
menn. í næstu ferð á sömu slóðir
varð fengurinn ein rjúpa. Fann fjöl-
miðlungurinn hana dauða skammt
frá þeim stað þar sem þeir höfðu týnt
ijúpunni í ferðinni þar á undan og
nu var fengsins vel gætt.
Umsjón: Gylfi Kristjánsson