Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Síða 7
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1995
7
dv Fréttir
ísfélag
Vestmanna-
eyja kaupir
nótaskip
Ómar Garðaisson, DV, Vestmannaeyjum:
ísfélag Vestmannaeyja hf. hefur
gengið frá kaupum á notuðu nóta-
skipi frá Skotlandi. Skipið, sem heitir
Antares LK-419, er smíðað í Noregi
1980 og síðan lengt árið 1986 og er
nú 58,33 metra langt og 9 metra breitt.
Aö sögn Harðar Óskarssonar fjár-
málastjóra lítur skipið mjög vel út
bæði að utan og innan. „í skipinu er
ný vél, B&W Alpha, 2600 hestöfl, sem
sett var í það í sumar. Antares er
búið sex sjókæhtönkum, alis 950
rúmmetrar og getur borið 1000 tonn
þegar veitt er til bræðslu. Antares
er einnig búið til veiða með flot-
troll,“ sagði Hörður.
Antares verður afhent 1. apríl á
næsta ári en samningurinn er gerður
með fyrirvara um að seljandi fái
veiðileyfi skipsins flutt á annað skip.
Einnig eru nokkrir fyrirvarar af
hálfu ísfélagsins í samningnum.
Kaupverð er rúmar 300 milljónir
króna.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um hvaða skip verður úrelt í stað
Antares og er verið að skoða þau
mál. „Tilgangurinn með kaupunum
er að eignast öflugt skip til veiða á
uppsjávarfiski sem geti skilað góðu
hráefni til manneldis og framleiðslu
á gæðamjöh. Einnig er horft til veiða
á fleiri tegundum en loðnu og síld,“
sagði Hörður að lokum.
Veðurstofan
villjarðskjálfta-
stöðíVest-
mannaeyjum
Ómar Garöaisson, DV, Vestmannaeyjum:
Veðurstofa íslands telur nauðsyn-
legt að koma upp jarðskjálftastöð í
Vestmannaeyjum sem tengist hinu
svonefnda SIL-kerfi sem er nýtt jarð-
skjálftamælikerfi á íslandi sem tengt
er sjálfvirku úrvinnslu- og viðvörun-
arkerfi.
Þetta kom fram á fundi almanna-
varnanefndar fyrr í þessum mánuði
og lagði nefndin áherslu á að nýrri
jarðskjálftastöð yrði komið upp í
Eyjum en vísaði máhnu að öðru leyti
th bæjarstjórnar.
Suöumes:
Óskar f ormaður
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Óskar Gunnarsson, forseti bæjar-
stjómar Sandgerðisbæjar, var kos-
inn formaður Samhands sveitarfé-
laga á Suðurnesjum á fyrsta fundi
nýrrar stjórnar sem haldinn var á
dögunum. Drífa Sigfúsdóttir, forseti
bæjarstjómar Reykjanesbæjar, var
kosin varaformaður. Reykjanesbær
mun eiga formanninn næsta ár og
svo annað hvert ár.
Madntosh Performa 630 er einstök
í sinni röð. Hún nefnilega búinn tveimur
öigjörvum. Hinum öfluga 68LC040 og 66 Mhz
486DX2. Þetta gerir það mögulegt að vinna
jöfhum höndum í hinu vingjamlega Madntosh-
umhverfi og í DOS- eða Windows-umhverfi.
Það er því varia möguleiki að fi tölvu
sem býður uppá meiri samhaefhi milli þessara
ólíku umhverfa. Það tekur aðeins augnablik
að skipta á milli. Einnig er mögulegt að klippa
og líma á milli þeirra eins og ekkert sé.
Macintosh Performa býður líka uppá ein-
staklega fjölbreytta tengimöguleika sem gerir
hana að mjög öflugri maigmiðlunarvél. Með
sérstöku sjónvarpsspjaldi er hægt að horfa á
útsendingar sjónvarpsstöðva á tölvuskjánum.
Macintosh Performa 630 er með
12 megabæta vinnsluminni, 500 Mb harðdiski
14" Apple MultiScan litaskjá og innbyggðu
fjórhraða geisladrifi.
Macintosh Performa 630
Staðgreilt aðeins:
148.000 kr.
Afborgunarverð 155.789 kr.
Apple-umboðið • SkipboIli21 • Sími511 5111
Heimasíðan: bllp:llwww. apple. is
KASTARADAGAR
frá 23. október
til 4. nóvember
mjmg Rafkaup
ARMULA 24 - S: 568 1518 ■
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM KÖSTURUM + STÓRAFSLÁTTUR AF ÁKVEÐNUM TEGUNDUM