Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Síða 11
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1995
11
Fréttir
Sjónvarpsstöðin Sýn semur við Knattspymusamband Evrópu:
Meistarakeppni Evrópuliða
sýnd í beinni útsendingu
- sjónvarpsútsendingar Sýnar heflast í næsta mánuði
„Knattspyrnusamband Evrópu var
að staðfesta samninginn við okkur.
Samkvæmt honum hefur sjónvarps-
stöðin Sýn útsendingarrétt á öllum
leikjum í meistarakeppni Evrópu út
næsta keppnistímabil. Sýn mun því
bjóða upp á toppknattspymu bestu
félagsliða Evrópu,“ segir Páll Magn-
ússon, sjónvarpsstjóri hjá Sýn.
Sýn hefur gert samning við Knatt-
spymusamband Evrópu (IJEFA) um
sýningu á öllum leikjum í nýju meist-
arakeppni Evrópuhða á yfirstand-
andi leiktímabiii, 1994 til 1995, og
næsta leiktímabili, 1996 til 1997. Leik-
irnir eru ekki á íþróttarásum gervi-
hnattastöðvanna því UEFA hefur
gert sambærilega samninga við sjón-
varpsstöðvar í einstökum löndum.
í keppninni mætast 16 meistaralið
í Evrópu, þar af 8 frá bestu knatt-
spymuþjóðum álfunnar. Hin 8 sætin
eru fyllt með sérstakri útsláttar-
keppni. í yfirstandandi keppni hafa
öll 16 liðin tryggt sér sæti. Fjórum
umferðum er lokið en þijár eftir í
undankeppni. Úrshtaleikurinn í yfir-
standandi keppni verður 22. maí
næstkomandi.
Að sögn Páls mun Sýn hefja reglu-
legar útsendingar í næsta mánuði og
munu þær til að byrja með nást um
Páll Magnússon, sjónvarpsstjóri hjá
Sýn.
allt Suðvesturland, frá Akranesi og
suður með sjó. Sendingamar munu
nást á venjuleg sjónvarpsloftnet og
ekki veröur farið að selja áskrift að
stöðinni fyrr en eftir áramót.
Páll segir að nú þegar hafi verið
gengið frá kaupum á margvíslegu
erlendu dagskrárefni, meðal annars
réttur til að sýna myndir sem sýndar
hafa verið í Háskólabíói, Laugarás-
bíói og fleiri kvikmyndahúsum. Þá
verði boðiö upp á ýmsa þætti frá
Bretlandi og Bandaríkjunum. Allt
erlent útsendingarefni verður textað
eða talsett. Aðspurður vill Páll ekki
tjá sig um hvað Sýn ætlar að bjóða
upp á í innlendri dagskrárgerð enda
lægju ákvarðanir ekki fyrir. -kaa
Fyrstog
fremst afþrey-
m w
ingarsjonvarp
„Við munum hefja útsendingar í
nóvember en dagsetningin hefur
ekki verið ákveöin. Frá og með
fyrsta degi munum við bjóða upp á
fjölbreytta dagskrá. Til að byrja
með munum við prófa okkur áfram
en þetta verður fyrst og fremst af-
þreyingarsjónvarp," segir Úlfar
Þórisson, framkvæmdastjóri
Stöðvar 3.
Sjónvarpssendingar Stöövar 3
munu til að byrja með einskorðast
við Suövesturland og nást frá
Akranesi og út á Suðurnes. Ör-
bylgjuloftnet þarf til aö ná útsend-
ingunni en stöðin mun lána bæði
afruglara og loftnet til áskrifenda
án endurgjalds. Til að byrja með
verður dagskráin send út órugluð.
Að sögn Úlfars hefur Stöð 3 gert
samning við alla helstu dreifinga-
raðila á sjónvarpsefni og tryggt sér
sýningarrétt á fjölda kvikmynda.
Þá verði lögö áhersla á gott íþrótta-
efni sem Heimir Karlsson liefur
tekið að sér að skipuleggja fram-
setningu á. Meðal annars verði
vikulega sýndir beint leikir í þýsku
deildakepprdnni í fótbolta og úrval
úr leikjum í spænsku deildinni.
Úlfar segir fyrirhugað að vera
með barnaefni um helgar. Stöðin
muni hins vegar ekki vera með
fréttir og eigin dagskrárgerö. Hins
vegar sé fyrirhugaö að kaupa þætti
af innlendum dagskrárgerðar-
mönnum.
Áskrifendur að útsendingum
Stöðvar 3 munu í kaupbæti fá að-
gang að fjórum gervihnattaútsend-
ingum án þess að borga sérstaklega
fyrir það. Um er að ræða útsend-
ingar MTV, CNN, EuroSport og
Ðiscovery. Hægt verður að horfa á
allar þessar stöðvar í einu með ein-
um afruglara svo fremi að sjón-
varpstæki séu fyrir hendi.
-kaa
á hljómtœhjum
oq oeisladishwm
1ö8&r
1
a1JjlHíSS -—
Enan eingöngu með
úrvals vörumerki!
KENWOOD
Æ
ACOUSTIC
RESEARCH
Z>A LI
Cerwin-Vega!
CARVER
Powerful • Muslcal • Accurato
OMZgfDD
þar sem gceðitt heyrast
Ármúla 17, Reykjavík, sími 568 8840
SÓUVIIUC
BESTU NAGLARNIR - EINGÖNGU HJÁ CONTINENTAL
Continental hefur síðustu ár verið í algerri forystu í þróun
léttari og vistvænni nagla. Þekktir aðilar á Norðurjöndunum
eins og Norska vegagerðin hafa látið gera úttektir og geta
staðfest að nýju Continental naglarnir draga úr sliti á malbiki
sem nemur allt að 60%. Continental, eini
hjólbaiðaframleiðandinn í heiminum sem framleiðir
- ií..MÍ