Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1995 11 Fréttir Sjónvarpsstöðin Sýn semur við Knattspymusamband Evrópu: Meistarakeppni Evrópuliða sýnd í beinni útsendingu - sjónvarpsútsendingar Sýnar heflast í næsta mánuði „Knattspyrnusamband Evrópu var að staðfesta samninginn við okkur. Samkvæmt honum hefur sjónvarps- stöðin Sýn útsendingarrétt á öllum leikjum í meistarakeppni Evrópu út næsta keppnistímabil. Sýn mun því bjóða upp á toppknattspymu bestu félagsliða Evrópu,“ segir Páll Magn- ússon, sjónvarpsstjóri hjá Sýn. Sýn hefur gert samning við Knatt- spymusamband Evrópu (IJEFA) um sýningu á öllum leikjum í nýju meist- arakeppni Evrópuhða á yfirstand- andi leiktímabiii, 1994 til 1995, og næsta leiktímabili, 1996 til 1997. Leik- irnir eru ekki á íþróttarásum gervi- hnattastöðvanna því UEFA hefur gert sambærilega samninga við sjón- varpsstöðvar í einstökum löndum. í keppninni mætast 16 meistaralið í Evrópu, þar af 8 frá bestu knatt- spymuþjóðum álfunnar. Hin 8 sætin eru fyllt með sérstakri útsláttar- keppni. í yfirstandandi keppni hafa öll 16 liðin tryggt sér sæti. Fjórum umferðum er lokið en þijár eftir í undankeppni. Úrshtaleikurinn í yfir- standandi keppni verður 22. maí næstkomandi. Að sögn Páls mun Sýn hefja reglu- legar útsendingar í næsta mánuði og munu þær til að byrja með nást um Páll Magnússon, sjónvarpsstjóri hjá Sýn. allt Suðvesturland, frá Akranesi og suður með sjó. Sendingamar munu nást á venjuleg sjónvarpsloftnet og ekki veröur farið að selja áskrift að stöðinni fyrr en eftir áramót. Páll segir að nú þegar hafi verið gengið frá kaupum á margvíslegu erlendu dagskrárefni, meðal annars réttur til að sýna myndir sem sýndar hafa verið í Háskólabíói, Laugarás- bíói og fleiri kvikmyndahúsum. Þá verði boðiö upp á ýmsa þætti frá Bretlandi og Bandaríkjunum. Allt erlent útsendingarefni verður textað eða talsett. Aðspurður vill Páll ekki tjá sig um hvað Sýn ætlar að bjóða upp á í innlendri dagskrárgerð enda lægju ákvarðanir ekki fyrir. -kaa Fyrstog fremst afþrey- m w ingarsjonvarp „Við munum hefja útsendingar í nóvember en dagsetningin hefur ekki verið ákveöin. Frá og með fyrsta degi munum við bjóða upp á fjölbreytta dagskrá. Til að byrja með munum við prófa okkur áfram en þetta verður fyrst og fremst af- þreyingarsjónvarp," segir Úlfar Þórisson, framkvæmdastjóri Stöðvar 3. Sjónvarpssendingar Stöövar 3 munu til að byrja með einskorðast við Suövesturland og nást frá Akranesi og út á Suðurnes. Ör- bylgjuloftnet þarf til aö ná útsend- ingunni en stöðin mun lána bæði afruglara og loftnet til áskrifenda án endurgjalds. Til að byrja með verður dagskráin send út órugluð. Að sögn Úlfars hefur Stöð 3 gert samning við alla helstu dreifinga- raðila á sjónvarpsefni og tryggt sér sýningarrétt á fjölda kvikmynda. Þá verði lögö áhersla á gott íþrótta- efni sem Heimir Karlsson liefur tekið að sér að skipuleggja fram- setningu á. Meðal annars verði vikulega sýndir beint leikir í þýsku deildakepprdnni í fótbolta og úrval úr leikjum í spænsku deildinni. Úlfar segir fyrirhugað að vera með barnaefni um helgar. Stöðin muni hins vegar ekki vera með fréttir og eigin dagskrárgerö. Hins vegar sé fyrirhugaö að kaupa þætti af innlendum dagskrárgerðar- mönnum. Áskrifendur að útsendingum Stöðvar 3 munu í kaupbæti fá að- gang að fjórum gervihnattaútsend- ingum án þess að borga sérstaklega fyrir það. Um er að ræða útsend- ingar MTV, CNN, EuroSport og Ðiscovery. Hægt verður að horfa á allar þessar stöðvar í einu með ein- um afruglara svo fremi að sjón- varpstæki séu fyrir hendi. -kaa á hljómtœhjum oq oeisladishwm 1ö8&r 1 a1JjlHíSS -— Enan eingöngu með úrvals vörumerki! KENWOOD Æ ACOUSTIC RESEARCH Z>A LI Cerwin-Vega! CARVER Powerful • Muslcal • Accurato OMZgfDD þar sem gceðitt heyrast Ármúla 17, Reykjavík, sími 568 8840 SÓUVIIUC BESTU NAGLARNIR - EINGÖNGU HJÁ CONTINENTAL Continental hefur síðustu ár verið í algerri forystu í þróun léttari og vistvænni nagla. Þekktir aðilar á Norðurjöndunum eins og Norska vegagerðin hafa látið gera úttektir og geta staðfest að nýju Continental naglarnir draga úr sliti á malbiki sem nemur allt að 60%. Continental, eini hjólbaiðaframleiðandinn í heiminum sem framleiðir - ií..MÍ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.