Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1995
15
Frægðarþreyta
„Engin lögmál halda... Meira að segja Elísabet Taylor er hafnað þegar hún
kemur til snyrtivörufyrirtækis og vill selja síðustu lyktina sem hún hefur
komið sér upp.“
Fyrir nokkrum árum var sú
kenning borin fram að í fjölmiðla-
heimi okkar tíma gæti hver og
einn átt von á því að verða heims-
frægur í kortér. Þessi spá hefur
ekki ræst. Stjörnukerfið og mark-
aðurinn vilja ekki alltof mörg
nöfn. Aðeins fáein merki, nokkur
nöfn. Annars verður svo þröngt á
þingi að sjálft frægðarkerfið getur
hrunið.
Frægðin er alæta
Frægðin er næsti bær við
Himnaríki eins og allir fjölmiðla-
notendur vita. Þó er frægðin bæði
hlutskipti réttlátra og ranglátra.
Hún fæst fyrir afrek og glæp og til-
viljun og tóma vitleysu. Frægðin
fæst fyrir mikinn skáldskap og
löng læri og mjótt mitti og
hjásofelsi í frægu rúmi, glæsileg
fótboltamörk og yfirþyrmandi fjár-
málafrekju, gífurlegan gróða og
feikilegt tap. Fyrir að spila á flygil
og fyrir að jafnhatta flygil og
hlaupa með hann út af sviðinu.
Twiggy var mesta rengla heims,
Madonna kjaftforasta söngkona
heims, O.J. Simpson er ríkasti eig-
inkonukvalari heims, íslensk kona
ólétt eftir frænda Noregskonungs.
Frægðin er oftast í fylgd með
velgengni og miklum peningum og
það eru þeir sem jafna út allan
greinarmun á tilefnum frægðar.
Auður snjalla gjörir alla! Og því er
það tíska og siður að þeir sem vilja
frama, til dæmis í stjórnmálum,
reyna sem mest þeir mega að
„klessa sér upp við þá sigursælu",
eins og Amríkanar segja, komast
inn í ljómann af frægðarfólki hvað
sem það tautar og raular. Sjást í
þess fylgd.
Eða svona hefur það verið.
Nú er nóg komið
Fyrir nokkru átti norski fiski-
ráðherrann fund með Emmu Bon-
ino, framkvæmdastjóra fiskveiða.
EB, þar sem hann bauð ESB upp á
samninga um veiðar í „Norska
hafinu" og er gert ráð fyrir að við-
ræður um slíka samninga geti haf-
ist fljótlega. Af góðvild sinni og lít-
illæti tók sá norski um leið fram
að íslendingar ættu engan rétt til
veiða í Smugunni.
Upplýst er að íslendingar veiða
yfir 90% af afla í Smugunni í
flottroll (karfatroll með 135 mm
riðil), sem bannað er að nota á
þorsk við ísland, og að Norðmenn
banna alla veiði með flottrolli í
norskri fiskilögsögu. Norðmenn
hafa í huga að banna alla veiði í
flottroll í Smugunni og beita til
þess „íslensku tillögunni" um að
strandríki eigi rétt á að banna
önnur veiðarfæri en þau sem not-
uð eru í fiskilögsögu viðkomandi
lands.
Islenskir útgerðarmenn mega
því gera ráð fyrir að þetta komi til
framkvæmda mjög fljótlega, þótt
stríðshetjurnar á Þórshöfn segi að
þeir geti ekki gert þetta fyrr en í
desember, eða eftir þrjá mánuði.
Engin viðbrögð hafa komið fram
af hálfu íslenskra stjórnvalda sem
ekki hafa einu sinni grett sig fram-
an í áhorfendur í sjónvarpinu, svo
sem oft er.
Kjallarinn
Árni Bergmann
rithöfundur
og frægðin sé ofkeyrð og dösuð.
Hvunndagsfólkið er búið að fá nóg.
Að vísu eru Amríkanar enn iðnir
við frægðarkolann, sem og íslend-
ingar, en Bretar til dæmis, sem
eiga fræknustu frægðarslúðurblöð
í heimi, þeir eru orðnir þreyttir á
öllu saman.
Aðdáunin fyrirvaralausa er á
flótta. í staðinn heyrast stunur og
kvörtunarbréf: æ, erum við ekki
búin að heyra nóg af leikaranum
og hórunni, af því hvort Díana
prinsessa er fórnarlamb eða mann-
æta, af holdafari Fergie sem hefur
lést um helming, æ, varðar mig
um það hvort einhver gaur vill
sjúga tána á Madonnu í beinni út-
sendingu?
Ekki nóg með að fólk sé þreytt,
það gerist illkvittið, það beinlínis
fagnar því þegar eitthvað fer úr-
skeiðis í stjörnuheimi. Menn
hugsa ekki lengur: aumingja ríka
stelpan, vesalings þotuliðið, þetta
eru nú manneskjur eins og við.
Menn segja: gott á pakkið! Svona
Kjallarinn
Önundur Ásgeirsson
fyrrv. forstjóri Olís
Norðmenn og Spánverjar
Nú hafa Spánverjar tekið við
formennsku í ESB og af því tilefni
gekk utanríkisráðherra Noregs,
Björn Tore Godal, á fund starfs-
bróður síns, Javier Solinas, í Ma-
drid hinn 19. þ.m. til að bjóða fram
samstarf Noregs við ESB, einkum
á sviði fiskveiða, sjá DV 20. sept.
Sá spænski tók honum fagnandi,
enda hafa Spánverjar 650 út-
hafsveiðiskip á lausu og í aðgerða-
leysi eftir að þeim var vísað úr
er ósvífnin mikil í heiminum. Það
hefur gerjast einhver þörf fyrir
hefnd, fyrir útrás handa leiðanum
og ergelsinu sem fylgir því að það
er ekki flóafriður fyrir frægð,
hvert sem litið er í blað eða á skjá.
Minna er betra
Engin'lögmál halda. Ekki heldur
það að mikið vilji meira, frægðin
kalli á meira um frægðarfólk. Það
er til eitthvað sem heitir offylli.
Minna er betra, hugsið ykkur ann-
að eins. Meira að segja Elísabet
Taylor er hafnað þegar hún kemur
til snyrtivörufyrirtækis og vill
selja síðustu lyktina sem hún hef-
ur komið sér upp. Meira að segja
eitt helsta slúðurblað Bretlands
fiskilögsögu Marokkó frá 1. maí sl.
„Noregur er hluti af Evrópska
efnahagssvæðinu og því eðlilegt að
samvinna verði aukin, sérstaklega
á sviði sjávarútvegsmála . . .“
sagði Solinas. „Okkur finnst rök-
rétt að þróa samvinnu á einstök-
um sviðum, en eftir er að ákveða
hvernig þeirri samvinnu verður
háttað. En við erum mjög ánægðir
með þær jákvæðu móttökur sem
óskir okkar hafa fengið hjá Spán-
verjum,“ sagði Godal. Hér bætir
DV réttilega við: „Hann leynir því
ekki að tilgangurinn með aukinni
samvinnu er að hafa áhrif á stefnu
ESB í fyrrnefndum málaflokkum,
ekki síst í sjávarútvegsmálum."
Hvað gera ísiendingar?
íslenskum stjórnmálamönnum
og útgerðarmönnum ætti að vera
ljóst að Norðmenn vinna nú að því
stærir sig af því að það sé yfirlýst
fyrsta Madonnulausa svæði í
heimi.
Og sá klóki nýi formaður Verka-
mannaflokksins breska, Tony Bla-
ir, sem ætlar sér heldur betur að
gefa íhaldinu á baukinn, hefur gef-
ið það upp á bátinn að reyna að
selja sitt tilbrigði við vinstri-
mennsku með því að fara í stjörnu-
leik. Hann hefur víst svo næmt nef
að hann finnur að það gengur ekki
lengur. Það er eins og hver sjái
upp undir sjálfan sig með það,
sagði þingmaðurinn.
Þetta er merkilegt. Það skásta
við heiminn er reyndar það að
hann hættir ekki að koma manni á
óvart. Árni Bergmann
öllum árum að útiloka íslendinga
frá öllum veiðum í Norðurhafinu,
þ.e. utan 200 mílna fiskilögsögu ís-
lands. Þegar þeir hafa gengið frá
samningum við ESB telja þeir sig
einnig hafa fengið endanlega við-
urkenningu á sjálfteknum rétti
þeirra til fiskilögsögu við Jan
Mayen, Svalbarða og Bjarnarey,
svo sem uppdrættir þeirra sýna og
margsinnis hafa verið birtir af öll-
um fjölmiðlum hér, meira og
minna athugasemdalaust. Ef ís-
lendingar ætla að varðveita rétt
sinn til veiða á þessum fiskislóð-
um, þá verða þeir að gera ráðstaf-
anir til þess strax. Godal er þegar
búinn að afhenda óskalista Norð-
manna yfir þau málefni sem Norð-
menn vilja fá stuðning við hjá
EBS. Veiðarnar í Norðurhafinu
eru örugglega á þeim lista.
Önundur Ásgeirsson
Með og
á móti
Launagreiðslur ríkisins
verði opinberar
Opinberir
starfsmenn
eru starfs-
menn
þjóðarinnar
„Opinberir
starfsmenn eru
starfsmenn þjóð-
arinnar, starfs-
menn kjösenda.
Þjóðin hlýtur að
eiga kröfu á því
að upplýsingar
og gögn um
launakjör starfs-
manna hennar ,r*®inZrQ*'Þíðu-
seu fyrir hendi
hverju sinni
þannig að hægt sé að gera sér
grein fyrir hvemig skattfénu er
skipt á milli starfsmannanna.
Upplýsingar um tekjulægstu
hópana liggja fyrir. Þar fara laun
eftir kjarasamningum sem farið er
eftir í einu og öllu. Um þetta veit
þjóðin og launatöflur eru opinber
gögn. Eftir því sem ofar dregur í
launastiganum verða upplýsing-
arnar hins vegar minni og minni.
Laun ákvarðast minna og minna
eftir kjarasamningum og opinber-
um launatöflum og fyrir suma
hópa eru litlar sem engar upplýs-
ingar tU.
Óljósar og litlar upplýsingar um
þessi mál hljóta alltaf að vekja
upp grun um að málum sé öðra-
vísi háttað en skattgreiðendurnir
reikna með. Umræður um leyni-
lista og forsendur Kjaradóms og
Kjaranefndar ýta auðvitað undir
þennan grun. Ákvarðanir um kjör
toppanna, og breytingar á þeim,
eru lokaðar inni í leyniklúbbum
og jafnvel forsætisráðherra fær
ekki að vera með. Þetta eiga þeir
sem greiöa launin ekki að þurfa
að sætta sig við.“
Upplýsingar
um árangur
vinnunnar
þurfa að
liggjafyrir
„Munur á
starfskjörum op-
inberra starfs-
manna og ann-
arra á að vera
sem, minnstur.
Á vegum fjár-
málaráðherra er
verið.að endur-
skoða starfs-
mannastefnu
ríkisins til að
auka hag-
kvæmni og bæta þjónustu. Ein-
falda þarf launakerfi ríkisins og
auka svigrúm stjórnenda til að
ákveða laun einstakra starfs-
manna með tilliti til frammistöðu.
Sá sem auglýsir fermetraverð á
íbúðarhúsnæöi verður að geta
veitt ítarlegar upplýsingar um
húsnæðið ef auglýsingin á að hafa
einhverja þýðingu.
Vinnuveitandi sem upplýsir
mánaðarfaun starfsmanna sinna
verður með samsvarandi hætti að
vera í stakk búinn til að veita upp-
lýsingar um árangur vinnunnar
sem launin era greidd fyrir.“
-rt
\
„Stjörnukerfið og markaðurinn vilja ekki
alltof mörg nöfn. Aðeins fáein merki,
nokkur nöfn. Annars verður svo þröngt á
þingi að sjálft frægðarkerfið getur hrun-
ið.“
En nú ber svo við að það er eins
Noregur herðir sóknina
„Norðmenn hafa í huga að banna alla
veiði í flottroll í Smugunni og beita til
þess „íslensku tiHögunni“ um að strand-
ríki eigi rétt á að banna önnur veiðarfæri
en þau sem notuð eru í fiskHögsögu við-
komandi lands.“
Steingrímur Ari
Arason, aðstoðar-
maður fjármálaráð-
herra.