Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Page 17
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1995 17 Fréttir 'Rannsókn á börnum á Vesturlandi: Fyrirbyggjandi vinna skilar árangri Daníel Ólafeson, DV, Akranesi: Rannsókn, sem gerð var á börnum á Vesturlandi 1992, sýnir ljóslega fram á hversu brýnt er að vandamál- um þeirra sé sinnt snemma ef eitt- hvað bregður út af hvaö varðar þroska. Rannsóknin sýnir jafnframt að á þennan hátt mættl spara umtals- vert fé. Þetta síðastnefnda atriði ætti aö vekja áhuga sveitarstjórnar- manna þar sem rekstur grunnskól- anna verður í þeirra höndum eftir tæpt ár eins og og rekstur leikskóla. Elmar Þórðarson sérkennslufræð- ingur stjórnaði rannsókninni. At- huguð voru u.þ.b. 60 böm af svæðinu í tengslum við fjögurra ára skoðun heilsugæslustöðva. Athuguninni var fylgt eftir með frumgreiningu og ráögjöf til foreldra. Nú þegar þessi börn hafa verið eitt ár í skóla kemur í ljós að þörf fyrir sérkennslu er minni hjá þessum hópi en sambærilegum hópi sem ekki varð þessarar þjónustu aðnjótandi. í haust kom út skýrsla á vegum Fræðsluskrifstofu Vesturlands þar sem skýrt er frá þessum niðurstöð- um og nefnist hún Samstarf opin- berra aðila á Vesturlandi um for- skólabörn - lokaskýrsla. Árið 1993 kom út samnefnd skýrsla sem segir frá úrtakshópnum og gangi verkefn- isins áður en börnin byrjuðu í skóla. Lokaskýrslan fylgir eftir- úrtaks- hópnum og fjallar m.a. um sér- kennslubeiðnir grunnskólanna á Vesturlandi og þann árangur sem metinn er afrakstur þroskamats, ráðgjafar og þjálfunar á forskólastigi. Skýrslurnar hafa verið sendar samstarfsaðilum en aðrir sem óska eftir þeim geta pantað þær hjá Fræðsluskrifstofu Vesturlands í Borgarnesi. Ökuskóli íslands Dugguvogur2 MEIRAPROF Námskeið til aukinna ökuréttinda 3. nóv. S. 568 38 41 Landgræðsluferð 1995 v Ferðaklúbburinn 4x4 fer í hina árlegu land- græðsluferð laugardaginn 4. nóv. nk. Farið verður upp á Haukadalsheiði og lagðir út baggagarðar í samvinnu við Landgræðslu ríkisins til að stöðva sandfok ofan af heiðinni. Farið verðurfrá Mörkinni 6 kl. 9 stundvíslega. Skráning í síma 553 6489 (Valur) og 552 1761 (Claus) fyrir föstudag 3. nóv. Félagar, tökum höndum saman og fjölmennum í ferðina. Umhverfisnefnd Ferðaklúbbsins 4x4 Blöriduós: Þrengsli á sjúkrahúsinu Magnús Ólafeson, DV, Blönduósi: „Það er mjög alvarleg stefna ef stjórnvöld hugsa sér að loka almenn- um sjúkrahúsum á landsbyggðinni en hafa þar eingöngu heilsugæslu- stöðvar og langlegudeildir,“ sagöi einn viðmælandi fréttaritara þegar verið var að ræða umferðarslysið í Hrútafirði á dögunum. „Við getum því miður alltaf átt von á stórum umferðarslysum jafn mikil og hröð og umferðin er og það er ekki víst að veður leyfi að dreifa sjúklingum um svæði allt frá Reykjavík til Akur- eyrar eins og gert var í þessu til- felli," bætti hann við. „Ef þetta slys hefði orðið viku fyrr hefðum við lent í mjög miklum vand- ræðum með að koma sjúklingum fyr- ir hér á sjúkrahúsinu," sagði Böðvar Örn Sigurjónsson, læknir á Blöndu- ósi. „Þá lágu nokkrir sjúklingar hér á göngum og í síðasta mánuði voru alls 42 legudagar á göngum sjúkra- hússins. Þegar slysið varð höfðum við rúm á sjúkrastofu fyrir þrjá sjúklinga en aörir urðu að gera sér að góðu að liggja á göngum. Á sama tíma og þetta gerist bíður heil hæð í nýrri viðbyggingu við sjúkrahúsiö á Blönduósi þess að vera innréttuð sem sjúkradeild. Búið er að ganga frá húsinu aö utan og það er tilbúið und- ir tréverk að innan," sagði Böðvar. Vetrarvörunar eru komnar! Við höfum yfirstærðirnar Úlpur - buxur - skyrtur - bolir - vinnufatnaður og regnfatnaður Einnig mikið úrval af kventöskum slæðum - treflum og skartgripum 10% staðgreiðslu afsláttur Búðin, Bíldshöfða 18 Opið: mánud.-föstud. 10-18 \ Lagt frá landi Vestari-Jökulsár skammt frá bænum Bjarnastaðahlið. DV-mynd Örn Ævintýraferðir í Skagaf irði Öm Þórarmsson, DV, Fljótum: „Það hafa nokkur hundruð manns siglt með okkur í sumar. Mér flnnst þessi nýi afþreyingarmöguleiki hafa fengið góðar viðtökur," segir Magnús Sigmundsson, einn þeirra sem reka Ævintýraferðir í Skagafirði. Ævintýraferðir voru stofnaðar árið 1994 og er boðið upp á siglingu á gúmmíbát, klettaklifur og hestaferð. Siglingin fer oftast fram á Vestari- Jökulsá í Skagafirði en einnig hefur verið siglt niður Hjaltadalsá og Blöndu. Fólk hefur komið langt að til að fara í bátsferð enda skilyrði mjög góð á þessu svæði. Klettaklifur eða bjargsig er í klettadrang niðri við Jökulsá, skammt frá bænum Villinganesi í Lýtingsstaðahreppi. Þar er um 15 metra hár nánast lóðréttur klettur sem fólki gefst kostur á að spreyta sig a. Bjargsigið er þó aðeins fyrir valda hópa sem vilja reyna verulega á sig og áhersla er lögð á að þáttak- endur séu vel á sig komnir líkamlega. Hestaferðirnar eru síðan með ýms- um hætti og geta staðið allt frá nokkrum klukkustundum til heillar viku (á vegum Hestasports). Magnús er bjartsýnn á aðsóknina næsta sumar og segir mikla eftir- spurn eftir bátsferðunum. Þáer enn- fremur áformað að bjóða upp á sjó- stangaveiði frá Sauðárkróki sem veröur nýr afþreyingarmöguleiki. „Það er ljóst að fólk sem fer í svona sækist eftir útiveru sem fylgir spenna og áreynsla. Margir segjast aldrei hafa upplifað annaö eins ævin- týri þegar þeir stíga á land eftir að hafa velkst um kolmórauða jökul- ána,“ segir Magnús Sigmundsson að lokum. INNBYGGT Með einu handtaki lyftist barna- stóllinn upp og barnið get.ur notað bílbeltið á öruggan hátt. ORYGGI FYRIR BORNIN! Innbyggði barnabílstóllinn í Renault 19 veitir barninu öryggi án þess að vera fyrir þegar barnið er ekki í bílnuni. En Renault 19 RN er fleiri góðum kostum búinn: Aflstýri, rafdrifnum rúðum, fjarstýrðri samlœsingu á hurðum, fjarstýrðu útvarpi og segulbandstœki með þjófavörn, tvískiptu tiiðurfellanlegu aftursœti með höfuðpúðum og styrktarbitum í hurðum svo fátt eitt sé talið. Renault 19 RN er því örugglega góður kostur fyrir alla RENAULT etns ÁRMÚLA 13 SÍMI: 568 1200 BEINN SÍMI: 553 1236 una

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.