Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1995 BamaheUl: Skortur á geð- heilbrigðisþjónustu Samtökin BamaheUl telja að al- varlegur skortur sé á geðheilbrigðis- þjónustu fyrir böm. í nýlegri skýrslu samtakanna, sem unnin var í haust vegna undirbúnings kynningarátaks samtakanna á Bamasáttmála Sam- einuðu þjóðanna, segir að búast megi viö aö 20 prósent bama þurfi aðstoö vegna tiifinningalegra erfiðleika, sem hafa víðtæk áhrif á foreldra, systkini, skólafélaga og nágranna, og því sé geðheilbrigðisþjónustan fyrir neðan öll velsæmismörk. í fréttatilkynningu frá samtökun- um kemur meðal annars fram að staða bama- og unglingageðdeildar í dag sé sú að einungis sé unnt að sinna neyðartilvikum og deildin geti ails ekki sinnt stórum hluta alvar- legra vandamála. Ætla megi að deild- in þyrfti að geta sinnt tífalt fleiri bömum og unglingum en hún getur í dag ef vel ætti að vera. í fréttatilkynningunni segir einnig að ýmsir hópar íslenskra bama séu vanræktir í heilbrigðisþjónustunni, til dæmis misþroska böm, böm með hegðunar- og aðlögunarerfiðleika, nýbúaböm, böm með sjaldgæfa sjúkdóma og langveik böm. Stórauk- in kostnaðarhlutdeild sjúklinga vegna lyfla og læknishjálpar mis- muni ekki síst bömum. Sjálfræðisaldur hækki úr 16 í 18 Dauðaslys á bömum og unglingum era alltof tíð hér á landi og mun tíð- ari en í nágrannalöndunum, til dæm- is í Svíþjóð þar sem slys á bömum em um það bil helmingi sjaldgæfari en hér. Vegna þessa þarf að efla for- vamir og eftirlit með slysavömum. Þá er lögð áhersla á að sjálfræðis- aldur barna verði hækkaður úr 16 í 18 ár til samræmis við önnur lönd í heiminum en samkvæmt Bamasátt- málanum telst allt fólk í heiminum undir 18 ára aldri böm. Samtökin Bamaheiil hafa farið af stað með kynningu á Bamasáttmál- anum og mun fólk á vegum samtak- anna héimsækja 200-300 vinnustaöi á höfuðborgarsvæðinu og um allt land á næstu vikum auk þess sem forystumenn samtakanna afhenda forsætisráðherra skýrslu sem send verður til eftirlitsnefndar Genfar eft- ir áramót. Kostnaður við kynningarátak Bamaheilla nemur að minnsta kosti umþremurmilljónumkróna. -GHS DV Samtökin Barnaheill hafa gefið út bækling með helstu ákvæðum Barnasáttmálans. Barna- sáttmál- inn í stuttu máli Sameinuðu þjóðimar samþykktu 20. nóvember 1989 sáttmála um rétt- indi bama, svokallaðan Bamasátt- mála Sameinuðu þjóðanna, og hafa réttindi bama nú fengið staðfestingu í alþjóðalögum. Bamasáttmálinn felur í sér full mannréttindi allra bama og ungl- inga. Öll böm eiga sama rétt til að lifa og alast upp í friði og öryggi og virðingu fyrir hugsunum sínum og skoðunum. Velferð þeirra á alltaf að sitja í fyrirrúmi. Samtökin BamaheUl hafa gefið út bækhng með helstu ákvæðum Bamasáttmálans og er það liður í kynningarátaki samtakanna. Helstu ákvæðin fara hér á eftir. Ríki eiga að styðja foreldra Böm era allt fólk í heiminum yngra en 18 ára. Öll böm eiga sama rétt og engum má mismuna. Aðildar- ríki sáttmálans eiga að framfylgja réttindum bama. Óll börn eiga rétt á að fá að lifa og þroskast. Þau eiga rétt á nafni og þjóðerni, báðum for- eldrum og alast upp í ömggu fjöl- skylduumhverfi. Böm eiga rétt á að láta skoðun sína í ljós um öll mál sem snerta þau sjálf. Foreldrar bera höfuðábyrgð á uppeldi bama en ríki eiga að styðja foreldrana og leggja sitt af mörkmn. Böm eiga rétt á vemd gegn líkam- legu og andlegu ofbeldi og van- rækslu. Fötluð böm eiga rétt á fullgildu og mannsæmandi lífi og rétt á sérstakri umönnun, menntun, hjiikmn og heilsugæslu eins og öll önnur böm. Böm eiga rétt á skólagöngu og leik, hvíld og frístundum. Böm sem til- heyra minnihlutahópum eða frum- byggjum eiga rétt á eigin menningu, trú og móðurmáli. Eiga að losna við herþjónustu Böm eiga rétt á vemd gegn ólög- iegri notkun eiturlyfja og ekki má notfæra sér böm til framleiðslu eða sölu eiturlyfja. Böm eiga einnig rétt á vemd gegn kynferðislegu ofbeldi, vændi eða klámiðnaði og ekki má beita böm pyndingum eða öðmm grimmdarverkum. Bömum má ekki refsa með ævilöngu fangelsi eða líf- láti. Fómarlömb ofbeldis og misnotk- imar eiga rétt á líkamlegri og and- legri umönnun og félagslegri endur- hæfingu. Ekkert bam yngra en 15 ára má taka beinan þátt í vopnuðum átök- um. Böm á þessum aldri eiga rétt á að losna viö herþjónustu. Aðildarríki Bamasáttmála Sam- einuðu þjóðanna skuldbinda sig til að veita fullorðnum og bömum vitn- eskju um ákvarðanir og meginreglur sáttmálans. -GHS sem þú þarft ekki að láta þig dreyma um HY'LiriDI-ll til framtíðar 5 gíra 2000 cc - 139 hestöfl Vökva- og veltistýri Rafdrifnar rúður og speglar Samlæsing Styrktarbitar í hurðum Útvarp, segulband og 4 hátalarar VERÐ FRÁ 1.748.000 KR. Á GÖTUNA um að eignast eðalvagn, stóran bíl með virðulegu yfirbragði, sem tekur öðrum fram í útliti og aksturseiginleikum. Við getum boðið þér bíl sem á við þessa lýsingu. Og við getum boðið þér hann á svo góðu verði að þér er óhætt að vakna upp af góðum draum og láta hann rætast. HYUNDAISONATA ... ekki bara draumur ÁRMÚLA 13 S(MI: 568 1200 BEINN SÍMI: 553 1236

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.