Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Síða 29
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1995 41 Hringiðan Glaumurog gleði Sportbarinn Glaumbar stendur alltaf fyrir sínu. Guðný Hilmars og Gréta Hilmars eru ekki systur en góðar vinkonur engu að síður og voru saman á Glaumnum á laugardagskvöldið. DV-mynd TJ Alltaf stuð Það er alltaf stuð hjá þeim Möndu, Bjössa, Skúla og Arnóri sem voru á Tungl- inu um helgina og fylgdust með kynningu á fyrstu þremur stúlkunum í feg- urðarsamkeppni Tunglsins. DV-mynd TJ Lífverðir á Astró Þaö má finna ýmislegt á Astró eins og þessa konunglegu lífvarðasveit forset- ans í Pakistan, þau Bjarna Sigurðsson, Fannýju Hjartardóttur, Glenne Thor og Júlíus Hazmi sem voru í fríi frá störfum á laugardagskvöld. DV-mynd TJ Sjötugir skátar Háldiö var upp á sjötugsafmæli Hraunbúa, skátafélags Hafnarfjarðar, á laug- ardaginn í íþróttahúsi Víðistaðaskóla. Skátasöngvarnir voru rifjaðir upp og kökurnar smakkaðar. Rauðskinnumar Hildur Vigfúsdóttir, Elfa Björg Ara- dóttir og Dagný Ósk Guðlaugsdóttir skemmtu sér vel í afmæhnu enda sann- irskátar. DV-myndTJ Emiliana með sólóplötu Söngkonan knáa, Emiliana Torrini, gefur út sína fyrstu sólóplötu nú fyrir jóhn og mun gripurinn bera nafnið Krúsidúllan. Um helgina tók hún upp myndband við lagið I sem er sungið á japönsku og fjallar um freka fyrirsætu. Það er Bragi Þór Hinriksson kvikmyndagerðarmaður sem myndar stjörnuna fagmannlega í bak og fyrir. DV-mynd TJ Þjóðbúningahátíð á Hótel Borg Heimilisiðnaðarfélag íslands stóð fyrir Þjóöbúningahátíð á Hótel Borg á laugardaginn, fyrsta vetrardag. Allir voru hvattir tii þess að mæta í þjóðbúningum, þiggja kaffiveitingar og kynnast íslenskri menningu. Lilja Jóhannsdóttir og Bendt Pedersen voru sérlega glæsileg í Faldbúning- um sínum frá átjándu öld. DV-mynd TJ Sigtryggur vann Stíga, glímið, sögðu Steingrímur El- ías Jónsson, Kristinn Már Finnboga- son og Kristófer Svansson þegar þeir reyndu með sér í hinni fomu þjóðar- íþrótt, glímunni, á Þjóðbúningahá- tíðinni á Hótel Borg á laugardaginn. Það var Heimhisiðnaðarfélag íslands sem stóð fyrir hátíðinni sem var vel sóttogskrautleg. DV-myndTJ Rokktónleikar Unglistar Á laugardagskvöld voru haldnir rokktónleikar í Tjarnarbíói á vegum Unglist- ar. Margar hljómsveitir stigu á stokk, jafnt nýjar sem gamalgrónar. Brynhild- ur Birgisdóttir, Esther Talía Casy og Hanna Christen Sigurkarlsdóttir hvíldu eyrun í pásunni. DV-myndTJ TraustTungl Það var óneitanlega íjör í Tunghnu um helgina. Sigurður eigandi sá til þess með ýmsum uppákomum að fólk væri í stuði og það er greinilegt að Sigga hársnyrti í Carter leiddist ekki. DV-mynd TJ Hraunbúar70 ára Skátafélag Hafnarfjarðar, Hraunbú- ar, varð sjötugt um helgina og upp á það var haldið með pompi og pragt í íþróttahúsi Víðistaðaskóla. Skát- arnir voru að sjálfsögðu í búningun- um sínum og fögnuöu afmæhnu á ýmsan máta. Ingólfur Már Grímsson og Einar Jón Gunnarsson, Ránfugl- ar, ásamt Ásgeiri Ólafssyni, sem er Riddari, voru glaöir í bragði í afmæl- inuoglékuáalsoddi. DV-myndTJ Margt á Astró Gunnar Svanberg og Einar Haralds- son röltu um Astró á laugardags- kvöldið og skemmtu sér prýðilega, enda margt um manninn og nóg að sjá. DV-myndTJ María og Guðrún eru bestu vinkonur og voru saman í Tunglinu á laugar- daginn. Þær settu sig í stelhngar enda upprennandi fyrirsætur. DV-mynd TJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.