Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Qupperneq 30
42
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1995
Afmæli
Yilhjálmur Þorsteinsson Snædal
Vilhjálmur Þorsteinsson Snædal,
bóndi á Skjöldólfsstöðum í Jökuld-
al, verður fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Vilhjálmur fæddist á Skjöldólfs-
stöðum og ólst þar upp. Hann
stundaði nám við Alþýðuskólann á
Eiðum og lauk búfræðiprófi frá
Hvanneyri 1965.
Vilhjálmur hefur veriö bóndi á
Skjöldólfsstöðum frá 1967 og var
jafnframt landpóstur á árunum
1979-93. Þá eiga og reka þau hjónin
Fjallakaífi.
Vilhjálmur hefur verið formaður
búnaðarfélagsins um árabil, situr
í hreppsnefnd frá 1982 og hefur
verið forðagæslumaður um árabil.
Fjölskylda
Vilhjálmurkvæntist23.4.1970
Ástu Sigurðardóttur, f. 3.6.1945,
bónda. Hún er dóttir Sigurðar Þor-
steinssonar og Margrétar Stefáns-
dóttur, bænda í Teigaseli á Jökuld-
al.
Börn Vilhjálms og Ástu eru Þor-
steinn, f. 27.12.1969, húsasmiður á
Egilsstöðum, en kona hans er Guð-
rún Ragna Einarsdóttir og eru son-
ur þeirra Vilhjálmur Pálmi, f. 23.8.
1992; Ingunn Kristjana, f. 10.8.1971,
nemi við KHÍ; Steinunn, f. 19.8.
1972, tækniteiknari, en unnusti
hennar Lárus Brynjar Dvalinsson;
MargrétUrður, f. 5.8.1981, nemi.
Sonur Ástu eru Haukur Arnar
Árnason, f. 4.4.1966.
Systkini Vilhjálms eru Elín, f.
8.11.1946; Anna Sigríður, f. 9.9.
1948; Þorkell, f. 15.1.1950; Þor-
steinn, f. 11.2.1953.
Hálfsystkini Vilhjálms, sam-
mæðra, eru Bergþóra, f. 28.9.1932;
Jóhanna, f. 10.9.1934.
Foreldrar Vilhjálms: Þorsteinn
Vilhjálmsson Snædal, f. 8.8.1914,
bóndi á Skjöldólfsstöðum, og Elín
Margrét Þorkelsdóttir, f. 4.11.1909,
húsfreyja.
Ætt
Elín er dóttir Þorkels, b. á Ar-
nórsstöðum, Jónssonar, b. í Fjall-
aseli, Þorkelssonar, b. í Fjallaseli,
Jóhannessonar, b. í Fjallaseh,
Jónssonar, b. í Möðrudal, Sigurðs-
sonar tuggu, b. á Hauksstöðum á
Jökuldal, Sveinssonar. Móðir Þor-
kels í Fjallaseh var Guðrún Þor-
kelsdóttir, b. á Eiríksstöðum, Ein-
arssonar og Hróðnýjar Pálsdóttur.
Móðir Jóns í Fjallaseli var Guðný
Einarsdóttir, b. á Seljateigi, Eiríks-
sonar, b. á Seljateigi, Erlendssonar,
b. á Ásunnarstöðum í Breiðdal,
Bjarnasonar, ættföður Ásunnar-
staðaættarinnar. Móðir Einars var
Þórdís Þórarinsdóttir, b. á Brekku-
borgí Breiðdal, Einarssonar, lrm.
á Þverhamri í Breiðdal, Jónssonar.
Móðir Guðnýjar var Solveig Guð-
mundsdóttir, b. á Berunesi í Fá-
skrúðsfirði, Bárðarsonar og Sigríð-
ar Eyjólfsdóttur. Móðir Þorkels á
Arnórsstöðum var Sigríður
Bjömsdóttir, b. í Seljateigshjáleigu,
Jónssonar og Sigurbjargar Eiríks-
dóttur, b. í Seljateigshjáleigu,
Bjarnasonar, b. í Seljateigi, Eiríks-
sonar, bróður Einars í Seljateigi.
Móðir Sigurbjargar var Sigríður
Guðmundsdóttir, systir Solveigar.
Móðir Elínar var Benedikta
Bergsdóttir, frá Smyrlabjörgum í
Homafírði, Árnasonar, og Sólveig-
ar Þórðardóttur, b. á Sævarenda í
Loðmundarfirði, Jónssonar. Móðir
Sólveigar var María Guttormsdótt-
ir, b. á Ámastöðum í Loðmundar-
flrði, Skúlasonar, b. á Brimnesi í
Seyðisfirði, Sigfússonar, b. á Klepp-
járnsstöðum, Jónssonar, b. og ætt-
fræðings á Skjöldólfsstöðum,
Gunnlaugssonar. Móðir Maríu var
Vilhhjálmur Þorsteinsson Snædal.
Sigþrúður Ólafsdóttir, b. á Sæva-
renda, Hahgrímssonar. Móðir Ól-
afs var Þórunn Ólafsdóttir, lrm. á
Kethsstöðum, Péturssonar.
Vilhjálmur verður í útlöndum á
afmælisdaginn.
Styrkur til handritarann-
sókna í Kaupmannahöfn
í framhaldi af lyktum handritamálsins ákváðu dönsk stjórn-
völd að veita íslenskum fræðimanni styrk til handritarann-
sókna við Stofnun Árna Magnússonar (Det Arnamagnæ-
anske Institut) í Kaupmannahöfn. Styrkurinn veitist til allt
að tólf mánaða dvalar en miðast þó að jafnaði við styttri
dvöl. Hann nemur nú um 16.900 dönskum krónum á
mánuði, auk ferðakostnaðar.
Styrkur Árna Magnússonar (Det Arnamagnæanske Legat)
Sjóðurinn Det Arnmagnæanske Legat hefur það verkefni
að veita íslenskum ríkisborgurum styrki til rannsókna í
Árnasafni eða öðrum söfnum í Kaupmannahöfn. Styrkir
eru veittir námsmönnum og kandídötum, sem hafa sýnt
svo mikla þekkingu á norrænni tungu, sögu eða bókmennt-
um, að vænta megi að þeir muni inna af hendi verk í þess-
um greinum, sem þyki skara fram úr. Til úthlutunar á næsta
ári eru 30.000 danskar krónur.
Umsóknarfrestur um ofangreinda styrki á árinu 1996 er til
4. desember nk., en umsóknir ber að stíla til Árnanefndar
(Den Arnamagnæanske Kommission) í Kaupmannahöfn.
Nánari upplýsingar um styrkina og tilhögun umsókna fást
í menntamálaráðuneytinu, Stofnun Árna Magnússonar á
Islandi og skrifstofu heimspekideildar Háskóla íslands.
Menntamálaráðuneytið,
27. október 1995
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A
VALDA ÞÉR SKAÐA! „éujLoar
Bernharð Ingimundarson
Bernharö Ingimundarson, Bröttu-
götu 18, Vestmannaeyjum, er sex-
tugur í dag.
Starfsferill
Bernharð fæddist í Nýborg í Vest-
mannaeyjum og ólst upp í Eyjum.
Hann fór fimmtán ára til sjós og
var háseti og síðan stýrimaður og
skipstjóri á árunum 1950-70 en
skipstjórnarréttindi öðlaðist hann
1963.
Eftir aö Bernharð kom í land hóf
hann störf hjá Fiskimjölsverk-
smiðjunni í Vestmannaeyjum þar
sem hann starfaði til 1994.
Fjölskylda
Eiginkona Bernharðs er Fjóla
Sigurðardóttir, f. 13.10.1936, starfs-
maður KÁ i Vestmannaeyjum. Hún
er dóttir Sigurðar Karlssonar og
Kristínar Sigurðardóttur sem eru
bæði látin, frá Hafnarnesi við Fá-
skrúðsfjörð, en þau fluttu til Vest-
mannaeyja 1953.
Börn Bernharðs og Fjólu eru
Ingimundur, f. 21.2.1955, bifvéla-
virki á Akureyri, kvæntur Guö-
rúnu Lárusdóttur og eru börn
þeirra Sigurlaug Lára og Bernharð
Kristinn; Kristín, f. 19.7.1959, fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík, gift Sig-
urði Baldurssyni og eru synir
þeirra Orri og Ásgeir Örn Loftsson;
Hávarður Guðmundur, f. 30.9.1962,
verkamaður í Vestmannaeyjum,
kvæntur Sigrúnu J. Sigmarsdóttur
og eru börn þeirra Sigmar Þór,
Hannes Már og Fanndís Fjóla.
Alsystur Bernharðs eru Jórunn,
f. 9.10.1923, búsett í Vestmannaeyj-
um; Margrét Laufey, f. 23.11.1926,
búsett í Reykjavík; Sesselja, f. 9.8.
1932, búsett í Keflavík.
Hálfsystkini Bernharðs, sam-
mæðra, eru Henning, f. 3.12.1919,
búsettur í Keflavík; Hulda Reyn-
hlíð, f. 11.11.1921,búsettí Reykja-
vík.
Foreldrar Bernharðs voru Ingi-
mundur Bernharðsson, f. 1893, d.
1968, útgerðarmaður og afgreiðslu-
maður í Vestmannaeyjum, og Jón-
ína B. Eyleifsdóttir, f. 1897, d. 1993,
húsmóðir.
Ætl
Ingimundur var sonur Bern-
harðs, formanns í Keldnakoti á
Bernharð Ingimundarson.
Stokkseyri, Jónssonar, b. í Gerðum
í Flóa, Jónssonar. Móðir Ingimund-
ar var Jórunn Jónsdóttir, b. í
Dalbæ í Ytrihrepp, Jónssonar.
Jónína var dóttir Eyleifs, b. í
Nýlendu á Stafnsnesi, Ólafssonar,
Eyjólfssonar. Móðir Jónínu var
Margrét P. Benediktsdóttir Andr-
éssonar.
Bernharð verður að heiman.
Til hamingju með afmælið 30. október
Sólbrekku 1, Húsavík.
Sigurður Hannesson,
Kirkjubraut 52, Höfn í Hornafirði.
Sigurbjörg Elíasdóttir,
Þórustöðum II, Eyjafjarðarsveit.
Svanlaug Halidórsdóttir,
Króksseli, Skagahreppi.
PéturBjarnason,
Silfurgötu 2, ísafirði.
Hólmfríður Magnúsdóttir,
Borgarbraut 22, Stykkishólmi.
JóhannÓskar
Jón Gunnarsson,
Klettahrauni 15, Hafnarfiröi. Hann
verðuraðheiman.
Kristín F. Fenger,
Hvassaleiti 67, Reykjavík.
frá Kiðjabergi,
harskeri og rak-
arameistari,
Skjólbraut 1A,
Kópavogi.
Sigrún Jónsdóttir,
Hombrekku, Ólafsflröi.
Herdís Ástvaldsdóttir,
Reykjalundi, Mosfellsbæ. .
Gunnþórunn Markúsdóttir,
Hrafnistu við Kleppsveg, Reykja-
vík.
Sigrún Sigurðardóttir, j
Skólavegi 21, Fáskrúðsfiröi.
Laufey Ása Ingjaldsdóttir,
Fálkagötu 14,Reykjavík.
60 ára
Þóra Kristín Filippusdóttir,
Sólheimum 48, Reykjavík.
Bernharð Ingimundarson,
Bröttugötul8, Vestmannaeyjum.
Kristjana Magnúsdóttir,
Hamraborg 38, Kópavogi.
Birgir Jónasson,
Norðurbyggð 12, Akureyri.
Guðmundur Þ. Svavarsson,
Skólastíg4, Stykkishólmi.
Þorgerður Kjartansdóttir,
Ingi Kristinn Magnússon,
skrifstofustjóri,
Vesturbergi 14,
Reykjavík.
Ingitekurámóti
gestumáveit-
ingastaönum
GuUöldinni,
Hverafold 1-5, i
Grafarvogi, i
kvöldmillikl.
17.00 og 20.00.
Kristín Sigvaldadóttir,
Kommu, Eyjafiarðarsveit.
Eysteinn Gunnarsson,
Lækjartúni 2, Hólmavik.
Sverrir ðgmundsson,
Norðurvangi 12, Hafnarfirði.
Arnór Magnússon,
Hafraholti 38, ísafirði.
Rúnar Kristjánsson,
Ártúni2, SeÚbssi.
Bj örk Georgsdóttir,
Reykjafold 6, Reykjavík.
Guðjón Þór Pétursson,
Drápuhlíð 36, Reykjavík.
Guðnin S. Guðmundsdóttir,
Kirkjubæjarbraut 16, Vestm.