Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1995, Page 7
MÁNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1995
Sandkorn
Þrettán stykki
Frétt DV á dög-
unum um þjóf í
litlu bæjarfélagi
á landsbyggö-
inni, sem hald-
inn var þeirri
áráttu að safna
kvenmannsnær-
fótum, vakti
nokkra athygli
aö vonum. Voru
margar konur á
áthafnasvæði :
hans orðnar
hálfklæðalitlar en sá þjófótti sat
hins vegar í híbýlum sínum með
mikið magn nærfata þeirra. Norður
á Húsavík velti hagyrðingur nokkur
fyrir sér athæfi mannsins og í Degi
kom þessi kveðskapur hans af þessu
tilefni á prent:
Á sig mikið leggja mega,
margan daginn fram á kvöld
þessir menn sem þurfa að eiga,
þrettán stykki bijóstahöld.
Konur
og hundar
Tíminn sagði
frá því á dögun-
um að á Muirfi-
eld-golfvellinum
í Skotlandi
væru athyglis-
verðar reglur í
gildi um þá sem
þángaðkoma.
M.a. var þess
getið að í regl-
uniun væri það
sérstaklega tek-
ið fram að kon-
um væri óheimilt að snæða í klúbb-
húsinu og þeim væri óheimilt að
leika á golfvellinum nema í fylgd
með karlmanni. Þessar reglur munu
ekkert einsdæmi í Skotlandi enda
virðist sem forráöamönnum ýmissa
golfvalla þar í landi sé sérstaklega
annt um að tveimur dýrategundum
sé haldið frá völlum þeirra. Nokkuð
víða á þessum völlum munu nefni-
lega hanga uppi skilti á áberandi
stöðum sem banna konum og hirnd-
um aðgang.
Kylfusveinar
Höldum okkur
áfram við golf-
ið. Þeir sem sjá
um að draga
golfkerrurfyrir
aöra og meiri
spámenn á golf-
völlunum
ganga undir
ýmsum nöfh-
um, s.s. burðar-
dýr, kerru-
sveinar eða
kylfusveinar,
og af þeim eru til margar skemmti-
legar sögur. Einn þeirra sem dró
golfáhöldin fyrir fremur slakan
kylfing var t.d. alltaf aö líta á úriö
sitt. „Kylfusveinn! Hvers vegna ertu
alltaf að líta á úriö þitt?“ kallaði
kylfingurinn til hans. „Þetta er ekki
úr, herra, þetta er áttaviti," var
svarið. Annar kylfingur sagði við
kylfusvein sinn: „Þú er án efa versti
kylfúsveinn í heimi.“ „Ég efa það,“
svaraði kylfusveinninn, „það væri
allt of mikil tilviljun."
„Álvers-
farsinn"
Kínversk sendi-
nefnd var á
ferð i Eyjafirði
fyrir helgina og
kannaði m.a.
Dysnes i Arnar-
neshreppi þar
sem áður hefur
verið rætt um
að staösefja ál-
ver. Ekki er
laust við að
hroll setti að
mörgum, ekki
vegna áhuga Kínverjanna á að setja
þar niður álver, kmmi hann að vera
fyrir hendi, heldur vegna þess að
þurfa e.t.v. að nýju að ganga i gegn-
um alla þá umræðu um hugsanlegt
álver í firðinum sem fram fór fyrir
nokkrum árum. Sú umræða öll var
hin stórkostlega, þótt flestir hafi
verið sammála um að allan tímann
hafi verið ákveðið að reisa það ál-
ver sem rætt var um á þeim tíma á
Suðurnesjum.
Umsjón: Gylfi Kristjánsson
Fréttir
Landlæknir vill nýjan sjóð vegna læknamistaka:
Bæti sjúklingum tjón
„Þessir sjóðir eru til erlendis og
bæta sjúklingum þegar þeir verða
fyrir tjóni, hvort sem um er að
ræða mistök eða óhappatilvik.
Þessi tjón verða einna helst á okk-
ar hátæknisjúkrahúsum þar sem
aðgerðir eru viðamiklar og fjöldi
manns kemur þar að. Því getur
orðið erfitt að sanna með vissu
hvort um er að ræða mistök eða
slys,“ segir Ólafur Ólafsson land-
læknir um sérstakan sjóð sem
hann vill að tryggi hagsmuni
sjúklinga.
Ólafur segir að þarna sé um að
ræða útvíkkun á Slysasjóði sjúk-
linga sem stofnaður var 1989, m.a.
að tilhlutan Karvels Pálmasonar,
fyrrum alþingismanns. Hann segir
að hugmyndin sé sú að sjúkra-
stofnanir fjármagni sjóðinn með
aðildargjöldum.
„Eins og ástandið er í dag þá er
nauðsynlegt að læknar tryggi sig
hver og einn gegn mistökum eða
óhöppum," segir Ólafur. -rt
/995, 1996 OG 1997
HJA REKSTRARAÐILUNI
SEM FJÁRFESTA FYRIR ÁRAMÓT*
Með Kjörleiðum Glitnis getur þú fjárfest í þeim
tækjum sem henta rekstrinum og nýtt þér
heimildir til aukaafskrifta skv. lögum frá Alþingi
nr. 147/1994.
Ráðgjafar Glitnis eru sérfróðir um hvemig
rekstraraðilar geta nýtt sér þessar heimildir.
Þórður Kr. Jóhannesson Sigfús Á. Kárason Sigurður L. Sævarsson
ráðgjafi ráðgjafí ráðgjafi
Hafðu samband og kynntu þér málið.
GUtnirhf
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560 88 00 og 560 88 20. Myndsími 560 88 10
*Ekki má mynda rekstrartap vegna afskriftanna né fresta yfirfærslu rekstrartaps frá fyrri árum.