Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1995, Page 29
MÁNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1995
41
Hringiðan
Þessi fagra yngis-
mær var á partý
zone kvöldinu í
Tunglinu á laugar-
daginn og dansaði
án afláts enda
skífuþeytingur í
háum gæðaflokki í
gangi og svaka
stuð.
DV-myndir TJ
Tunglið stóð fyrir partý zone kvöldi
á laugardaginn með öllu tilheyr-
andi. Það var dansað úti um allt og
sökum hitans var nauðsynlegt að
létta aðeins á klæðnaðinum eins og
hann Helgi gerði.
Óli, Hulda og Addi voru á
partý zone kvöldinu í
Tunglinu á laugardaginn.
Þar var margt um manninn
og tónlistin glumdi á öllum
hæðum
Kvennabósinn og
flagarinn Don Juan
var mættur á Tunglið
á laugardaginn að
heilla dömurnar eða
skyldi þetta vera
Johnny Depp sjálfur
Þeir eru nokkrir, sófarnir á Astró.
Silja Rún og Hjördís fundu sér einn
slíkan og brostu svo sínu blíðasta
brosi fyrir Ijósmyndara DV.
Það var diskóstuð á Ingólfs-
kaffi á laugardaginn. Svava
og Ásgeir voru hress enda
ekki annað hægt þegar Gulli
Helga þeytir skífunum.
Ofurskvísan og söng-
fuglinn, Heiðrún Anna
Björnsdóttir, og félagar
hennar í hljómsveitinni
Cigarette eða vindling-
ur héldu útgáfutónleika
Loftkastalanum fyrir
helgi. Heiðrún Anna
sýndi góða takta á svið-
inu enda ýmsu vön.