Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1995, Page 30
42
!§§á
Afmæli ______________
Hanna Bachmann
Hanna Bachmann kennslufull-
trúi, Háteigsvegi 26, Reykjavík, er
sextug í dag.
Starfsferill
Hanna fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún stundaði nám
við KÍ 1948-57, við MH 1978, við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja frá
1979 og lauk þaðan stúdentsprófi
1984 og lauk BA-prófi í bókmennt-
um og ensku frá HÍ 1987.
Hanna starfaði á skrifstofu
borgarstjóra 1954-58, við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1961-70, stundaði eigin atvinnu-
rekstur 1970-79, starfaði við Þýð-
ingastöð Orðabókar HÍ 1987-93 og
hefur verið kennslufulltrúi við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands frá 1993.
Hanna starfaði mikið með Mál-
freyjusamtökunum á árunum
1980-89 og var þá m.a. deildarfor-
seti þar, gjaldkeri og ritari, er
stofnfélagi í Sinawik í Reykjavík,
situr þar í stjórn og hefur verið
þar ritari og gjaldkeri auk þess
sem hún er nú varaformaður
Landssambands Sinawik.
Fjölskylda
Hanna giftist 9.2. 1957 Jóni K.
Ólafssyni, f. 7.5.1935, rekstrarráð-
gjafa. Hann er sonur Ólafs Guð-
laugssonar hótelhaldara og Ingi-
bjargar Jónsdóttur húsmóður.
Dætur Hönnu og Jóns eru
Halla Jónsdóttir, f. 8.6.1954, hug-
myndasagnfræðingur og deildar-
stjóri á Biskupsstofu, gift Gunnari
E. Finnbogasyni, lektor við KHÍ,
og eiga þau tvö börn; Inga Jóns-
dóttir, f. 29.4. 1957, flugfreyja, gift
Ottó Guðmundssyni fram-
kvæmdastjóra og eiga þau tvö
böm.
Systkini.Hönnu eru dr. med.
Jón S. Hallgrímsson, f. 15.1. 1924,
læknir; Halla Bachmann, f. 7.9.
1925, d. 2.8. 1994, kristinboði;
Helgi Bachmann, f. 22.2. 1930;
Helga Bachmann, f. 24.7.1931,
leikkona i Reykjavík.
Foreldrar Hönnu voru Hall-
grímur Bachmann, f. 4.7.1897, d.
1.12. 1969, ljósameistari Þjóðleik-
hússins, og k.h., Guðrún Jónsdótt-
ir Bachmann, f. 24.11. 1890, d. 16.4.
1983, húsmóðir og klæðskeri.
Ætt
Hallgrímur var sonur Jóns
Bachmann, b. í Steinsholti, bróð-
ur Borgþórs, fóður leikkvenn-
anna, Önnu, Þóru og Emelíu
Borg. Jón var sonur Jósefs, b. í
Skipanesi, Magnússonar og Hall-
dóru Guðlaugsdóttur, b. á Geita-
gerði, Sveinbjörnssonar. Móðir
Halldóru var Sigríður Bachmann,
systir Ingileifar, móður Hallgríms
landsbókavarðar. Hálfbróðir Sig-
ríðar var Jón Borgfirðingur, afi
Agnars Klemenzar Jónssonar
ráðuneytisstjóra. Sigríður var
dóttir Jóns Bachmann, prests á
Klausturhólum, Hallgrímssonar,
læknis í Bjarnarhöfn og ættföður
Bachmann-ættarinnar. Móðir
Jóns var Halldóra Skúladóttir
landfógeta Magnússonar. Móðir
Sigríðar var Ragnhildur Bjöms-
dóttir, systir Sigurðar Thorgríms-
sonar landfógeta.
Móðir Hailgríms ljósameistara
var Hallfríður ljósmóðir Einars-
dóttir, útvegsb. í Nýjabæ á Akra-
nesi, Einarssonar, útvegb. þar,
Þorvarðar-sonar. Móðir Hallfríðar
var Ingibjörg, dóttir Ingjalds, b. á
Bakka, Ingjaldssonar, og Margrét-
ar Bjarnadóttur frá Brekku á
Kjalarnesi.
Meðal bræðra Guðrúnar var
Gísli alþm. og Guðmundur Kamb-
an rithöfundur. Guðrún var dóttir
Jóns, b. í Litlabæ á Álftanesi,
hálfbróður Stefáns, foður Eggerts
söngvara og Sigvalda Kaldalóns.
Jón var sonur Hallgríms, b. í
Smiðjuhóli á Mýmm, Jónssonar
og Guðrúnar, systur Stefáns,
langafa Gauks Jömndssonar.
Guðrún var dóttir Jóns, b. í Höll í
Þverárhlíð, bróður Eggerts,
langafa Jens Waage, fóöur Indriða
leikara, föður Hákonar leikara.
Jón var sonur Guðmundar, b. á
Arnarhóli í Reykjavík, Vigfússon-
ar, og Guðrúnar Þorbjömsdóttur
ríka, ættföður Skildinganesættar-
Hanna Bachmann.
innar, Bjarnasonar. Móðir Þor-
bjöms var Guðríður Tómasdóttir,
ættfóður Arnarhólsættarinnar,
Bergsteinssonar. Móðir Guðrúnar
í Smiðjuhóli var Halldóra Auð-
unsdóttir, systír Björns, sýslu-
manns í Hvammi, ættföður Blön-
dal-ættarinnar. Móðir Guðrúnar
klæðskera var Guðný Jónsdóttir,
b. í Grashúsum á Álftanesi, Páls-
sonar.
Ásgeir Ólafur Sigurðsson
Asgeir Olafur Sigurðsson, fyrrv.
skipstjóri og útgerðarmaður,
Lindargötu 57, Reykjavík, er átt-
ræður í dag.
Starfsferill
Ásgeir fæddist á Kollafjarðar-
nesi í Tungusveit i Strandasýslu
og ólst upp á Kollafjarðamesi til
tíu ára aldurs. Hann var síðan
snúningspiltur og vinnumaður í
Kollafirði og í Tungusveit.
Ásgeir byrjaði þrettán ára til
sjós og var síðan sjómaður í
Hólmavík frá 1945. Hann sótti síð-
an sjóinn á sínum eigin bátum og
fékk skipstjóraréttindi 1961.
Ásgeir flutti til Reykjavíkur
1978 og vann m.a. við saltfiskverk-
un, næturvörslu í Laugardalnum
1979-84 og á verkstæði Blindrafé-
lagsins 1984-88.
Ásgeir var heiðraður á sjó-
mannadaginn 1993.
Fjölskylda
Ásgeir kvæntist 15.1. 1950 Rann-
veigu Guðriði Halldórsdóttur, f.
30.8. 1921, d. 2.7. 1973, húsmóður.
Hún var dóttir Halldórs Ingi-
mundar Borgarssonar, b. á Tyrðil-
mýri á Snæfjallaströnd, og k.h.,
Svövu Guðmundsdóttur húsfreyju.
Börn Ásgeirs og Rannveigar
era Svava Halldóra, f. 16.8.1949,
sjúkraliði á Akureyri og eru böm
hennar Sif, Ásgeir, Hlynur, Sindri
og Silva Rannveig; Sigrún, f.
10.11. 1951, leikskólakennari í
Kópavogi, og eru börn hennar
Agnes Hólm, Reynir Hólm og Ró-
bert Hólm; Ásgeir Ragnar, f. 10.6.
1953, bifreiðarstjóri í Reykjavík,
og er sonur hans Sigurður Gunn-
ar og stjúpsonur hans er Ragnar
Friðberg; Heiðrún, f. 11.12. 1958,
húsmóðir í Reykjavík, en synir
hennar eru Svanur Þór, Guðjón
Elvar, Hafþór Már og Heiðar
Berg.
Rannveig átti dóttur fyrir
hjónaband, Erlu, f. 30.5.1943, en
böm hennar era Gunnar Þór,
Steinunn Oddný og Víðir.
Systkini Asgeirs eru: Kristin,
húsmóðir í Bolungarvík; Sigrún,
húsmóðir á ísfirði; Guðbjörg, hús-
móðir í Miðhúsum í Kollafirði.
Systkini Ásgeirs, samfeðra, sem
öll eru látin, vora Magnús, bjó í
Bolungarvík; Guðbjörg; Jóhann,
d. 1930, bjó í Bolungarvík; Guð-
mundur, d. 1912, bjó á ísafirði,
Guðrún, var matsölukona í
Reykjavik; Ámi, b. á Álftanesi;
Jón, bjó á Akmaesi.
Foreldrar Ásgeirs eru: Sigurður
Gísli Magnússon, f. 1. ágúst 1856,
d. 2. júlí 1939, b. í Vonarholti í
Tungusveit, og seinni kona hans,
Kristrún Jónsdóttir, f. 27. septem-
ber 1879.
Ætt
Meðal föðursystkina Ásgeirs
vora Jóhanna Sigríður, móðir
Guðjóns, b. í Arnkötludal, föður
Guðmundar, skriftarkennara í
Rvík. Önnur föðursystir Ásgeirs
var Guðbjörg, móðir Guðrúnar
Jóhönnu, móður lögregluþjónanna
Kristins og Guðmundar Óskars-
sona. Sigurður var sonur Magnús-
ar, b. í Vonarholti, bróður Guð-
laugar, ömmu Snorra skálds og
Torfa, fyrrv. tollstjóra, Hjartar-
sona. Magnús var sonur Zakarías-
ar, b. á Heydalsá, Jóhannssonar,
prests í Garpsdal, Bergsteinsson-
ar, föður Guðrúnar, konu Eyjólfs
Einarssonar „eyjajarls”, ættfor-
eídra Svefneyjarættarinnar. Önn-
ur dóttir Jóhanns var Þórunn,
móðir Guðbrands Sturlaugssonar,
b. í Hvítadal í Saurbæ, föður
Helgu, móður Haraldar Böðvars-
sonar, útgerðarmanns á Akranesi.
Móðir Sigurðar Gísla var Guð-
rún Sigurðardóttir, b. á Borgum í
Hrútafirði, Jónssonar og konu
hans, Ingibjargar, systur Guðríð-
ar, ömmu Bjarna Þorsteinssonar,
prests og tónskálds á Siglufirði.
Ingibjörg var dóttir Þorsteins,
prests á Staðarhrauni, Einarsson-
ar, prests á Reynivöllum, Torfa-
sonar, prófasts á Reynivöllum,
Halldórssonar, bróður Jóns,
Ásgeir Ólafur Sigurðsson.
vígslubiskups og fræðimanns, í
Hítardal, föður Finns, biskups í
Skálholti.
Guðbjörg var dóttir Jóns, b. í
Arnkötludal, Jónatanssonar og
konu hans, Guðrúnar Jónsdóttur,
b. í Kirkjubóli, Þórðarsonar.
Ásgeir Ólafur er að heiman.
Til hamingju með af-
mælið 20. nóvember
80 ára
Sigurbjört Kristjánsdóttir,
Móakoti, Stokkseyrarhreppi.
75 ára
60 ára
Bryndís Dóra Þorleifsdóttir,
Hjálmholti 8, Reykjavík.
Hreinn S. Hjartarson,
Unufelli 50, Reykjavík.
Sigurlín Gunnarsdóttir,
Árskógum 8, Reykjavík.
Magnús Þ. Jónsson,
Laugamesvegi 104, Reykjavík.
Hjördís Jósefsdóttir,
Ferjubakka 14, Reykjavík.
Guðmundur Viggó Ólafsson,
Kóngsbakka 8, Reykjavík.
Laufey Svala Kortsdóttir,
Víkurbraut 13, Sandgerði.
70 ára
Hinrik Albertsson,
Ölduslóð 17, Hafnarfirði.
Steinunn H. Berndsen,
Rauðagerði 16, Reykjavík.
50 ára
Sóley Olgeirsdóttir,
Akralandi 3, Reykjavík.
40 ára
Pétur Daníelsson,
Höfðabraut 11, Hvammstanga.
Júlíus Sigurðsson,
Kögurseli 14, Reykjavík.
Ragnheiður Bragadóttir,
Fiskakvísl 3, Reykjavík.
Daði Jóhannesson,
Silfurgötu 10, Stykkishólmi.
Gunnar Einarsson,
Lindasmára 43, Kópavogi.
Herborg Sigfúsdóttir,
Skógarhlið 18, Glæsibæjarhreppi.
Læknavaktin
904-1700
Verð aðeins 39,90 mín.
íjj Apótek
_3j Gengi
Menning
Upphafning
Sinfóníuhljómsveit Islands hélt tónleika í Hall-
grímskirkju sl. fimmtudag. Voru þetta fyrstu tónleik-
arnir í blárri áskriftarröð sveitarinnar.
Tónleikarnir hófust á Maurerische Trauermusik eft-
ir Wolfgang Amadeus Mozart. Verkið er skrifað fyrir
tréblásara og strengi, en tilefni samningar þess var frá-
fall tveggja mætra og háttsettra reglubræðra í frímúr-
arareglunni.
Hljómsveitin, undir stjórn Osmos Vánskás, flutti
verkið á sérlega fallegan en um leið látlausan hátt.
Tónlist
Áskell Másson
Einleikari kvöldsins var Helga Þórarinsdóttir víólu-
leikari og lék hún verkið Lachrymae fyrir víólu og
strengi op. 48 eftir Benjamin Britten.
Þetta verk var samið fyrir víóluleikarann William
Primrose til flutnings á Aldenburgh-listahátíðinni.
Sönglög eftir John Dowland endurspeglast í tónsmíð-
inni, sem var upphaflega samin fyrir víólu og píanó.
Þetta er falleg og angurvær músík og lék Helga ein-
leikinn af öryggi og næmri tilfinningu. Osmo og hljóm-
sveitin fylgdu henni frábærlega eftir í góðum flutningi
þessa verks
Síðasta verkið á efnisskránni að þessu sinni var Sin-
fónía nr. 3, fyrir sópran og hljómsveit, op. 36, eftir Hen-
ryk Mikolaj Górecki. Einsöngvari með hljómsveitinni
var Sigrún Hjálmtýsdóttir. Þessi 45 mínútna langa sin-
fónía er ákaflega sérstætt tónverk. Einfaldleikinn er
Heiga Þórarinsdóttir Sigrún Hjálmtýsdóttir
víóluleikari. söng einsöng.
slíkur að oftsinnis er sem tíminn standi í stað. Mikið
hefur verið rætt og ritað um þetta verk síðan það var
frumflutt í apríl 1977 á ISCM-tónlistarhátíðinni í Roy-
an og sýnist sitt hverjum. Verkið kom út á geislaplötu,
sem seldist fljótlega í milljónaupplagi, sem er nánast
einsdæmi hvað nútímatónverk varðar.
Textinn í verkinu fjallar um móður sem harmar son
sinn sem hafði verið myrtur og hvers lík finnst ekki.
Söngur Diddúar var mjög áhrifamikill og flutningur
hennar og hljómsveitarinnar á verkinu var ægifagur
og upphafinn. Þess má geta í lokin að verkin þrjú á
þessum tónleikum voru öll þannig að gerð að hljóm-
uðu sérlega fallega í Hallgrímskirkju.