Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1996, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1996, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 25 Leikhús LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR SÍMI 568-8000 STÓRA SVIÐ: ÍSLENSKA MAFÍAN eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson Sýning, fid. 4/1, fáein sæti laus, rauð kort gilda, laud . 6/1 blá kort gilda, fimd. 11/1, gul kort gilda. LÍNA LANGSOKKUR eftir Astrid Lindgren Sun. 7/1 kl. 14, lau. 13/1 kl. 14, sun. 14/1 kl. 14. LITLA SVIÐ KL. 20: HVAÐ DREYMDI ÞIG, VALENTÍNA? eftir Ljúdmflu Razumovskaju Lau. 6/1, föst. 12/1, lau. 13/1. STÓRA SVIÐ KL. 20: VIÐ BORGUM EKKI, VIÐ BORGUM EKKI eftir Dario Fo Föstud. 5/1, fösd. 12/1. Þú kaupir einn miða, færð tvo! Samstarfsverkefni við Leikfélag Reykjavíkur: Barflugurnar sýna á Leynibarnum kl. 20.30: BAR PAR eftir Jim Cartwright Fös. 5/1, fáein sæti laus, sun. 7/1, föst. 12/1. Fyrir börnin: Línu-ópal, Línu-bolir og Línu-púsluspil. Miðasalan er opin alla daga frá kl. 13-20, auk þess er tekið á móti miðapöntunum í síma 568-8000 alla virka daga. Greiðslukortaþjónusta. Gjafakortin okkar - frábær tækifærisgjöf. Leikfélag Reykjavíkur - Borgarleikhús Faxnúmer 568-0383. c|þ ÞJÓDLEIKHÚSIÐ STÓRA SVIDIÐ KL. 20.00: DONJUAN eftir Moliére 4. sýn. á morgun, nokkur sæti laus, 5. sýn. mvd. 10/1, 6. sýn. Id. 13/1. ÞREK OG TÁR eftir Ólaf Hauk Símonarson Ld. 6. jan., örfá sæti laus, föd. 12/1, örfá sæti laus, Id. 20/1, nokkur sæti laus. GLERBROT eftir Arthur Milier 8. sýn. föd. 5. jan., 9. sýn. fid. 11. jan. föd. 19/1. KARDEMOMMUBÆRINN eftir Thorbjörn Egner Ld. 6/1 kl. 14.00, uppselt, sud. 7/1, kl. 14.00, uppselt, sud. 7/1 kl. 17.00, uppselt, sud. 14/1 kl. 14.00, nokkur sæti laus, sud. 14/1 kl. 17.00. LITLA SVIÐIÐ KL. 20.30: KIRKJUGARÐSKLÚBBURNN eftir Ivan Menchell Frumsýning föd. 5/1, uppselt, 2. sýn. sud. 7/1, 3. sýn. fid. 11/1, 4. sýn. Id. 13/1, 5. sýn. sud. 14/1. Cjafakort í leikhús - sígila og skemmtileg gjöf! Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13.00-18.00 og fram að sýningu sýningardaga. Einnig símaþjónusta frá ki. 10.00 virka daga. Greiðslukortaþjónusta. Fax: 561 1200 SÍMI MIÐASÖLU: 551 1200 SÍMI SKRIFSTOFU: 551 1204 VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSID! ÍSLENSKA ÓPERAN l=!i'" sími 551-1475 Laugard. 6. jan. ki. 21.00. Síðasta sýn. IWWIA BUTTERFLY Föstud. 19/1 kl. 20. HANS OG GRÉTA Frumsýning laugard. 13/1 kl. 15. Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 15-19, sýningardaga er opið þar til sýning hefst. SÍMI 551-1475, bréfasími 552-7384. GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA nýtt íslenskt leikrit eftir Kristínu Ómarsdóttur___• ITllka hræðilegur ærslaleikur forsýning fim. 4/1, kl. 20.00 frumsýning fös. 5/1, kl. 20.00 2 sýn. lau. 6/1 kl. 20.30 3 sýn. sun. 7/1 kl. 20.30 miðaverð kr.1000 - 1500 miðasalan er opin ffá kl. 18 sýningardaga III pöntunarsími: 5610280 ||||j lllllilll allan sólarhringinn llllllllil GREIÐSLUKORTAÞJONUSTA Tilkynningar Happdrætti HSÍ í tengslum við heimsmeistara- keppnina I handknattleik 1995 stóð Handknattleikssamband íslands fyr- ir happdrætti og rann ágóði af happ- drættinu til undirbúnings íslenska landsliðsins fyrir HM 95. Dregið hef- ur verið og hefur vinningaskrá ver- ið birt. Meðfylgjandi mynd var tek- in þegar Öm H. Magnússon, fram- kvæmdastjóri HSÍ (t.v.), afhenti Kristjáni Harðarsyni (t.h.) lyklana að Nissan Micra bifreið frá Ingvari Helgasyni hf. sem hann vann í happdrættinu. Hópþjálfun fyrir gigtarfólk Gigtarfélag íslands stendur fyrir hópþjálfun fyrir gigtarfólk. Hóp- þjálfun fyrir gigtarfólk er sérhæfð leikfimi fyrir þá sem haldnir eru gigtsjúkdómum, svö sem slitgigt, vefjagigt, iktsýki, hryggikt o.fl. Starfsemin er nú flutt í nýtt hús- næði að Ármúla 5, 2. hæð. Vatns- þjálfun verður, eins og áður, í Sjálfs- bjargarlaug tvisvar í viku. Ný þriggja mánaða námskeið hefjast í byrjun janúar 1996. Skráning og upplýsingar á skrifstofu Gigtarfé- lags íslands, Ármúla 5, 3. hæð, sími 553 0760, dagana 2.-5. jan. kl. 13.00-15.00. Afmæli Ágúst Böðvarsson Sigfús Ágúst Böðvarsson, fyrrv. forstöðumaður Landmæl- inga íslands, sem nú dvelur á Hrafnistu við Skjólvang í Hafn- arfirði, er níræður í dag. Starfsferill Ágúst fæddist að Hrafnseyri við Arnarfjörð og ólst þar upp. Hann lauk námi frá Verslunar- skóla íslands 1925 og stundaði nám í landmælingum hjá Ge- odætisk Institut í Kaupmanna- höfn 1935-37. Ágúst var hóndi að Hrafnseyri 1926-29 en vann við landmæling- ar íslands 1930-76 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Ágúst var forstöðumaður Landmælinga íslands 1959-76. Ágúst samdi texta við ýmis þekkt dægurlög fyrri tíma, s.s. Skautapólka og Ljósbrá. Hann sat í stjórn Byggingasamvinnufélags starfsmanna ríkisstofnana um árabil frá 1948, i ömefnanefnd og situr í Hrafnseyrarnefnd frá 1973. Hann er heiðursfélagi Ferðafélags íslands, hefur verið virkur félagi í Oddfellw-reglunni, stúku nr. 11., Þorgeiri og er heiðursfélagi henn- ar. Þá hefur hann verið sæmdur Fálkaorðunni. Fjölskylda Ágúst kvæntist 18.12. 1930 Sig- ríði Sveinbjömsdóttur, f. 12.6. 1909, d. 24.12. 1977, húsmóður. Hún var dóttir Sveinbjörns Sæ- mundssonar, fylgdarmanns í Reykjavík, og k.h., Ólafíu Bjargar Jónsdóttur, húsmóður og sauma- konu. Sonur Ágústs og Sigríðar var Gunnar Hrafn, f. 18.10. 1931, d. 23.12. 1990, verkfræðingur í Hafn- arfirði, var kvæntur Önnu Baur hárgreiðslumeistara og em synir þeirra tveir, Ágúst Jóhann, f. 3.6. 1963, tannlæknir í Hafnarfirði, og Sveinbjöm Styrmir, f. 19.9. 1965, bakarameistari í Reykjavík. Alsystkini Ágústs: Bjarni Ein- ar, f. 21.11. 1900, látinn, hljóm- sveitarstjóri í Reykjavík; Guðrún, f. 9.7. 1902, dó ung kona; Þórey Kristín Ólína, f. 4.7. 1904, nú lát- in, húsmóðir í Reykjavík. Hálfsystkini Ágústs, samfeðra: Baldur, f. 7.11. 1921, dó tveggja ára; Bryndís, f. 13.5. 1923, nú lát- in, húsmóðir á Akureyri; Baldur, f. 6.11.1924, fyrrv. símstjóri á Sel- fossi. Foreldrar Ágústs voru Böðvar Bjarnason, f. 18.4. 1872, d. 11.3. 1953, prófastur á Hrafnseyri við Arnarfjörð, og Ragnhildur Teits- dóttir, f. 22.7. 1877, d. 30.7. 1963, húsfreyja. Ætt Böðvar var hálfbróðir Ragn- heiðar, móður Jóns Leifs. Böðvar Ágúst Böðvarsson. var sonur Bjarna, b. á Reykhól- um, bróður Gísla, langafa Klem- ensar Jónssonar leikara. Bjami var sonur Þórðar, b. í Belgsholti í Melasveit, Steinþórssonar. Móðir Böðvars var Þórey Kristín Ólína Pálsdóttir, b. á Reykhólum, Guð- mundssonar. Ragnhildur var systir Önnu, langömmu Guðrúnar Ágústsdótt- im, forseta borgarstjórnar. Ragn- hildur var dóttir Teits, gullsmiðs og veitingamanns á ísafirði, Jóns- sonar. Fréttir Árleg hefð er fyrir því að Hvammstangabær bjóði þeim sem vilja bað í Hvammstangalaug að morgni aðfangadags og hefur svo verið síðan að laugin var vígð 1982. í ár þáðu 74 gestir boðið eða um 10% íbúa Hvammstangahrepps. Yfir vetrarmánuðina koma daglega 30-40 gestir í laugina, að sögn Kristjáns Björnssonar forstöðumanns. Um ára- mót varð sú breyting á afgreiðslutíma að fram í apríl verður lokað á morgnana en opnað fyrr eftir hádegi á virkum dögum. Um helgar veröur áfram opið á klukkan 10-14. DV-mynd Sesselja Skophátíð í Hafnapfirði í sumar: Hæfileikakeppni og erlendir grínistar „Hugmyndin er sprottin upp frá því að Hafnarfjörður er brandara- bær íslands og þess vegna finnst okkur upplagt að halda skophátíð. Við viljum létta lund fólks og lengja lífið. Við getum sagt að við séum að spara í heilbrigðiskerfinu með því að fá fólk til að hlæja meira,“ segir Rögnvaldur Guðmundsson, ferða- málafulltrúi í Hafnarfirði. Bæjaryfirvöld hafa ákveðið að standa fyrir átta daga skophátíð í Hafnarfirði 1.-8. júní í sumar. Verið er að skipuleggja hátíðina og ráða skemmtikrafta. Allar líkur eru á því að hátíðin fari einkum fram á veit- inga- og kaffihúsum í Hafnarfirði og hugsanlega í íþróttahúsinu í Kapla- krika eða á stóru útisviði sem reist yrði vegna hátíðarinnar. Kappkost- að verður að ná til allra aldurshðpa og hafa dagskrá jafnt að degi til sem að kvöldi. „Við höfum fengið til liðs við okk- ur hafnfirska skemmtikrafta og svo erum við að fá menn til að hjálpa okkur við framkvæmdina. Við ætl- um að fá einn til tvo þekkta erlenda skemmtikrafta til að troða upp og svo ætlum við líka að virkja sem flesta í bænum þannig að töluvert mikið verði um að vera á hverjum degi og hverju kvöldi. Hátíðinni lýk- ur svo líklega með stórri og mikilli hátíð,“ segir Rögnvaldur. „Við erum aö móta þetta en ger- um ráð fyrir að þetta verði dálítið umfangsmikið og stórt. Meiningin er að safna Hafnarfjarðarbröndur- um og vera til dæmis með hæfi- leikakeppni á ýmsum sviðum en það er erfitt að segja frá þessu í smáatriðum. Það leynist víða skemmtikrafturinn í fólki. Margir kunna að segja frá án þess að hafa það fyrir atvinnu og við viljum gjarnan uppgotva nýja skemmti- krafta,“ segir Rögnvaldur. - En skyldi hann kunna einhvern Hafnarfjarðarbrandara? „Af hverju eru Hafnarfjarðar- brandarar ekki sagðir um Reykvík- inga? Af því að þá eru það ekki brandarar," segir hann. -GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.