Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1996, Síða 28
28
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996
Enn er deilt í Langholtskirkju.
Hafði hugmynd-
ir um að færa
mig um set
„Fyrir tveimur árum hafði ég
hugmyndir um að færa mig um
set og taka við öðru brauði. Úr
því sem komið er er það útilok-
að.“
Flóki Kristinsson, í DV.
Óhæfur til að starfa
með fólki
„Það er búið að koma í ljós að
þessi maður er gjörsamlega
óhæfur til að starfa með fólki.“
Jón Stefánsson, í Tímanum.
Ummæli
Ekki orð um kjara-
baráttuna
„Það er athyglisvert að for-
göngumenn þess mótframboðs
sem boðað er í Dagsbrún hafa
ekki minnst einu orði á kjara-
baráttuna í skrifum sínum og
umsögnum í fjölmiðlum."
Halldór Björnsson, formanns-
frambjóðandi í Dagsbrún, í DV.
Daman mun ekki
fara hljóðlega
„Ég hef alltaf sagt að daman
muni ekki fara hljóðlega og
núna veit ég að þau trúa mér.“
Díana prinsessa i samtölum
við vini sína.
Innandyra í frönsku kvikmynda-
húsi árið 1913.
Kvikmyndir
í upphafi
Það fór ekki fram hjá neinum
að í fyrra var hundrað ára ártíð
kvikmyndarinnar og var þess
minnst á margan hátt bæði hér á
landi og erlendis. Það voru
nokkrir framsýnir menn sem
seint á síðustu öld voru að velta
fyrir sér hugmyndum um lifandi
myndir á tjaldi, en í dag eru hin-
ir frönsku Lumiére bræðúr, Lou-
is og Auguste, taldir upphafs-
menn kvikmyndarinnar og
fyrsta opinbera kvikmyndasýn-
ingin fór fram á þeirra vegum í
París 28. desember 1895. Tiu
Blessuð veröldin
mánuðum áður höfðu þeir sótt
um einkaleyfi á tæki sem þeir
nefndu cinématographe. Aifyrsta
mynd þeirra sýndi lest sem
brunar á fleygiferð fram hjá
myndavélinni og voru myndirn-
ar teknar frá sjónarhomi sem
gerði áhorfendur skelkaða.
Kvikmyndatökuvél
Pathé
Á fyrstu árum kvikmyndanna
voru Frakkar fremstir i flokki.
Árið 1897 skipti Charles Pathé vél
Lumiére í tvær einingar og hefur
sá háttur viðgengist síðan. Frakk-
amir Baron og Gaumont urðu
fyrstir til að samhæfa hljóð sýn-
ingu lifandi mynda, það var árið
1902, en filman sjálf var þögul.
Slydda eða snjókoma
í dag verður austan- og norðaust-
anátt, víða allhvöss, en hvassviðri á
norðvestanverðu landinu. Síðdegis
fer að lægja suðaustanlands og síðar
einnig á Austurlandi. Það verður
skýjað um allt land og talsverð rign-
Veðrið í dag
ing á austanverðu landinu. Norð-
vestanlands verða él en slydda eða
snjókoma í kvöld og nótt. Suðvest-
anlands verður rigning með köflum
en þurrt að mestu í kvöld og nótt.
Hiti verður frá +8 stigum suðaust-
anlands niður í 3 stiga frost norð-
vestanlands. Á höfuðborgarsvæðinu
verður austan og norðaustan
strekkingur og rigning með köflum
í dag en þurrt að mestu í kvöld og
nótt. Hiti 4 til 7 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 15.47.
Sólarupprás á morgun: 11.16.
Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.21.
Árdegisflóð á morgun: 5.40.
Heimild: Almanak Háskólans.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjað 1
Akurnes rigning 6
Bergsstaöir skýjaö 0
Bolungarvík skafrenningur -4
Egilsstaöir súld 1
Keflavíkurflugv. skýjaö 4
Kirkjubkl. alskýjaö 3
Raufarhöfn alskýjaö 1
Reykjavík skýjaö 6
Stórhöfói rigning 5
Helsinki skýjaö -10
Kaupmannah. léttskýjaö -5
Ósló léttskýjað -18
Stokkhólmur skýjaö -11
Þórshöfn alskýjaö 7
Amsterdam þokumóöa -2
Barcelona skýjaö 8
Chicago alskýjaö -6
Frankfurt frostúöi 0
Glasgow mistur 6
Hamborg alskýjaö -3
London þokumóöa 5
Los Angeles heiöskírt 17
París jxtkumóóa 2
Róm heiöskírt 6
Mallorca skýjaö 6
New York ískorn -1
Nice léttskýjaö 7
Nuuk léttskýjaö -1
Orlando skúr á síö. klst. 18
Valencia skýjaó 9
Vín skafrenningur -4
Winnipeg alskýjaó -17
Katrín María Andrésdóttir, starfsmaður Rauða krossins á Norðurlandi:
Veiti þá aðstoð sem
hægt er að veita
DV, Fljótum:
„Það hefur verið mikið að gera
síðan ég byrjaði í þessu starfi. Ég
er m.a. búin að heimsækja nokkr-
ar deiidir á Norðurlandi og auk
þess dvaldi ég 10 daga á Flateyri
eftir að snjóflóðið féll og aðstoðaði
Rauða krossfólk á staðnum enda
er Rauði krossinn fyrst og fremst
mannúðarsamtök sem í hverju til-
viki veita þá aðstoð sem hægt er
að veita,“ sagði Katrín María
Andrésdóttir, starfsmaður Rauða
kross íslands á Norðurlandi.
Maður dagsins
í september sl. var sett á fót
svæðisskrifstofa Rauða krossins
fyrir Strandir og Norðurland
vestra. Skrifstofan hefur aðsetur á
Sauöárkróki. Starfsmaður er
Katrín M. Andrésdóttir og var hún
valin úr hópi 40 umsækjenda sem
sóttu um starfið.
„Starfssvæðið er frá Hólmavík
til Þórshafnar. Á því eru starfandi
13 Rauða kross deildir. Sameigin-
Katrín María Andrésdóttir.
DV-mynd Örn
leg verkefni þessara deilda eru
einkúm tvö. Annað er stuðningur
við heilsugæslustöðvar í Afriku-
ríkinu Lesotho. Hitt er eignarhald
og rekstur á flugvelli sem er bún-
aður sem nýtist við sjúkraflug.
Allar deildimar standa að sjúkra-
flutningum og rekstri sjúkrabif-
reiða." Katrín María segir að með-
al annarra verkefna deildanna séu
fatasafnanir, skyndihjálparfræðsla
og annað námskeiðahald, einstak-
lingsaðstoð, framlag til reksturs
Rauða kross hússins og Vinjar
(sem er athvarf fyrir geðfatlaða)
og íjölmargt annað. Hún segir að
þrátt fyrir að ýmsum þyki samtök-
in leggja mikla vinnu og fjármuni
til hjálparstarfs erlendis þá sé
staðreyndin engu að síður sú að
um það bil 80% af fjármagni
Rauða krossins fari til innanlands-
starfs. Þetta starf er margþætt og
ekki allt áberandi enda oft um að-
stoð við einstaklinga að ræða og
því geri margt fólk sér ekki grein
fyrir umfangi þess.
Katrín María segir að helstu
verkefni svæðisskrifstofunnar á
Norðurlandi séu að auka tengsl
milli skrifstofu RKÍ og deildanna á
Norðurlandi og milli deildanna
innbyrðis, að vera framkvæmda-
stjóm fyrir svæðisráð og að fýlgja
eftir skipulagi neyðarvarna á
svæðinu.
Katrín María er í sambúð meö
Rúnari Gíslasyni bifreiðarstjóra.
-ÖÞ.
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1407:
Veðurhorfur á miðurn
Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði.
ísland gegn úr-
valsliði frá
Bandaríkjun-
um
Þaö er ekki mikið um að vera
á innlendum íþróttavettvangi
þessa dagana, en þó er allt að
lifna við, því að á morgun verð-
ur leikið í úrvalsdeildinni í
íþróttir
körfúbolta og á föstudaginn hefst
handboltinn aftur. Ungir íslensk-
ir skákmenn hafa þó ekki setið
auðum höndum yfir áramótin. í
gangi er keppni milli ungra ís-
lenskra skákmanna og úr-
valsliðs ungra skákmanna frá
austurströnd Bandaríkjanna.
Keppt er á 25 borðum og eftir
þrjár umferðir af fjórum er stað-
an 43 vinningar gegn 32 íslensku
sveitinni í hag. í gærkvöld fór
fram hraðskákkeppni en
lokaumferðin er í dag í skákmið-
stöðinni að Faxafeni 12.
Gengið milli
safna
í fyrstu kvöldgöngu HGH á
nýju ári í dag verður gengið
múli Miðbakka og Sundabakka.
Hægt verður að velja um mis-
langar gönguleiðir. Farið verður
frá akkerinu í Hafnarhúsport-
inu kl. 20 og byrjað á því að fara
í stutta allsérstæða heimsókn.
Útivist
Val um að ganga til baka frá
Sundabakka eða fara með SVR.
Allir eru velkomnir í ferð með
Hafnargönguhópnum.
Bridge
Árið 1954 voru Bandaríkjamenn
og Frakkar með sterkustu landslið
heims í bridge. Frakkar voru Evr-
ópumeistarar og þessar þjóðir mætt-
ust í einvígi í heimsmeistarakeppn-
inni en franska liðið var styrkt með
Jean Besse frá Sviss og Karl
Schneider frá Austurríki. Banda-
ríkjamennimir höfðu sigur í úr-
slitaleiknum en í þessu spili úr
leiknum var það Jean Besse sem lét
ljós sitt skína. Sagnir gengu þannig,
allir utan hættu og vestur gjafari:
V ÁKD10742
* KD873
* 4
* Á107632
* 63
* 94
* 972
* K4
* 5
* 62
* ÁDG108653
Vestur Norður Austur Suður
pass 2» pass 3*
pass 3-f pass 5*
pass 6* p/h
Gegn sex laufum byrjaði vestur á
því að spila út tígulás og síðan var
hjartaníunni spilað. Besse drap á '
hjartaásinn í blindum og spilaði
strax laufi á ásinn! Af hverju ætli
Besse hafi fundið þessa spilaleið?
Ekki vegna þeirrar hjátrúar að lauf-
kóngurinn væri oftar einspil en
önnur spil! Fyrsta vísbendingin,
sem Besse fór eftir, var útspil vest-
urs. Vamarspilarar, sem byrja á þvi
að taka slag á ás gegn slemmu í lit
sem andstæðingarnir segja, eiga
mjög oft von á því að fá slag annars
staðar síðar í spilinu. Hin vísbend-
ingin fólst í því spili sem vestur
spilaði í öðrum slag. Ef vestur hefði
ekki átt laufkónginn þá er ekki ólík-
legt að hann hefði spilað spaða í
þeirri von að fjarlægja trompið í
blindum svo að ekki væri hægt að
svína litnum.
ísak Örn Sigurðsson
* DG985
G98
ÁG105
* K