Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1996, Qupperneq 6
6
MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1996
Fréttir
íslenskum hjónum neitað um fæðingarorlof vegna tímabundinnar búsetu i Svíþjóð:
Hvorki fæðingarorlof
á íslandi né í Svíþjóð
- bótarétturinn er í Svíþjóð, segir lögfræðingur Tryggingastofnunar
„Við bjuggum í Svíþjóð í átta
mánuði og eignuðumst þar barn.
Níu dögum eftir það fluttum við
heim. Þegar heim var komið feng-
um við að vita að við eigum hvergi
rétt til fæðingarstyrks eða orlofs,“
segir Þórarinn Einarsson í samtali
við DV. Þórarinn og kona hans, Lóa
Karen Agnarsdóttir, lentu í gati á
kerfinu. Dóttir þeirra hjóna er nú
tveggja og hálfs mánaðar og móðir-
in fær ekki fæðingarorlof og faðir-
inn er atvinnulaus. Vandræði
þeirra má rekja til þess að þau áttu
ekki lögheimili á íslandi undan-
farna tólf mánuði og lögheimili í
Svíþjóð aðeins í átta mánuði. Þau
eiga að því er virðist lagalega séð
ekki rétt á fæðingarorlofi eða styrk,
hvorki í Svíþjóð né á íslandi.
„Þar sem hjónin áttu lögheimili í
Svíþjóð þegar barnið fæddist áttu
þau rétt á fæðingarorlofi þar. Til
þess að eiga rétt á fæðingarorlofi
hér á landi verður viðkomandi að
hafa átt lögheimili hér í tólf mán-
uði. Ef fólkið hefði átt barnið á Is-
landi og flutt út eftir það hefðu þau
getað flutt með sér réttinn til fæð-
ingarorlofs út. Samkvæmt reglum
EES ættu þau að fá greitt áfram í
Svíþjóð," segir Halldóra Jóhannes-
dóttir, lögfræðingur Tryggingastofn-
unar á fjölskyldusviði.
„Ekki virðist vera hægt að færa
rétt til fæðingarorlofs á milli Norð-
urlandanna. EES-samningarnir
hafa gert þessa hluti miklu flóknari
og Norðurlandasamningarnir eru
ekki í gildi þegar peningar eru ann-
Þórarinn Einarsson með Amöndu og Lóa Karen Agnarsdóttir með Berglind Sólveigu. DS-mynd BG
ars vegar. Við erum búin að tala við
lögfræðinga Tryggingastofnunar og
heilbrigðisráðuneytisins. Lögfræð-
ingur heilbrigðisráðuneytisins segir
þetta vera gat í kerfinu sem vitað sé
um. Samkvæmt lögunum eigum við
ekki rétt á neinu en hún er að
kanna fyrir okkur alla möguleika,"
segir Þórarinn. -em
76 kennarar voru í bæjarstjórnum á landinu á síöasta kjörtímabili:
Þarf skyrar reglur
um þátttöku kennara
- í sveitarstjórnarmálum, segir Unnur Halldórsdóttir, formaður Heimilis og skóla
Á síðasta kjörtímabili gegndu
samtals 76 kennarar, yfirkennarar
eða skólastjórar trúnaðarstörfum í
borgar- eða bæjarstjórn sem aðal-
fulltrúar eða varafulltrúar í Reykja-
vík, kaupstöðum eða kauptúnum
úti á landi, samkvæmt Sveitar-
stjórnarmannatali. Flestir voru
kennaramir í Hafnarfirði. Þar voru
fjórir kennarar aðalfulltrúar í bæj-
arstjórn; skólastjóri, yfirkennari og
tveir kennarar; en tveir kennarar
voru varamenn. Tveir þessara
manna hafa svo gegnt embætti bæj-
arstjóra á þessu kjörtímabili.
Á þessu tímabili vora einnig
margir kennarar í bæjarstjóm
Grindavíkur, Sauðárkróks og Akur-
eyrar. Á Sauðárkróki voru þrír
kennarar og skólastjórar aðalfull-
trúar í bæjarstjóm en tveir voru
varamenn. í Grindavík voru þrír
kennarar aðalmenn í bæjarstjórn og
einn til vara og á Akureyri var einn
kennari aðalfulltrúi í bæjarstjórn
og fjórir til vara.
Þess eru dæmi að allir skólastjór-
ar í bæjarfélagi og jafnvel aðstoðar-
skólastjórar eða yfirkennarar líka
sitji í bæjarstjórn sem aðal- eða
varafulltrúar. Skólastjórar eru í
sumum tilvikum í fimm til sex
nefndum. í sveitarstjórnarmanna-
tali má sjá að algengt er að sveitar-
félag skipi kennara í skólanefhd og
í þriggja manna skólanefnd er hugs-
anlegt að sitji tveir kennarar og eitt
foreldri. Eftir yfirtöku sveitarfélaga
á grunnskólanum verður því mögu-
legt að skólastjóri eða kennari verði
yfirmaður sjálfs stn með forystu í
bæjarmálum.
„Að sjálfsögðu mega kennarar
vera í sveitarstjórnum en ég held að
það vanti skýrar verklagsreglur um
afgreiðslu mála. Það verður að vera
skýrt hvernig á að leysa mál varð-
andi skólann þannig að kennarar
séu ekki báðum megin borðsins.
Eins er hugsanlegt að kennarar
minnki við sig stöðuhlutfall þannig
að þetta bitni ekki á störfum þeirra.
Það finnst mér mjög heiðarlegt og
hver og einn verður að skoða sinn
hug,“ segir Unnur Halldórsdóttir,
formaður Heimilis og skóla. -GHS
Fyrrum fjölmiðlafólk í röðum alþingismanna:
Vilja tryggja betur aðstöðu fjölmiðlafólks
- svo sem trúnaðarsamband fréttamanna og heimildarmanna þeirra
Ásta R. Jóhannesdóttir hefur lagt
fram þingsályktimartillögu ásamt
þeim Ólafi Ragnari Grímssyni, Öss-
uri Skarphéðinssyni, Jóni Krist-
jánssyni og Kristínu Ástgeirsdóttur
en þau eru öll núverandi eða fyrr-
verandi fjölmiðlafólk. Hún fjallar
um það að dómsmálaráöherra láti
endurskoða lagaákvæði um vernd
trúnaðarsambands fjölmiðlamanna
og heimildarmanna þeirra. Sömu-
leiðis á nefndin að skoða sérstak-
lega og leggja mat á hvort þörf sé á
frekari löggjöf sem miði að því að
tryggja aðstöðu blaðamanna og ann-
ars fjölmiðlafólks við starfa sinn,
svo sem vernd þeirra gagna sem
fjölmiðlamenn komast yfir, starfs-
stöðvar þeirra og fleira, gegn rann-
sóknaraðgerð yfirvalda. Ásta Ragn-
heiður mælti fyrir tillögunni á Al-
þingi í gær.
Hún sagði að þessi þingsályktun-
artillaga væri flutt að gefnu tilefni
sem væri nýlegt mál blaðamanns
Morgunblaðsins um upplýsinga-
skyldu blaðamanna. Ásta sagði
mikla nauðsyn á skýrum lögum um
þessa starfsvernd fjölmiðlafólks.
Eins yrði að fá skýr svör um það
hvaða reglur gildi þegar ijölmiðla-
fólk tekur við trúnaðarbroti heim-
ildarmanns.
„Mikilvægt er fyrir lýðræðið og
frjálsa fjölmiðlun að fjölmiðlamenn
njóti sömu eða sambærilegrar
verndar samkvæmt lögum hér á
landi og blaöamenn njóta í ná-
grannalöndum sem við berum okk-
ur saman við. Það er grundvaflar-
réttur fjölmiðlamanns að vernda
heimildir sínar, réttur sem er virtur
í öllum lýðræðisríkjum," sagði Ásta
Ragnheiður.
Kristín Ástgeirsdóttir tók undir
með Ástu Ragnheiði. Kristinn H.
Gunnarsson sagði að skoða þyrfti
allar hliðar málssins vel. Nefndi
hann sem dæmi ef fjölmiðlafólk
birtir efni frá nafnlausum heimild-
armanni án þess að sannreyna það
sem birt er. -S.dór
Sandkorn py
Ný forvarnar-
stefna
Fyrir nokkru
gerðist það að
maður í
Reykjavík ætf
aði að hálda
upþ á þrítugs-
aftnæli sitt
með glæsi-
brag. Hann
fór, eins og
margir aðrir
sem ætla að
halda upp á af-
mælfíversl-
un ÁTVR til
að kaupa vínfong. Hann ætlaði að
búa til svo kallaða bollu, sem er
samansett úr hvítvíni, Krapa, sem
er innlent áfengi, og gosi. Hann
keypti nokkrar flöskur af þessum
víntegundum og hugöi nú gott til
glóðarinnar. Afmælisdagurinn rann
upp. Boflan var tilbúin og gestimir
tóku að streyma í afmælið. Eitthvað
þótti fólki dauft bragð af bollunni
og engin urðu áhrifin og einhvem
veginn varð allt daufara en stefht
var að. Auðvitað var farið að rann-
saka málið og þegar betur var að
gáð kom í ljós að þaö var vatn í öll-
um Krapa flöskunum. Gámngar
vom fljótir að fmna skýringuna á
þessu öflu saman. Þeir fuflyrtu að
búið væri að taka upp nýtt og ár-
angursríkt forvarnarstarf gegn
brennivínsdrykkju.
Allur ervarinn
Það er óum-
deilt .að íslend-
ingar eru ein
hjátrúarfyllsta
þjóðíheimi,
auk þess að
trúa á álfa 1
steinumog
huldufólk í
björgum. Og
þessí hjátrú
getur náö al-
veg til þeirra
sem bjóðá sig
fram til for-
setaembættisins. Guðrún Péturs-
dóttir hefur fengið aðstöðu fyrir
kosningabaráttu sína í Ingólfs-
stræti. Hún er líka búin að fá síma
og númerið er 552 7-9-13. Og hún og
stuðningsmenn hennar hafa líka
opnað sparisjóðsreikning i SPRON,
þar sem þeir sem áhuga hafa á að
styðja frambóð Guðrúnar með fjár-
framlögum geta lagt inn. Og númer-
ið á reikningnum er 5 7-9-13. Er
ekki sagt aflur er varinn góður um
leið og lamið er þrisvar í tré?
Ættarveldin
Og meira um
forsetafram-
boð. Nokkrar
íslenskar ættir
hafa í aldir
verið valda-
miklar hér á
landi ogaflar
með ætt-
araöfn. Samt
er það svo að
þær hafa
aldrei komist
til valda á
Bessastöðum
eftir að forsetaembættið varð til. En
nú gæti oröið breyting þar á. Af
þessum miklu ættartrjám fafla nú
epli sem áhuga hafa á forsetaemb-
ættinu. Þar má fyrsta nefna Guð-
rúnu Pétursdóttir, sem er af Thor-
sætt. Guðrúnu Agnarsdóttur, sem
er af Stephensenum, Pétur Hafstein
hæstaréttardómara og Ólaf Egflsson
sendiherra, sem er af Briemætt.
Guðrún Pétursdóttir hefúr þegar
boðað framboð sitt en hin eru öll
sögð vera að skoða máliö.
Flókalundur
Ekki dregur úr
vísnaflóðinu
um Langholts-
kirkjudeiluna.
Sá snjalli ha-
gyrðingur, Há-
kon Aðal-
steinsson,
skógarbóndi á
Héraði, kaflar
Langholts-
kirkjuekki
annað en
Flókalund eftir
allt sem gengið
hefur þar á. Og auðvitað hefúr Há-
kon ort vísu um málið.
Þótt sóknamefnd sitji á fundi,
samt hefur orðið tjón.
Friöur sé með oss í Flókalundi,
farðu til andskotans, Jón!
Umsjón: Sigurdór Sigurdórsson
góður