Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1996, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1996, Page 12
12 MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1996 Spurningin Hvert er uppáhaldssjón varpsefni þitt? Andrés Ásmundsson sjómaður: Fréttirnar, Derrick og skemmti- þættir. Ingvar Björnsson, heldri borgari: Derrick. Snæbjörn Ólafsson kjötiðnaðar- maður: Dagsljós. Zlatan Mrayinac: Það er misjafnt, Bráðamóttakan. — Nashia Mrayinac: Fréttir, Bráða- móttakan, Dagsljós og Ó-þættirnir með Dóru Takefusa. Katla Hafberg matráðskona: Fréttirnar, tvímælalaust. Lesendur Forsetaembættiö: llla skilgreint, umdeilt og óþarft Birgir Guðjónsson skrifar: Áður en langt líður rennur út framboðsfrestur til forsetakjörs hér. Þótt draga megi framboð þar til sex vikum fyrir kjördag, er það sjálf- sögð kurteisi að sá sem á annað borð hefur hugsað sér að bjóða sig fram til forseta, og þeir sem á bak við þann aðila standa, dragi ekki í lengstu lög að tilkynna það lands- mönnum. Það er í raun hreinn bjálfaskapur að láta líklega um framboð en þora ekki að gefa skor- inort svar, jákvætt eða neikvætt, þar að lútandi. Allt frá því að landsfundi Sjálf- stæðisflokksins, sem átti að vera í janúar sl. var frestað, á forsendum sem tengdust hörmungunum á Flat- eyri, sárrar minningar, hefur for- setaframboðið verið í uppnámi, og er það enn. Og eftir að einn fram- bjóðandi, Guðrún Pétursdóttir, hef- ur ákveðið framboð af sinni hálfu, hefur enn dregið niður í þeim hin- um sem þó hafa oftast verið nefndir til sögunnar, og sjálfír ekki neitað fyrirætlun um framboð. Það er eins og þeim hinum hafí, með framboði Guðrúnar, verið veitt eitt heljar- mikið kjaftshögg, sem þeir rísa ekki undir. Er þá ef til vill svo komið, að ís- lenska forsetaembættið sé ekki einu sinni svo mikils virði, að það sé þess virði að berjast um það? Það er þá nýlunda í lýðræðisþjóðfélagi. Alls staðar annars staðar er það talið styrkja viðkomandi stuðnings- hóp, flokk eða samtök, sem ná að berjast til sigurs fyrir embætti for- seta (forsætisráðherra þar sem ekki Dr. Guðrún Pétursdóttir forsetaframbjóðandi. - Hefur öðrum hugsanlegum frambjóðendum verið veitt kjaftshögg sem þeir rísa ekki undir? er forseta til að dreifa, t.d. í Sviss, og e.t.v. víðar). Og svo er auk þess farið að deUa um embættið sjálft. Það kemur í ljós, að embættið er illa skUgreint, og menn eru ekki einu sinni sam- mála um hvort þess sé nokkur þörf. Þaö skyldi þó ekki verða niðurstað- an í uppnáminu um forsetaframboð- ið, að embættið sé best geymt sem sameinað í embætti forsætisráð- herraembætti landsins? Eða vilja menn framhald á fíflahætti eins og þeim sem felst í þvi að spyrja fólk í skoðanakönnunum hvort þessi eða hinn eigi nú að gefa kost á sér tU forseta? Með því er lýðræðið á ís- landi líklega fullkomnað. Meiri viðskipti við Kanada Skarphéðinn Hinrik Einarsson skrifar: Nú þegar Eimskip hefur hafið reglubundnar siglingar til Kanada hljóta viðskipti við Kanada að aukast. KanadadoUar er frekar lágur þessa dagana og viðskipti í Kanada að mínu mati fýsilegri heldur en í Bandaríkj- unum. í Kanada bjóðast sömu vörur og þar eru bílaverksmiðjur sem eru í eigu bandarískra aðila. Þar er hægt að fá aUa bíla sem við flytjum inn frá Bandaríkjunum og það er alveg eins hægt að fá bílana frá Kanada og gæti hugsanlega verið hagkvæmara að fá þá þaðan en beint frá Bandaríkjunum. Við gætum Uutt inn bandarísk dekk frá Kanada. Margt annað gætum við flutt inn frá Kanada eins og krossvið, timbur, ýmsar vélar og önnur tæki. Ég hef komið nokkrum sinnum tU Kanada og það er einfaldlega eins og smækkuð mynd af Bandaríkjunum. Þar er aUt ódýrara sökum þess að KanadadoUar er ódýrari en Banda- ríkjadollar. Eflum tengsl okkar við Kanada. Þau hafa því miður verið lítil, bæði á menningarsviði og viðskiptasviði. Enginn áhugi á einkafram- taksmönnum samtímans H.Þ.I. skrifar: Getur verið að komið sé að því að auglýsa þurfi eftir málsvara einka- framtaksins, málsvara fyrir þá ein- yrkja sem eru úti í alvörulífinu að baxa við að reka fyrirtæki, hvort sem það er verslun, verkstæði, bátur eða loðdýrabú. Það er löngu orðið Ijóst að kynslóð sú sem alist hefur upp í gjörgæslu hins veruleikafirrta gervUífs, og sit- ur nú á þingi og fær launin sín á hverju sem gengur, hefur ekki áhuga á einkaframtaksmönnum samtím- ans. Nei, það eru stóru auðhringarn- ir og þeir sem tróna efst á opinberu ILI§[1R!1I@Í\ þjónusta allan sólarhringinn Aðeins 39,90 mnútan - eða hringið í síma 5000 i kl. 14 og 16 „Því miður virðist samtakaleysið vera örlög einyrkjans, en honum er alveg óhætt að setjast niður og íhuga í fullri alvöru hvort hann yfirhöfuð á ein- hverja málsvara á hinu háa Alþingi." jötunni sem þeir vilja vera málsvar- ar fyrir. Mikið held ég að einyrkjum þessa lands myndi líöa betur ef þessum svokölluðum málsvörum þeirra yrði skammtaður vinnutími í sama hlut- falli og eigendum krókaleyfisbáta, þeim gæfist þá knappari tími til að gera til bölvunar, Nýjasta dæmið um algjörlega mál- svaralausa einyrkja er sá dæmalausi útburður á loðdýrabændum í Ölfusi, en ekki heyrist stuna né hósti í sam- tökum bænda og þingmenn kjör- dæmisins sofa þymirósusvefni og ekkert hefur heyrst frá fyrrverandi landbúnaðarráðherra, líklega ber að túlka þögnina sem samþykki. Því miður virðist samtakaleysið vera örlög einyrkjans, en honum er alveg óhætt að setjast niður og íhuga í fullri alvöru hvort hann yfirhöfuð á einhverja málsvara á hinu háa Al- þingi. DV Letingjar og sóð- ar í umferðinni Ragnar hringdi: Reykvískum ökumönnum tekst alltaf að koma náunga sínum á óvart. Maður skyldi nú ætla að þeir hefðu lært af langri reynslu að hreinsa nú snjóinn af öllum rúðum bíla sinna áöur en þeir halda út í borgarumferðina, og þá allan snjóinn. Ó, nei, aldeilis ekki. Maður sér þessa hálfinni- luktu sóða á nánast hverju götu- horni þessa dagana, stórhættu- lega sjálfum sér og öðrum. í þokkabót nenna þeir svo heldur ekki að hreinsa af ljósunum, bæði að framan og aftan. Hvernig væri nú að lögreglan sektaði þessa sóða eða veitti þeim ærlegt tiltal? Óþolandi oft körfubolti Auður Jónsdóttir skrifar: Ég tel það óþolandi hversu oft körfubolti er sýndur á Stöð 2. Til dæmis var sýndur körfuboltaleik- ur aðfaranótt laugardags 3. febrú- ar þannig að slökkt var á sjón- varpinu á mínu heimili. Daginn eftir var sest fyrir framan sjón- varpið tfl að horfa á mynd sem átti að byrja kl. 13. Hætt var við sýningu myndarinnar vegna end- ursýningar á körfuboltaleiknum frá því nóttina áður og er þetta ekki í fyrsta skipti sem hætt er við sýningu mynda vegna körfu- bolta. Gat Stöð 2 ekki sýnt þenn- an leik á Sýn þar sem engin dag- skrá er til 17. Á sunnudögum eru íþróttir allan daginn og á þetta líka að verða þannig á laugardög- um? Ég vona ekki. Fyrir utan hvað þetta er einhæft því mjög sjaldan er sýnt frá fimleikum, dansi, skautum o.þ.h., bara bolta- leikjum. Stórkostlegt tjón Kristtn hringdi. Mér þykir ákaflega hvimleitt að heyra og sjá hvemig orðið stórkustlegur er notað um alla skapaða hluti. Ég er nú enginn sérfræðingur í málnotkun en það kemur mér spánskt fyrir sjónir að sjá skrifað „stórkostlegt tjón“, „stórkostlegur misskflningur", „stórkostlegar náttúruhamfarir" og svo framvegis. Ég hélt að nota ætti orðið stórkostlegur til að leggja áherslu á eitthvað sem er jákvætt, eins og tfl dæmis stór- kostlegur árangur eða stórkost- legt útsýni, en ekki til að undir- strika það sem er neikvætt. Því miður eru það ekki bara Pétur og Páll sem tala svona heldur einnig æðstu ráðamenn þjóðarinnar. Bann viö barnavinnu G.G. hringdi: Ég er ansi hrædd um að það verði þröngt í búi á mörgum ís- lenskum heimilum verði farið eft- ir tOskipunum Evrópusambands- ins um bann við vinnu barna á skólaskyldualdri nema í undan- tekningartilfeOum. Ef svo fer að þetta bann taki gOdi verða leiðtog- ar verkalýðsfélaganna aldeOis að setja í gír og sjá til þess að lág- launafólk fái hærri laun. Margar fjölskyldur hafa fleytt sér langt fram á haust meö því að láta börn- in sjálf fata sig upp fyrir veturinn. Hvert fer söfnunarféð? Tónlistarunnandi hringdi: Eftir að stuðningsmenn tónlist- arhúss á íslandi hafa staðið fyrir hinum og þessum söfnunum hefur menntamálaráðherra sett á lagg- irnar nefnd sem fara á í saumana á því hvort ráðast eigi í byggingu tónlistarhúss. Einnig á að ræða hvaða starfsemi eigi að fara fram í húsinu og svo framvegis. Af þessu tflefni langar mig aö spyija hvert söfnunarféð, sem líklega er ekki mikið, fer ef ekki veröur ráð- ist í byggingu tónlistarhúss?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.