Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1996, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1996, Síða 17
MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1996 17 pv________________________Menning Menningarverðlaun DV 1996: Fimm tilnefningar í bókmenntum Fimm rithöfundar eru tOnefndir til Menningarverðlauna DV 1996 í bókmenntum. Þetta eru þau Sigfús Bjartmarsson, Steinunn Sigurðar- dóttir, Pétur Gunnarsson, Sigurður Pálsson og Gyrðir Elíasson. Menningarverðlaunin eru veitt fyrir markverða atburði eða sér- stakt framtak sem tengist eftirtöld- um sjö listgreinum: bókmenntum, tónlist, leiklist, myndlist, bygging- arlist, kvikmyndum og listhönnun. Þriggja manna dómnefnd tilnefnir fimm aðila sem þykja hafa skarað fram úr í hverri listgrein og hafa nefndirnar verið að störfum síðustu vikur. Tilnefningar dómnefndar um myndlist voru kynntar í DV sl. fimmtudag. Fram að afhendingu verðlaun- anna, sem fram fer við málsverð í Þingholti, Hótel Holti, fimmtudag- Pétur Gunnarsson: Frú Bovary (þýðing). inn 22. febrúar, verða tilnefningar nefndanna kynntar hver af annarri í blaðinu. Dómnefnd um bókmenntir skipa Sigríður Albertsdóttir, bókmennta- fræðingur og gagnrýnandi DV, Ást- ráður Eysteinsson, prófessor í al- mennri bókmenntafræði, og Rúnar Helgi Vignisson rithöfundur. Hér á eftir fara tilnefningar nefndarinnar og rökstuðningur: Speglabúð í bænum eftir Sigfús Bjartmarsson: Speglabúð Sigfúsar hefur á boðstólum fjölbreytilegt safn ljóða, stuttra hugleiðinga og frásagna sem einkennast af ögrandi framsetningu og frjórri hugsun, þannig að úr verður krefjandi og áleitinn texti, fullur af ísmeygileg- um og eftirminnilegum spegilmynd- um. Hjartastaður eftir Steinunni Sigurðardóttur: Stílfimi og glöggt auga fyrir tengslum manns og nátt- úru einkenna þessa metnaðarfullu skáldsögu. Hún er í senn spaugileg og átakanleg frásögn af konu sem tekur sér ferð á hendur til að bjarga vegvilltu einkabarni sínu og sjálfri sér í leiðinni. Þroski, ást, vinátta, fjölskyldubönd - allt er þetta spunn- ið saman af innsæi svo úr verður skáldlegur og manneskjulegur vef- ur. Þýðing Péturs Gunnarssonar á Frú Bovary eftir Gustave Flaubert: Frú Bovary er tímamóta- verk í skáldsagnagerð á Vesturlönd- um; öðrum þræði hápunktur raun- sæisstefnunnar á 19. öld en vísar um leið fram til bútímaskáldsagna 20. aldar. Pétri hefur lánast að þýða þetta merka verk þannig að hin rómuðu stílbrögð höfundar öðlast glæsilega samsvörun í íslensku máli og bera í senn klassískan og nútímalegan blæ. Þýðing Péturs telst því vera eitt merkasta framlag- Sigfús Bjartmarsson: Speglabúð í bænum. Sigurður Pálsson: Ljóðlínuskip. ið til íslenskra bókmennta á síðasta ári. Ljóðlinuskip eftir Sigurð Páls- son: Lágvær en áleitin ljóðabók þar sem fjallað er á tæru tungumáli um dásemdir lífsins, náttúruna og þrána sem ólgar í blóðinu. Bókinni er skipt í átta kafla sem saman mynda sterka heild og miðla sammannlegri reynslu á kunnugleg- an en um leið nýstárlegan og fersk- an máta. í þessum ljóðum er seið- andi tónlist sem kallast á við sigl- inguna sem er meginstef bókarinn- Steinunn Sigurðardóttir: Hjartastað- ur. Gyrðir Elíasson: Kvöld í Ijósturnin- um. ar. Smásagnasafnið Kvöld í ljós- turninum eftir Gyrði Elíasson: Hér færir Gyrðir enn út mörk þess ljóðræna sagnasviðs sem hann hef- ur skapað í fjölmörgum verkum á liðnum árum. Sá heimur telst til merkilegustu nýmæla sem íslensk- um lesendum hefur borist á undan- förnum áratug. í þessari bók birtist næm skynjun umheimsins í mynd- máli sem gjarnan beinist að einstak- lingum og stöðum á jaðri ráðandi menningarlífs og hvetur um leið til nýs skilnings á mannfélaginu og tengslum okkar við náttúruna. Einn þessarra rithöfunda mun síðan hljóta Menningarverðlaun DV í bókmenntum sem afhent verða 22. febrúar. -bjb GSR 12 VES-2 Borvél í tösku með hleðslutæki GBM16-2 RE Borvél 1050w GWS 9-125 Slípirokkur 900w GFZ16-35 AC Trésverðsög GWS 21-180 J Slípirokkur — 2100w GBH 2-24 DSR | Lofthöggborvél m© BOSCH BOSCH umboðlð aökeyrsla frá Háaleitisbraut B R Æ Ð U R N I R ŒMSSONHF Lágmúla 9 • Sími: 553 8820 • Fax: 568 8807 Söluaðiiar: Málningarþjónustan, Akranesi (Handverkfæri). GH verkstæðið Borgarnesi (Bílavara- hlutir og fl). Póllinn, ísafirði (Handverkfæri). KEA, Akureyri (Handverkfæri og fl). Þórshamar, Akureyri (Bilavarahlutir og fl). KÞ Húsavík (Handverkfæri og bílavarahlutir). Víkingur, Egilsstöðum (Handverkfæri, bílavarahlutir og íhlutir).Vélsmlðja Hornafjaröar, Hornafirði (Handverkfæri, bílavarahlutir og fl). Byggingavörur Steinars Árnasonar hf., Selfossl (Handverkfæri). © BOSCH Handverkfæri KÆLISKAPAR ÞU GETUR TREYST FAGOR FAGOR nsssr RONNING BORGARTÚNI 24 SÍMI 562 40 11 FAGOR S30N Kælir: 265 I - Frystir: 25 I HxBxD: 140x60x57 cm innbyggt frystihólf Stgr.kr41.300 FAGOR D27R Kæiir: 212 I - Frystir: 78 I HxBxD: 147x60x57 cm 49.800 FAGOR C34R - 2 pressur Kælir: 290 I - Frystir: 1101 HxBxD: 185x60x57 cm Tvöfalt kælikeríi %78b800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.