Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1996, Side 32
44
MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1996
Kemst nýr forseti á Bessastaði
með 7000 atkvæði á bak við sig.
Fjöldaframboð
í uppsiglingu
„Það eru fjöldaframboð í upp-
siglingu. Við ætlum að kjósa
okkur forseta með þetta 5000 til
7000 atkvæðum."
Indriði G. Þorsteinsson, í Degi.
Stuðningur og ekki
stuðningur
„Ég hef í rauninni ekki beðið
neinn um að styðja mig, heldur
sagt: Hér er ég, svona er ég og
viljið þið styðja mig?“
Guðrún Pétursdóttir, í Tímanum.
Ummæli
Les fjármálaráðherra á
kompásinn
...hefur nú steytt eins og Po-
urquoi pas? á sínu Þormóðsskeri
og kemst ekki þaðan meðan fjár-
málaráðherrann les á
kompásinn dag hvern og gefur
stefnuna."
Össur Skarphéðinsson, á Alþingi,
um Ingibjörgu Pálmadóttur.
Erum farnir,
sem þorðum
„Þingmenn þora ekki að segja
neitt eða spyrja um framboðsmál
Davíðs leiðtoga síns. Við erum
allir hættir og farnir, sem þorð-
um.“
Matthías Bjarnason, íTimanum.
Bækur sumra rithöfunda seljast í
milljónaeintökum.
Metsöluskáld-
sögur
Metsöluskáldsogurnar eru
margar og þá er verið að tala um
eintakafjölda í milljónum. Sú
skáldsaga sem selst hefur í
mesta upplagi er Valley of the
Dolls eftir Jacqueline Susann
(1924-1979) en salan á henni var
síðast þegar tekiö var saman yfir
29 milljón eintök. Þegar
skáldsagan kom út 1966 seldust
af henni 6,8 milljón eintök á sex
mánuðum. Stærsta upplag sem
prentað hefur verið af skáldsögu
á Bretlandseyjum í einu er þrjár
milljónir eintaka af Lady
Chartterley’s Lover í pappírs-
kilju, eftir D.H. Lawrence, en í
heild hafa selst á Bretlandseyj-
um yfir 5 milljón eintök af bók-
inni.
Blessuð veröldin
Vinsældir Alistairs
MacLeans
Þótt engar ábyggilega tölur
séu til þá er enginn vafi á því að
Alistair MacLean er mest seldi
erlendi rithöfundurinn hér á
landi en hann er ekki aðeins vin-
sæU hér. Þegar hann dó árið 1987
hafði hann skrifað þrjátíu bækur
og hafði á Bretlandseyjum ein-
um selst meira en mUljón eintök
af 28 þessara bóka. Bækur hans
hafa verið þýddar á 28 tungumál
og 13 þeirra hafa verið kvik-
myndaðar. Rétt eftir dauða hans
var áætlað að á 18 sekúndna
fresti seldist bók eftir hann.
É1 á annesjum
norðanlands
I dag verður hæg austan- og suð-
austanátt á landinu, smáslydduél
Veðrið í dag
við suður- og austurströndina og él
á annesjum norðanlands en víða
bjart suðvestanlands.
Sólarlag í Reykjavík: 17.50.
Sólarupprás á morgun: 9.32.
Síðdegisflóð í Reykjavík: 24.14.
Árdegisflóð á morgun: 0.14.
Heimild: Almanak Háskólans.
Veðrið kl. 12 í gœr:
Akureyri snjóél -3
Akurnes skúr á siö. klst 3
Bergsstaöir alskýjað -4
Bolungarvík alskýjað 2
Egilsstaðir skýjaö 2
Keflavíkurflugv. skýjað 1
Kirkjubkl. léttskýjað 3
Raufarhöfn rigning 2
Reykjavik skýjaö 1
Stórhöfói skýjaö 5
Helsinki léttskýjað -15
Kaupmannah. þokumóða -4
Ósló snjókoma -5
Stokkhólmur skýjað -6
Þórshöfn haglél á síð.klst 3
Amsterdam skúr á síð.klst 5
Barcelona mistur 12
Chicago snjókoma 1
Frankfurt rign. á síð.klst 4
Glasgow skúr á síó.klst 7
Hamborg frostúði -2
London skýjað 9
Los Angeles alskýjað 15
Lúxemborg súld 2
París skýjað 5
Róm þokumóða 9
Mallorca skýjað 13
New York alskýjað 7
Nice hálfskýjað 12
Nuuk skýjað -12
Orlando þoka 13
Vín skafrenningur -5
Washington alskýjað 11
Winnipeg alskýjað -5
Birgir Ingibergsson, formaður sunddeildar Keflavíkur:
Foreldrar mjög
virkir í starfinu
DV, Suðurnesjum:
„Það má segja að þetta sé eitt af
fáum sundfélögum sem hafa mjög
virka foreldra, sem starfa mikið og
fylgjast vel með því sem er að ger-
ast. Þeir skipta sér af öllu sem gert
er og það er mjög gott að fá slíkt
aðhald og ábendingar. Og það er
engin spurning um það að starf
þeirra hefur verið mikilvægt fyrir
sunddeildina,“ segir Birgir Ingi-
bergsson, formaður sunddeildar
Keflavíkur, en sundfólk af Suður-
nesjum hefur verið að gera það
Maður dagsins
gott og deildin sjálf umtöluð á
landinu fyrir gott starf í þágu
sundíþróttarinnar.
Uppbygging deildarinnar hefur
verið mikil á undanförnum árum:
„Við byrjuðum fyrir fjórum árum
að byggja deildina upp, þá voru
um áttatíu krakkar við æfingar,
en í dag eru það hundrað og þrjá-
tíu sem æfa sund og eru virkir.
Hjá okkur starfa þrír þjálfarar og
Birgir Ingibergsson.
við eigum þrjá landsliðsmenn, tvo
unglingalandsliðmenn og helming-
ur af þeim sem þessa dagana eru
að reyna við ólympíulágmarkið,
eða tveir, er frá okkur, sem verður
að teljast gott hjá ekki stærra fé-
lagi. Við höfum haft það að leiðar-
ljósi að vera með íþróttamenntaða
þjálfara og ég segi að í dag erum
við með bestu þjálfarana í sundi.“
Hjá sunddeildinni eru hjón frá
Þýskalandi sem þjálfa. Birgir segir
að þótt það hafi kostað sitt á sín-
um tíma að fá þau þá sé það búið
að skila sér margfalt til baka.
Sunddeildin þurfti að leita eftir
fjárstuðningi og voru viðbrögðin
mjög góð: „Það var með ólíkindum
hvað tekið var vel í beiðni okkar
og eiga allir sem þar lögðu lið
miklar þakkir skildar og eins ber
að þakka að vel hefur verið brugð-
ist við beiðni okkar um styrk fyr-
ir afreksfólkið okkar.“
Birgir hefur verið formaður
deildarinnar í fjögur ár og í átta ár
hefur hann starfað fyrir sund-
deildina. Allar frístundir hans
fara í það 'starf sem hann segir ná
yfir eÚefu mánuði á ári. Önnur
áhugamál hans eru gönguferðir
þegar tími gefst til. Eiginkona
Birgis er Guðrún Jóhannsdóttir og
eiga þau fjögur börn, sem öll eru
að æfa sund, Sævar, 19 ára, Ró-
bert, 16 ára, Grétar, 14 ára, og
Birgitta Rún, 12 ára.
-ÆMK
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1441:
Loftvamaflauta
Handbolti
og körfu-
bolti
Helgin var mjög viðburðarík í
íslensku íþróttalífi og því ekki
mikið um að vera í kvöld. Ekki
er hægt að koma því við að hafa
alla leiki í handbolta og körfu-
bolta um helgar og því er leikið í
kvöld í 1. flokki í handbolta og
íþróttir
unglingaflokki í körfubolta.
í handboltanum eru þrír leikir
á dagskrá, Fjölnir - Grótta í
Fjölnishúsi Fram - Víkingur í
Framhúsi og Afturelding -
Haukar að Varmá. í körfuboltan-
um leika ÍA - KR á Akranesi,
Njarðvík - Unglingal. í Njarðvík,
Breiðablik - Haukar í Smáran-
um og Valur - Fylkir í Valsheim-
ilinu. Fyrir þá sem heima sitja
er bent á íþróttaþátt Sjónvarps-
ins þar sem helgarviðburðir eru
teknir fyrir.
Saga alþýðu-
söngs á
íslandi
í Listaklúbbi Leikhúskjallarans
í kvöld munu Þórarinn Hjartar-
son og Ragnheiður Ólafsdóttir
gefa sögulegt yfirlit yfir íslensk
alþýðulög í tali og tónum, allt frá
dróttkvæðum og fram á okkar
Tónleikar
dag. í fyrri hlutanum verður fjall-
að um þjóðlög og sunginn fimm-
undarsöngur og rímnalög. Seinni
hlutinn er helgaður alþýðulögum
frá þessari öld og verða þá ftutt
lög eftir Jórunni Viðar, Valgeir
Guðjónsson, Leif Þórarinsson,
Atla Heimi Sveinsson, Hörð
Torfason og fleiri. Dagskráin
hefst kl. 20.30.
Bridge
Politiken boðsmótið danska, sem
spilað var á síðasta ári, þótti takast
vel en þar voru margir frægustu
spilarar heims meðal þátttakenda.
Fyrir mótið héldu Danir sérstakt 16
para tvímenningsmót með þátttöku
flestra bestu para landsins þar sem
keppt var um 2 laus sæti á Politi-
ken-mótinu. Hér er eitt spil úr
þeirri keppni. Sagnir gengu þannig,
vestur gjafari og allir á hættu:
4 KDG
V K1042
4- KG3
* Á95
* Á732
* ÁD876
4 4
4 G87
4 84
«4 953
4 98752
* D32
♦ 10965
«4 G
4 ÁD106
♦ K1064
Vestur Norður Austur Suður
Bruun Werdelin K.Blakset D:
1* pass pass Dobl
pass 2* pass 24
pass 34 pass 44
Dobl p/h
Yngri spilarinn Bruun taldi sig
verá í góðri stöðu að dobla fjóra
spaða með þetta sterk spil í vestur
en Werdelin spilaði vel úr spilun-
um. Útspilið, spaðakóng, drap hann
strax á ás, spilaði tígli á ás og
hjartagosa úr blindum. Bruun setti
kónginn, Werdelin ásinn og síðan
fylgdi hjartadrottning og laufi hent í
blindum. Hjarta var nú trompað,
tígull trompaður, hjarta trompað
með spaðaníu og tígull trompaður
(kóngur féll hjá vestri). Werdelin
spilaði sig nú út á spaða, Bruun
komst inn á gosann og varð að spila
laufi. Sagnhafi tók slaginn á tíuna í
blindum og spilaði tíguldrottningu.
Sagnhafi gat trompað eða látið það
vera en Werdelin fékk alltaf 10 slagi.
ísak Örn Sigurðsson