Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1996, Side 7
MANUDAGUR 19. FEBRUAR 1996
Sandkorn
Fréttir
Hjálpsemi
Séra Birgir
Snæbjömsson,
prestur á Akur-
eyri, segir
nokkrar góðar
prestasögur i
bókinni Þeim
varð á í mess-
unni. Ein
þeirra segir frá
því að hann
var að gifta í
Akureyrar-
kirkju. „Ég bað
alla að syngja
með mér brúökaupssálminn en að-
eins einn tók undir, lítill drengur,
kannski svona tveggja ára. Þegar ég
söng hástöfum, Heyr böm þín, guð
faðir, þá söng hann það sem hann
kunni best en það var Atti katti
nóva. Hann var nú stoppaður til-
tölulega fljótt en um kvöldið hitti ég
drenginn og þakkaði honum inni-
lega fyrir meö handabandi, hann
hefði verið sá eini er vildi hjálpa
mér eitthvaö.“
Gömul húsráð
í blaðinu ísflrð-
ingi, sem var
að koma út, eru
talin upp nokk-
ur gömul hús-
ráö en margir
hafa tröllatrú á
húsráðunum.
Þar segir að við
ókyrrð í fótum
sé gott að binda
uliarband laust
um mjóalegg-
inn. Við kvefi
og hósta sé gott
að setja gráan ullarflóka á bert
brjóstið og hafa hann þar. Við gigt
er gott að bera steinolíu á svæðið
og nudda vel inn í húðina. Allir
kannast við hvað það er vont að fá
bólu á tunguna. Eina ráðið við því
er að tauta fyrir munni sér
nokkrum sinnum. „Ein bóla á tung-
unni, engin á morgun,“ og þá er
eins og viö manninn mælt, bólan er
horfin á morgun.
Tóbaksvarnir
Mikið er nú
rætt um tóbak-
svamarfrum-
varpið sem lagt
hefur verið
fram á Alþingi
og þykir
strangt, næst-
um ofstækis-
fullt, í tilefni
þess er ekki úr
vegi að rif ja
upp Tóbaksvís-
ur séra Hall-
gríms Péturs-
sonar. Vísan um reyktóbak er
svona.
Tóbak róm ræmir
remmu framkvæmir,
tungu vel tæmir
tár af augum flæmir,
háls meö hósta væmir,
heilan fordæmir
og andlit afskræmir.
Vísan um neftóbakið er á þessa
leið.
Tóbak nef neyðir,
náttúru eyðir,
upp augun breiðir,
út hrákann leiðir,
minnisafl meiðir
máttleysi greiðir
og yfirleitt eyðir.
„No thank you"
í Vestmanna-
eyjablaðinu
Fréttum er ný-
lega saga af því
þegar bankað
var upp á hjá
Sigríði Magnús-
dóttur í Vest-
mannaeyjum.
Fyrir utan stóö
maður frá
Heyrnleysin-
gjafélaginu í
Eyjum og var
að selja varning
til styrktar félaginu. Sigríður keypti
sitt lítið af hverju af manninum,
ánægð með að hafa styrkt gott mál-
efiii. Svo leið vika. Þá er aftur
bankað upp á og enn er kominn
maður frá Heyrnleysingjafélaginu
og nú að selja happdrættismiða. Sig-
ríði fannst þetta of langt gengið, að-
eins vika síðan hún styrkti félagið
verulega. Henni gekk afar illa að
gera sölumanni happdrættismið-
anna þetta skiljanlegt þar sem hann
var heyrnarlaus. Á endanum fékk
hún prýðishugmynd; hún hristi
hausinn og sagöi: „No thank you“.
Umsjón: Sigurdór Sigurdórsson
Viljum vera í friði
— eins og norskir trillukarlar
„Mér fmnst kominn tími til að gera
eins og Norðmenn gera. Þeir láta alia
báta undir 15 metrum í friði með öll
gjöld. Það var það fyrsta sem gert var
þegar kvótinn minnkaði," segir Jósep
Valgeirsson, trillukarl í Njarðvík.
Hann er ósáttur við aö þurfa að greiða
sama grunngjald fyrir aö fá að veiða á
sinni triliu og þeir sem eiga frystitog-
ara.
Grunngjaldið er 12.930 krónur á ári
og er veiðieftirlitsgjald sem á að halda
uppi rekstri á veiðieftirliti Fiskistofú,
að því er Jón B. Jónasson, skrifstofú-
stjóri hjá sjávarútvegsráðuneytinu,
greinir frá.
„í Noregi þurfa menn ekki heldur að
sitja með hendur í skauti og horfa út
um gluggann á blíðuna af því aö það er
veiðibann. Þar fá menn aö ráða því
hvenær þeir taka það magn sem þeim
er úthlutað. Við búum á íslandi og hér
er allra veöra von. Heilbrigð skynsemi
segir manni að hér eigi menn að fá að
veiða þegar veður leyfir,“ leggur Jósep
áherslu á.
Hann segir smábátaeigendur hafa
Jósep Valgeirsson við trilluna sína í
Keflavíkurhöfn. DV-mynd Ægir Már
Nýr bátur
íEyja-
flotann
DV, Vestmannaeyjum:
Nú í vikunni bættist nýr bátur í
Eyjaflotann þegar Sjöfn II. lagðist
við bryggju í Vestmannaeyjum. Eig-
endur eru Ástþór Jónsson og Elmar
Guðmmundsson og keyptu þeir báti
inn frá Bakkaflrði.
Þetta er eikarbátur, 63 tonn, smíð-
aður í Danmörku 1963 og lítur mjög
vel út. Með í kaupunum fylgdu 50
tonna þorskígildi. Lagt verður upp
hjá Vinnslustööinni.
Elmar verður skipstjóri á bátn-
um, Ástþór stýrimaður og Magnús
Sigurðsson vélstjóri.
Árneshreppur:
Fiskirí gott í
bliðunni
DV, Selfossi:
Að sögn Gunnsteins Gíslasonar,
oddvita í Árneshreppi á Ströndum
og flskmóttökumanns, hefur fiskirí
bara verið sæmilegt frá Norðurfirði
að undanfórnu. Róðrar hófust mun
fyrr en verið hefur undanfarin ár
enda hefrn- einstök veðurblíða verið
allt frá því í haust.
Brottfluttir Ámeshreppsbúar
sækja sjóinn mikið, einkúm yfir
sumartímann, frá stöðum í hreppn-
um. Þeir Guðmundur Elíasson og
Sigfús Kristinsson eru þar nú og
halda til í verbúð kaupfélagsins sál-
uga á Norðurfirði. Hafa þeir aflað
vel og leggja upp hjá Gunnsteini.
Hann hefur reynst sjómönnum vel
gegnum árin - aldrei klígjað við
fiski og aldrei hefur verið saltlaust
hjá honum eins og oft kom fyrir hjá
stjórunum fyrr á öldinni. Regína
verið svikna. „Þegar við kusum til Al- ar kosningaskrifstofurnar hér og óbreytt. Allsstaðarvarsvaraðjáensvo
þingis gengum við nokkrir saman á all- spurðum hvort krókaleyfið yrði gengu menn á bak orða sinna.“ -IBS
28" LITASJÓNVARP
Kolster litasjónvarp með Black Line
myndlampa, fjarstýríngu, 2x20 W Nicam
Stereo með Surround hát. tengimögul.,
aðgerðirá skjá, textavarp með ísl.
stöfum, 2x Scart tengi, Pal möttaka.
ALLT ÞETTA FYRIR AÐEINS
69.900
STGR.
SátnEWgWBSTOBIN
SIÐUMULA 2, SIMI 568 9090 - OPIÐ LAUGARDAGA