Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1996, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1996, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996 Viðskipti Afkomubati stærstu fyrirtækjanna 1994 og 1995 í milljónum króna - 700 600 500 400 300 200 100 656 1994 1995 202 153 145 J . 106 |J ■ Mril Elmskip Flugleiöir Grandi ísiandsbanki Olís Skeljungur Hampiðjan Þormóður * Á VeröbréfabinBi fslands sem tilkvnnt hafa afkomn '95 rammi ........ - ■ POTM Aíkoma 8 af stærstu fyrirtækjunum á Verðbréfaþingi: Græddu alls 2,4 milljarða króna - hagnaður jókst um hálfan milljarð milli ára Þriggja prósenta verðbólga Ef marka má hækkun vísitölu neysluverðs undanfama þrjá mánuði um 0,7% þá ríkir 3% verðbólga á ársgrundvelli. Breyt- ing-á vísitölunni án húsnæðis á sama tíma jafngildir 4,3% verð- bólgu á ári. Þetta kemur ffam í tilkynningu ffá Hagstofu íslands um nýjasta útreikning á neyslu- vísitölunni. Miöaö við verðlag í byrjun mars reyndist hún vera 175,5 stig og hækkaði um 0,2% frá febrúarmánuði. Án húsnæöis er vísitalan nú 180,1 stig. Hækkun neysluvísitölunnar má einkum rekja til verðhækk- ana á mjólkurvörum og dilka- kjöti. Á móti varð lækkun á grænmeti og ávöxtum. Ef hækk- un neysluvísitölunnar frá janúar í fyrra til janúar í ár er skoðuð kemur í ljós að verðbólgan á ís- landi á þeim tíma var 1,6%. Á sama tima var verðþólgan í ríkj- um Evrópusambandsins að með- altali um 2,8%, lægst í Finnlandi, 0,5%, en hæst í Grikklandi eða 8,4%. Sæplast græddi 36 milljónir Sæplast á Dalvík hagnaðist um 36 milljónir króna af rekstri síð- asta árs. Heildartekjur námu 380 milljónum sem er ríflega 5% aukning ffá árinu 1994. Heildar- eignir í árslok voru bókfærðar á tæpar 400 milljónir en heildar- skuldir námu 107 milljónum. Eig- ið fé var því um 290 milljónir. Eiginfjárhlutfall í árslok var 73% en var 64% í byrjun árs í fyrra. Arðsemi eigin fjár á árinu var 14% í samanburði við 4,2% árið 1994. Sæplast seldi á innanlands- markaði fyrir 183,5 milljónir en útflutningur nam 196 milljónum eöa 52% af heildarsölu. Útflutn- ingsverðmæti jókst um 12% milli ára og vegur þar þyngst aukning á sölu fiskikera. í fyrra var flutt út til 29 landa í öllum heimsálf- um. Frá því fyrirtækið hóf rekst- ur árið 1984 hafa vörur þess ver- ið seldar í 70 þjóðlöndum. Gengi bréfa hækkaði um 63 prósent Meðalgengi hlutabréfa Sæ- plasts var 3,13 á árinu. Lægsta gengið var 2,70 en 4,15 það hæsta. Hækkunin á gengi bréfanna var 63% árið 1995 en á sama tíma hækkaöi þingvísitala hlutabréfa um 35%. -bjb Fundir og ráðstefimur Höfum sali sem henta fyrir alla fundi og ráðstefnur HÓTEL LgnND 5687111 Fyrirtækin í landinu, hver á fæt- ur öðru, tilkynna þessa dagana af- komu sína fyrir síðasta ár. í lang- flestum tilfeúum er um hagnað að ræða, talsvert meiri en árið áður. Er þá fyrst og fremst átt við fyrir- tæki sem skráð eru á Verðbréfa- þingi íslands eða Opna tilboðsmark- aðnum. Sem dæmi þá jókst saman- lagður hagnaður 8 af stærstu fyrir- tækjunum á Verðbréfaþingi, sem tilkynnt hafa afkomu síðasta árs, um tæpan hálfan milljarð króna eða nákvæmlega 456 milljónir. Fyrir- tækin sem hér um ræðir eru Eim- skip, Flugleiðir, Grandi, íslands- banki, Olís, Skeljungur, Hampiðjan og Þormóður rammi. Samanlagt högnuðust þau um 2,4 milljarða króna á síðasta ári en 1,9 milljarða árið 1994. Afkomubati þessara fyrir- Hlutabréfaviðskipti um kerfi Verðbréfaþings íslands og Opna til- boðsmarkaðarins í síðustu viku námu um 112 milljónum króna. Þar af var langmest keypt af bréfum Flugleiða eða fyrir 36 milljónir. Næst komu bréf íslenskra sjávaraf- urða með 13,8 milljóna viðskipti og höndlað var í Hlutabréfasjóðnum fyrir 10,8 milljónir. tækja milli ára sést nánar á með- fylgjandi grafi. Eimskip jók sinn hagnað milli ár- anna 1994 og 1995 um 45 milljónir króna, Flugleiðir um 32 milljónir, Grandi um 70 milljónir, Islands- banki um 146 milljónir, Olís um 51 milljón, Skeljungur um 20 miUjónir, Hampiðjan um 16 miUjónir og Þor- móður rammi um 76 milljónir. Fleiri fyrirtæki á hlutabréfamark- aði hafa að sjálfsögðu tUkynnt af- komu síðasta árs en ofangreind hlutafélög eru tekin sem dæmi um betri tíð. HaUdór Friörik Þorsteinsson, við- skiptafræðingur og verðbréfamiðl- ari hjá Kaupþingi, sagði í samtali við DV að batnandi afkoma fyrir- tækja sýndi að góðærið margumtal- aða væri gengið í garð á þessu sviði. Almennt voru hlutabréfaviðskipti mjög lífleg og bréf í langflestum fé- lögum skiptu um eigendur. Hluta- bréfaverð skaust upp ef marka má þingvísitölu hlutabréfa. Á nokkrum dögum hækkaði vísitalan um 5% og mældist 1670 stig sl. mánudag. Álverð á heimsmarkaði lækkaði lítiUega fyrir helgi en náði sama verði í gær og fyrir viku siðan, eða „Rétt er þó að benda á að hagnað- ur af reglulegum rekstri er ekki mikið betri en árið áður. Það eru frekar fjármagnsliðirnir sem hafa batnað. Þar koma einkum tU lægri vextir erlendis. Þetta er í sjálfu sér gott en maður hefði viljað sjá hagn- aðinn koma annars staðar frá einnig. Framleiðni fyrirtækjanna þarf að auka enn meir. Almennt séð eru þetta góðar tölur og styrkja þá gengisþróun sem hefur verið á markaðnum. Vissulega eru þó ýmis félög orðin þanin, þ.e. gengi bréf- anna kannski fullhátt í sumum tU- vikum. Annars fer árið vel af stað og ekki ástæða tU að vera með úrtöl- ur. Það er orðið erfiðara fyrir mína stétt að mæla með einhverjum hlutafélögum öðrum fremur,“ sagði HaUdór Friðrik. -bjb um 1590 dollurum fyrir tonnið í staðgreiðslu. Lágt verð á kopar hef- ur þrýst álverði niður um leið og birgðir á heimsmarkaði og í London hafa aukist undanfarnar vikur. Engin skipasala var í erlendum höfnum í síðustu viku, samkvæmt upplýsingum frá Aflamiölun LÍÚ. í gámasölu í Englandi seldust 290 tonn fyrir 38,2 milljónir króna. -bjb Skipasölur 200 Kg D J F M Gámaþorskur Kg D J F M Eimskip 1 Flugieiðir 1 Olís Olíufélagið ■ Skeljungur ■ ÞingvísiL hlutabr. 1 6,5 D J F M 4,00 D J F M D J F M D J F M 2000 1500 D J F M Þingvísít. húsbr. Hlutabréfaverð skýst upp Námsstefna um markaðsrannsóknir íslenski markaðsdagurinn fer fram í Borgarleikhúsinu á fóstu- daginn á vegum íslenska mark- aðsklúbbsins, ÍMARK. Haldin verður námsstefna um markaðs- rannsóknir með yfirskriftinni „Hvað veistu um markaðinn?" Fyrirlesarar verða Skúli Gunn- steinsson frá ÍM-Gallup, Hallur A. Baldursson frá Yddu, Stefán Ólafsson frá Félagsvísindastofn- un, Jón Björnsson frá Hagvangi, Hafsteinn Már Einarsson frá ÍM- Gallup, Ásta G. Harðardóttir frá Ráðgarði, Birna Einarsdóttir frá íslandsbanka og Emil Grímsson frá Toyota-umboðinu. Að náms- stefnu lokinni verða afhent verð- laun fyrir athyglisverðustu aug- lýsingar síðasta árs. Á íslenska markaðsdeginum fer einnig fram sýning í anddyri Borgarleikhúss- ins með þátttöku fyrirtækja sem bjóða upp á ýmsar vörur og þjón- ustu fyrir þá sem starfa að mark- aðs- og auglýsingamálum. Árnes tapaði 47 milljónum í ársreikningi útgerðarfyrir- tækisins Ámess í Þorlákshöfn fyrir árið 1995 kemur fram að tap á rekstri félagsins var 47 milljón- ir króna en var 35 milljónir árið áður. Tekjur félagsins í fyrra námu 1.285 milljónum og drógust saman um 214 milljónir, eða um 14% á milli ára. Samdrátturinn skýrist fyrst og fremst af áhrifum sjómannaverkfalls á veiðar og vinnslu humars og annarra fisk- tegunda. Aðalfundur Árness verður haldinn 23. mars nk. Þar mun liggja fyrir tillaga stjórnar um að henni verði heimilað að auka hlutafé um allt að 50% eða úr 260 í 390 milljónir með útgáfu nýrra hlutabréfa. Flugleiðir kaupa 26 Daihatsu bíla Bílaleiga Flugleiða og Brim- borg hafa skrifað undir samning um kaup á 26 bílum af gerðinni Daihatsu Feroza. Þetta er í þriðja sinn sem Flugleiðir kaupa Feroza til nota fyrir bílaleiguna. Bílam- ir verða afhentir 1 vor og sumar. Að sögn Egils Jóhannssonar hjá Brimborg reiknar fyrirtækið með að auka verulega sölu á Daihatsu bílum á þessu ári miöað við árið í fyrra. „Enda getur fyrirtækið boð- ið Daihatsu á mjög góðu verði nú þegar dregið hefur úr styrk jap- anska jensins," segir EgiO. Orkumenn ná samkomulagi Fyrirtækið Orka hf. og olíufé- lagið Orkan hf. hafa náð sáttum í ágreiningsmáli þeirra sem lýtur að flrmaheitinu Orkan hf. Hefur Orkan hf. fallist á einkarétt Orku hf. á firmaheiti sínu og mun breyta nafni félagsins í Bensínork- an hf. Dómsmál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur verður fellt niður. 8,8 milljaröa hagnaður NIB Hagnaður af starfsemi Nor- ræna fjárfestingabankans, NIB, á síðasta ári nam 8,8 milljörðum króna sem er svipuð afkoma og árið 1994. Útborganir lána námu 92,6 milljöröum en ný samnings- bundin lán voru upp á 125,5 millj- arða. Útistandandi lán í árslok námu 427 milljörðum en enginn útlán töpuðust á árinu. Á síðasta ári lánaöi NIB til 11 íslenskra aðila fyrir um 6 millj- arða. Langmest fór til ríkissjóðs, eða 3 milfjarðar, en aðrir lántak- endur voru RARIK, 450 milljónir, Útgerðarfélag Akureyringa, 150 milljónir, Grandi, 600 milljónir, Eimskip, 200 milljónir, Fiskveiða- sjóður, 900 milljónir, Iðnlánasjóð- ur, 300 milljónir, Myllan-Brauð, 63 milljónir, Brimborg, 100 milljónir, og Byggðastofnun, 300 milljónir. -bjb DVl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.