Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1996, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996
Útlönd
Sameinuðu
þjóðirnar í far-
arbroddi gegn
hryðjuverkum
Boutros
Boutros-
Ghali, fram-
kvæmda-
stjóri Sam-
einuðu þjóð-
anna, lagði
til í morgun
að SÞ yrðu í
fararbroddi í baráttunni gegn
hryðjuverkum um heim allan.
Þetta gerði hann á fundi leiðtoga
þjóða heims sem saman eru
komnir í Egyptalandi til að ræða
hvemig stemma megi stigu við
hryðjuverkum á borð við þau
sem hafa orðið tugum manna að
bana í ísrael að undanfomu.
„SÞ eru reiðubúnar að þjóna
þessum málstað, þær bíða eftir
fyrirmælum frá ykkur,“ sagði
Boutros-Ghali. Reuter
Bob Dole, oddviti öldungadeildar Bandaríkjaþings, fagnar sigri í sjö forkosningum repúblikana í gærkvöldi ásamt
Newt Gingrich, forseta fulltrúadeildarinnar. .Símamynd Reuter
Bob Dole nær öruggur um að verða forsetaefni repúblikana:
HiFi myndbandstæki HD600
Nicam HiFi stereo, 4 hausa Long Play, Super Drive,
Clear view control, fjarstýríngu, 2x Scart tengi ásamt
þvi að sýna allar aðgerðir i skji. HD600 fékk 10 fyrir
myndgæði, og var valið besta fjölskyldu- og
heimabiómyndbandstækið
Tækið endurgreitt!
Einn hepplnn vlðskiptavinur fær tæklð endurgreittl
Malaði keppinautana
í sjö stórum ríkjum
- nefnir Colin Powell sem mögulegt varaforsetaefni
BRAUTARHOITI OG KRINGLUNNt
Bob Dole, oddviti öldungadeildar
bandaríska þingsins, sigraði í for-
kosningum repúblikana í sjö stór-
um ríkjum í gær, 4 svokölluðum
súper þriðjudegi. Fátt virðist því
geta komið í veg fyrir að hann fái
útnefningu sem forsetaefni á lands-
fundi Repúblikanaflokksins síðsum-
ars.
Dole hafði afgerandi sigur í
Texas, Flórída, Oklahóma, Tenn-
essee, Missisippi, Louisiana og Or-
egon, fékk hreinan meirihluta at-
kvæða í öllum ríkjunum og var með
allt að 30 prósentustiga forskot á
næsta mann. Útgönguspár sýndu að
Málþing um umferðarmál
hann náði verulegu fylgi frá kristi-
legum kjósendum sem annars voru
taldir á bandi Pats Buchanans. Sam-
kvæmt síðustu tölum hefur Dole
tryggt sér 717 kjörmenn af þeim 990
sem nauðsynlegir eru til að hljóta
útnefningu í sumar. Auðkýfingur-
inn Steve Forbes hefur einungis
tryggt sér 73 kjörmenn og Buchanan
64. Samkvæmt könnunum er Dole
sigurstranglegur í fernum forkosn-
ingum í miðvesturríkjum Banda-
ríkjanna eftir viku.
Dole var sigurrreifur þegar úrslit-
in lágu fyrir. Sagði hann útnefningu
sína vera sæmilega vel tryggða eftir
sigur í 18 ríkjum á 10 dögum. Sigur-
ganga Doles hefur vakið vangavelt-
ur um mögulegt varaforsetaefni en
hann fullyrti að ekki væri á dagskrá
að semja vopnahlé við helstu keppi-
nauta sína, þá Forbes og Buchanan.
Athygli vakti að Dole nefndi Colin
Powell, fyrrum hershöfðingja, sem
mögulegt varaforsetaefni. „Þessi
maður hefur verið hermaður alla
sína ævi og hefur alltaf svarað kall-
inu þegar fóðurlandið hefur þarfn-
ast hans,“ sagði Dole og kvaðst full-
viss um að Powell tæki vel í hug-
myndina.
Pat Buchanan boðaði að hann
mundi berjast áfram fyrir tilnefn-
ingu en Steve Forbes sagðist þurfa
mjög góða kosningu á þriðjudaginn
kemur til að hafa nokkra mögu-
leika. Að öðrum kosti drægi hann
sig í hlé.
í sigurgleði í herbúðum Doles
kann að gleymast að Bill Clinton
hefur þegar tryggt sér útnefningu
demókrata, jafnvel þó hann hafi
ekki formlega boðið sig fram. Og að
auki hefur Clinton verulet forskot á
Dole í skoðanakönnunum, með 56
prósenta fylgi á móti 39 prósentum
Doles. Óttast repúblikanar að Dole
eyði dýrmætum tíma í að verjast
árásum Buchanans og Forbes, geti
ekki grætt þau sár sem mynduðust
í upphafl kosningabairáttunnar og
takist ekki að sameina flokksmenn
fyrir forsetakosningamar í nóvem-
ber. Dole sjálfur viröist meðvitaður
um stöðuna þvi hann sagði að menn
yrðu nú að einbeita sér að hinum
eina sanna keppinaut, Bill Clinton
forseta. Reuter
Hvað er umferðarofbeldi?
Rokkarastríðið á Norðurlöndum:
Hvemig er umferðarmenningu íslendinga háttað? Getum við verið sátt
við núverandi ástand eða er hugsanlegt að ofbeldi sé beitt í umferðinni?
Ökukennarafélag íslands og Sjóvá-Almennar bjóða til málþings
á GrandHótel Reykjavik fimmtudaginn 14. mars kl. 13 -17.
Þar verða þessi mál rædd og hvetjum við þig til að koma.
Dagskrá
Kl. 13.00 Skráning og afhcnding gagna.
kl. 13.15 Setning.
kl. 13.30 Tryggingasiðferði: Sigmar Ármannsson, framkv.stj. Sambands fsl. tryggingafélaga.
kl.13.50 Agi - agaleysi í umfcrðinni: Gunnar Ingi Gunnarsson læknir.
kl. 14.20 Hvað er ofbeldi i umferðinni?
;. i / Hvemig er hægt að draga úr þvi? Dr. Gabríela Z. Sigurðardóttir
kl. 14.45 Hlé.
kl. 15.00 Hvað er siðferði og hvemig birtist það í umferðinni? Hvernig byggjum við upp umferðarsiðferði? Jón Kalmansson, Siðfræðistofnun Háskóla íslands.
kl. 16.00 Umræður.
kl. 16.30 Lok málþings.
Ráðstefnustjóri: Sigurður Helgason upplýsingafulltrúi Umferðarráðs.
Skráning á staðnum.
Ökukennarafélag íslands sjóváSIIalmennar
□□□
Fjórir Vítisenglar
í gæsluvarðhaldi
Pálmi Jónasson, DV, Kaupmannahöfn:
Þrír meðlimir mótorhjólagengis-
ins Vítisengla eða Hells Angels í
Danmörku voru dæmdir í 13 daga
gæsluvaröhald í gær, grunaðir um
morðið á einum meðlima úr Band-
itos-genginu við Kastrup-flugvöll á
sunnudagskvöld. Lögreglan leitar
enn fjórða mansins og er talið að
hann hafi orðið fyrir skoti í upp-
gjöri gengjanna.
Banditos höfðu nýverið opnað
klúbb í Helsinki í Finnlandi en Vít-
isenglar höfðu eignað sér húðflúrs-
messu í sömu borg. Komið hafði til
átaka og voru stríðandi aðilar á leið
til Kaupmannahafnar í sömu flug-
vél.
En það var móttökunefndunum á
Kastrup-flugvelli sem laust saman.
Vítisenglar náðu að myrða einn og
særa þrjá Banditos-félaga alvarlega
áður en Finnlandsfaramir komust
út úr flughöfninni. Á sama tíma
drap Vítisengill einn félaga í
Banditos á flugvellinum í Ósló og
hefur hinn grunaði veriö settur í
gæsluvarðhald.
Um 50 meðlimir beggja gengja
hafa verið handteknir í Danmörku
og hefur lögregla lagt hald á talsvert
magn vopna. Tveir félagar í
Banditos voru handteknir fyrir
utan sjúkrahús þar sem þeir voru
að verja einn hinna særðu félaga
sinna. Lögreglan segir vopn gengj-
anna eingöngu vera ætluð „til
mannaveiða".
Vítisenglar hafa verið einir á svo-
kölluðum rokkaramarkaði í Dan-
mörku síðan þeir úti’ýmdu Bullshit-
genginu á seinni hluta níunda ára-
tugarins. Síðustu tvö árin hafa
Banditos hins vgar haslað sér völl á
Norðurlöndum og ógna veldi Vít-
isengla. Hafa margir af fyrrum með-
limum Vítisengla þannig gengið til
liðs við Banditos. Stríð gengjanna
hefur stigmagnast síðustu misserin
og er óttast að það eigi enn eftir aö
magnast. Hefnd og æra skipta miklu
í gengjasamfélaginu auk þess sem
miklir peningar eru í spilinu.
Stuttar fréttir i>v
Skjálfti í Kína
Jarðskjálfti sem mældist 6,1
stig á Richter skók fjallahérað á
landamærum Mongólíu og Kína
í morgun, að sögn kínverskrar
fréttastofu.
Clinton forsetaefni
Þótt Bill
Clinton
Bandaríkja-
forseti hafi
enn ekki lýst
yfir framboöi
sínu til for-
setakosning-
anna í nóv-
ember hefur hann þegar tryggt
sér þann lágmarksfjölda fulltrúa
á landsfund demókrata sem þarf
til útnefningar sem forsetaefni.
Mismunandi áherslur
Þátttakendur í leiðtogafund-
inum gegn hryðjuverkum hafa
mismunandi skoðanir á því
hvernig best sé að berjast gegn
þessum vágesti, hvort auka beri
eftirlit eða ráðast að efnahags-
legum rótum meinsins.
Ekki klofið
Kosningabandalagi Berlus-
conis, fyrrum forsætisráðherra
Ítalíu, tókst að koma í veg fyrir
yfirvofandi klofning í gær.
Aukin geislun
Mikil aukning í geislun frá
sólinni sem hefur mælst í Bret-
landi að undanförnu er senni-
lega til komin vegna gata á
ósonlaginu sem verndar jörðina
fyrir útfjólubláum geislum sól-
ar.
Ekki ill meðferö
Tvær evrópskar konur sem
mannræningjar í Kostaríku létu
lausar í gær sögðu að þær hefðu
ekki hlotið illa meðferð í 72 daga
vist sinni.
Enn á niðurleið
Vinsældir
Alains Jupp-
és, forsætis-
ráðherra
Frakklands,
fara enn
dalandi með-
al þjóðarinn-
ar, ef marka
má nýjar skoðanakannanir, og
nýtur hann nú mun minna fylg-
is en þrír hugsanlegir keppi-
nautar hans um forsætisráö-
herrastólinn meðal íhalds-
manna.
Slakað á klónni
ísraelsmenn hafa aðeins slak-
að á klónni varöandi lokun
Gaza-svæðisins til að hægt sé að
flytja matvæli þangað.
Kapallinn fundinn
Skinandi hlutur sem hefur
sést á himni yfir Suður-Afríku
reyndist vera kapall sem týndist
í misheppnaðri tilraun amer-
ískra geimfara.
Hertar refsingar
Bill Clinton Bandarikjaforseti
hefur undirritað lög sem kveða
á um hertar refsiaðgerðir gegn
Kúbu.
Harðir Evrópusinnar
Malcolm
Rifkind, ut-
anríkisráð-
herra Bret-
lands, sagði í
breska þing-
inu í gær að
stjómvöld
væru ein-
dregið fylgjandi aðild að Evr-
ópusambandinu en þau væru
andvíg stofnun evrópsks sam-
bandsríkis og myndu berjast
gegn því að neitunarvald aðild-
arlandanna yrði skert.
Fordæma refsingar
Sendimenn ríkja sem eru að
reyna að byggja upp viðskipta-
sambönd á Kúbu fordæmdu
nýju bandarísku lögin um refsi-
aögerðir harðlega. Reuter