Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1996, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996
Utlönd
Söluskrá hjá Sotheby’s varð metsölubók:
Gífurlegur áhugi
á dánarbúi Jackie
Aðalfundur
íslandsbanka hf.
Aðalfundur íslandsbanka hf. 1996
verður haldinn í Borgarleikhúsinu
mánudaginn 25. mars 1996 og hefst kl. 15.
Dagskrá
1. Aðalfundarstörf í samræmi við
NIKE DRI FIT TOPPUR kr. 2.990
NIKE DRI FIT STUTTBUXUR kr. 2.990
fangelsi og
10 ár að auki
Dagskrá fundarins, tillögur og ársreikningur félagsins
fyrir árið 1995 verður hluthöfum' til sýnis á sama stað
frá og með mánudeginum 18. mars 1996.
Rúmlega tvítugur maður, sem
ákærður var fyrir að myrða föður
körfuboltasnillingsins Michaels Jor-
dans fyrir tveimur árum, var
dæmdur í lífstíðarfangelsi og 10 ára
fangelsi að auki í rétti í Norður-
Karólínuríki í gær. Maðurinn var
þögull meðan dómurinn var lesinn
upp. Aðspurður þakkaði hann kvið-
dómnum fyrir að þyrma lífi sínu en
líkti réttarkerfmu annars við vænd-
ishúsahverfí í New Orleans.
Reynslulausn kemur fyrst til greina
eftir 20 ár. Reuter
6. mars 1996
Bankaráð íslandsbanka hf.
ISLAN DSBANKI
Öllum þeim sem tilnefndir eru til óskarsverðlauna í ár var boðið til sérstaks
málsverðar á Beverly Hilton hótelinu í Los Angeles í gærkvöldi. Sharon Sto-
ne, sem tilnefnd er fyrir hlutverk sitt í myndinni Casino, lét sig ekki vanta.
Hér stillir hún sér skælbrosandi upp framan við risastóra óskarsverðlauna-
styttu. Símamynd Reuter
Stjórnvöld í Peking láta sér ekki segjast við Taívan:
Kínverjar skjóta enn
einu flugskeytinu
Kínverjar skutu enn einu flug-
skeytinu hættulega nærri hafn-
arbænum Kaohsiung á Taívan í
morgun, aðeins tíu dögum fyrir
fyrstu lýðræðislegu forsetakosning-
arnar á eyjunni. Flugskeytið, sem
ekki var með sprengioddi, fór i sjó-
inn án þess að valda nokkru tjóni
en engu að síður jókst spennan á
svæðinu til muna. Þá hafa Kínverj-
ar tilkynnt að flugher landsins
muni efla æfingar sínar yfir hafi til
að styrkja frelsisher alþýðunnar.
Bandarísk stjómvöld, sem hafa
sent stóra flotadeild áleiðis til Taí-
vans, voru ekki sein á sér að for-
dæma sívaxandi vopnaskak Kín-
verja.
Kínverjar hófu heræfingar sínar
á föstudag með þvi að skjóta þrem-
ur flugskeytum. í gær hófúst svo
enn aðrar heræfmgar á Taívan-
sundi þar sem skotið var virkum
sprengikúlum og teikn voru á lofti
um að aðgerðir Kínverja myndu
færast í aukana.
„Við teljum enn að þessar aðgerð-
ir séu glannalegar og til þess fallnair
að auka spennuna á Taivan-sundi,“
sagði James Fetig, talsmaður Hvíta
hússins.
Stjómvöld í Peking hafa sagt að
forsetakosningamar á Taívan séu
hluti samsæris um að lýsa yfir sjálf-
stæði eyjarinnar sem þau líta á sem
hérað í Kína. Kínverjar hóta árás-
um á eyjuna ef lýst verður yfir sjálf-
stæði. Reuter
10. grein samþykkta bankans.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Hluthafar sem vilja fá ákveðin mál tekin til meðferðar
á fundinum skulu gera skriflega kröfu um það
til bankaráðs, Kirkjusandi - 5. hæð, Reykjavík,
í síðasta lagi föstudaginn 15. mars næstkomandi.
Framboðsfrestur til bankaráðs rennur út
miðvikudaginn 20. mars n.k. kl. 10 fyrir hádegi.
Framboðum skal skila til bankastjórnar.
Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum
verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra
í íslandsbanka hf., Kirkjusandi, Reykjavík, 2. hæð,
20. mars frá kl. 12 -16 og 21. og 22. mars n.k.
frá kl. 915 -16 og á fundardegi frá kl. 915 -12.
Ríkulega myndskreytt söluskrá
með munum úr dánarbúi Jac-
queline Kennedy Onassis hefur þeg-
ar selst í metupplagi þótt margar
vikur séu þar til uppboð á munun-
um fer fram hjá uppboðsfyrirtæk-
inu Sotheby’s í New York.
Matthew Wigeman, talsmaður
Sotheby’s, sagði að 27 þúsund ein-
tök af skránni, sem er 584 blaðsíður,
hefðu verið seld í póstverslun en
alls voru 100 þúsund eintök prent-
uð. Sala á bókinni hófst á þriðjudag
í síðustu viku en uppboðið hefst
ekki fyrr en 23. april.
„Við vonum að munirnir muni
ekki aðeins flytja með sér eigin
anda og fegurð þegar þeir tvístrast
um heiminn heldur einnig eitthvað
af anda hennar og fegurð,“ segja
Caroline og John Kennedy, börn
Jackie, í formála söluskrárinnar.
í skránni eru 800 myndir af mun-
um forsetafrúarinnar fyrrverandi
sem verða seldir, svo sem af 40
karata demantshring sem annar
maður Jackie, skipakóngurinn
Aristoteles Onassis, gaf henni.
Búist er við að munir úr dánarbú-
inu seljist fyrir fimm milljónir doll-
ara. Ágóði sölunnar rennur til erf-
ingja Jackie en ágóðinn af sölu sýn-
ingarskrárinnar rennur til góðgerð-
armála.
„Bókin sýnir eigur hennar frá öll-
um tímaskeiðum lífs hennar, hluti
sem hún fékk frá foreldrum sínum
og hluti frá því hún bjó í Hvíta hús-
inu,“ sagði Matthew Wigeman.
Söluskráin gefur almenningi í
fyrsta sinn tækifæri til að sjá hvem-
ig umhorfs var í 14 herbergja íbúð
Jackie á Manhattan sem var seld
fyrir 9,5 milljónir dollara i fyrra.
Reuter
Morðingi Jordans:
Fékk lífstíðar-
KENNARAR
NOTA NIKE