Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1996, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1996, Side 15
MIÐVTKUDAGUR 13. MARS 1996 15 Baráttan um ) lífsstundirnar Þingmenn Alþýðubandalags hafa lagt fram beiöni á Alþingi urrt að gerð verði skýrsla sem feli í sér samanburð á launum og lífskjör- um í Danmörku og á íslandi. Er sérstaklega óskað eftir upplýsing- um um mun á dagvinnulaunum í löndunum. Þetta er þörf beiðni og eðlileg. Eðlilegast hefði þó verið að þessi beiðni hefði komið fram á Alþingi fyrir löngu. EðlOegast hefði líka verið að verkalýðshreyfingin hefði látið gera slíka skýrslu fyrir löngu og hagað baráttu sinni í samræmi við útkomuna. Eðlilegast ef allt hefði verið eðlOegt. En það hefur ekkert verið eðlOegt á íslandi- á undanfórnum áratugum. Hér hef- ur verið rekið eitthvert óeðlOeg- asta þjóðfélag á vesturhveli jarðar. Gegndarlaust vinnuframboð, lág laun, óðaverðbólga, vinnusýki og hlutagræðgi gerðu Island að einu mesta okur- og þrældómslandi Vesturheims. Markleysa Verkalýðsbarátta við þessar að- stæður varð mestan part mark- leysa. Lausnarorðið var í raun: Bara vinna meira, þá kemur það. AUt tal um að launafólk ætti að geta lifað mannsæmandi lífi af dagvinnulaunum var út í hött. Enginn tók mark á slíku hjali. En aUan þennan tíma lifði launafólk í nágrannalöndunum mannsæm- andi lífi af dagvinnulaununum einum, til dæmis í Danmörku. ÞjóðvOjinn sálugi birti öðru hverju fréttir um þetta og menn bölvuðu svolítið hver í sínu horni yfir löngum vinnutíma en héldu svo áfram yfirvinnustritinu. Kjallarinn Birgir Sigurðsson rithöfundur En á undanfornum kreppuárum hefur yfirvinnan hrunið niður í svo tO ekki neitt. í fyrsta skipti í áratugi á millistéttarfólk erfitt með að framfleyta sér. Þetta fólk situr í góðum íbúðum - sem það eignaðist með taumlausri yfir- vinnu - og hefur sumt varla að borða. Og það er ráðgáta hvernig láglaunafólki tekst að draga fram lífið. Lái hver sem viU þessu fólki þótt það sakni þeirrar „gósentíð- ar“ þegar það gat „bætt“ kjör sín með því að þræla sér út. En það er hætt við að von um endurkomu fyrri tíma rætist ekki í bráð. Sam- kvæmt samningi ESB má vinnu- timi ekki vera lengri en 48 stundir á viku að meðaltali. Á meginlandi Evrópu vita menn nefnUega að lengri vinnutími er ómannsæm- andi. Ópíum Það er bláköld staðreynd að kjarni verkalýðsbaráttu snýst ekki um krónur og aura heldur um lífs- stundirnar sjálfar, þ.e. hve margar lífsstundir við þurfum að nota til þess að vinna fyrir nauðþurftum. Því færri sem þessar stundir eru því fleiri lífsstundir höfum við fyr- ir okkur sjálf og þá sem okkur þykir vænt um. Undanfarin þrjátíu ár eða svo hefúr danskur verkamaður varla þurft meira en 40 lífsstundir á viku tO þess að framfleyta sér, ís- lenskur verkamaður varla færri en 55. Það munar 780 lífsstundum á einu áru. Á þrjátíu árum er munurinn 23400 lífsstundir! Þess- ar 23400 lífsstundir hefur Daninn getað notað sjálfum sér og sínum tO ánægju meðan íslendingurinn hefur mátt hamast í brauðstritinu. Og íslendingurinn er jafn fjarri því að geta lifað af dagvinnulaun- um og fyrir þijátíu árum. Þessu hefur yfirvinnu-velmegimar- glópskan skOað okkur. Og hún hefur hálflamað verkalýðsbarátt- una. En nú hefur ESB séð fyrir því að menn geta ekki horfið aftur inn i ópíum yfirvinnustritsins þótt það byðist. Þar með neyðist verka- lýðshreyfingin tO þess að hefja skOvirka baráttu fyrir þvi að unnt sé að lifa af dagvinnulaunum. í fyrsta sinn í áratugi býðst tæki- færi til þess að fá í það minnsta jafn margar lífsstundir tO eigin ráðstöfunar og Danskurinn hefur. Birgir Sigurðsson. „í fyrsta skipti í áratugi á millistéttarfólk erfitt með að framfleyta sér. Þetta fólk sit- ur í góðum íbúðum - sem það eignaðist með taumlausri yfirvinnu - og hefur sumt varla að borða.“ „íslendingurinn er jafn fjarri því að geta lifað af dagvinnulaununum og fyr- ir þrjátíuu árum,“ segir m.a. í grein Birgis. Kirkja hvers? Síðustu vikur hefur mikið verið fjallað um ásakanir á hendur bisk- upi íslands fyrir kynferðislega áreitni/ofbeldi gagnvart hópi kvenna. Ýmislegt er reynt að draga fram til að reyna að skýra ósamræmi i frásögn kvennanna og biskupsins. Ein skýring, m.a. frá kirkjunnar mönnum, er að sálusorgunin og huggunin sé svo vandasöm, snerti- þörfin verði svo mikO í huggunar- starfinu að hætta geti orðið á þeim misskilningi að um kynferðislega áreitni sé að ræða. AOt venjulegt fólk veit vel að þetta tvennt er af aUsendis ólíkum toga spunnið. Annað er að gefa, en hitt er að hrifsa tO sín án þess að hafa leyfi. Þeir sem ekki gera sér muninn alveg ljósan eru í hættu að fara yfir mörkin og ættu alfar- ið að halda sig frá því að leggja hendur yfir eða á fólk. Halda að sér höndum Það telst ekki tO tíðinda að fórn- arlömb séu að rifja upp og vinna með kynferðislegt ofbeldi sem átti sér stað fyrir áratugum. Svo skammt er síðan við fórum yfir- leitt að horfast í augu við þessa Kjallarinn Hjördís Hjartardóttir félagsráðgjafi, Hvammstanga tegund ofbeldis og svo mikil skömm og sektarkennd fylgir fórnalambinu að enn þá er tO hóp- ur fólks sem burðast eitt með af- leiðingar kynferðislegs ofbeldis, hefur ekki enn þá sagt neinum frá því og hefur engrar aðstoðar notið tO að reyna að taka á verstu afleið- ingunum. Þegar maður rifjar upp hvað rannsóknir segja um tíðni kyn- ferðisafbrota, sem segir líka heil- mikið um fjölda kynferðisbrota- manna, er ekki frítt við að mann gruni að nú sé ýmsum ógnað þeg- ar verið er að draga gömul mál fram í dagsljósið. Margur íslensk- ur karlmaðurinn, leikur sem lærð- ur, er kannski ekki alveg fuOviss um sakleysi sitt. Hvernig hafa valdastofnanir samfélagsins þar með talin kirkj- an tekið á þessu máli? Á engan hátt. Málið er fymt, ríkissaksókn- ari getirn ekkert gert, siðanefnd kirkjunnar getur ekkert gert, aðr- ar stofnanir kirkjunnar, þar með talið samtök presta, ýmist halda að sér höndum eða fela málið mis- kunn og náð guðs og biskupsins. Einkastofnun prelátanna Snýst málið aðeins um einstak- linginn eða snýst það einnig um æru og vammleysi kirkjunnnar? Getur kirkjan látið þetta viðgang- ast þó að það kosti að hluti þjóðar- innar mun alfarið glata trausti á kirkjunni og þjónum hennar? Meðan ástandið er óbreytt, bisk- up situr með stuðningi eða að- gerðaleysi stofnana kirkjunnar, er ekki hægt að treysta kirkjunni, kirkjan er ekki fólksins í landinu, ekki þeirra sem eru huggunar eða sálusorgunar þurfi, heldur einka- stofnun prelátanna sem þar þjóna. Hjördís Hjartardóttir „Meöan ástandið er óbreytt, biskup situr meö stuðningi eða aðgerðarleysi stofnana kirkjunnar, er ekki hægt að treysta kirkjunni, kirkjan er ekki fólksins í landinu .. Með og á móti Má selja brauð á bensín- stöðvum? Óskir við- skiptavina „Að undan- förnu hefur vöruval versl- ana okkar tek- ið miklum breytingum á þann veg að hlutur neyslu- vöru hefur stóraukist. Viðskiptavinir okkar hafa kaOað eftir ákveðnu vöru- vali og að sjálf- sögðu reynum þær óskir. Smábrauð og annað ljúífengt kafflmeðlæti er hluti af þessu breytta vöruvali og er það engin spurning að slíka vöru á að selja á þjónustustöðvum. Rétt er þó að vekja athygli á því aö vegna þeirrar fjölbreyttu starf- semi sem fram fer á stöðvunum er nauösynlegt að fyllsta hrein- lætis sé gætt. Þetta höfum við haft að leiðarljósi á þjónustu- stöðvum Olís. Brauðin og kök- urnar eru í lokuðum plastköss- um sem bakarinn sér um að fylla á og viðskiptavinurinn afgreiðir sig sjálfur. ÖU áhöld, sem notuð eru við afgreiðsluna, eru þvegin i sérvöskum sem settir voru upp í tengslum við þessa sölu. Það er þvi einungis bakarinn og við- skiptavinurinn sem meðhöndla vöruna. í nágrannalöndum okk- ar er þetta sjálfsagður hluti af vöruvali þjónustustöðva og ekki langt að bíða þess að við furðum okkur á að nokkrum skuli hafa dottið í hug að spyrja þessarar spurningar." Ragnhelður Björk Guðmundsdóttlr, lorstöðumaður kynnlngardelldar Olís. við að uppfyOa Hætt við sýkingu „Bensín- stöðvar eru ágætar til síns brúks en þeg- ar farið er að selja þar brauð finnst mér menn vera komnir út á hálan ís. Það sér hver maður að mat- væli og olíu- vörur eiga enga samleið. Ég hugsa að Stefán Sandholt, formaður Lands- sambands bakara- melstara. fólk yrði lítt hrifið af því ef bakaríin tækju upp á því að bjóða smurolíu og frostvara í hOlunni við hliöina á heilhveitibrauöinu. Þetta er ná- kvæmlega sami hlutur og út frá hreinlætissjónarmiðinu finnst mér það ekki koma tíl greina. Menn eru meira að segja að tala um aö hafa brauðin óvarin á bensínstöðvunum og það er vita- skuld hálfú verra. Sums staðar í Evrópu er þetta bannað og mér finnst menn verða að setja sér skýrar leik- reglur hér á landi. Það sem gjld- ir fyrir mig verður líka að gilda fyrir manninn við hliðina á mér. Nýlega lentu menn í slysi í sam:. bandi við sýkingu og vísasta leiðin tO þess að svoleiðis lagað komi fyrir aftur er ef fariö verð- ur að selja matvöruna hvar sem er. Opnir brauðbarir í stórmörk- uöum eru eins, aOir geta snert brauðin og þannig getur sýking borist á mOli. Bakarar vita að það er neytandinn sem hefur lokaorðið um það hvar menn selja hvaða vöru. Við treystum neytendum til þess að velja og hafna á réttan hátt í þessu tO- viki.“ -sv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.