Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1996, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1996, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 29. MARS 1996 Fréttir Atvinnuleysistryggingasjóður og fiskvinnslan: Sjóðurinn styrkir fisk- vinnsluna svo um munar - segir Aðalsteinn Baldursson, formaður fiskvinnsludeildar Verkamannasambandsins „Það segir sig sjálft þegar þetta mál er skoðað að það er verið að hjálpa fyrirtækjum í fiskvinnslu hreint ótrúlega mikið með þessu. Þ'etta er ekkert annað en beinn styrkur. Einnig fá fiskverkendur mikla hjálp varðandi fiskvinnslu- fólkið sem hefur starfað í 9 mánuði eða meira og er komið á kauptrygg- ingarsamning. Ef ekki er vinna fyr- ir það dag og dag bera atvinnurek- endur það sjálfir en ef sú staða kem- ur upp að það er hráefhisskortur í viku eða meira er hægt að segja fólkinu upp með þriggja daga fyrir- vara og tilkynna það til vinnumiðl- unarskrifstofunnar og félagsmála- ráðuneytisins. Geri atvinnurekend- ur þetta telst fólkið vera á láunum hjá þeim en þeir fá það aftur á móti bætt úr Atvinnuíeysistrygginga- sjóði. Þessi þriggja daga fyrirvari er öryggisventill. Ef þeir segja ekki upp með þriggja daga fyrirvara lendir kaupgreiðslan á þeim sjálf- um,“ sagði Aðalsteinn Baldursson, formaður fiskvinnsludeUdar Verka- mannasambandsins, í samtali við DV um þær reglur og þann samning sem er í gildi milli fiskvinnslunnar og Atvinnuleysistryggingasjóðs. Aðalsteinn sagðist ekki vUja stað- festa þær sögur sem ganga um mis- notkun á þessu kerfi. Það gefur augaleið þegar kerfið er skoðaö að það býður auöveldlega upp á misnotkun. Því er haldið fram að kerfið sé misnotað. Meðal annars séu dæmi þess að fólk sé skráð at- vinnulaust og sjóðurinn borgi laun þess en viðkomandi sé samt að vinna. Því er einnig haldið fram að um hver mánaðamót sé tilkynnt um að það verði hráefnisskortur á þessum eða hinum tímanum. Þetta er gert til þess að hægt sé að senda fólk heim hvenær sem er í mánuðinum. Með þessu tryggi atvinnurekendur sig og séu alltaf tilbúnir beri eitt- hvað út af varðandi hráefnisöflun. Þeir eru búnir að afgreiöa mánuð- inn. „Þetta gengur þannig fyrir sig í dag að atvinnurekandi getúr sagt við þá sem ekki eru búnir að starfa í fiskvinnslunni í 9 mánuði að nú sé ekkert fyrir viðkomandi aö gera á morgun og hann verði því að skrá sig atvinnulausan. Þar með er at- vinnurekandinn laus allra mála. Enda þótt það sé í lögum um At- vinnuleysistryggingasjóð að menn þurfi að vera atvinnulausir í 3 daga áður en þeir fá greiðslu er það óskráð regla varðandi fiskvinnsluna að starfsfólk þar fer beint inn á bæt- ur,“ sagði Aðalsteinn. Hann sagði að í síðustu kjara- samningum hefðu verið gerðar verulegar breytingar á rétti fisk- verkenda til að nýta sér svokallaða 60 daga reglu. Áður voru það 40 dag- ar sem atvinnurekendur gátu látið fólkið vera heima á hverju ári og fengið greiðslu úr Atvinnuleysis- tryggingasjóði. Þá skráði fólkið sig ekki atvinnulaust heldur var heima á dagvinnulaunum sem sjóðurinn greiddi til atvinnurekenda ásamt launatengdu gjöldunum. Það var einnig þannig að í hvert skipti sem fyrirtækið lenti í hráefnisskorti og sendi fólk á kauptryggingarsamn- ingi heim þurfti fyrirtækið alltaf að bera tvo fyrstu dagana sjálft í hverju stoppi. „Nú er þetta breytt og fyrirtækið ber 3 fyrstu dagana á ári. í síðustu samningum fóru þessir 40 dagar upp i 60 daga sem atvinnurekendur geta sent fólkið heim og það fær launin og launatengdu gjöldin frá sjóðnum í gegnum atvinnurekendur,“ sagði Aðalsteinn Baldursson. -S.dór Gamli Magni SeÖJ Tvöfalt stærri lóðsbátur Nýi Magni Ath. Hlutföll bátanna eru ekki rétt Nýsmíðaframkvæmdum að ljúka í Damen í Hollandi á nýjum 80 tonna Magna: Helmingi stærri dráttar- bátur til Reykjavíkur Atvinnuleysistryggingasjóður og fiskvinnslan: Þríhliða sérsamn- ingur fýrir fisk- vinnsluna - segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ „Lögin sem heimila fyrirtækjum aö fella fólk af launaskrá ef ekki eru verkefni fyrir hendi eru almenn. Það var hins vegar árið 1986 sem miklar kröfur voru uppi um aukið atvinnuöryggi í fiskvinnslunni. Þá varð það að samkomulagi milli Vinnuveitendasambandsins, Al- þýðusambandsins og ríkisvaldsins að fiskvinnslan myndi halda fólki á launaskrá í öllum þessum venjulegu stuttu stoppum en fá tilteknar greiðslur úr Atvinnuleysistrygg- ingasjóði þar á móti. Áður var það þannig að fyrirtækin báru sjálf fyrstu 3 atvinnuleysisdagana í hverju stoppi og fengu sem svarar hámarksatvinnuleysisbótum fyrir það sem umfram var,“ sagði Þórar- inn V. Þórarinsson, framkvæmda- stjóri VSÍ, þegar hann var spurður hvenær þessi tenging á milli fisk- verkenda og Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs hefði hafist. Hann sagði að í síðustu kjara- samningum hefði verið bæði hert á um að fyrirtækin væru enn bundn- ari að gera fastráðningarsamninga frá því sem áður var og jafnframt var greiðsluskylda atvinnuleysis- tryggingasjóðs gagnvart fyrirtækj- unum aukin. „Nú bera fyrirtækin fyrstu 3 dag- ana á hverju ári og fá líka ákveðinn þátt af launatengdu gjöldunum greiddan úr sjóðnum. Þegar þetta var tekiö upp 1986 var það til að hjálpa fiskvinnslufyrirtækjunum að auka atvinnuöryggi fiskvinnslu- fólks,“ sagði Þórarinn V. Þórarins- son. -S.dór Akranes: - skapar meira öryggi við aðstoð stórra skemmtiferða- og olíuskipa Nýsmíðaður tæplega áttatíu tonna dráttarbátur sem Reykjavík- urborg gerði samning um við Hol- lendinga í nóvember er væntanleg- Panasonic HiFi myndbandstæki HD600 Nicam HiFi sterco, 4 hausa Long Play, Super Drive, Clear view control, fjarstýringu, 2x Scart tengi ásamt þvl að sýna allar aðgerðir á skjá. HD600 fékk 10 fyrir myndgæði, og var valið besta fjölskyldu- og heimablómyndbandstækið Tækið endurgreitt! Elnn hepplnn vlðsklptavlnur fær tæklð endurgreittl 10 leigumyndir frá Vldeohðllinni fylgja Panasonic £7^ myndbandstækjunum! k ró n u r EOHÖLL VIDEOHOLLIN «&■ I M ur til íslands í lok maí. Báturinn er nærri helmingi aflmeiri en þeir dráttarbátar sem fyrir eru í eigu Reykjavikurhafnar, Magni og Haki. Nýji báturinn, sem mun bera nafnið Magni, mun koma sérstaklega að góðum notum þegar stór skip koma hingað, að sögn Hreins Sveinssonar, útgerðastjóra Reykjavíkurhafnar. „Þegar stór skemmtiferða- eða ol- íuskip koma til landsins hefur þurft meiri kraft. Þetta verður því meira öryggi, sérstaklega í sterkum vind- áttum, sagði Hreinn í samtali við DV. „Það var skrifað undir samning í lok nóvember. Samningsverðið er rétt tæpar 70 milljónir króna en þaö mun þó verða einhver aukakostnað- ur,“ sagði Hreinn. Fjögurra manna áhöfn frá Reykjavík mun fara út til Damen í Hollandi og sigla hinum nýsmíðaða dráttarbát síðan heim til íslands. „Báturinn verður vonandi kominn heim fyrir sjómannadaginn,“ sagði Hreinn. Magni er tæplega 80 tonn, 19,5 metrar að lengd og 6 metrar á breidd. Hann er búinn tveimur 680 hestafla vélum og er togkraftur bátsins rúm 17 tonn. Til samanburð- ar eru hinir tveir bátarnir 40 tonn, 16 metrar að lengd, 4,80 breidd og með rúmlega 10 tonna togkraft. Ljóst þykir að nýji báturinn þoli meiri sjógang en hinir minni. Stefnt er að því að sjósetja bátinn í Hollandi þann 9. maí en reynslu- siglingu á að fara fram þann 22. maí. Auk þess að skapa meira öryggi við að aðstoða skip sagði Hreinn að Magni muni væntanlega sinna fleiri verkefnum sem til falla, s.s. vinnu við baujur og annað enda verður báturinn búinn krana. Ekki er í ráði að selja núverandi Magna og Haka. Elsti og minnsti dráttarbátur Reykjavíkurhafnar, Jötunn, sem er frá árinu 1965, verð- ur hins vegar væntanlega seldur innlendum kaupendum. -Ótt Gamla íþrótta húsið rifið DV, Akranesi: íþróttahúsið viö Laugarbraut hér á Akranesi var nýlega rifið en það var fyrsta íþróttahús Skagamanna - byggt í sjálfboða- vinnu. Rekstri íþróttahússins var hætt 1975, þegar íþróttahúsiö við Vesturgötu var tekið í notkun. Undanfarið hefur Skipasmíða- stöðin Knörr haft afnot.af húsinu en mikil óánægja var meðal íbúa götunnar aö slík starfsemi væri starfrækt í ibúðarhverfi. Bæjaryf- irvöldum barst fjöldi kvartana og varð það til þess aö bærinn keypti húsnæðið af Knerri til nið- urrifs. Reiknað er með að leik- skóli verði reistur á lóðinni á næstu árum. -DÓ Starfsmenn Skóflunnar við niðurrif gamla íþróttahússins. DV-mynd DÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.