Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1996, Side 12
12
FÖSTUDAGUR 29. MARS 1996
Spurningin
Hver er tilgangur lífsins?
Oddný Halldórsdóttir flugfreyja:
Að vera hamingjusamur og fá óskir
sínar uppfylltar.
Valur Halldórsson, tónlistarmað-
ur í hljómsveitinni Byltingu:
Vera sáttur við lífið og tilveruna og
eignast miklu fleiri börn.
—I
Bjarni Jóhann Valdimarsson,
tónlistarmaður í Byltingu: Að
láta gott af sér leiða og vera öðrum
til gagns og gleði.
Tómas Sævarsson, tónlistarmað-
ur í Byltingu: Að öðlast frægð og
frama.
Sigríður Guðmundsdóttir hús-
móðir: Að vera heilbrigður og ham-
ingjusamur.
Lesendur
Kattavinafélagið í
þágu samfélagsins
Þorvaldur H. Þórðarson og
Katrín Harðardóttir dýralæknar
skrifar:
Með tflkomu Kattholts hefur að-
staða fyrir óskilaketti batnað veru-
lega hér á höfuðborgarsvæðinu.
Kattavinafélagið hefur unnið mjög
gott starf og almenningur sem og
lögreglan, dýraeftirlitsmenn og
fleiri hafa getað leitað á náðir fé-
lagsins með ketti sem finnast á ver-
gangi. Kattavinafélagið hefur einnig
haldið skrár yfir heimflisketti sem
fólk hefur týnt eða fundið og hefur
mað þessum hætti aðstoðað mörg
dýr við að rata til síns heima.
Hús Kattavinafélags íslands, Katt-
holt, var opnað í júli 1991. Þessu
húsnæði var skipt í deildir fyrir
óskilaketti, gæsluketti og skrifstofu.
Reykjavíkurborg veitti töluverðan
styrk til þessara framkvæmda en
jafnframt lögðu meðlimir félagsins
fram mikla sjálfboðavinnu. Við opn-
unina fluttust óskilakettir af höfuð-
borgarsvæðinu frá Dýraspítalanum
í Víðidal í Kattholt.
Þarna hófst mikið starf við um-
önnun, leit að réttum eigendum eða
við að finna nýtt heimili fyrir þessa
ferfættu vini, einnig við að koma í
veg fyrir að kettir týnist með því að
hvetja dýraeigendur tfl að merkja
dýr sín greinilega. Þetta starf, sem
er að miklu leyti unnið í sjálfboða-
vinnu, er mjög mikilvægt í þéttbýli
en er því miður oft vanmetið bæði
at' yfirvöldum og almenningi.
í Kattholti fá kettirnir góða að-
hlynningu. Þeir eru geymdir í rúm-
góðum búrum og fóðrun og hrein-
læti er til fyrirmyndar. Á undan-
fornum árum hefur starfsemi Katta-
vinafélags íslands fyrst og fremst
miðast við Reykjavík og nágranna-
byggðarlög. Af þessum sveitarfélög-
um hefur þó Reykjavíkurborg ein
veitt framlag tO starfseminnar ár-
lega. ÖUum óskum tO annarra sveit-
arfélaga um framlög tO rekstursins
á undanförnum árum hefur því
miður verið synjað. Þó er í lögum
að sveitarfélögum, hverju fyrir sig,
beri skylda tO að halda óskOadýrum
í skefjum. Það væri óskandi að í
nánustu framtíð sæju önnur sveit-
arfélög á höfuðborgarsvæðinu og
víðar sér fært að koma inn í þetta
starf af fullum krafti. Aðferð sú sem
Kattavinafélagið hefur valið sér er
tvímælalaust sú mannúðlegasta og
besta sem völ er á. Þar eru hagir og
þarfir dýranna i hávegum höfð.
Forseti hefur ekkert synjunarvald
Helgi skrifar:
í umræðum manna á meðal um
væntanlegar forsetakosningar hefur
nokkuð verið fjallað um svokallað
synjunarvald forseta. Er þá átt við
að forseti íslands hafi persónulega
vald til að neita að undirrita sam-
þykkt lög frá Alþingi og „vísa þeim
til þjóðarinnar" eins og það er orð-
að.
Hér sem oft áður í opinberri um-
ræðu er vafasömum hlutum haldið
fram. Vissulega segir stjórnarskrá-
in að „forseti" geti neitað að rita
undir lög. En stjómarskráin segir
líka að „forseti" leggi fram laga-
frumvörp, „forseti" veiti laus emb-
ætti, „forseti" geti flutt embættis-
menn tO, „forseti" geri samninga
við erlend ríki o.s.frv.
Menn sem telja að forseti sjálfur
hafi persónulega vald tO að neita að
undirrita lög frá Alþingi virðast
gleyma einni af mikflvægustu
greinum sfjórnarskrárinnar, 13. gr.,
þar sem segir: „forseti lætur ráð-
herra framkvæma vald sitt“. Það
eru ráðherrar sem fara með vald
forseta á hverju sviði. Það eru ráð-
herrar sem skipa embættismenn
þótt að forseti skrifi undir öU skip-
unarbréf.
Auðvitað gerir forseti ekki samn-
inga við erlend ríki og svo mætti
lengi telja. Forsetinn sjálfur hefur
ekki vald tO að neita að samþykkja
lög. Þeir sem halda að forseti geti
stöðvað framgang laga ættu e.t.v. að
lesa ritsmíð Þórs Viihjálmssonar
hæstaréttardómara, Synjunarvald
forseta, þar sem segir m.a.: „Forseta
ber því skylda tO þess eftir stjórnar-
skránni að faflast á tillögu ráðherra
um staðfestingu (undirritun) laga-
frumvarps, sem AJþingi hefur sam-
þykkt. Ef svo ólíklega færi að forset-
inn undirritaði ekki, væri sú neitun
þýðingarlaus og lögin tækju gOdi
sem staðfest væru og án þess að
þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram.“
Endurbætur á Keflavíkurvegi
- lýsing læknar ekki ágallana
Ólafur Guðmundsson skrifar:
Nú þykjast þingmenn Reykjanes-
kjördæmis í góðum málum. Segjast
ætla að fá Reykjanesbrautina lýsta
upp. Það eigi að hafa forgang. Sem
íbúi á Suðurnesjum segi ég: Þetta er
bráðabirgðalausn og læknar ekki
ágallana. Það er annars merkOegt
að þingmenn þessa kjördæmis skuli
ekki hafa þorað að beita sér í þessu
brýna máli. Frestunin er til van-
sæmdar þingmönnum sem og öðr-
um.sem að málinu koma.
Auðvitað ætti að leggja þarna
jámbraut. Það hefði orðið til þess
að hér kæmu upp fleiri slíkar raf-
brautir í þéttbýli og yrði um veru-
legan orkuspamað að ræða. En þar
er að mæta öðrum og líklega sterk-
BLHÍiS!lE)Æ\ þjónusla
allan
i sima
5000
i kl. 14 og 16
Ekkert minna dugar en tvöföldun Reykjanesbrautar - eða rafknúin járnbraut.
ari öflum.
Hefði viðræðunefndin íslenska,
sem nú síðast framlengdi varnar-
samning við Bandaríkin, verið nógu
framsýn og kjörkuð hefði hún reifað
uppbyggingu alvöru vegakerfis tO
Suðumesjanna. Eða þá að fá lagn-
ingu járnbrautar sem gengi fyrir
rafmagni sem nóg er til af hér.
En svo illa er komið nú að þing-
menn láta sér nægja ljósastaura við
Reykjanesbrautina. Lýsing hefði
auðvitað átt að fylgja í upphafi. En
lítið er geð guma; það á við þing-
menn Reykjaneskjördæmis. í aum-
ingjaskapnum eru engar pólitískar
deOur. Þá eru aUir sammála.
Áfram,
ráðherra!
Jóhann Magnússon skrifar:
Verkalýðsforystan berst nú
hatrammlega gegn frumvarpi fé-
lagsmálaráðherra um vinnulög-
gjöfina sem nú hefur verið lagt
fram á Alþingi. - Auðvitað var
löngu tímabært að endurskoða
þessi úreltu, 60 ára gömlu lög og
koma í veg fyrir þá misnotkun á
verkfaUsréttinum sem svo oft
hefur átt sér stað. Er þá helst að
minnast þeirra skaðvænlegu
áhrifa sem gætt hefur í sam-
göngumálum þjóðarinnar þegar
hagsmunahópar hafa boðað
verkfall á mesta annatíma ferða-
þjónustunnar og stórskaðað at-
vinnugreinina. Vonandi lætur
ríkisstjórnin ekki undan hótun-
um verkalýðsforystunnar gegn
frumvarpinu um vinnulöggjöf-
ina en kemur því í gegn á yfir-
standani þingi áður en samning-
ar verða lausir næst.
Aðeins konur í
framboði
Sveinn Sigurðsson hringdi:
Ég tel ekki miklar líkur á því
að nokkur karlmaður með eðli-
lega dómgreind fari að hætta sér
í framboð tO forseta að þessu
sinni. Mín spá er sú að aðeins
verði þær tvær konur í framboði
sem þegar eru búnar að gefa kost
á sér. Fleiri frambjóðendur, ekki
síst karlar, myndu aöeins reyta
fylgi hvor eða hver af öðrum því
slíkur meirihluti virðist fyrir
því að kona haldi embætti for-
seta íslands, a.m.k. enn um sinn.
Það verður þó hörð barátta milli
kvennanna og ekki víst að mun-
urinn verði mikOl þegar upp er
staðið. En karlmenn í framboð
gegn þessum konum - gleymum
því.
Meira frelsi
í flugi
Ragnar skrifar:
Það var ekki seinna vænna að
einhver hreyfing kæmist á sam-
göngumálin, einkum í fluginu.
Þetta hefur verið hörmung og
hneisa. AOir með sama fargjald-
ið og lítið sem ekkert val á miUi
flugfélaga. Þetta er óðum að
breytast. Nú er t.d. hægt að
fljúga beint til Amsterdam í
sumar á því verði sem lægst gild-
ir á markaðinum tU Evrópu,
tæplega 25 þúsund krónur hjá
ístravel. Þar er einnig auglýsta
járnbrautarlest, nokkuð sem ég
hef hvergi séð minnst á í auglýs-
ingum íslenskra ferðaskrifstofa.
Þetta er framfaraspor í ferða-
þjónustu.
Biskupsboð-
skapur að utan
Karl Kristjánsson skrifar:
Hann var ekki uppörvandi
boðskapurinn sem biskup ís-
lands (þá staddur í einhverju út-
landinu) sendi þjóðinni í símtali
við fréttamenn á Stöð 2 sl.
sunnudag. Hann sagði m.a. að
hann væri nú hættur að trúa á
það góða í manninum. Ég stóð
orðlaus. Var þetta biskup íslands
sem svona talaði? Varla getur
biskup gegnt embætti sínu með
þessa skoðun að leiðarljósi. En
hver tekur af skarið í þessu
ókristOega máli sem biskupsdeO-
an er nú orðin?
Þurfti fjóra
ráðherra?
Agnes hringdi:
Ósköp finnst manni þetta eitt-
hvað mikO sýndarmennska að
fjórir ráðherrar skuii sendir að
StaðarfeUi í Dölum til að skrifa
undir eitthvert plagg tO að
tryggja SÁÁ framtið þar um
slóöir. Er ekki dæmigerð eyja-
mennska eða nesjamennska
þarna lifandi komin? - Og að
fjölmiðlarnir skxfli hlaupa eftir
þessu! Enn meiri nesjamennska.