Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1996, Blaðsíða 2
lo sumarhús
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1996 DV
Kristján Sæmundsson sækir bústaðinn aiit árið:
Veturínn hefur ótvíræða kosti
Frístundafarsíminn:
Góður kostur fyrir
sumarbústaðaeigendur
Það eru ekki allir sumarbústaða-
eigendur sem vita að Póstur og sími
býður þeim upp á góða lausn varð-
andi fjarskipti með svokölluðum frí-
stundafarsíma en hann er sniðinn
að þörfum þeirra sem vilja hafa far-
símann sem öryggistæki og nota
hann nær eingöngu utan álagstíma.
Með álagstíma er átt við virka
daga á milli kl. 8 og 18 en þá er t.d.
mun dýrara að hringja úr frí-
stundafarsíma en úr venjulegum
farsíma. Hver mínúta kostar þá
tæplega 50 kr. en kostar 16,60 úr
venjulegum farsíma.
Sé síminn hins vegar eingöngu
notaður á kvöldin og um helgar,
eins og oft er raunin í sumarhúsum,
kostar hver mínúta 16.60 eins og al-
mennt í farsímakerfinu en auk þess
býðst eigendunum að greiða einung-
is 2.490 kr. í stofngjald, í stað rúm-
lega 11 þúsunda fyrir venjulegan
farsíma, og innan við þriðjung af
venjulegu fastagjaldi.
-ingo
Bústaðurinn í vetrarskrúða.
Það er oft góð stemning í heita pottinum en á myndinni eru systkini Kristjáns ásamt mökum sínum og börnum.
„Við förum a.m.k. einu sinni í
mánuði í sumarbústaðinn og stund-
um tvisvar til þrisvar, mest í helg-
arferðir. Bústaðurinn er upphitaður
og þarna er allt'til alls, sængurfót,
hlífðarfatnaður, pottaf, pönnur og
jafnvel handþeytari,“ sagði Kristján
Sæmundsson, matreiðslumaður hjá
Sjónvarpinu, en hann er einn þeirra
sem fara í sumarbústaðinn sinn
jafnt á veturna sem á sumrin. Bú-
staðinn hefur hann átt í félagi við
kunningja sinn, Hallgrím Guð-
mundsson, í tólf ár en hann er 53
fermetrar að stærð og er staðsettur
í Vörðufelli í Iðulandi, rétt hjá Skál-
holti.
„Við skiptum vikunum á mUli
okkar út árið þannig að ég á bústað-
inn aðra hverja viku. Ef hinn fer
ekki er hægt að vera lengur. Annars
erum við báðir mjög duglegir að
fara. Frá bústaðnum er stutt í Heklu
og Tindfjöll og einungis um 2 kfló-
metrar í næstu verslun sem er
Laugarás. Það er einnig stutt í
næstu sundlaug í Aratungu eða
Brautarholti," sagði Kristján.
Rétt hjá eru þrír aðrir bústaðir og
staðnum. Hann hefur alltaf ferðast
mikið og gerir enn.
„Ég byggði bústaðinn á sínum
tíma af því að ég hafði áhuga á því
að breyta tU. Það er öðruvísi stemn-
ing þarna. Það er t.d. ekkert raf-
magn svo við lýsum með olíuljósi,
kerti eða gasi. Svo erum við reynd-
ar með lítið sjónvarp sem við tengj-
um við bílinn svo við getum horft á
fréttirnar og krakkarnir á barnaefn-
ið,“ sagði Kristján.
Hann sagði barnabörnin mjög
hrifin af því að koma í sveitina en
þar er m.a. búið að koma upp sand-
kassa, rólum og lítUli rennibraut
fyrir þau. „Svo erum við með heitan
pott og útisturtu sem að okkar mati
er með besta útsýni á landinu."
Kom sár upp skógi
Sumrin fara mikið í að dytta að
og svo hefur Kristján ræktað mikið
upp landið í kringum bústaðinn.
„Þegar við byggðum keyptum við
plöntur fyrsta árið og fluttum upp
eftir. Síðan höfum við flutt mikið af
fræjum og trjám úr garðinum okkar
og plantað, eða í kringum 1000-1500
plöntur. Þar á meðal er birki, fura,
aspir, reynitré, greni og víðir, en
víðirinn hefur dafnað hvað síst. Það
er farið að sjást í skóginn töluvert
frá veginum en þarna voru engin
tré áður. Það fer heilmikill tími í
það á sumrin að setja niður, bera á
og reyta frá,“ sagði Kristján sem
einnig hefur komið sér upp mat-
jurtagarði við bústaðinn þar sem
hann setur árlega niður 25 kg af út-
sæðiskartöflum.
-ingo
svo skemmtilega vill til að tveir
þeirra eru einnig í eigu starfs-
manna Sjónvarpsins. „Það þekkjast
því allir mjög vel og geta farið í
heimsókn til hinna,“ sagði Kristján.
Veturnir hafa kosti
Hann sagði veturna hafa ótví-
ræða kosti. „Ég hef alltaf sótt í snjó-
inn, stundað mikið skíði og göngu-
skíði, og svo förum við feðgarnir í
gæs og rjúpu á haustin," sagði
Kristján. Þá fara þeir jafnvel í helg-
arferðir á Tindfjöll í gæsaskyttirí og
einnig segir Kristján vinsælt að fara
í heilsdagsgönguferðir út frá bú-
Baðir eigendurnir asamt eiginkonum sinum, syni Kristjans og tengdadóttur.
F.v. Sæmundur Kristjánsson, Vigdís Aðalsteinsdóttir (eiginkona Kristjáns),
Rebekka Gunnarsdóttir, Hallgrímur Guðmundsson, Kristján, Árný Marteins-
dóttir og kollurinn á barnabarninu, Vigdísi Birnu.
l'WIMGAJARN
00 í<AM’i!SAUtV«i;R
Þýsk gæðavara - traustari festing
urval!
Simuni
ggmwm
No.4
HOOF
iEMENT
«0*TA FWN
R00F
COATING
w m
»UCK ff
q efnið - veldu Rutland!
! Þ.ÞORGRÍWSSOM & CO
ÁRMÚLA 29 - 108 REYKJAVÍK -S: 5538640 & 568 6100