Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1996, Qupperneq 23
FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 1996
35.
Fréttir
Viðar Eggertsson krefur LR um laun i 4 ár:
Gróflega vegíð
að atvinnuheiðri
mínum og æru
- segir Viöar - krafan samsvarar 10 milljónum króna
„Með brottvísuninni, sem að mati
lögfróðra manna er að öllu leyti
ólögmæt og gróft brot á starfsheiðri
mínum, er komið í veg fyrir að ég
geti sinnt þeim störfum sem ég hef
verið að sinna í íslensku leikhúsi
undanfarin ár. Það voru engar skýr-
ingar gefnar á brottvísuninni, sem
fór fram munnlega, en ég hef ekki
enn fengið uppsagnarbréf í hendur.
Það er vegið gróflega að atvinnu-
heiðri mínum og æru. Venjulegur
uppsagnarfrestur gildir ekki í slíku
máli og þar af leiðandi geri ég kröfu
um skaðabætur. Eina viðmiðið sem
ég hef er ráðningartíminn," sagði
Viðar Eggertsson, fyrrum leikhús-
stjóri Leikfélags Reykjavíkur, við
DV en lögmaður hans hefur krafist
launa frá félaginu í þann tíma sem
Viðar var ráðinn eða í fjögur ár.
Viðar sagði að ef LR gengi ekki að
hans kröfum myndi málið líklega
fara fyrir dómstóla.
Sigrún Valbergsdóttir, sem Viðar
réði sem aðstoðarleikstjóra, og
Bjarni Jónsson, sem var listrænn
ráðunautur Viðars, hafa bæði kraf-
ið Leikfélag Reykjavíkur um laun í
sex mánuði eða í þann umsagnar-
frest sem þau telja sig hafa átt rétt
á. Samkvæmt upplýsingum DV
nema þessar kröfur um 12 milljón-
um króna, þar af um 10 milljónum
frá Viðari.
Sigurður Karlsson, formaður
Leikfélags Reykjavíkur, sagði að fé-
lagið gæti ekki orðið við neinum af
þessum kröfum. LR geti ekki borgað
það sem félaginu sé ekki skylt að
borga.
Viðar Eggertsson.
„Okkar lögmaður segir að það sé
enginn grundvöllur fyrir kröfu Við-
ars og að við eigum ekki að þurfa að
greiða honum nema sex mánaða
uppsagnarfrest," sagði Sigurður.
Um það af hverju Viðar hafi ekki
fengið uppsagnarbréf sagði Sigurð-
ur að Viðar hafi fengið bréf á fundi
leikhúsráðs á sínum tíma til stað
festingar á því að honum hafði ver
ið sagt upp. Það sé litið svo á að
bréfið sé nægjanlegt.
„Ég veit ekki betur en að það sé
nóg að uppsögn sé sannanleg. Ég
held að það blandist ekki nokkrum
manni hugur um að Viðari hafi ver-
ið sagt upp.“
Um kröfu Sigrúnar og Bjama
sagði Sigurður að leikfélagið liti svo
á að þeim hafi ekki verið sagt upp,
heldur hafi þau ákveðið sjálf að
BETRAIJIHALD OG VELUÐAN
■RR
EINSTAKT
FÆÐUBÓTAREFNI SEM
BYGGIR ÞIG VEL UPP
EIN MEÐ ÖLLU!
Sendum í póstkröfu
Eleilsu-
ornið
Skipagötu 6, 600 Akureyri
Simi/fax 462 1889
Utsölusta&lr auk Heilsuhornslns:
Kornmarkaöurinn, Laugavegi 27
Heilsuhúsiö, Kringlunni
Hollt og gott, Skagaströnd
Stökktu til
Benidorm
21. maí
fyrir 29.932
í 2 vikur
Við seljum nú síðustu sætin til Benidorm 21. maí og bjóðum
þér einstakt ferðatilboð þar sem þú getur notið þess besta í
yndislegu veðri á Benidorm í maí.
Þannig gengur það fyrir sig:
Við höfum tryggt okkur viðbótargistingu á ffábærum kjörum.
Þú bókar í dag eða fö&tudag og tryggir þér sæti og gistingu
og fimm dögum fyrir brottför hringjum við í þig og segjum
þér hvar þú gistir í fríinu.
Verð kr. 29.932
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára, 2 vikur,
skattar innifaldir.
Verð kr. 39.960
M.v. 2 fullorðna í íbúð, 21. maí, 2 vikur,
skattar innifaldir.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 562 4600
Staðsetning plattana
sem mælt er með fyrir
maga og mjaðmir.
Þessi staðsetning er
æskileg fyrir
rassvöðvana.
Vistfólk Hrafnistu hélt árlegan fagnað sinn að kvöldi síðasta vetrardags. Há-
tíðarhöldin hófust með kvöldverði og síðan var ýmislegt til skemmtunar.
Þegar myndin ver tekin voru börn úr Grafarvogi að skemmta fólkinu með
söng. DV-mynd Sveinn
Sigurður Karlsson.
hætta störfum og farið fyrirvara-
laust. Af þeim sökum eigi þau ekki
rétt á launum í uppsagnarfresti.
-bjb
Byltingarkennd nýjung í fyrsta sinn á íslandi
Gymbody 8 frá Slendertone
Ef þú vilt það. þá getur þú fengid það ailt!
Samkvæmt nýlegum skoðanakönnunum vilja 35% kvenna hafa stinnari
maga. Með byltingarkenndri tækninýjúng frá Slendertone er þetta mögulegt
á ignan við þremur vikum. Gymbody 8 er hannað samkvæmt nýjustu
tölvutækni. Það gengur fyrir rafhlöðum og er létt og einfalt í notkun. Þú þarft
ekki lengur aö leita á náðir fegrunarstofa til að komast í toppform. Allir geta
notfært sér þessa tækni heima og hvar sem er.
Stinnur og sléttur magi
á innan við 3 vikum.
Gymbody 8 æfir maga og
rassvöðvana með því að líkja eftir
eðlilegum vöðvaæfingum. Það
dregur saman og slakar á
vöðvunum 300 sinnum við
hverja æfingu með minni
hættu á ofreynslu eða sliti
en við vanabundnar æfingar.
Hvernig þú skynjar þessar æfingar.
Þú skynjar vöðvahreyfingar eins og verið sé að nudda þig. Þú getur stillt
styrk vöðvahreyfingarinnar eftir vild, þannig að hver hreyfing skynjast á
þægilegan hátt. Eftir hverja æfingu er líkaminn afslappaður, styrkur og
endurnærður.
Hámarks árangur með iágmarks áreynslu!
Þetta getur ekki verið einfaldara. Þú reyrir beltið um mittið, setur
plöturnar yfir þá vöðva sem þú villt æfa og setur tækið í gang. Hafðu
engar áhyggjur, allt er vel útskýrt á kennslumyndbandinu sem fylgir.
Hvenær sem er og hvar sem er.
Slappaðu af farðu í göngutúr, horfðu á sjónvarp eða geröu það
sem þú vilt, hvar sem þú vilt á meðan Gymbody 8 sér um að
koma vöðvunum í gott form.
Gymbody 8 hefur verið rannsakað og reynt
vísinda- og læknisfræðilega.
Þjálfarar í líkamsræktarstöðvum mæia með því. Raferting vöðva
(EMS) er læknisfræðilega rannsökuð tækni sem fyrirtækið „Bio
Medical Research" fann upp. Þeir hafa nú þróað þessa tækni
undanfarin 30 ár og kynna nú í fyrsta sinn Gymbody 8.
Það sem þú færð
með takinu:
•Gymbody 8
• Kennslumyndband
• Auka platta
• Burðartösku
1 Slendertone matarkúr
• 12 mánaða ábyrgð
Gymbody 8
Eykur blóðflæði, virkar mjög vel á
vöðvabólgu og er mjög góð vöðva-
þjálfun fyrir liðagigtarsjúklinga.
Verð.
4
Svona litur tækið út
þegar búið er að koma
því og plöttunum fyrir
Aðal
■»2.90«j; ótrúlegt verði sólbaðsstofan
Seniuin Þverholti 14 • Sími 561 8788 • Fax 5618780