Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1996, Page 12
12
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 1996
Lesendur
Vákort yfir
leigjendur íbúða?
■ v
J
Útburður á leigjendum er ekki fátíður á húsnæðismarkaðnum.
Spurningin
Hvernig Ifst þér á að fá
norskar kýr tii landsins?
Gunnar Þórðarson skrifstofu-
maður: Bara ágætlega.
Sigurlín Ólafsdóttir sölumaður:
Mér líst ekkert á það.
Valgeir Gunnlaugur Vilhjálms-
son, kennari á eftirlaunum: Illa.
Sturla Þórðarson nemi: Ég hef
enga skoðun á því.
Valdís Valgarðsdóttir húsmóðir:
Ég vil ekki fá þær, ég vil halda kúa-
kyninu okkar.
Karítas Jóhannsdóttir verslunar-
maður: Mér líst ekki á það, heldur
halda stofninum okkar hreinum.
Þórdís Bachmann, Kaupmanna-
höfn, skrifar:
Síðan um miðjan febrúar hef ég
freistað þess að fá leigjanda (les.
sjálftökumann) út úr lítilli íbúð í
miðbæ Reykjavíkur. Ég hef á þeim
tíma talað við héraðsdómara, lög-
reglu og lögmenn - og 29. febrúar
lagði lögmaður inn útburðarbeiðni
fyrir mína hönd, þar eð ég bý er-
lendis.
Hinn 18. apríl stóð svo til að við-
komandi mætti í Héraðsdómi. Kom
þá í ljós að óvart hafði láðst að boða
manninn, því honum býðst, ólíkt
öðrum skuldurum, að halda uppi
málþófi um skuldina. Nú segir lög-
maður mér að viðkomandi hafi
þannig „unnið sér tíma“! En fyrir-
gefið; Er það ekki minn tími? Jú, al-
deilis og auk þess mínir fjármunir.
Leigan á þessari litlu íbúð er um
10 þús. kr. undir markaðsverði og
þættust eflaust einhverjir góðir með
það verð. Hjá Héraðsdómi virðist þó
einu gilda hverjar aðstæður og stað-
reyndir málsins eru - eftir tæpa
þrjá mánuði, þar sem ljóst er að
maðurinn hefur ekki greitt húsa-
leigu og er búinn að meina eiganda
aðgang með því að skipta um lás,
skal handvömm Héraðsdóms, að
boða ekki manninn samt, koma eig-
anda tíl gjalda. Sem sé: Handvömm
Héraðsdóms, þitt tap! Ekki er gott
að vita til þess að í raun er verið að
gefa viðkomandi „leigjanda" tæki-
færi til að finna annað fórnarlamb
til að flá næsta árið. Mér dettur í
Skúli Hreinn Guðbjörnsson, for-
maður starfsmannafélagsins,
skrifar:
Ég vil fyrir hönd Starfsmannafé-
lags KVH koma á framfæri kvörtun
vegna framkvæmdar er varðar helg-
arpakka sem Hótel ísland gerði mér
f.h. félagsins í árlega árshátíð.
Fullrætt er af okkar hálfu við for-
svarsmenn hótelsins og því er þetta
bréf sent til birtingar.
Hinn 27. mars sl. var staðfest
pöntun er ég gerði við Jóhannes
Bachmann um aðgang að Bítlaárun-
um sem nú eru sýnd á Hótel íslandi
en helgarpakkinn hljóðaði upp á
þríréttaðan kvöldverð ásamt gist-
ingu og morgunverði. Ákveðin var
Ólafur Bjarnason skrifar:
Er það ekki annars merkilegt að
hvaðeina sem almenningur er aug-
ljóslega á móti þá er vísasti vegur-
inn að opinberir ráðamenn ríða á
vaðið - einmitt með þann hlutinn,
verkefnið, reglugerðina eða hvað-
eina sem um ræðir. Það er einmitt
þannig með Hvalfjarðargöngin. Um
þau hefur verið deilt og spurt hvort
fólk sé með þeirri framkvæmd eða á
móti. Eitthvað um 70% í einni slíkri
könnun, sem ég man eftir, var á
móti. En að hlusta á álit almenn-
hug hvort Húseigendafélagið vilji
ekki koma upp sérstökum lista yfir
„váleigjendur".
Ég hef nú beðið um tafarlausan
útburð. Verði hann ekki heimilaður
mun ég óska eftir ýtarlegum skýr-
ingum á því hvers vegna íslenskur
dómari vill dæma af mér eign mína,
því raunin verður sú, ef ég fæ ekki
leyfi til að fá arð af eigninni heldur
aðeins útgjöld þannig að ég missi
hana. Ég sé þá ekki annað en um
eignaupptöku dómsvalda sé að
ræða.
Hér í Danmörku taka svona mál
einn mánuð og þá er skuldari kom-
helgin 4.-5. maí 1996. Þetta var 65
manna hópur.
Hinn 29. apríl var hringt og mér
tjáð að ekki væri hægt að láta hóp-
inn hafa herbergi á umræddu hóteli
en í staðinn boðið að gista á öðrum
hótelum úti í bæ og það ekki einu
sinni öllum á sama hótelinu. Því
var hafnað og varð ekkert úr þess-
ari ferð vegna þessa. Bent skal á að
ég hafði haft samband við Jóhannes
Bachman nokkrum sinnum eftir að
pöntunin var staðfest og aldrei var
minnst á að ekki væri hægt að fá
herbergi fyrr en 4 dögum fyrir
brottfór eða þann 29. apríl.
í samtali við Jóhannes kom fram
að ekki væri þetta honum að kenna
Hentugt í Hvalfjarðargöngin?
ings? Af og frá.
Er hér að skapast einhver tegund af
þjóðfélagi sem er mun verra en þau
„bananaþjóðfélög“ sem við stundum
vitnum til þegar við þykjumst
standa ofar í þjóðabandalaginu en
við eigum skilið? Einhvers konar
sjálftökuþjóðfélagi, þar sem enginn
þarf að samþykkja eitt eða annað,
menn bara taka sér völd og fram-
inn út. Honum er aldrei veittur
frestur til að halda uppi málþófi.
Staðreyndirnar tala bara sínu máli.
Ég veit að ég er ekki fyrsti leigusali
heima sem lendir í þessu og slæmt
til þess að vita að ég verð heldur
ekki sá síðasti. Verst er þó hið al-
gjöra áhugaleysi dómsvalda á að
hjálpa þeim sem greiða skatta og
skyldur af eigninni. Er hugtakið um
réttarvernd sakamanna búið að út-
rýma mannréttindum okkar hinna?
Þurfa íslenskir húseigendur að leita
til Mannréttindadómstólsins til að
ná réttlæti?
eða veitingasölum á Hótel íslandi
heldur hótelinu sjálfu en mér skilst
að þar séu aðskildar deildir og vil
ég því ekki kenna honum um sér-
staklega. Hins vegar vil ég Hótel ís-
land viti að enginn hefur farið jafn
illa með okkur hjá Starfsmannafé-
lagi KVH og þetta hótel og því vil ég
láta óánægju okkar í ljósi. Því verð-
ur ekki með orðum lýst hve leitt
fólkið varð og munum við því trú-
lega ekki leita til þessa hótels í
framtíðinni.
Ég vil því draga hótelstjóra Hót-
els íslands til ábyrgðar fyrir þetta
endeihis klúður.
kvæma. Segja svo gjarnan (og bara
kannski): Við þurfum ríkisaðstoð.
En taka hana svo hvort sem er.
Ég sá mynd í dagblaði hér þar sem
unnið var að byrjunarframkvæmd-
um við Hvalfjaröargöngin. Myndin
sýndi stálgrind svipaða bragga-
grindunum á stríðsárunum. Þeim
má svo bara smeygja inn og niður
undir Hvalfjörð, eftir að búið er að
Helgarpakki á Hótel íslandi
- kvörtun frá Starfsmannafélagi KVH
Hvalfjarðargöng þrátt fyrir allt?
DV
Ekki nefskatt
fyrir RÚV
Kristín Árnadóttir hringdi:
Ég skal ekki trúa því að í stað
áskriftargjaldsins til RÚV eigi að
koma nefskattur á alla lands-
menn sem náð hafa 16 ára aldri.
Að sjálfsögðu á skylduáskriftin
að RÚV að falla brott og enginn
nefskattur eða annar skattur að
koma til. Ef nauðsynlegt þykir
að reka eitthvert útvarp sem
landsmenn greiða er nóg að hafa
Rás 1 (Gufuna gömlu og góðu) en
hvorki Sjónvarp né Rás 2. Og
alls ekki Sjónvarpið. Það er líka
dýrasti hluti rekstrar RÚV. Rík-
isútvarp með einni rás má rétt-
læta en aðeins hana eina. Og nef-
skattur er bara bull og kjána-
háttur.
íslenskur veit-
ingastaður í er-
lendri stórborg?
Lárus skrifar:
Nú hefur enn einu sinni ver-
ið ýtt á flot þeirri óheillavæn-
legu hugmynd að koma upp ís-
lenskum veitingastað í erlendri
stórborg þar sem kynna megi ís-
lensk matvæli. Hver man ekki
veitingastaðinn í London sem
við greiddum með i eitt eða tvö
ár en fór svo á hausinn? Það má
með sanni segja að hér sé bara
„gæluhugmynd" á ferð. Þetta
verður aldrei fýsilegur kostur
fyrir neinn annan en þann sem
getur kreyst peninga út úr hinu
opinbera.
Orlofsuppbót
aldraðra
Bergþór Guðmundsson
hringdi:
Orlofsuppbót aldraðra er
greidd þrisvar sinnum á ári.
Næst á að greiða í júníbyrjun.
Þetta verkar þannig að hækkun-
in næst fer bara í skattinn og
meira til. Þetta er náttúrlega
ófært og til skammar. Þetta hef-
ur veriö mikið rætt í Sjálfsbjörg
og víðar í félögum okkar ör-
yrkja. Þó gerist ekkert. Skora ég
á ráðamenn að taka nú á sig
rögg og létta þessum álögum af
okkur sem ekkert getum misst.
Lítið í eigin barm, léttið okkur
lífið, það getið þið sé viljinn
nægur.
Forkólfar með
fimmföld laun
Þórólfur hringdi:
Hún var smellin greinin hjá
Reyni Traustasyni í DV sl. laug-
ardag um baráttudag launþeg-
anna 1. maí. Svona skrif skilja
flestir. Eða hverjir trúa því sem
forystumenn launþegasamtak-
anna segja svo ár eftir ár? Ryðg-
uðum og úreltum vopnum veifað
og verkfóllum hótað og svo þeg-
ar lúðrablæstrinum lýkur þá
stendur 50-þúsund króna konan
eða maðurinn í nákvæmlega
sömu sporum. Nei, hér eru alltof
margir launþegaforkólfar með
fimmíold laun og þeir mega
missa sig, hver um annan þver-
an.
Veðdeild svarar
seint eða ekki
Reynir hringdi:
Ég hef þurft að ná símasam-
bandi við Veðdeild Landsbank-
ans að Suðurlandsbraut 24 en
þrátt fyrir ítrekaöar hringingar
hefur sífellt verið á tali. Ég
reyndi síðast sl. mánudag eftir
hádegi, allt frá kl. 13.10 til kl.
15.30, og gafst þá loks upp. Ég
veit að þama er mikið álag oft og
tíðum en mér er sama, þama
verður aö vera betra simakerfi
eða þjónusta sem annar og tekur
á móti símtölum og raðar þá upp
í forgangsröðun. Ekkert slíkt er
um að ræða.