Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1996
9
DV
Útlönd
Efni sem dregur úr frjósemi finnst í barnamjólk í Bretlandi:
Stjórnvöld sökuð
um yfirhylmingu
- landbúnaöarráöuneytiö segir enga hættu á feröum
Læknar og neytendafélög sökuðu
bresk stjórnvöld í gær um að hylma
yfir sannanir um að nokkrar al-
gengustu tegundir barnamjólkur
innihaldi efni sem gæti dregið úr
frjósemi.
Aðilar þessir krefjast þess að
breska landbúnaðarráðuneytið upp-
lýsi í hvaða níu tegundum barna-
mjólkur megi finna svo mikið af
efninu phthalates að það hefur dreg-
ið úr magni sæðisfrumna hjá til-
raunastofurottum.
„Mæðrum mun finnast þetta
skelfilegt," sagði John Chisholm hjá
bresku læknasamtökunum. „Þær
eiga heimtingu á að vita allar stað-
reyndir málsins svo þær geti valið
mjólk sem er hættulaus."
Landbúnaðarráðuneytið, sem
liggur þegar undir miklu ámæli fyr-
ir meðhöndlun sina á kúariðumál-
inu, sagði að engin ástæða væri til
að hafa áhyggjur.
„Það er engin hætta á ferðum.
Þetta er óæskilegt. Við erum að
vinna í málinu. Það er engin ástæða
til að nefna tegundina á nafn,“ sagði
Tim Boswell aðstoðarlandbúnaðar-
ráðherra í samtali við breska út-
varpið, BBC.
Samtök framleiðenda barna-
mjólkurblöndu sögðu að fréttirnar
gætu „valdið óþarfa ótta hjá mæðr-
um“.
Samtökin sögðu að nýleg rann-
sókn á vegum landbúnaðarráðu-
neytisins á phthalates í matvöru
hefði sýnt fram á mjög lítið magn
efnisins í fæðukeðjunni, þar á með-
al í mjólkurblöndum fyrir ungbörn.
„Magnið er vel innan hættu-
marka og ungbörnum stafar engin
hætta af,“ sagði í yfirlýsingu sem
samtökin sendu frá sér.
Neytendasamtökin bresku sök-
uðu stjórnvöld um að láta viðskipta-
hagsmuni ráða ferðinni.
Gavin Strang, þingmaður Verka-
mannaflokksins, sem er í stjórnar-
andstöðu, sagði: „Það er ekkert sem
réttlætir þennan leyndarhjúp. Mæð-
ur verða áhyggjufullar, þær eru að
leita ráða og almenningur á að fá að
vita hvaða tegundir um er að ræða.“
Umrætt efni, sem notað er til að
mýkja plastefni eins og PVC, er víða
að finna í náttúrunni og það er eitt
þeirra efna sem vísindamenn kenna
um fækkun sæðisfrumna hjá körl-
um á Vesturlöndum. Reuter
JAKKARIMIR
KOMNIR
AFTUR
Pantanir
óskast
sóttar
KRINGLUNNI
SfMI 581 1717
Franska leikkonan Ariele Dombasle virðir frétta-
menn í Cuernavaca í Mexíkó fyrir sér þegar til-
kynnt var um gerð myndarinnar Dagurinn og
nóttin. Arieie mun leika í myndinni á móti Alain
Delon og Marianne Decourt, meðal annarra.
Leikstjóri verður Fransmaðurinn Bernard-Henri
Lévy, öllu þekktari sem heimspekingur en kvik-
myndagerðarmaður, þótt hann hafi eitthvað
fengist við hið síðarnefnda. Símamynd Reuter
Norðmenn komn-
ir í hvalastríð
við umheiminn
DV Kaupmannahöfn:
Hvalveiðistríð Noregs við umheiminn hófst
fyrir alvöru í síðustu viku þegar 30 hvalveiði-
skip hófu veiðar á þeim 425 dýrum sem veidd
verða í ár. Hörð viðbrögð hafa komið frá mörg-
um löndum, meðal annars Þýskalandi og Banda-
ríkjunum. Hvalfriðunarsinnar hafa þegar hafið
aðgerðir og strax í byrjun mánaðarins hóf Paul
Watson skæruhernað sinn þegar hann viður-
kenndi að hafa reynt að sökkva hvalveiðiskip-
inu Elin Toril í Lofoten. Stuðningsmenn hans
opnuðu lokur í skipinu en áhöfnin náði að
bjarga því.
Kjötið af dýrunum sem nú verða veidd fer á
innanlandsmarkað en hvalveiðimenn vonast til
þess að útflutningur verði heimilaður. Er þá
einkum horft til hvalspiksins en Japanar borga
5-30 þúsund krónur fyrir kílóið. Spikið er meg-
inuppistaðan í hvalabeikoni sem Japanar elska.
Á heimamarkaði er hvalkjötið dýrara en innan-
lærisvöðvi úr góðu nauti. -pj
MONGOOSE
AVONGOOSE
Oryggishjálmur, (JAGO 304) fylgir
hverju hjóli
FRITT
á meðan tilboðið
stendur yfir!
Fjallahjól í öllum stæröum og
mikið úrval fylgihluta.
Sérhannaðir hnakkar og
hjólafatnaður fyrir konur frá
Terry. Komdu við, kiktu á hjól
og aukabúnað og fáðu eintak
af nýjum bæklingi!
CAP
leiéandi á sínu sviðí
FJALLAHJÓLABÚÐini - FAXAFENi 14 - REYKJAVIK - S: S68 5580 - netfang: gap@centrcmt.is
Sýna þarf aðgát á öflugu hjóli
og nota hjálm. Mongoose
Sycamore, alvöru fjallahjól
með ýmsum aukabúnaði.
...og eitt af því er vandað reiðhjól sem hentar við íslenskar aðstæður. Mongoose alvöru
fjallahjól hafa fyrir löngu sannað sig við íslenskar aðstæður, - um það geta mörg
þúsund eigendur vitnað. Reiðhjólahjálmar eru nauðsynlegir til að verja höfuð þeirra
sem ferðast á hjóli og Ieggjum við hjá GÁP Fjallahjólabúðinni mikla áherslu á það atriði.
Til að tryggja viðskiptavinum okkar aukið öryggi efnir GÁP Fjallahjóiabúðin til
HJÁLMADAGA í versluninni og fylgir nú frír hjálmur hverju reiðhjóli til I. júní.
Hugsaðu um öryggið - það gerum við !