Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1996 LL&bahakíS í Rexkjavik Menning Sýning í Ásmundarsafni: =TónÍLst Björk, Laugardalshöll, 21. júní kl. 20.00, 2.500 - 3.000 kr. Camerarctica, Loftkastalinn, 3. júní kl. 20.30, 1.200 kr. David Bowie, Laugardalshöll, 20. júní kl. 20.00, 3.600 - 3.900 kr. Den Danske Trio, Norrænahúsið, 11. júnf kl. 20.30, 1.200 kr. Deutsches Symphonie-Orchester Berlin, Laugardalshöll, 29. júní kl. 16.00, 2.300 - 2.700 - 3.500 kr. Evgeny Kissin, Háskólabíó, 15. júní kl. 16.00, 2.000 - 2.300 - 2.700 kr. Heimskórinn, einsöngvarar og Sinfóníuhljómsveit íslands, Laugardalshölt, 8. júní kl. 16.00, 1.500 - 2.600 - 3.200 - 3.900 kr. Híf opp, Loftkastalinn, 5. júní kl. 21.00, 1.200 kr. Le Grand Tango, Loftkastalinn, 12. júní kl. 20.30, 1.600 kr. Lester Bowie's Brass Fantasy, Loftkastalinn, 15. 16. júní kl. 21.00, 2.500 kr. Ljóð og jass, Loftkastalinn, 9. júní kl. 21.00, 1.200 kr. Philharmonia Quartett-Berlin, íslenska Óperan, 9. júní kl. 16.00, 2.200 kr. Pulp, Laugardalshöll, 2. júlí kl. 20.00, 2.200 - 2.500 kr. (miðasala frá 30. maO Sigurður Flosason og alþjóðlegi jasskvintettinn, Loftkastalinn, 7. júní 21.00, 1.600 kr. Sinfóníuhljómsveit íslands, Háskólabíó, 13. júní kl. 20.00, 1.000 - 1.450 -1.800 kr. Sundhöllin syngur, Voces Thules, Sundhöll Reykjavíkur, 8. júní kl. 23.00, 1.200 kr. Yuuko Shiokawa og András Schiff, íslenska Óperan, 5. júní kl. 20.00, 2.200 kr. Zilia píanókvartettinn, Loftkastalinn, 14. júní kl. 20.30, 1.200 kr. Ævintýrakvöld með Kammersveit Reykjavíkur, Þjóðleikhúsið, 12. júní kl. 20.00, 1.800 kr. = Svi&iliLit Circus Ronaldo, Hljómskálagarðurin, 11. 12. 13. 14. 15. 16. júní kl. 20.00, 800 -1.500 kr. Circus Ronaldo - sýning nemenda, Hljómskálagarðurinn, 16. júní kl. 15.00 & 17.00, 500 kr. Drápa, Tunglið, 7. júní kl. 20.00, 1.600 kr. Eros, Maureen Fleming, Loftkastalinn, 2. 4. júní kl. 20.30, 1.600 kr. Féhirsta vors herra, Borgarleikhúsið, 4. 7. 9. júní kl. 20.00, 1.800 kr. Gatdra-Loftur, íslenska Óperan, 1. 4. 7. 8. 11. 14. júní kl. 20.00, 3.000 kr. Gulttáraþöil, Borgarleikhúsið, 22. 23. júní kl. 14.00, 800 kr. ( hvítu myrkri, Þjóðleikhúsið - Litla sviðið, 6. 7. júní kl. 20.30, 1.700 kr. Ljóðakvöld Listahátíðar, Loftkastalinn, 10. júní kl. 21.00, 500 kr. jötunninn, Loftkastalinn, 8. 11. 13. júní kl. 20.30, 1.800 kr. Andres Serrano (Eitt sinn skal hver deyja), Sjónarhóll/Mokka Benedikt Gunnarsson, Stöölakot Carl Andre, Önnur hæð Dauðinn í íslenskum veruleika, Mokka Eftirsóttir einfarar, Gallerí Hornið Egon Schiele og Arnulf Rainer, Listasafn íslands Fjörvit, Nýlistasafnið Hreinn Friðfinnsson, Gallerí Sólon íslandus Húbert Nói, Gallerí Sævars Karls Jón Axel Björnsson, Gallerí Borg Karl Kvaran, Norræna húsið Kochheisen og Hullman, Gangur Náttúrusýn í ístenskri myndlist, Kjarvalsstaðir Osvaldo Romberg, Perlan Páll á Húsafetli, Listasafn Sigurjóns Pia Rakel Sverrisdóttir, Norræna húsið - anddyri Rachel Whiteread, íslensk grafík Ragna Róbertsdóttir, Jngólfsstræti 8 Robert Shay, Gallerí Úmbra Sigríður Sigurjónsdóttir, Loftkastalinn * Silfur í Þjóðminjasafni, Þjóðminjasafn íslands Skjátist, Sjónvarpið Snagar, Gallerí Greip 1 Svavar Guðnason, Listasafn A.S.f. - Ásmundarsal Tolli, Regnboginn Willam Morris (Sýning), Þjóðarbókhlaðan William Morris (Málþing), Þjóðarbókhlaðan, 8. júní kl. 10.00 Klúbbur Listahátíðar, Loftkastalinn, 1. -16. júní, opiö frá 17.00 Miðasalan opin, Upplýsingamiðstöð ferðamála, Bankastræti 2, Reykjavík, sími: 552 8588, http://www.saga.is/artfest Frá handverki til heimslistar - mótunarár Ásmundar Sveinssonar Mótunarár Ásmundar Sveinssonar (1893-1982) sem myndlistarmanns einkenndust af rótgróinni trú á handverkið og þau hagsýnu sjónarmið er hann hafði með sér úr foðurhúsum, Kolsstöðum í Dalasýslu, að vinnan færði manninum hamingju og þá fyrst og síð- ast sú vinna sem skilaði salti í grautinn. Sjálfur taldi Ásmundur það hafa „bjargað“ sér frá ótíndu sveitalíf- inu að hann hafði sjónskekkju sem gerði það að verk- um að hann var ekki nægilega fjárglöggur. Myndlist var nánast ekki til í hugum sveitafólks í þá daga og birtist helst í formi skreytinga í blöðum og bókum eða sem útsaumur eða útskurður. Ás- mundur undi sér við smíðar likt og bræður hans og gerði gott betur með því að tálga út myndir af fálka og víkingi úr tré (1913-14) og móta fjallkonu úr steypu (1910-15) sem á að vera að taka við bók frelsisins úr hendi Jóns Sigurðssonar. Myndlist Ólafur J. Engilbertsson Tréskuröur Tvö síðarnefndu verkin eru til sýnis undir hvolfþakinu í Ás- mundarsafni á sýningunni sem opnuð var um helgina og er til- einkuð mótunarárunum í list Ásmundar. Auk þeirra er þar mynd úr gifsi af yfir- setukonu frá 1918-19 sem Ásmundur gerði á náms tíma sínum í Reykjavík en þangað hélt hann í tréskurðar- nám árið 1915 og fékk inni á vinnustofu Ríkarðs Jónssonar. Sveinsstykki Ásmundar eftir fjögurra ára tréskurðarnám er í anddyri safnsins en það er útskorinn stóll með myndum er sýna tvo helstu atvinnuvegi þjóðarinnar, landbúnað og sjávarútveg, auk ljóðlína eftir læ- rimeistarann, Ríkarð, skornar út með höfðaletri. Gunnar Kvaran ritar allítarlega um mótunarár Ás- mundar í sýningarskrá. Þar kemur fram að Ásmund- ur telur síðar að Ríkarður hafi ekki örvað sig nægi- lega við mótun en staðið sig betur sem kennari í tré- skurði. Ahrifavaldar Ásmundur hélt strax haustið 1919 til Kaupmanna- hafnar til náms í höggmyndalist, m.a. hvattur af Ein- ari Jónssyni og Þórami B. Þorláks- syni. Þar nemur hann hjá Viggo Brandt en kann illa kennslunni og afræður að fara til Stokk- hólms þar sem hann staldrar við í heil sex ár og nemur hjá kunnum myndhöggvara, Carl Milles hjá Listaháskólanum. Milles átti eftir að hafa mikil áhrif á list Ásmundar. Fróðlegt er að bera saman arkaískt stíl- færða sporðafætur Trítons eftir Milles og tvísporða Hafmeyju Ás- mundar frá 1921-22 á sýningunni. Það er vel til fundið að tefla þannig saman verkum lista- manns í mótun og áhrifavalda hans, sérstaklega hvað varðar Milles. Verk Charles Despiau og Antoine Bourdelie eiga ekki eins mikið afgerandi sammerkt með verkum Ás- mundar og vekur í raun furðu að verk eftir Maillol skuli ekki hafa orðið fyrir val- inu í stað þess síðarnefnda í skjóli tilvísana til listar hans í sýningarskrá. París og gildi kúbismans Frá Stokkhólmi hélt Ás- mundur til Parísar þar sem hann mótaði það verk sem hann er e.t.v. hvað þekktastur fyrir, Sæmund á selnum. Á þeim tíma er að renna upp fyrir Ásmundi gildi kúbismans og klass- ísk formbygging auk arka- ískrar stílfærslu í anda Milles er á undanhaldi í list hans. Enn sem komið er þjónar kúbisminn þó einungis hlutverki stílfæringar í huga Ásmundar í þessu verki, einföldunar skreytis en ekki uppbroti sjálfs meginformsins. Sýning þessi bregður nokkurri birtu á erfið vaxtarskilyrði hérlendrar myndlistar og það hvernig hún þróaðist frá hand- verki yfir í heimslist. Fréttir Aðgöngumiðar á EM í knattsmrnu: Sending til KSI rifin upp og hundrað og þremur miðum stolið - mikil brögð að þessu í Englandi, segir Snorri Finnlaugsson „Þegar sendingin kom var búið að opna pakkann að hluta og það vantaði 103 miða. Það eru tvö póst- fyrirtæki sem sáu um flutning miðanna til íslands. Annað er TNT í Englandi en EMS-póstur, sem er í eigu Pósts og síma, er hinn aðilinn. Við höfum heimildir fyrir því að brögð séu að því að miðar hverfi úr miðasendingum á EM til landa utan Englands,“ sagði Snorri Finnlaugsson, fram- kvæmdastjóri KSÍ, í samtali við DV í gær. Knattspyrnusamband íslands fékk 803 miða á hina ýmsu leiki Evrópukeppninnar í knattspyrnu sem hefst í Englandi 8. júní. Siðan eru þessir miðar flestir framseldir til ferðaskrifstofa. Snorri sagði búið væri að fá það staðfest hjá breska sambandinu, sem sendi KSÍ miðana, að 803 mið- ar hefðu farið frá því áleiðis til Is- lands. Hann sagði að hér væri um allmikinn skaða að ræða sem KSÍ teldi öruggt að fá bættan, það er að nýir miðar komi í staðinn fyrir þá sem hurfu. Af þeim miðum sem hurfu eru 73 á einn leik í Liverpool og 22 miðar á annan leik. Síðan vantar 8 miða þar sem um er að fæða 2 miða á fjóra leiki sem Logi Ólafs- son landsliðsþjálfari ætlaði að sjá. • Þar sem hér er um númeraða miða að ræða ætti ekki að vera erfitt að komast að því hverjir eru með miðana. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.