Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1996
11
r>v______________________________Fréttir
Þangskurður aldrei hafíst fyrr:
Þörungaverksmiðjan að
verða ábatasamt fyrirtæki
- í samvinnu bandaríská fyrirtækisins NKC og heimamanna
DV, Hólmavik:
Víða um landið koma fram áhrif
hins nýliðna og milda vetrar. Hjá
Þörungaverksmiðjunni á Reykhólum
hófst þangskurður 12. apríl sem er
um það bil mánuði fyrr en venjulega
og hefur líklega ekki hafist fyrr að
vori frá upphafi þangskurðar á þessu
svæði, að sögn Bjarna Óskars Hall-
dórssonar framkvæmdastjóra.
Hann segir skilyrðin í sjónum
vera með allra besta móti þetta árið.
Lítill ís hafi verið á Breiðafirði í vet-
ur og í stuttan tíma. Hvort tveggja sé
ólíkt venju og það eigi sinn þátt í hve
allt sjávarlíf býr nú við góðar að-
stæður.
„Starfsemin öll byggist á afar vist-
og umhverfisvænum grunni því lík-
legt má telja að það sé aðeins til bóta
fyrir lífríkið að þangið sé skorið á
þetta fjögurra til fimm ára fresti eins
og venja hefur skapast um og það er
ekki hugsanlegt að þessi auðlind
beri af því skaða,“ segir Bjarni.
Sölumálin hafa verið í góðu horfi
upp á síðkastið og verð heldur farið
hækkandi. Straumhvörf urðu á vor-
dögum er varðar eignahlutfóll í verk-
smiðjunni þvi þá urðu eigendaskipti
að 67% hlutabréfa sem voru í eigu is-
lenska ríkisins þegar Nutra Sveet
Kelco Company (NKC), sem er dótt-
urfyrirtæki stórfyrirtækisins Mons-
anto, keypti hlut íslenska ríkisins á
Þörungaverksmiðjan á Reykhólum.
tæpar 30 milljónir króna.
Monsanto er bandarískt fyrirtæki
sem veltir milljörðum dollara árlega.
Helsta ástæðan fyrir kaupunum er
sú að verksmiðja NKC í Girvan í
Skotlandi hefur verið stærsti við-
skiptavinur þörungaverksmiðjunnar
frá upphafi starfseminnar fyrir um
20 árum. Nú vill þetta stórfyrirtæki
með eignaraðild sinni tryggja sér
hráefni til framtíðar.
í fréttatilkynningu segja hinir
nýju eigendur að þeir fari út í þessa
fjárfestingu vegna þess að þeir telji
að hægt sé að breyta verksmijunni I
ábatasamt fyrirtæki í samvinnu við
heimafólk á Reykhólum og það verði
forgangsverkefni að útvega tækni- og
fjárhagslegan stuðning til þess að
tryggja að núverandi starfsemi eflist
DV-mynd Guðfinnur
sem mest. Þá segjast þeir munu ráð-
stafa afrakstrinum í samræmi við
endurnýjun auðlindarinnar sem sé
lykilatriði í alheimsstarfsemi NKC.
Bjarni Óskar framkvæmdastjóri
segir að fljótlega verði haflst handa
við endurbætur bæði á húsnæði og
búnaði eins og þurrkara verksmiðj-
unnar. Þá verði einnig bætt við
prömmum til að slá þangið og al-
mennt megi segja að fram undan sé
frekar bjart og meira öryggis og
festu muni gæta en verið hafi lengi.
Verksmiðjan nýtir heitt vatn úr
þremur borholum sem henni til-
heyra.
í vetur voru starfsmenn 17-18 en
verða 22-23 í sumar en aúk þess
vinna nokkrir sem verktakar við
þangskurð og fleira. -GF
Sumarskólinn sf.
Eins og undanfarin sumur veröur Sumarskólinn sf. með
kennslu í fjölmörgum framhaldsskólaáföngum. Yfír 40
áfangar veröa í boöi. Kennt verður samkvæmt námskrá
Menntamálaráöuneytisins. Allir áfangar eru matshæfir.
Skólinn hefst 31. maí og lýkur 3. júlí. Kennt veröur á kvöldin
í Háskóla íslands.
Skólagjald er kr. 12.900 fyrir einn áfanga, en kr. 18.900 fyrir
tvo áfanga. Nemendur mega mest taka tvo áfanga.
Innritun verður virka daga frá 20.-29. maí kl. 16:30-19:00
I Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi.
Nánari upplýsingar fást í símum 565-6484 og 564-2100.
Elliðaárnar:
Kýla-
veiki
komin til
að vera
Talið er mjög ólíklegt að
hægt sé að komast fyrir kýla-
veiki í Elliðaánum þrátt fyrir
miklar sóttvarnaraðgerðir.
Veikin greindist þar i fyrrasum-
ar og hníga sterk rök að því að
hún hafi borist þangað með
flökkufiski. Kýlaveiki er land-
læg erlendis en ekki er vist að
sjúkdómurinn þurfi að hafa
mikil áhrif á laxaframleiðslu
hér því að reynslan sýnir að
stofnar erlendis byggja upp
ákveðið ónæmi fyrir honum og
blossar hann þá aðeins upp við
vissar aðstæður svo sem í mikl-
um hita og litlu vatnsrennsli.
Þá eru um þessar mundir að
hefjast víðtækar rannsóknir,
sem Reykjavíkurborg stendur
fyrir, á vatnasvæði Elliðaánna.
Metin verða áhrif orkufram-
leiðslu og aukinnar byggðar á
ámar ásamt fleiri þáttum.
Hingað til hefur skólpi verið
hleypt í sjóinn við ósa ánna.
Fyrirhugað er að ráða bót á því
á næsta ári og er það liður í því
að fegra strendur borgarinnar.
Regnvatn verður þó ennþá leitt í
árnar og eru engar áætlanir
uppi um að breyta því.
Mikið hefur verið lagt upp úr
þvi að engin röskun verði á El-
liðaánum eða lífríki þeirra með-
an á framkvæmdum við brýr á
Vesturlandsvegi stendur. Nefna
má sem dæmi að verktakinn má
ekki setja neitt sem tengist brú-
arsmíðinni ofan í árnar né
skemma bakkana næst þeim.
Framkvæmdir eru nú vel á veg
komnar og er stefnt að þvi að El-
liðaárbrúin sjálf verði steypt í
kringum 15. júní en fram-
kvæmdum á að vera lokið 1.
október. -SF
Ég skipti líka á Sierrunni minni
og Baleno
Inga Lóa Armannsdóttir
og dóttir hennar
Sanara Þorvaldsdóttir
Komdu sjálfum þér oq
fjölskyldu þinni á óvart.
Prufukeyrðu Baleno í dag!
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími 568 51 00.