Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1996 Spurningin Ertu hlynnt(ur) hvalveiðum? Edvin Fernando nemi: Nei, mér finnst hvalkjöt vont. Arnar Snæbjörnsson nemi: Mér er alveg sama. Lárus Þorvaldsson vélstjóri: Já, ég er hlynntur þeim. Stefán Sverrisson rafeinda- virki: Já. Sigrún Björnsson hjúkrunar- fræðingur: Ég er á báðum áttum. Gylfi Sigurjónsson sjómaður: Jahá, það má drepa þá alla. Lesendur_________________ Hvernig forseta? Guðrún Pétursdóttir forsetaframbjóðandi. - „Kemur fram sem allra jafningi með hlýlegum og eðlilegum hætti,“ segir bréfritari m.a. Jóhanna G. Möller söngkona skrifar: Eðli forsetaembættisins veldur því að miklu skiptir hverjir per- sónueiginleikar þess eru sem því gegnir. Kynferði þess sem situr á Bessastöðum skiptir mig því litlu máli. En ég vil fá á Bessastaði for- seta sem sökum greindar sinnar, menntunar og dómgreindar er við- ræðuhæfur hvar sem hann fer, hér heima eða heiman, við hvern sem er. Allt frá þeim sem kallaðir eru höfðingjar til hinna sem ekkert eiga undir sér - allt frá þeim sem notið hafa bestu menntunar og skara fram úr til hinna sem hafa orðið að sætta sig við minna. Ég treysti Guðrúnu Pétursdóttur til að uppfylla þessar kröfur. Víð- tæk menntun hennar, bæði á sviði hugvísinda og raunvísinda, ljá henni óvenju víða sýn. Persónugerð hennar hefur forðað henni frá að hreykja sér af velgengninni, þannig að hún kemur fram sem allra jafn- ingi, með hlýlegum og eðlilegum hætti. Ég met sjálfstæði fólks mikils. Þeir sem ekki eru bundnir á klafa flokka eða valdakerfa eða múl- bundnir af hagsmunatengslum eru mér að skapi. - Forseti þarf að vera sjálfstæður og frjáls og kunna að beita því frelsi, ef og þegar þörf krefur. Guðrún Pétursdóttir á þetta frelsi. Það er henni eðlislægt. Hún þorir að beita því og kann að fara með það. Fortíð hennar hefur ekki fjötrað hana. Kannski háir það henni í kosningabaráttunni að geta ekki skírskotað til hollustu sinnar við flokksmaskínur eða fésýslumenn. Mér segir þó svo hugur að þegar al- menningur í landinu fer að skoða hug sinn í alvöru, þegar kjördagur nálgast, kunni hann að meta einmitt þetta - að hún er ein af okk- ur. Menntun og mannúð eru þættir sem ég veit að Guðrún Pétursdóttir mun leggja áherslu á í embætti þjóðhöfðingja. Slíkan þjóðhöfðingja þurfum við sem fremstan meðal jafningja þegar við göngum á vit nýrrar aldar. - Og svo spiliir ekki að hann hafi skopskyn. Skinhelgi verkalýðsforystunnar 2/3 atkvæða þarf á ASÍ-þingi Guðmundur Ólafsson skrifar: Flestir munu vera sammála því að þing Alþýðusambands Islands, sem nú er afstaðið, hafi verið meira og minna innanhússkarp milli for- ystusveitar launþegafélaganna um hverja ætti að kjósa til mannaforr- áða. Á þinginu var „plottað sundur og saman“ eins og einn lítið eitt beiskur stuöningsmaður fulltrúa Verkamannasambandsins orðaði það í einu dagblaðanna. Þingið var einn allsherjar vígvöllur fyrir upp- steyt gegn núverandi stjórnvöldum og endaði í fjöldaflutningum þátt- takenda til Reykjavíkur til að steyta hnefana framan í einn ráðherra og forseta Alþingis. Og ekki er samræminu fyrir að fara og sýnir að verkalýðsforystan er vanhæf til að standa fyrir fjöl- mennum samtökum á borð við laun- þegahreyfingu. Á ASÍ-þinginu var borin fram tillaga frá einum fulltrú- anum og fékk hún um 54% atkvæða. En það nægir ekki þar, því í lögum ASÍ segir að tillaga verði að ná 2/3 atkvæða til að verða samþykkt! Á Alþingi hefur verið í bígerð ný löggjöf um verkföll og vinnudeilur m.a., þ. á m. skynsamlegt ákvæði um að verkfallsboðun í launþegafé- lögunum þurfi að hafa a.m.k. 1/3 fé- lagsmanna svo að verkfallsboðun teljist lögmæt. Þá ætla verkalýðsfor- ingjar að rífa úr sér augun af undr- un og hneykslan og segja að hér sé um að ræða aðför að verkalýðs- hreyfingunni! - Jafnvel þótt laun- þegar vilji losna undan áþján svo- nefndra stjórnenda verkalýðsfélag- anna. Byggingaþröng við Listabraut K.I. skrifar: Tilgangurinn með þessum línum er að koma á framfæri óánægju minni og annarra íbúa í nágrenni við mig varðandi úthlutun nokk- urra lóða og bygginga sem fyrir- hugað er að byggja við Listabraut hér í Reykjavík. Þarna er m.a. um að ræða byggingu fyrir SÁÁ, Rauða krossinn og heilsugæslustöðvar. Búið er að auglýsa byggingu SÁÁ og Rauða krossins, en svo virðist sem aðrar og fleiri byggingar eigi lika að setja þarna niður. Það vantar ekki að sífellt sé rætt um að hafa íbúðarhverfin það sem kallað er „manneskjuleg", og þetta svæði hefur manni fundist að væri tilvalið fyrir fólkið. Þarna fá sér margir göngutúr og þarna eru böm að leik. Einmitt í samræmi við hið manneskjulega umhverfi (svo ég noti það orð enn einu sinni). Þetta þjónusta allan i sima 5000 i kl. 14 og 16 Afstöðumynd lóðar og þeirra húsa sem væntanleg eru við Listabrautina. svæði væri upplagt til að hafa á bekki, tré, jafnvel tjörn. - Eitthvað fyrir fólkið. Þegar R-listinn komst í borgar- stjórn var talað digurbarkalega um þessi atriði. Núna er hverri bygg- ingunni eftir aðra klúldrað upp og þrýstihópar látnir ráða því hver fær lóðirnar. Kannski þarf R-listinn að hugsa til næstu kosninga. En mér er sama. - Umferðin í kringum svona mörg hús með þetta víðtæka starfsemi mun skapa algjört hættu- ástand. Byggingar eins og fyrir SÁÁ og Rauða krossinn geta auðveldlega verið utan borgarmarkanna. Ef til vill spurning um heilsugæslustöð, enda væri sú bygging nóg á þessu svæði, þegar tekið er tillit til hinn- ar stóru byggingar Ríkisútvarpsins og lóðarinnar sem hún stendur á og klipið er nú af til úthlutunar fyrir allar viðbótarbyggingarnar. Áburðarlaust Kristin hringdi: Ætla bændur að láta bjóða sér eina ferðina enn þessa einokun? Nú hefur verið áburðarlaust í a.m.k. hálfan mánuð og samt var ekki lægsta tilboði tekið erlendis frá en nokkur tilboð bárust um áburð. Þótt innflutningur sé nú frjáls á áburði er staðreyndin sú að Áburðarverksmiðjan er með allan markaðinn og því ætlast menn til að varan sé til þegar menn þurfa á henni að halda eins og framkvæmdastjóri Áburðarverksmiðjunnar tekur réttilega fram í DV sl. þriðjudag. Því er nú aðeins eitt ráð til - að standa sig. Amerísku gólf- teppin fást ekki Ragnar skrifar: Ég var að lesa bréf sem fjallaöi um amerísk gólfteppi sem sögð eru vera með þeim betri þar sem á annaö borð er mikið gengið og álag umtalsvert. Ég hef sömu reynslu af amerískum gólftepp- um sem eru algengust á markaði þar vestra. En hér á landi fást þessi teppi ekki og tel ég ástæð- una vera þá sem tiltekin var í áðurnefndu bréfi - að verslanir hér vilji ekki bjóða þau til sölu vegna þess að þá yrði salan mun dræmari þegar fram liðu stundir vegna hinnar góðu endingar. Þessu er samt óþarfi að kyngja átölulaust og þurfa teppakaup- menn að gefa frekari skýringar en ég hefi ekki séð neina frá þeim um málið. Vond er vafasöm fortíð Ingibjörg Jónsdóttir skrifar: Mér finnst það færast i vöxt að stjórnmálaflokkar og jafnvel ein- stakir stjórnmálamenn séu að ráða til sín eða hafa á sínum snærum ýmsa þá sem teljast verða hafa vafasama fortíð. Þetta var nú einu sinni kallað að hafa ekki gott „rygte“ upp á dönsku. Og svona menn, sem kannski eru gjaldþrota eða hafa verið orðaðir við fjármálaróstur eða annað þaðan af verra, eru ekki heppilegustu pappírarnir fyrir stjórnmálin eða einstaklinga innan þeirra til að byggja upp trúnaðartraust við flokksmenn eða kjósendur almennt. Furðulegt ASÍ- þing Kristinn Sigurðsson skrifar: Mikið hefur verið rætt um allt og ekkert á undangengnu ASÍ- þingi en það er lítið talað um að lækka starfsaldur niður í 65 ár, þótt margir kjósi ekkert fremur en að fá þeim reglum breytt. Og ekkert er minnst á alltof lágan lífeyri við starfslok. Krafan ætti að vera: skattleysi þegar menn hætta störfum. Vaknið nú, ágæta ASÍ-forusta. Við treystum ykkur en ekki ríkisvaldinu. „Rage against The Machine“ Örn Sigurösson skrifar: Nýlega sá ég myndband með nýju lagi, Rage against the Machine. Æðisgengið lag og ég keypti plötuna strax og er hún ein besta plata sem ég hef heyrt.. En á vinsældalistunum sem birt- ust i DV síðast var platan í 6. sæti bandaríska listans en innan sviga stóð „1. sæti“ eins og hún hefði verið í 1. sæti vikuna áður. En platan var einfaldlega ekki á listanum sem birtist þá. Það er of gott til að vera satt, ef Rage against the Machine hefur náð 1. sæti í Bandaríkjunum. Gott væri að fá skýringu síðar á þessu mis- ræmi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.