Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ1996 13 Fréttir Neytendasamtökin um áætlun um fækkun umferðarslysa: Miðað er við gamlan og úreltan grunn VERÐLÆKKUIVI ^■á brettakömtum íslenskir og amerískir brettakantar á jeppa. Einnig mikið úrval af pallbílahúsum á góðu verði. „Þingsályktun frá Alþingi að til- lögu dómsmálaráðherra frá 28. febr- úar síðastliðnum gengur út frá því að fækka alvarlegum umferðarslys- um um 20 prósent fyrir aldamót en miðar þá áætlun við of gamlan, háan og úreltan grunn, sem sé með- altal áranna 1982 til 1992.“ Þetta stendur í ályktun um umferðarör- yggismál sem samþykkt var á þingi Neytendasamtakanna núna í mai. „Meðaltal áranna 1982 til 1992 er 313,4 alvarlega slasaðir en meðaltal áranna 1991 til 1995 er 237 alvarlega slasaðir. Gallinn á viðmiðuninni við 1982 til 1992 sést best af því að ef alvarlega slösuðum fækkaði um 20 prósent til aldamóta frá meðaltali áranna 1982 til 1992 myndi alvarlega slösuðum fjölga um 5,8 prósent frá meðaltali áranna 1991 til 1995 en ekki fækka um 20 prósent í raun,“ segir Gunnar H. Gunnarsson, deild- arverkfræðingur hjá umferðardeild borgarverkfræðings sem sat þing Neytendasamtakanna. Gunnar bendir á að mun réttar hefði verið, til dæmis vegna aukinn- ar bílbeltanotkunar, að nota meðal- tal áranna 1991 til 1995. í umferðaröryggisáætlun dóms- málaráðuneytisins til 2001, sem gef- in var út í janúar 1995, segir að þrátt fyrir aukningu umferðar hafi tekist að halda í horfinu varðandi umferðarslys og hafi bættur örygg- isbúnaður bifreiða haft mikið að segja. Aukið fræðslustarf hafi og skilað árangri auk þess sem vegir og umferðarmannvirki hafi batnað. „Með tilliti til þessa er undarlegt að rhiðað skuli fækkun umferðarslysa við of gamlan og háan grunn,“ segir Gunnar. Hann segir ekki nóg að gera fram- kvæm'daáætlun heldur þurfi einnig að gera raunhæfa fjárhagsáætlun. Góð reynsla sé af slíkum vinnu- brögðum erlendis. Einnig verði að miða við meðaltal alvarlegra slysa síðastliðin 5 ár. „Danir hófu átak 1988 og miðuðu þá við fjölda slysa tvö síðustu árin á undan, það er 1986 til 1987. Þeir eru reyndar fleiri en við en fjögurra til fimm ára er feykinógur tími,“ leggur Gunnar áherslu á. -IBS Formaöur Umferðarráös: Við endurskoðum þetta með tilliti til nýrra talna Þórhallur Ólafsson, formaður Umferðarráðs og aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, er einn þeirra sem stóðu að gerð umferðaröryggis- áætlunar sem Alþingi samþykkti í febrúar siðastliðnum. „Þetta var lagt fram á þingi í jan- úar 1995. Þá voru bara tölurnar fyr- ir 1994 komnar og við vorum að vinna þetta 1993. í öllum umferðar- öryggisáætlunum á Norðurlöndum og reyndar annars staðar hefur ver- ið miðað við tíu eða ellefu ára tíma- bil og við gerðum það líka hérna. Þar sem við vorum að vinna þetta 1993 var tímabilið 1982 til 1992 eini grunnurinn sem hægt var að miða við,“ segir Þórhallur. Hann tekur undir það að rétt sé að endurskoða grunninn með tilliti til mikillar fækkunar alvarlegra umferðarslysa á undanförnum árum en í ályktun þings Neytendasamtakanna segir að miðað sé við of gamlan, háan og úr- eltan grunn þegar stefnt er að því að fækka alvarlegum umferðarslysum um 20 prósent. „Við endurskoðum þetta með til- liti til nýrra talna. Við ætlum ekki að fara að fjölga slysum til að fara upp í 20 prósent ef við erum komin niður fyrir þau. Áætlunin gengur út á það að fækka umferðarslysum. Að sjálfsögðu verður markið sett hærra ef það næst góður árangur. Aðalat- riðið er að það látist sem allra fæst- ir og slasist sem allra fæstir. Að því munum við vinna, burtséð frá öll- um viðmiðunum. Þeim verður bara breytt ef við teljum okkur ná betri árangri og teljum það raunhæft," segir Þórhallur. Hann greinir frá því að um ára- mótin 1987 til 1988 hafi Norður- landaráð samþykkt að öll Norður- löndin skyldu gera sér markmiðsá- ætlun. Hin löndin brugðust skjótt við en íslendingar ekki fyrr en núna. „Það var bara vegna pólítísks áhugaleysis. Það er ekki hægt að segja neitt annað.“ -IBS í Söluleyfi 17. júní 1996 í Reykjavík Þeir sem óska eftir leyfi til sölu úr tjöldum á þjóöhátíöardaginn 17. júní 1996, vinsamlegast vitjiö umsóknareyðublaða á skrifstofu ÍTR Fríkirkjuvegi 11, opið kl. 08:20 - 16:15. Umsóknum skal skilaö miövikudaginn 5. júní fyrir kl. 16:00. Úthlutun veröur fimmtudaginn 6. júní kl. 16:30 á Fríkirkjuvegi 11. Vakin er athygli á því, að öll lausasala frá tjöldum og á hátíöarsvæðinu er stranglega bönnuö. Gjald v/ söluleyfa er kr.2.000.- Dæmi um verð: Brettakantar Toyota D/Cab 31"-33" 13.900.- stgr. Brettakantar Toyota D/Cab 35"-38" 24.500.- stgr. Brettakantar Suzuki 33" 29.665.- stgr. Brettakantar Nissan D/Cab 33" 33.915.- stgr. Brettakantar Dodge Ram 33"-35" 29.900.- stgr. Þar sem allt fæst í jeppann Vagnhöfða 2 - Sími 587-0-587 500 alvarleg slys 450 400 350 300 Fækkun slysa í umferðinni Meðal fjöldi alvarlega slasaöra í umferðinni á ísl. '82 - '92 : 313,4 manns 200 150 100 Meðal fjöldi alvarlega slasaðra í umferðinni á ísl. '91 - '95: 237 manns Fjöldi alvarl. slasaðra samkv. tillögu dómsmálaráöh.: 250,7 manns f£-- Fjöldi alvarlega slasaðra miðað við 20% raunverulega fækkun: 189,6 manns '82 '83 '84 '85 '86 '87 '88 '89 '90 '91 '92 '93 '94 '95 '96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.