Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ1996
13
Fréttir
Neytendasamtökin um áætlun um fækkun umferðarslysa:
Miðað er við gamlan
og úreltan grunn
VERÐLÆKKUIVI
^■á brettakömtum
íslenskir og amerískir brettakantar á jeppa.
Einnig mikið úrval af pallbílahúsum á góðu verði.
„Þingsályktun frá Alþingi að til-
lögu dómsmálaráðherra frá 28. febr-
úar síðastliðnum gengur út frá því
að fækka alvarlegum umferðarslys-
um um 20 prósent fyrir aldamót en
miðar þá áætlun við of gamlan,
háan og úreltan grunn, sem sé með-
altal áranna 1982 til 1992.“ Þetta
stendur í ályktun um umferðarör-
yggismál sem samþykkt var á þingi
Neytendasamtakanna núna í mai.
„Meðaltal áranna 1982 til 1992 er
313,4 alvarlega slasaðir en meðaltal
áranna 1991 til 1995 er 237 alvarlega
slasaðir. Gallinn á viðmiðuninni
við 1982 til 1992 sést best af því að ef
alvarlega slösuðum fækkaði um 20
prósent til aldamóta frá meðaltali
áranna 1982 til 1992 myndi alvarlega
slösuðum fjölga um 5,8 prósent frá
meðaltali áranna 1991 til 1995 en
ekki fækka um 20 prósent í raun,“
segir Gunnar H. Gunnarsson, deild-
arverkfræðingur hjá umferðardeild
borgarverkfræðings sem sat þing
Neytendasamtakanna.
Gunnar bendir á að mun réttar
hefði verið, til dæmis vegna aukinn-
ar bílbeltanotkunar, að nota meðal-
tal áranna 1991 til 1995.
í umferðaröryggisáætlun dóms-
málaráðuneytisins til 2001, sem gef-
in var út í janúar 1995, segir að
þrátt fyrir aukningu umferðar hafi
tekist að halda í horfinu varðandi
umferðarslys og hafi bættur örygg-
isbúnaður bifreiða haft mikið að
segja. Aukið fræðslustarf hafi og
skilað árangri auk þess sem vegir
og umferðarmannvirki hafi batnað.
„Með tilliti til þessa er undarlegt að
rhiðað skuli fækkun umferðarslysa
við of gamlan og háan grunn,“ segir
Gunnar.
Hann segir ekki nóg að gera fram-
kvæm'daáætlun heldur þurfi einnig
að gera raunhæfa fjárhagsáætlun.
Góð reynsla sé af slíkum vinnu-
brögðum erlendis. Einnig verði að
miða við meðaltal alvarlegra slysa
síðastliðin 5 ár. „Danir hófu átak
1988 og miðuðu þá við fjölda slysa
tvö síðustu árin á undan, það er
1986 til 1987. Þeir eru reyndar fleiri
en við en fjögurra til fimm ára er
feykinógur tími,“ leggur Gunnar
áherslu á. -IBS
Formaöur Umferðarráös:
Við endurskoðum þetta
með tilliti til nýrra talna
Þórhallur Ólafsson, formaður
Umferðarráðs og aðstoðarmaður
dómsmálaráðherra, er einn þeirra
sem stóðu að gerð umferðaröryggis-
áætlunar sem Alþingi samþykkti í
febrúar siðastliðnum.
„Þetta var lagt fram á þingi í jan-
úar 1995. Þá voru bara tölurnar fyr-
ir 1994 komnar og við vorum að
vinna þetta 1993. í öllum umferðar-
öryggisáætlunum á Norðurlöndum
og reyndar annars staðar hefur ver-
ið miðað við tíu eða ellefu ára tíma-
bil og við gerðum það líka hérna.
Þar sem við vorum að vinna þetta
1993 var tímabilið 1982 til 1992 eini
grunnurinn sem hægt var að miða
við,“ segir Þórhallur. Hann tekur
undir það að rétt sé að endurskoða
grunninn með tilliti til mikillar
fækkunar alvarlegra umferðarslysa
á undanförnum árum en í ályktun
þings Neytendasamtakanna segir að
miðað sé við of gamlan, háan og úr-
eltan grunn þegar stefnt er að því að
fækka alvarlegum umferðarslysum
um 20 prósent.
„Við endurskoðum þetta með til-
liti til nýrra talna. Við ætlum ekki
að fara að fjölga slysum til að fara
upp í 20 prósent ef við erum komin
niður fyrir þau. Áætlunin gengur út
á það að fækka umferðarslysum. Að
sjálfsögðu verður markið sett hærra
ef það næst góður árangur. Aðalat-
riðið er að það látist sem allra fæst-
ir og slasist sem allra fæstir. Að því
munum við vinna, burtséð frá öll-
um viðmiðunum. Þeim verður bara
breytt ef við teljum okkur ná betri
árangri og teljum það raunhæft,"
segir Þórhallur.
Hann greinir frá því að um ára-
mótin 1987 til 1988 hafi Norður-
landaráð samþykkt að öll Norður-
löndin skyldu gera sér markmiðsá-
ætlun. Hin löndin brugðust skjótt
við en íslendingar ekki fyrr en
núna. „Það var bara vegna pólítísks
áhugaleysis. Það er ekki hægt að
segja neitt annað.“ -IBS
í
Söluleyfi 17. júní 1996
í Reykjavík
Þeir sem óska eftir leyfi til sölu
úr tjöldum á þjóöhátíöardaginn 17. júní
1996, vinsamlegast
vitjiö umsóknareyðublaða á skrifstofu ÍTR
Fríkirkjuvegi 11, opið kl. 08:20 - 16:15.
Umsóknum skal skilaö
miövikudaginn 5. júní fyrir kl. 16:00.
Úthlutun veröur fimmtudaginn 6. júní kl. 16:30
á Fríkirkjuvegi 11.
Vakin er athygli á því, að öll lausasala frá tjöldum
og á hátíöarsvæðinu er stranglega bönnuö.
Gjald v/ söluleyfa er kr.2.000.-
Dæmi um verð:
Brettakantar Toyota D/Cab 31"-33" 13.900.- stgr.
Brettakantar Toyota D/Cab 35"-38" 24.500.- stgr.
Brettakantar Suzuki 33" 29.665.- stgr.
Brettakantar Nissan D/Cab 33" 33.915.- stgr.
Brettakantar Dodge Ram 33"-35" 29.900.- stgr.
Þar sem allt fæst í jeppann
Vagnhöfða 2 - Sími 587-0-587
500 alvarleg slys
450
400
350
300
Fækkun slysa í umferðinni
Meðal fjöldi alvarlega slasaöra í umferðinni
á ísl. '82 - '92 : 313,4 manns
200
150
100
Meðal fjöldi alvarlega slasaðra í umferðinni
á ísl. '91 - '95: 237 manns
Fjöldi alvarl. slasaðra samkv.
tillögu dómsmálaráöh.:
250,7 manns
f£--
Fjöldi alvarlega slasaðra
miðað við 20% raunverulega
fækkun: 189,6 manns
'82 '83 '84 '85 '86 '87 '88 '89 '90 '91 '92 '93 '94 '95 '96