Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Page 17
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1996 17 Fréttir Eggjaferð í Látrabjarg: Eggjafiöringur kom- inn í Vestfirðinga DVjsafirði. Björgunarsveitarmenn fóru í Látrabjarg og tóku 2000 svartfugls- egg í Barðinu - svartfuglinn er hálf- um mánuði fyrr en venjulega með sitt varp. Vorið er tími svartfugls- eggjanna og grípur um sig ólækn- andi þrá hjá bjargmönnum að sækja sér egg. ísfirðingar munu þegar vera farnir í Hælavíkurbjarg og Hornbjarg þar sem er eitt mesta fjörefnisforðabúr heimsins. Ekki er Látrabjarg síðri gullkista eggja- tínslumanna og þangað fór leiðang- ur á laugardag. Þá fóru menn úr björgunarsveitinni Blakki á Pat- reksflrði ásamt félögum úr björgun- arsveitinni Tindum í Hnífsdal og björgunarsveitinni á Tálknafirði í Látrabjargið í eggjaleiðangur. Var sigið niður á svokallað Barð sem er klettadrangur neðan við bjargið og þar náðu menn í 2000 svartfuglsegg. Það er mál manna að svartfuglinn sé allt að hálfum mánuði fyrr á ferð- inni með sitt varp en oft áður. Þyk- ir mönnum sem svartfuglinn hafi stungið múkkann af í varpinu núna, en múkkinn er ekkert að rugla með varptímann þó veðurlagið breytist og heldur sig við að verpa á sama tíma og venjulega. Þá fór Rögnvaldur Bjarnason með tvo fjölskyldumeðlimi út í Blakk á sunnudaginn í stuttan eggjaleiðang- ur og nældu þau sér í 160 egg. í Blakknum er þó nær eingöngu um múkkaegg að ræða. -HK Frá Látrabjargi þar sem menn úr björgunarsveitinni Blakki á Patreksfiröi ásamt félögum úr björgunarsveitinni Tindum í Hnífsdal og björgunarsveit- inni á Táiknafirði fóru í eggjaleiðangur á dögunum. DV-mynd Rögnvaldur Þátttakendur á ráðstefnunni. DV-mynd Páll Norræn ung- bændaráðstefna á Höfðabrekku DV.Vik: Umræðuefnið var ferðaþjónusta og landnýting ferðamennskunnar á ungbændaráðstefnu NSU að Höfða- brekku 15.-19. mai. NSU, Nordisk samorganisation for Ungdomsar- bejde, er samheitið á samtökum bræðrafélaga Ungmennafélags ís- lands á Norðurlöndunum. Slíkar ráðstefnur eru haldnar ár- lega til skiptis á Norðurlöndunum. Þátttakendur voru 35 frá Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og ís- landi. Varaformaður NSU, Pálmi Gíslason, fyrrum formaður UMFÍ, setti ráðstefnuna og Jón Erlingur Jónasson, aðstoðarmaður landbún- aðarráðherra, flutti ávarp. Fyrirlesarar voru þrír, Paul Ric- hardsson, framkvæmdastjóri Ferða- þjónustu bænda, Sveinn Jónsson, bóndi á Kálfsskinni, og Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður þró- unarsviðs Byggðastofnunar. Paul og Sveinn fjölluðu um uppbyggingu og dreifingu á ferðaþjónustu bænda á íslandi - um bændagistinguna í hnotskurn og landnýtingu í þágu hennar. Erindi Sigurðar fjaffaði um stefnumótun og atvinnuþróunar- verkefni í tengsfum við ferðaþjón- ustu bænda. Þátttakendum var síð- an skipt upp í hópa sem fjölluðu um þessi málefni og skiluðu niðurstöð- um. Þessar ráðstefnur eru ekki ein- göngu fundarsetur og ræðuhöld því 19. maí var notaður til margs konar útivistar, m.a. voru gróðursettar 50 trjáplöntur í skógarreit sem verið er að koma upp á Höfðabrekku. Þar var afhjúpað minnismerki sem UMFÍ gaf húsráðendum að Höfða- brekku. Þá var haldið út á Mýrdalssand í eggjatínslu og var keppni um hver tíndi mest en þarna voru að mestu leyti máfsegg. Eftir hádegi var keppt í silungsveiði í tjörnunum hjá Höfða- brekku, keppni í dráttavélaakstri og hestaferð um nágrennið. Síðan var kvöldvaka. Á laugardeginum var skoðunarferð um Mið-Suðurland. Farið var í Byggðasafnið í Skógum, í Þórsmörk, og að Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum og í útsýnissiglingu á hjólabát frá Vík. -PP 2 * * § Því þá efna Bónus Radíó 09 íþróttir fýrir alla til fjölskyldu- skokks 09 þú gætir jafnvel unnið þér inn vegleg taeki - bara fyrir ai vera með! Til dæmis: * Samsung-sjónvarpstæki með innbyggðu myndbandstæki * Siemens GSM-sfma * Samsung-hljömflutningstæki * Ferðatæki með geislaspilara * Og fullt, fullt af fleiri góðum vinningum... Ekki missa af tækifærinu - þú þarft ekki að vera góður hlaupari til að vinna... þi/T það verður ekkert kapphlaup - bara vera með I IÞHOTTIR FVRIH RLLfl Opið hjá Sjóvá-Almennum Með hækkandi sól breytist afgreiðslutíminn hjá Sjóvá-Almennum. Frá 28. maí verður opið frá klukkan 8 til 16. SJOVAOrrALMENNAR Sími 569 2500 • Grænt númer 800 5692 O) s s (O ¥

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.