Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Síða 19
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1996
31
Menning
Viöar Gunnarsson kominn til að syngja Gottskálk hinn grimma í Galdra-Lofti:
Verkið á mikla möguleika
í óperuhúsum erlendis
„Mér líst rosalega vel á þetta.
Músíkin í óperunni er mjög góð en
ég á bara eftir að sjá hana i endan-
legri mynd. Ég fékk nóturnar fyrst
út til Þýskalands á faxi og æfði mig
ásamt píanóleikara. Hann er einn af
hljómsveitarstjórum hússins og
leist mjög vel á óperuna. Ég tel
mikla möguleika á að þetta verk
geti farið á fjalir í óperuhúsum er-
lendis, ekki sist í Þýskalandi," segir
Viðar Gunnarsson bassasöngvari í
samtali við DV en hann er nýlega
kominn til landsins frá Essen í
Þýskalandi til að syngja hlutverk
Gottskálks hins grimma í uppfærslu
íslensku óperunnar á Galdra-Lofti,
nýrri óperu eftir Jón Ásgeirsson.
Óperan verður frumflutt á Listahá-
tið í Reykjavík nk. laugardag.
Viðtalið fór fram fyrir hvíta-
sunnuhelgi en þá var Viðar á leið-
inni aftur til Essen til að syngja í
einni sýningu í óperunni þar. Hann
var væntanlegur til baka í gær og
verður á íslandi fram yfir sýningar
á Galdra-Lofti. Viðar hefur frá því í
haust verið fastráðinn hjá óperu-
- segir Viöar
húsinu i Essen sem 1. bassasöngv-
ari og er með samning þar til
haustsins 1997.
Viðar hóf söngnám hjá Garðari
Cortes i Söngskólanum í Reykjavík
árið 1978. Var þar í þrjú ár og árið
1981 fór hann út til frekara söng-
náms í tónlistarháskólanum í
Stokkhólmi. Árið 1984 kom hann til
íslands og starfaði næstu sex árin
við söng í íslensku óperunni og
Þjóðleikhúsinu og ýmislegt fleira.
Það var síðan árið 1990 að Viðar fór
ásamt konu sinni, Guðbjörgu Bergs,
til Wiesbaden en saman eiga þau
tvö börn. Þess má geta að Kristinn
Sigmundsson starfaði í Wiesbaden-
óperunni þegar Viðar kom þangað.
„Eftir nokkur góð ár í Wiesbaden
gafst mér tækifæri til að skipta um
hús og bauðst samningur-í Essen í
haust. Maður þroskast með nýjum
og breyttum verkefnum og því til-
valið að skipta um vettvang," segir
Viðar en óperuhúsið í Essen er ekki
nema 8 ára gamalt. Það var tekið í
notkun árið 1988 og er hannað frá a
til ö af Finnanum Alvar Alto, sem
m.a. í viðtali og líst
m.a. hannaði Norræna húsið í
Reykjavík. Viðar segir að húsið sé
einstaklega skemmtilegt og vel
hannað með sérlega góðum hljóm-
burði. Hljómsveitargryfjan getur
tekið 130 manna hljómsveit.
Viðar hefur sungið í 9 uppfærsl-
um í Essen í vetur og fengið lofsam-
lega dóma hjá gagnrýnendum. Hann
byrjaði á því að syngja hlutverk
Leporello í Don Giovanni eftir Moz-
art. Síðan tóku við stór hlutverk í
óperum eins og Don Giovanni,
Töfraflautunni og Rínargullinu.
Fjórar óperur á nokkrum
dögum
Viðar hefur ekki bara sungið í
Essen frá því í haust. Honum er
minnisstæð törn sem hófst með því
að hann var beðinn, í miðjum æf-
ingum í Essen, að syngja í óperunni
í Stuttgart í Meistarasöngvaranum
frá Núrnberg. Hann þáði boðið og
þegar frá Stuttgart kom til Essen
beið tilboð um að syngja hlutverk
Sarastro í Töfraflautunni hjá ópe-
runni í Augsburg í Bæjaralandi.
vel á óperuna
Viðar fór til Augsburg og söng þar.
Þegar hann kom þaðan til æfinga í
Essen á ný var komið tilboð frá
Hollandi. Enn sló Viðar til og söng
þar í Á valdi örlaganna. Að lokinni
sýningu í Hollandi tóku við sýning-
ar á þeirri óperu í Essen sem hann
hafði verið að æfa. Þarna ók Viðar
eina 2 þúsund kílómetra um Evrópu
á nokkrum dögum til að syngja í
fjórum óperusýningum. „Þetta get-
ur verið flækingslíf. Maður er ekki
fastur í einhverju einu húsi,“ segir
Viðar.
Eins og áður sagði er hann samn-
ingsbundinn í Essen til haustsins
1997. Eftir það er óráðið hvað Viðar
tekur sér fyrir hendur. Fyrirspurn-
ir hafa borist honum vegna ársins
1998 og nokkuð ljóst að hann verður
áfram í óperuhúsum á meginlandi
Evrópu. Næsta vetur verður a.m.k.
nóg að gera. Fyrirhugað er að Viðar
syngi í 12-13 óperuuppfærslum í
Essen. Þar á meðal eitt af drauma-
hlutverkum bassasöngvarans, hlut-
verk Fiesco í Símoni Boccanegra
eftir Verdi.
Ekki kominn á toppinn
Aðspurður segir Viðar að hann sé
ekki kominn á topp síns ferils. Sem
söngvari sé hann alltaf að læra eitt-
hvað nýtt.
„Ég tel að mér fari fram með
hverju verkefni sem ég glimi við.
Raddlega séð er ég nokkuð vel á
vegi staddur. Bassasöngvarar eru
lengur að ná toppi en t.d. tenór-
söngvarar en hafa lengri líftíma
með röddina, ef svo má segja.“
Þrátt fyrir nokkurra ára dvöl er-
lendis segist Viðar hafa fylgst vel
með íslenskum óperu- og söngheimi.
Gróskan hafi aldrei verið meiri en í
dag og áhuginn geysilegur.
„Framleiðslan er með ólíkindum
og við eigum marga mjög góða og
efnilega söngvara sem sumir hverj-
ir eru farnir að syngja við góðan
orðstír í óperuhúsum víða um Evr-
ópu. Sem dæmi nefni ég að við óper-
una í Wiesbaden, sem er 250 þúsund
manna borg, var ekki einrLeinasti
söngvari þaðan á meðan ég söng
þar,“ segir Viðar Gunnarsson.
-bjb
Viðar Gunnarsson bassasöngvari er kominn til landsins til að syngja hlut-
verk Gottskálks hins grimma í óperunni Galdra-Lofti en Viðar er fastráðinn
hjá óperuhúsinu í Essen í Þýskalandi. DV-mynd GVfl
GRIPTU
• •
o
M E Ð A N
Einfalt, sterkt og fallegt 6 manna amerískt fellihýsi
á „EGGJANDI4Í verði
FELLIHÝSIÁ VERÐITJALDVAGNS.
395.000
*Gildir meðan birgðir endast á staðfestum pöntunun Venjulegt verð kr. 465.000,- stgr.
TITANehf.
Lágmúla 7
108 Reykjavík
Sími 581 4077
Fax 581 3977
Verð stgr.
<S
; ■; - Íf-íwswr' i
v .■ ■ ***' ]
IK-
f Vferið sfgrj
44.500
Vferð stgr.
48.600,-
GR 1400
• H: 85 B: 51 D: 56 cm
• Kælir: 140 I.
GR 1860
• H:117 B: 50 D: 60 cm
• Kælir: 140 Itr.
• Frystir: 45 Itr.
GR 2260
1 H:140 B: 50 D: 60 cm
1 Kælir:l 80 Itr.
Frystir: 45 Itr.
Verð stgr.
59.980,-
GR 2600
• H:152 B: 55 D:60cm
• Kælir: 187 Itr.
• Frystir: 67 Itr.
GR 3300
■ H:170 B: 60 D: 60 cm
1 Kælir: 225 Itr.
1 Frystir: 75 Itr.
.../ elclhúsið og sumarbústaðinn.
_r-i BRÆÐURNIR
fflORMSSON
Lágmúla 8 • Sími 553 8820
Umbo&smenn um land allt
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfiröi. Ásubúö.Búðardal Vestfiröir: Geirseyrarbúðin, Patreksfiröi. Rafverk.Bolungarvík.Straumur.ísafiröi. Norðurland: Kf.Steingrímsfjarðar.Hólmavík.
Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúö.Sauöárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Siglufiröi.Ólafsfiröi og Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urö, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum.
Kf.Vopnfiröinga.Vbpnafiröi. Stál, Seyðisfiröi. Verslunin Vík, Neskaupsstaö. Kf.Fáskrúösfirðinga, Fáskrúösfiröi. KASK, Höfn Suöurland: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli. Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum.
Reykjanes: Stapafell.Keflavík. Rafborg, Grindavík. ...........................