Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Qupperneq 26
38
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1996
Fréttir
Hagstætt stéttar-
félagsverð í sumar
Stéttarfélögin undirrituðu í gær
samning við Samvinnuferðir-Land-
sýn sem mun tryggja þeim félags-
mönnum launþegahreyfingarinnar
sem hyggja á ferðalög í sumar hag-
stætt verð á þjónustu af ýmsum
toga.
Flug fram og til baka á alla áfang-
astaði Flugleiða verður á sérstöku
stéttarfélagsverði, afsláttur á nokkr-
um háfjallaleiðum BSÍ, tilboð á hót-
elum og gistiheimilum víða um land
og loks ódýrir bílaleigubiiar.
Sem dæmi um verð má nefna að
far með Flugleiðum til hvaða
áfangastaðar sem er kostar 5.830 kr.
nema til Vestmannaeyja en þangað
kostar farið 4.830 kr.
Ávísanir á miða verða aðeins
seldar 3. til 6. júní og 1. til 4. júlí.
Farið var með fulltrúa stéttarfélag-
anna í stutta rútuferð um vesturbæ
Reykjavíkur og fór undirritunin svo
fram við Ægisíðu. Eftir hana var
boðið upp á léttar veitingar áður en
haldið var heim á leið. -SF
Fulltrúar stéttarfélaganna undirrituöu samningana við Ægisíöu.
DV-mynd BG
ir ^ " j . ;”*«**■ i
" —" ; 'kr ' - 1 P íí í bJ gljlT'
Ólafur Gústafsson hífir balana frá boröi úr Hrönn ÍS á Suöureyri. Hann hefur veriö meö skásta afla krókabáta síö-
ustu daga. DV-mynd R. Schmidt
Suöureyri:
Aflaleysi vegna
mikils ætis
DV, Suðureyri:
Skipstjórar krókabáta á Suður-
eyri hafa fengið lítinn afla undan-
farið á grunnslóð út af Vestfjörðum.
Þeir segja mikið æti í sjónum hamla
veiðum. Krókabátarnir hafa því
þurft að róa út fyrir 20 míiurnar til
að fá betri afla.
Á tímabili voru bátarnir bundnir
við bryggju svo dögum skipti vegna
aflaleysis en nú virðist fiskiriið
vera að glæðast lítiilega. Afli línu-
báta hefur verið frá nokkur hundr-
uð kílóum upp í 3,5 tonn á 20 bala.
Steinbíturinn er að mestu horfinn
og sá guli orðinn allsráðandi í uppi-
stöðu aflans. RS
Ert þú aS fara að gifta þig eSa er einhver sem þú
þekkir í giftingarhugleiSingum?
Þá getur þú tekið þátt í þessum skemmtilega brúðkaupsleik þar sem
filvonandi brúðhjón geta unnið glæsileg verðlaun.
Þátttakendur þýði og staðfæri þessa vinsælu amerísku hjáfrú eða hefð sem flestar brúðir
á Islandi spá mikið í fyrir stóru stundina. Notast skal við orðin gamalt, nýtt, lánað og
blátt og skal merkingin eiga við brúðkaupið.
ISometíiiiy oíd, sometíing ntw, somtúing
Borrozoed and something bíue.
Glæsilegir vinningar fyrir þau heppnu.
18 mynda brúðarmyndataka á Ljósmyndastofu Sigríðar Bachmann
Undirföt á brúðina frá versluninni Selenu í Kringlunni
Ráðgjöf og hármeðferð fyrir brúðkaupið fyrir brúðina og brúðgumann og
einnig hárgreiðsla fyrir bæði á sjálfan brúðkaupsdaginn hjá
Hárgreiðslustofunni Kristu í Kringlunni.
^ Brúðarförðun hjá Snyrtistofunni FACE, Borgarkringlunni.
Rómantískur kvöldverður fyrir 2 í Skíðaskálanum í Hveradölum.
Nafn brúðar:.
Nafn brúðguma:.
Heimilisfang:___
Póstnúmer:______
Sendandi:________
'
. Sími:
Þátttökuseðlum skal skila til DV, Þverholti 11,105 Reykjavík, fyrir 3. júní, merkt: Brúðhjón.
Nöfn vinningshafa verða birt í DV laugardaginn 8. júní.
Fimm efstu í B-flokki. DV-mynd Örn
Skagaflörður:
Hestamenn
fögnuðu sumri
DV, Fljótum:
Skagfirskir hestamenn fögnuðu
sumri með hestamannamóti á Hofs-
gerðisvelli við Hofsós sumardaginn
fyrsta. Hestamannafélagið Svaði
stóð fyrir mótinu sem var opið öll-
um hestamönnum í héraðinu. Þátt-
taka var líka mikil; 21 í B-flokki, 16
í tölti og 15 í A-flokki enda veður
ágætt.
Helstu úrslit urðu:
A-flokkur gæðinga:
1. Skór frá Bjarnanesi, knapi og
eigandi Bjarni Jónasson, 8,22
2. Brynjar frá Sleitustöðum,
knapi Þórir Jónsson, eigandi Sig-
urður Sigurðsson, 8,06
3. Blakkur frá Úifsstöðum, knapi
og eigandi Ingóifur Helgason, 7,88
4. Flosi frá Frostastöðum, knapi
og eigandi Sigurbjörn Þorleifsson,
8,14
5. Fála frá Sigríðarstöðum, knapi
Þórarinn Arnarson, eigandi Lúðvík
Ásmundsson, 7,88
B-flokkur gæðinga:
1. Sleipnir frá Skarði, knapi og
eigandi Bergur Gunnarsson, 8,42
2. Glói frá Hjaltastöðum, knapi
Anna Sif Ingimarsdóttir, eigandi
Ingimar Ingimarsson, 8,16
3. Ötull frá Ásgeirsbrekku, knapi
Þórarinn Arnarson, eigandi Arna
Björg Bjarnadóttir, 8,34
4. Reynir frá Vatnsleysu, knapi
Björn Jónsson, eigandi Vatnsleysu-
búið, 8,34
5. Ösp frá Kýrholti, knapi Harald-
ur Bjarkason, eigandi Hilmar Hilm-
arsson, 8,34
’l'öit:
1. Ösp, knapi Haraldur, eigandi
Hilmar.
2. Pjakkur, knapi og eigandi
Magnús Magnússon.
3. Eva frá Langhúsum, knapi og
eigandi Sigurbjöm Þorleifsson.
4. Gjafar frá Stóra-Hofi, knapi
Hilmar Símonarson, eigandi Símon
Gestsson.
5. Þráður frá Syðri-Hofdölum,
knapi og eigandi Steinar Gunnars-
son.
Unglingaflokkur:
1. Jóhann -Lúðvíksson á Hrafni,
7,90
2. Þröstur Valgeirsson á Gusti,
7,50
3. Jón G. Kristinsson á Gerplu,
7,50
-ÖÞ