Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1996, Síða 29
ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1996
41
Fréttir
Leikhús
Bingóferðir og Wihlborg Rejser með tugi manna í reiðileysi:
Sumir höfðu beð-
ið peningalausir
dögum saman
- segir Ingibjörg Ármannsdóttir sem lenti í vandræðum
„Þeir kalla sig Wihlborg Rejser í
Kaupmannahöfn en Bingóferðir hér
heima. Það var heldur leiðinleg og
slæm lífsreynsla að eiga viðskipti við
þetta fólk. Ég þurfti þó ekki að bíða
nema síðdegi og eina nótt en í hópn-
um sem þarna beið eftir fari höfðu
margir beðið dögum saman í Kaup-
mannahöfn og sumir voru algerlega
peningalausir," sagði Ingibjörg Ár-
mannsdóttir i samtali við DV.
Hún kom frá Svíþjóð til Kaup-
mannahafnar og hafði keypt sér far-
seðil til íslands með Bingóferðum
sökum þess hve fargjaldið var lágt.
Þegar hún mætti síðdegis á tostudag
til að sækja farseðilinn í ákveðna af-
greiðslu á Kastrup var henni sagt aö
þar væri enginn farseðill. Wihlborg
Rejser væri farið á hausinn. Hún
segir að þarna hafi verið við af-
greiðslu dönsk kona sem hefði ekk-
ert viljað sinna henni eða reyna að
leiðbeina henni í vandræðunum.
„Þar sem ég var að vandræðast
þetta kom að íslenskur maður með
farseðil og spurði hvert hann ætti
að fara. Hann fékk sömu svörin og
ég. Þegar ég fór að ræða við mann-
inn kom í ljós að hann hafði átt far
heim síðastliðinn miðvikudag en þá
var ekkert flogið heldur," segir Ingi-
björg.
Maðurinn hafði símanúmer
manns frá Sambandi námsmanna
erlendis sem hafði haft milligöngu
um að selja honum miðann. Þar
fengust þau svör að það kæmi til
okkar maður frá Wihlborg Rejser.
Okkur var sagt að ekki fengist flug-
vél vegna þess að breska flugfélagið,
sem hafði flogið fyrir Wihlborg
Rejser, hefði ekki greitt lendingar-
gjöld á Kastrup og fengi þess vegna
ekki að fljúga þaðan.
„Seint og um síðir kom til okkar
maður sem sagðist heita Hilmar
Kristjánsson. Þá hafði nú heldur
betur fjölgað í hópnum enda kom-
inn sá tími að við áttum að vera
komin í loftið. Og þarna var fólk
sem hafði orðið að bíða í viku.
Hilmar Kristjánsson sagðist ekk-
ert geta sagt okkur um framhaldið á
þessari stundu. Eftir mikið mála-
stapp féllust Hilmar og kona frá Wi-
hlborg Rejser, sem komin var á
staðinn, á að koma okkur fyrir á
hóteli, enda vissi ég að við áttum
fullan rétt á þvi. Það var svo gert og
við vorum þar yfir nóttina en feng-
um ekki mat. Snemma næsta morg-
un kom svo vél frá Flugleiðum hf.
og með henni komumst við heim,
hátt í eitt hundrað manns,“ sagði
Ingibjörg Ármannsdóttir. -S.dór
|SJ* ,
;
m/
Nú er verið að leggja síðustu hönd á að koma í gagnið sumarhúsunum sem komu til Flateyrar. Á myndinni eru starfs-
menn Flateyrarhrepps að leggja vatnsleiðslur að einu húsanna. DV-mynd Guðm. Sigurðsson
Laxveiðin hefst á laugardag:
Mikill lax er
genginn í ár á
Norðurlandi
- menn óttast vatnsleysi þegar kemur fram á sumarið
DV, Blönduósi
Nú eru ekki nema fimm dagar
þar til fyrstu laxyeiðiárnar verða
opnaðar. Laxá í Ásum, dýrasta á
landsins, er ein þeirra áa sem opn-
aðar verða 1. júní. Undanfarna daga
hefur mikið af laxi verið að ganga í
ána og í gær voru um 20 fiskar í
svokölluðum Duslum. Þar í hópnum
var einn mjög vænn, varla undir 20
pundum.
Þá er lax líka farinn að ganga í
Miðfjarðará en hún verður ekki
opnuð fyrr en 13. júní. Þar hefur
sést mikið af laxi ganga undanfarna
daga. Það er með laxinn eins og
annað í náttúrunni á þessu blíða
vori - allt er á undan.
Hins vegar bera margir laxveiði-
menn ugg í brjósi um að vatnsleysi
geti sett strik í reikninginn þegar
líður á sumarið. Vegna hins milda
vetrar er lítill snjór fram tfl heiða.
Ef ekki verður þeim mun meiri
vætutíð má gera ráð fyrir vatnsleysi
viða þegar kemur fram í júlí.
-G.Bender
Tilkynningar
Negrasálmakvöld
28. maí kl. 20.30 syngur kór Fríkirkj-
unnar í Reykjavík negrasálma,
gospelsöngva og lög úr Porgy og
Bess eftir George Gerswhin í kirkj-
unni. Stjórnandi er dr. Pavel Smid.
Miðasala er við innganginn. Frí-
kirkjusöfnuðurinn í Reykjavík.
Söfnun á indverska
veitingastaðnum
í kvöld, þriðjudagskvöld, mun allur
ágóði af veitingasölu Austur-Indía-
félagsins, indverska veitingastaðar-
ins að Hverfisgötu 56, renna til
hjálparstarfsemi Þóru Einarsdóttur
sem hefur í tíu ár starfrækt skóla
fyrir stúlkur í Madras í Suður- Ind-
landi. Máltíðin hefst kl. 19 og kostar
2.500 krónur. Allir eru velkomnir.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
SÍMI 568-8000
STÓRA SVIÐ KL. 20.00:
KVÁSARVALSINN
eftir Jónas Árnason
Föd. 31/5, síðasta sýning.
HIÐ UÓSA MAN
eftir íslandsklukku Halldórs
Laxness í leikgerð Bríetar
Héðinsdóttur
Ld. 1/6, siðasta sýning.
Samstarfsverkefni við
Leikfélag Reykjavíkur:
Alheimsleikhúsið sýnir á
Litla sviði kl. 20.00:
KONUR SKELFA
toilet-drama eftir Hlín
Agnarsdóttur
Fid. 30/5, föd. 31/5, laud. 1/6.
Einungis þessar sýningar eftir!
Barflugurnar sýna á
Leynibarnum kl. 20.30.
BAR PAR
eftir Jim Cartwright
Fd. 31/5. Síðustu sýningar!
Miðasalan er opin alla daga frá kl.
13-20, nema mánudaga frá kl. 13-
17, auk þess er tekið á móti
miðapöntunum í síma 568-8000
alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakortin okkar
- frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
----------7///A//////////JÍ
15% staðgreiðslu- og
greiðslukortaafsláttur og
stighækkandi birtingarafsláttur
auglýsingar 550 5000
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20.00:
PREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Fid. 30/5, nokkur sæti laus, Id. 1/6, Id.
8/6, Id. 15/6. Síðustu sýningar á þessu
leikári.
SEM YÐUR ÞÓKNAST
eftir William Shakespeare
8. sýn. föd. 31/5, 9. sýn. sud. 2/6, föd.
7/6, föd. 14/6. Síðustu sýningar.
KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjörn Egner
Ld. 1/6, sud. 2/6, Id. 8/6, sud. 9/6.
Síðustu sýningar á þessu leikari.
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ KL. 20.30
HAMINGJURÁNIÐ
söngleikur eftir Bengt Ahlfors
Föd. 31/5., nokkur sæti laus, sud. 2/6,
föd. 7/6, sud. 9/6, föd. 14/6, sud. 16/6.
Síðustu sýningar á þessu leikári.
Ath. frjálst sætaval.
LITLA SVIÐIÐ KL. 20.30.
í HVÍTU MYRKRI
eftir Karl Ágúst Úlfsson
Forsýningar á Listahátíð: Fid. 6/6 og
föd. 7/6.
Gjafakort í leikhús -
sígild og skemmtileg gjöf!
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13.00-18.00 og
fram að sýningu sýningardaga.
Einnig símaþjónusta frá kl. 10.00
virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Fax: 561 1200
SÍMI MIÐASÖLU: 551 1200
SÍMI SKRIFSTOFU: 551 1204
VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSID!
VEIÐILEYFI
Úlfarsá (Korpa)
Sala á veiðileyfum hafin.
Stórfelld verölækkun.
Korpa er ein af fjórum til fimm bestu laxveiðiám landsins.
Veiðileyfi seld í Hljcörita, Laugavegi 178, simi 568 0733, og
í Veiðihúsinu, Nóatúni, sími 561 4085.
Laus staða
Laus er til umsóknar staða skólameistara við
Verkmenntaskóla Austurlands. Staðan veitist
frá 1. ágúst 1996.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
starfsferil sendist menntamálaráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 21. júní.
Menntamáiaráðuneytið
24. maí 1996
C
LANDSVIRKJUN
ÚTBOÐ
Þéttavirki
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í 220 kV og 132 kV þéttavirki
í samræmi við útboðsgögn SAN-01.
Verkið felst í framleiðslu, prófun, flutningi, uppsetningu og gangsetningu
á 30 MV Ar raðþétti fyrir Búrfellslínu 3B/2, 100 MV Ar samsíðaþétti
í 4 þrepum fyrir aðveitustöðina á Geithálsi og 35 MV Ar samsíðaþétti fyrir
aðveitustöðina í Hamranesi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68,
103 Reykjavík, frá og með miðvikudeginum 29. maí 1996 gegn
óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 10.000 m. vsk. fyrir hvert eintak.
Tilboðum skal skila á sama stað, fyrir kl. 12.00 föstudaginn 19. júlí 1996.
Tilboðin verða opnuð í stjórnstöð Landsvirkjunar að Bústaðavegi 7,
Reykjavík, sama dag, 19. júlí, kl. 14.00. Fulltrúum bjóðenda er heimilt
að vera viðstaddir opnunina.