Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1996, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1996
Útlönd
Stuttar fréttir dv
Indónesísk farþegaþota brann til kaldra kola á flugvelli í Japan:
Þrír fórust í eldi eftir
misheppnað flugtak
Mikill svartur reykur stígur upp af flaki indónesískrar farþegaþotu sem rann út af flugbraut í Japan í morgun eftir
misheppnaö flugtak. Prír farþegar fórust og um áttatíu slösuðust. Farþegarými vélarinnar brann til kaldra kola.
Símamynd Reuter
Þrír létust og áttatíu slösuöust í
morgun þegar eldur kom upp í flug-
vél frá indónesíska flugfélaginu
Garuda skömmu eftir misheppnaða
tilraun til flugtaks frá Fukuoka flug-
velli í sunnanverðu Japan.
Mikil skelfing greip um sig í flug-
vélinni, sem var af gerðinni DC-10,
þegar reykur og síðan eldur breidd-
ist út um farþegarýmið. Vélin var
þéttsetin farþegum, flestum
japönskum, sem voru á leið í frí til
indónesísku eyjarinnar Balí.
Farþegar sögðu að svo virtist sem
flugvélin hefði komist í loftið stutta
stund áður en hún skall aftur til
jarðar, rann út af brautinni og út á
hrísgrjónaakur.
Talsmaður slökkviliðsins í Fuku-
oka sagði að tekist hefði að ná öllum
275 manneskjunum, sem voru um
borð, út áður en farþegarýmið varð
alelda. Flugstjómarkleflnn og stél-
hluti vélarinnar urðu hins vegar
fyrir litlum skemmdum.
Farþegar sögðu að kviknað hefði
í hári sumra þeirra um leið og þeir
vörpuðu sér niður neyðarútgang-
ana, með aðstoð Gugfreyjanna.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
svo virtist sem eldurinn hefði kom-
ið upp í bakborðshreyfli vélarinnar,
sem var á leið til Denpasar, helstu
borgarinnar á Balí, og Jakarta.
Allir farþegarnir 260, að fjórum
undanskildum, voru japanskir, að
sögn embættismanns úr japanska
samgönguráðuneytinu. Ekki er vitað
af hvaða þjóðemi hinir fjórir em.
Um tima var talið að fjórir hefðu
farist en lögreglan leiðrétti þá tölu
og sagði að einn hinna látnu heföi
verið tvítalinn.
Eldurinn kom upp í vélinni um
tíu mínútum eftir að hún fór frá
flugstöðvarbyggingunni klukkan
þrjú í nótt að íslenskum tíma. Far-
þegarýmið var orðið alelda innan
þrjátíu mínútna og teygðu eldtung-
urnar sig þrjá metra upp í loftið.
Um þrjátíu slökkviliðsbílar vora
komnir að vélinni á innan við mín-
útu og sprautuðu kvoðu á flugvélar-
skrokkinn. Reuter
Borís Jeltsín fordæmir sprengjuárás í jarðlest:
Föðurlandið fyrir-
gefur þetta ekki
Clinton skorar á bandarísku þjóðina:
Verðum að hindra
uppgang rasisma
Borís Jeltsín Rússlandsforseti,
sem hefur enn öruggt forskot á
helsta keppinaut sinn í forseta-
kosningunum á sunnudag, komm-
únistann Gennadí Zjúganov, legg-
ur í dag upp í kosningaferðalag til
Sankti Pétursborgar, næststærstu
borgar Rússlands.
Forsetinn ávarpaði mikinn
mannljölda á Rauða torginu í
Moskvu í gær og var nokkuð sig-
urviss. Hann fordæmdi sprengju-
árás í jarðlestakerfi Moskvuborg-
ar sem varð fjóram mönnum að
Borís Jeltsín Rússlandsforseti.
Símamynd Reuter
bana á þriðjudagskvöld og hét því
að ofbeldisverk mundu ekki setja
kosningarnar úr skorðum.
„Við höfum valið frelsi og
mannlega reisn en það eru margir
andstæðingar þessa vals. Þeir
reyndu að hræða okkur í gær með
sprengingu í jarðlestakerfinu.
Þessir skúrkar sem vilja trufla
kosningamar era reiðubúnir að
ganga svo langt. Föðurlandið mun
ekki fyrirgefa þeim það. Þeir eiga
enga framtíð," sagði Jeltsín við
mannfjöldann.
Gennadí Zjúganov var á fundi
með ungu fólki í Moskvu þar sem
hann fann umbótastefnu Jeltsíns
allt til foráttu. „í dag er það ljóst
að þeir eru ekki umbótasinnar,
heldur morðingjar föðurlandsins,“
sagði Zjúganov.
Hann fordæmdi einnig
sprengjuárásina í jarðlestakerfmu
og sagði hana afsprengi þeirrar
„pólitísku lögleysu" sem hefði ein-
kennt stjómarfar Jeltsíns. Hann
sagði að blóðug átökin í Tsjetsjen-
íu væru annað dæmi þess.
Innanríkisráðherra Rússlands,
yfirmaður öryggissveita landsins
og ríkissaksóknari gáfu út sameig-
inlega yfirlýsingu í gær þar sem
þeir sögðust mundu tryggja að
kosningarnar færu vel fram.Reuter
Bill Clinton leggur nú
allt kapp á að koma í veg
fyrir að rasistaátök fyrri
áratuga endurtaki sig í
Bandaríkjunum. Hann er
nú í heimsókn i Texas-
ríki þar sem kveikt var í
kirkju svartra í síðustu
viku. Ráðamenn í Banda-
ríkjunum hafa þungar
áhyggjur af röð íkveikja í
kirkjum blökkumanna í
suðurríkjum landsins, en á síðustu
18 mánuðum hefur verið skráð 31
slíkt tilfelli.
„Við vitum að við ætlum ekki að
snúa aftur á braut rasisma og atvik
síðustu mánaða benda okkur á að
við eigum enn langt i land. Ég skora
á alla þegna Bandaríkj-
anna að koma í veg fyr-
ir að hatursátök kyn-
stofnanna endurtaki sig,
því þau átök hafa verið
þjóðinni dýrkeypt,“
sagði Clinton í ræðu
sem hann hélt við þetta
tilefni.
Fylkis- og alríkislög-
reglumenn vinna nú
hörðum höndum að því
að upplýsa hverjir standa að baki
íkveikjunum. Tíu manns hafa verið
handteknir hingað til, en ekki hefur
tekist að koma upp um samsæri
fram að þessu. Hinir handteknu eru
granaðir um að vera meðlimir í Ku
Klux Klan. Reuter
Sinnaskipti í Tyrklandi:
Ciller opnar bókstafs-
trúarmönnum dyrnar
Tansu Ciller, leiðtoga tyrkneskra
íhaldsmanna og fyrrum forsætisráð-
herra, hefur nú snúist hugur í af-
stöðu sinni til stjómarmyndunar
með flokki íslamskra bókstafstrúar-
manna og útilokar slíkt ekki, að
sögn flokksbræðra hennar. Ciller
hefur til þessa gagnrýnt bókstafs-
trúarmenn og sagt þá vera ógnun
við stjórnkerfi landsins og tengslin
við Vesturlönd.
Ciller hefur átt undir högg að
sækja vegna ásakana um spillingu
en sinnaskipti hennar gætu bjargaö
pólitísku lífi hennar.
„Mér sýnist aö samsteypustjóm
gæti orðið að veruleika,“ sagði
Namik Kemal Zeybek, þingmaöur í
flokki Ciller, við Reuters fréttastof-
una. Aðrir þingmenn úr flokki Cill-
er staðfestu að verið væri að ræða
samkomulag við flokk bókstafstrú-
armanna sem fer með stjórnar-
myndunarumboðið.
Bókstafstrúarmennirnir hafa ver-
ið hvatamenn að rannsóknum á
meintri spillingu Ciller en sam-
flokksmenn hennar, sem ekki vilja
láta nafns síns getið, segja að hún
gæti hugsanlega hindrað framgang
rannsóknanna ef hún færi í ríkis-
stjóm. Reuter
UPPBOÐ
Bifreiðamar LE-346 og K-3345 verða boðnar upp að Gránugötu
4-6, Siglufirði, fimmtudaginn 20. júní 1996 kl. 13.15.
Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN Á SIGLUFIRÐI
Deilur um höfundarrétt
Viðskiptanefndir Bandaríkj-
anna og Kinverja reyna að ná
samkomulagi í deUum þjóðanna
um viðskiptamál og höfundar-
rétt.
Lítill munur
Litlu munar á fylgi stærstu
flokkanna í Bangladesh og talið
er að stjórnarandstöðuflokkur
Awami- bandalagsins hafi betur.
Dole vinnur á
Bob Dole,
frambjóðandi
repúblikana
hefur dregið
á Clinton í
kosningabar-
áttunni um
forsetastól-
inn, en Clint-
on hefur enn 18% forskot. I sið-
ustu könnun var forskotið 25%.
Herinn kyrr
Clinton segir að herlið Banda-
ríkjanna muni verða áfram i
Bosníu fram í september tU aö
fylgjast með kosningum en síðan
hefjist heimflutningur liðsins.
Framtíð Bosníu
Vamarmálaráðherrar NATO-
ríkjanna funda í dag í Brassel
um framtíð friðaráæfiunar í
Bosníu.
Minnast morðsins
Aðstandendur Nicole Brown
Simpson, fyrram eiginkonu O.J.
Simpson, héldu bænastund og
fleyttu kertum við strendur Kali-
forníu í tUefni þess að tvö ár era
liöin síðan hún var myrt. 700
manns fylgdust með athöfninni.
Ráðherra deyr
Utanrikisráðherra Víetnams,
Le Mai, er látinn úr hjartaáfalli,
aðeins 56 ára að aldri. Hann var
einn sterkasti fuUtrúi kommún-
ista í stjórn landsins.
Frjals aðgangur • - -
Öryggisráð SÞ hefur fordæmt
ákvörðun íraksstjórnar sem
meinar nefndum SÞ að kanna
herstöðvar í landinu.
Gasleki orsökin
Komið hefur í ljós að sprehg-
ingin í verslunarmiðstöðinni í
Sao Paulo, sem banaði 39 manns,
var af völdum langvarandi
gasleka.
Mannskætt þyrluslys
Átján ástralskir hermenn létu
lífið er tvær þyrlur rákust sam-
an á heræfingu að næturlagi.
Bjartsýnn
Óldungar-
deUdarþing-
maðurinn Ge-
orge MitcheU
gerði lítið úr
deilum um
forsæti sitt í
friðarviöræð-
um um fram-
tíð Norður-írlands og segist vera
bjartsýnn á að árangur náist.
Karpov vann
Karpov vann sigur á svörtu
mennina í fjórðu einvígisskák
sinni við Kamsky og er með for-
ystu, 2'A vinning gegn 114.
Ekkert frí
Þrír af hverjum fjórum Ung-
verjum hafa ekki efiii á að taka
sér sumarfrí í ár, en meðaUaun í
landinu eru rúmar 13.000 krónur
á mánuöi.
Skiptu um hné
Læknum í Bæjaralandi í
Þýskalandi tókst í fýrsta sinn að
framkvæma hnéskiptiaðgerð,
þar sem skipt vai- um hné á 17
ára unglingi.
Dýrt málverk
Málverk eftir Paul Cezanne
sem hann málaði skömmu fyrir
dauða sinn, fer á uppboð í næstu
viku og búist við að það seljist á
300 milljónir króna. Reuter
um árangur