Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Síða 8
sælkerinn LAUGARDAGUR 27. JULI 1996 Svalandi sumardrykkir Bragöbætt mjólk getur verið svalandi sumardrykkur sem tilvalið er að gæða sér á við ýmis tækifæri. Það er góð tilbreyting að fá sér heimatilbúinn ávaxtadrykk eða súkkulaðidrykk í stað gosdrykkja með brauðsneiðinni eða hamborgar- anum. Mjólk er auk þess hollur drykkur. Það þarf engin sérstök áhöld til að búa til mjólkurdrykki. Venjuleg- ur þeytari dugar en það verður meira loft í drykknum ef rafmagns- þeytari er notaður. Hér fylgja nokkr- ar uppskriftir en gerið tilraunir sjálf. Það er ör- ugglega eitthvað til í eldhússkáp- unum eða ís- skápnum sem hægt er að nota. Banana- og súkkulaði- drykkur 2 dl mjólk 1/2 banani 2 msk. súkkulaðisósa eða kókómalt Stappið bananann. Blandið mjólk, banana, súkkulaðisósu eða kókó- malti saman. Þeytið og hellið í glas. Berið strax fram. Skreyta má með þeyttum rjóma og bananasneiðum. Hindberjahristingur Jarðarberjadrykkur ísmjólk 1 1/2 dl mjólk 3-4 msk. ís, til dæmis rommrús- ínu-, núggat- eða berjaís. Blandið mjólk- inni sam- an við helming- inn af ísnum. Þeytið. Hellið í glas. Setið afgang- inn af ísnum út í og beriö strax fram. 2 dl mjólk 3-4 msk. hindberjasulta gjarnan ís en ekki nauðsynlegt Blandið mjólk berjasultu og um, ef notað- ur, saman. Þeytið og hellið í glös. Berið strax fram. 11/2 dl mjólk 1/2-3/4 dl ný jarðarber 2 msk. ís ef til vill sykur Blandið mjólk, berjum, helmingn- um af ísn- um og sykri saman. Þeytið og hellið í glas. Bætið í afgangin- um af ísn- um. Berið strax fram. Jöklasalat matgæðingur vikunnar nlrlnonlní Vxtrlrivt ''■sátí**' Jöklasalat þykir skemmtilegra en margar aðrar salatstegundur vegna þess hversu stökkt og safaríkt það er og geymist lengi. Það er ým- ist hægt að skera þaö nið- ur í mjóar ræmur eða nota blöðin heil og þá gjaman undir egg, skel- fisk eða kjöt. Jöklasalatið fæst allan ársins hring. Mælt er með því að rífa blöðin af í stað þess að skera þau af því annars verður sárið brúnt. Hér kemur skemmtileg- ur og öðruvísi kálböggull. Uppskriftin er fyrir fjóra. Lambakjöt í jöklasalati 450 g þunnt skorið lambakjöt 2 msk. olía 4 blöð af jöklasalati 1 msk. hoisinsósa kóríanderlauf Kryddlögur 4 msk. sojasósa fimmta kryddið 2 msk. olía safi úr 1/2 sítrónu 2 marin hvítlauksrif 1 tsk. engiferrót og Kjötiö látið kryddleginum liggja í í að minnsta kosti 30 mínútur. Steikt í olíunni þar til það er stökkt. Þurrkað á eld- húspappir, sett á salats- blað, hoisinsósu hellt yfir | og skreytt með kóriander- laufi. Berið fram auka ho- isinsósu og jöklasalat með. Matgæðingur vikunnar: Lúxusfiskréttur og frískandi skyrterta Keflvíkingurinn Kolbrún Sigur- bergsdóttir býður upp á ljúffengan fiskrétt, sem hún hefur þróað smátt og smátt sjálf, og frískandi og fljótlega skyrtertu sem hún sá uppskrift að í Nýjum eftirlætis- réttum. Lúxusfiskréttur 800 g ýsuflök 300 g rækjur 200 g ferskir sveppir 1 laukur 1/2 blaðlaukur smjör 1 græn paprika 1 rauð paprika 2 gulrætur 1/2 dós ananaskurl og safi 150 g rjómaostur 1 1/2 dl rjómi eða kaffirjómi 1/2 tsk. salt 1/2 tsk. pipar eða grófur sítrónupipar 1/2 tsk. paprikuduft 1 tsk. karri 1 1/2 tsk. súpukraftur Ýsan roðflett og skorin í bita. Laukur og blaðlauk- ur saxaður og steiktur í smjöri. Söxuðum paprikum, gulrótar- og sveppasneiðum bætt út í ásamt anana- skurlinu og safan- um. Látið krauma smástund. Setjið rjómaost og rjómann út í og látið jafn- ast út. Þá er fiskurinn settur út í og allt látið krauma í 8 til 10 mínút- ur. Bætið nú rækjunum út í og sjóðið í 1 til 2 mínútur. Ber- ið réttinn fram með soðnum hrísgrjónum og hrásalati og snittubrauði. Skyrterta 250 g gróft hafrakex 80 g smjör 5 blöð matarlím 2 egg 140 g sykur 1 tsk. vanilludropar 2 1/2 dl rjómi 200 g skyr ávextir og daimkúlur til skrauts Kexi og bræddu smjöri blandað saman. Matarlímsblööin lögð í bleyti. Eggin þeytt og sykri og vanilludrop- um bætt út í. Þeytt saman. Rjóminn þeyttur. Skyrið hrært og blandað saman viö rjómann. Skyrinu blandað saman við þeyttu eggin. Matarlimið leyst upp í 2 msk. af sjóðandi vatni, hitinn látinn rjúka úr og síðan hellt saman við skyrblönd- una. Blandan fryst í 2 tíma. Tekið út tveimur tímum fyrir neyslu og skreytt. Kolbrún skorar á Boggu Sigfús- dóttur að vera næsti matgæðingur. g er mest fyrir þaö aö elda fiskrétti," segir Kolbrún Sigurbergsdóttir úr Keflavík. DV-mynd ÆMK Smurbrauð að hætti Dana Fallega skreytt smurt brauð er augnayndi og ekki síöur spenn- andi fyrir bragðlaukana. Frænd- ur okkar Danir eru snillingar í smurbrauösfaginu og frá þeim eru eftirfarandi uppskriftir komnar. Magnið sem er gefið upp er miðað við eina sneið. Menn drekka svo náttúrlega það þeim sem þykir best með. Rúgbrauð með mygluosti 1 sneið rúgbrauð 30 g rjómaostur 1-2 salatblöð 40 g mygluostur að smekk 1 jarðarber, sítrónumelissu- blað og pipar Rúgbrauðssneiðin er smurð með rjómaostinum og afgangur- inn af ostinum síðan settur í rjómasprautu. Salatblað og mygluostur settur á sneiðina og rjómaosti síðan sprautað ofan á. Skreytt með jarðarberi, sítrónu- melissublaöi og pipar. Brauð með eggjahræru og reyktum silungi 1 blaðlaukur 2 tsk. smjör 1 egg, 2 msk. mjólk salt, hvítur pipar 1 rúgbrauðssneið 1-2 salatblöð 1/2 flak reyktur silungur kavíar, rjómi og dill Blaðlaukurinn skorinn og hit- aður i 1 tsk. af smjöri. Eggi, mjólk, salti og pipar blandað saman við og látið þykkna. Brauðsneiðin smurð með 1 tsk. af smjöri. Salatblað, eggjahræra og silungur sett ofan á'. Skreytt með kavíar, rjóma og dilli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.