Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Síða 10
10 „Við erum mjög hamingjusöm yfir að vera komin með íslenskan ríkisborgararétt. Áður en við feng- um hann áttuðum við okkur á því þegar við heimsóttum Júgóslavíu að við áttum hvergi heima. Við vorum ekki með ríkisfang í neinu landi. Það eina sem við höfðum var júgó- slavneskt vegabréf í gömlu Júgóslavíu sem var ekki í gildi vegna stríðsátakanna. í land- inu þar sem við fæddumst og ól- umst upp vorum við allt i einu orð- in eins og útlendingar. Viö lentum alis staðar í vandræöum vegna þess að við vorum ekki með ríkisborg- ararétt í neinu landi. Það fóru straumar um okkur eins og við værum orðið flóttafólk," sögðu hjónin og Bosníuser- barnir (Mílan) Stefán og (Dij- ana) Una Jankovic þegar DV heimsótti þau í Grindavík. \ Þau fengu nýlega íslenskan ríkisborgararétt ásamt tveim- ur börnum sínum, (Jovana) Lilju og (Marko) Valdimari. Vildi heita Giggs Það var ekki mikill vandi fyrir þau að finna sér íslensk nöfn. Stefán valdi sér nafn eftir einni fall- egustu eyjunni í Svartfjallalandi. Una tók nafnið eftir ánni sem renn- ur í gegnum Bíha og Lilja, sem er 10 ára, valdi sér nafn eftir frænku sinni sem passaði hana þegar hún var lítil. Valdimar, sem er 5 ára, kaus nafnið Giggs eins og knatt- spyrnumaðurinn frægi, Ryan Giggs hjá Manchester UTD, ber. En hann tók hins vegar nafnið Valdimar eft- ir fóður Unu. Þegar Stefán og Una sögðu frá því að þau væru komin með íslenskan ríkisborgararétt mátti sjá tár glampa í augum þeirra og hamingj- an og gleðin leyndu sér ekki. Hamingjusöm í Grindavík „Við erum svo hamingjusöm og okkur hefur liðið alveg stórvel hér í Grindavík. Þetta er besta fólk sem við höfum þekkt um ævina. Það hjálpaði okkur í gegnum lífið og erf- iðleikana sem við áttum við að etja fyrstu árin. Við stöndum í þakk- arskuld við allt þetta góða fólk. Það er svo gaman að vera Grindvíking- ur,“ sögðu hjónin. Fjölskyldunni hefur verið geysilega vel tekið í Grindavík og þeir fjölmörgu sem DV talaði við voru allir sammála um að hún hefði fallið vel inn í um- hverfið og væri mjög elskuleg og al- veg dásamleg í alla staði. Stefán hefur spilað knattspymu með Grindvíkingum frá því að hann kom hingað til lands 21. janúar 1992. Hann hefur spilað geysilega vel með liðinu og verið valinn besti leikmað- ur Grindavíkur tvívegis og fyrirliði liðsins. „Það var í janúar, sama ár og ég kom hingað, að Lúkas Kostic, sem þjálfar KR í dag, hringdi í mig og spurði hvort ég vildi koma til ís- lands og spila með Grindavík og ég sló til, enda var stríðið að breiðast út.“ Stefán Jankovic meö bikar- ana sem hann fékk er hann var valinn besti leikmaður Grindavíkur. V ■ ■NSl ekki vel. Þau búa sem flóttafólk," segja Stefán og Una. Stefán segist ekki hafa leikið mjög vel með Grindavík fyrsta árið sem hann dvaldi hér þar sem hugur- inn hefði verið hjá fjölskyldunni. Stríðið hafði þegar höggvið skarð í nánustu fjölskyldu hans og Unu. „Þetta var mjög erfitt ár en ég ætl- aði ekki að fara til baka. Ég var staðráðinn í að berjast hér í Grinda- vík fyrir veru minni og halda áfram að berjast fyrir fjöl- skyldu mína. Ég hefði ekki getað þetta án aðstoðar fólksins hér í Grindavík." voru í króatíska liðinu menn á borð við Davor Suker og Vlavovic sem spiluðu í sama liöi og ég. Þá var Lúkas Kostic þar einnig. Þetta voru allt snillingar í Iiðinu,“ segir Stefán. Hann lék með stórliðinu Rauðu stjömunni 1982-83. Þá lék hann í annarri deild með liði í heimabæ sínum, Bíha í Bosníu, 1983-85. Árin 1985-91, þegar hann var á hátindi ferils síns, lék hann með Osijek í Króatíu í fyrstu deildinni. Ári síðar kom hann til Grindavíkur. Misstu allar Draumurinn varð að engu Stunginn með hníf í bakið Þau segja að erfiðasta árið í lífi þeirra hafi verið fyrsta árið sem þau dvöldu hér á-landi. Systir Stef- áns varð fórnarlamb stríðsins. Hún fékk svo ranga læknismeðhöndlun sem leiddi hana til dauða. Una missti föður sinn stuttu síðar. „Fað- ir minn, sem átti við veikindi að stríða, þurfti að fara í stríðið. Það þurftu allir að gera því hermennirn- ir brenndu allar eigur og hús þeirra sem ekki tóku þátt í stríðinu. Faðir minn var ekki í víglínunni. Hann sá aðeins um að færa hermönnunum vatn. Á leiðinni á veitingastað var hann stunginn með hníf í bakið af króatískum vini sínum og í for meö honum var múslími," segir Una. Sárt að vita ekkert „Þetta fyrsta ár okkar hér á landi var okkur erfitt, enda missir okkar mikill, og okkur leið alveg hræði- lega illa. Við vorum yfir tvo mánuði að ná okkur. Þá áttum við erfitt með svefn og þurftum að taka svefnlyf til að ná svefni. Við töluðum hvorki ís- lensku né ensku og vissum ekkert hvað yrði um fjölskyldu og ættingja okkar. Það var mjög sárt að vita ekkert," sögðu hjónin. Stefán á eina systur og móður sem búa í Serbíu. Faðir hans lést 11. júlí í fyrra en hann var búinn að missa allar eigur sínar vegna stríðsins. Stefán segir að faðir hans hefði annars lifað mun lengur. Áður en striðið hófst var hann á eftirlaunum sem síðan voru tekin af honum. Una á bróður og móður sem einnig búa í Serbíu. „Við sendum þeim alltaf peninga og reynum að aðstoða þau eins og við getum. Þeim líður L'lia> Stefán er þekktasti knattspyrnumaðurinn sem hefur komið hingað til lands og leikið knattspyrnu. Hann var valinn besti vamarleikmaðurinn i Júgóslavíu tímabilið 1989-90 af íþróttafrétta- mönnum þar í landi og voru stóru liðin þegar farin að veita honum athygli. Júgóslavar voru með sterk félagslið og sterkt landslið á þessum tíma. Mörg stórlið voru að spá í að fá hann í sínar raðir. Þá átti hann svo gott sem sæti í landsliðinu sem var á leiðinni til Ítalíu í heims- meistarakeppnina. Þar voru njósn- arar frá mörgum löndum sem ætl- uðu að skoða hann. „Það voru komin mörg tilboð frá liðum í Frakklandi, Belgíu og Tyrkl- andi. Ég varð síðan fyrir áfalli þeg- ar ég var að spila með Osijek í Króa- tíu 1991. Ég meiddist á síðustu mínútunni. Krossbandið í hnénu gaf sig þegar ég kom illa niður eftir að hafa fariö í skallaeinvígi eftir hornspyrnu. Ég komst ekki í gegn- um læknisskoðun og missti af öllu gamninu. Þarna urðu draumar mín- ir um að gerast atvinnumaður utan heimalands míns að engu. Allir félagar mínir, sem ég spilaði með, eru atvinnumenn í dag um víða ver- öld. Á Evr- ópumóti landsliða nýlega eigur sinar Stefán og Una eru frá Bíha í Bosn- íu. Þau ákváðu að fara í frí til heimaborgar sinnar sumarið 1991 til að hitta ættingja sína. En þá var stríðið að brjótast út í Króatíu og ekki varð aftur snúið. Þau misstu allar sínar eigur og íbúð í Króatíu þar sem Stefán hafði leikið knatt- spyrnu í sex ár. Allt í einu stóðu þau uppi allslaus. Það eina sem þau áttu var lítill farangur sem þau höfðu með sér í litlum handtöskum og lítil stytta frá Tyrklandi. Þau dóu ekki ráðalaus og settu á stofn krá í Bíha. Stefán stofnaði einnig fyrirtæki ásamt vini sínum. Þegar Lúkas Kostic hringdi svo og bað hann að koma til Grindavíkur sló hann til. Stríðið var að brjótast út og reynslan frá sumrinu áður, þegar þau misstu aleigu sína, var enn í fersku minni. r Ast við fyrstu sýn Stefán og Una kynntust 1982 á krá í heimabæ sínum. Una segist hafa verið á leiðinni í háskóla en Stefán spilaði knattspyrnu. Þau segja að það hafi verið ást við fyrstu sýn og Una hætti við há- skólanám. Aður en þau komu hing- að starfaði hún í banka en hún hef- ur lokið námi á viðskiptabraut í framhaldsskóla. „Ég hafði ekkert fylgst með knattspyrnu og aldrei farið á leiki þótt ég byggi nánast við hliðina á knattspymuvellinum," segir Una. Una, sem kom hingað til lands með bömin mánuði á eftir Stefáni, hefur þjálfað yngri flokkana í Grindavík með góðum árangri. Stef- án hefur starfað í fjögur ár í neta- gerð hjá Krosshúsi í Grindavík. „Mér líkar mjög vel vinnan í neta- gerðinni. Þetta er frábært fólk sem ég vinn með. Það hefur veitt mér og fjölskyldu minni ómetanlega hjálp," segir Stefán. Una hefur unnið hjá knattspyrnu- deildinni og líkar það mjög vel. Hún stefnir á að halda námi sínu áfram ef hún fær metiö það nám sem hún hefur þegar lokið í Júgóslavíu. Þau tala bæði sæmilega íslensku, enda hafa þau fengið góða aðstoð frá vinum sínum, kunningjum og Grindvíkingum almennt við að tala málið. Hins vegar tala börn þeirra hjóna góða íslensku og sérstaklega Lilja. Þeim gengur vel í skóla og voru mjög fljót að aðlagast íslensk- um venjum og aðstæðum. Viljum eyða ævi okkar í Grindavík En á fiölskyldan einhverja fram- tiðardrauma? „Það er að kaupa hús hér í Grindavík þar sem við viljum eyða ævi okkar. Þá ætlum við að lifa líf- inu og ferðast um bæði hér á landi og erlendis. Við ætlum að fara til Júgóslavíu í haust í heimsókn til ættingja. Draumur okkar er að eiga þar lítinn sumarbústað sem við get- um verið í þegar við komum til að heimsækja ættingjana," segja þau með bros á vör. „Ég ætla að taka vini mína hér í Grindavík til Júgóslavíu og sýna þeim landið. Því er ég meðal annars búinn að lofa Hjálmari Hallgi'íms- syni, knattspyrnu- og lögreglu- manni, og hann sleppur alls ekki við að fara þangað,“ segir Stefán. -ÆMK Una, Stefán og Valdimar Jankovic una sér vel í Grindavík og ætla að eyða ævinni þar. DV-myndir ÆMK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.