Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Side 11
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 1996
74 áta göngugarpur á „Laugaveginum"
ilk
11
* ■ Ml U u WUJJIIIMIII ■
Ekkert sem þarf að hræðast
- gengu í fjóra daga og þurftu að vaða á
„Nei, nei, þetta er ekkert sem þarf
að hræðast. Ég tala nú ekki um í
góðu veðri, þá er þetta alveg leikur.
Síðasti dagurinn var kannski einna
erfiðastur, það var mikið vatn í
ánum þarna og við áttum í svolitl-
um erfiðleikum með að
komast yfir þær og
inn í Þórs-
mörk-
ina,“ sagði Sigríður Bárðardóttir, 74
ára göngugarpur sem lét sig ekki
muna um að ganga hinn svokallaða
Laugaveg, þ.e. frá Landmannalaug-
um inn í Þórsmörk, með hópi af
fólki.
Hópurinn sem Sigríður fór með
var fjóra daga á leiðinni og gisti
þrjár nætur í skálum. Þau gengu
einungis með léttan bakpoka sem
hafði að geyma nauðsynjar dagsins
en annar farangur þeirra var fluttur
á milli skála í bíl. Sigríður, sem býr
á bænum Jarðlangsstöðum upp
með Langá, segist hafa
mjög gaman af því að
ferðast. Þegar
blaðamaður
tali af
henni
var
Hér tekur Sigríður sér hlé á göngunni og undirbýr hádegisverð ásamt dóttur sinni og tengdasyni, Kristínu Einars-
dóttur og Lárusi Sigurössyni.
hún á Akureyri með eiginmanni
sínum og dóttur og u.þ.b. að ljúka
vikuferð hringinn í kringum landið.
„Ég er ekkert vön fiallgöngum en
hef þó alltaf hreyft mig eitthvað, far-
ið t.d. í göngutúra á sléttlendi. Ég
hafði mjög gaman af þessari göngu
en við vorum þó alls ekki nógu
heppin með veður. Þegar við fórum
úr Hrafntinnuskeri á öðrum degi
fengum við alveg kolvitlaust veður,
rok og rigningu. Við héldum nú
samt áætlun," sagði Sigríður og
bætti því við að auðvitað væri nú
ekkert við því að gera þó veðrið
væri vitlaust.
Þegar á hana var gengið viður-
kenndi hún að reyndar hefði verið
dálítið erfitt að klifra upp allar
brekkurnar. „Ég vissi ekkert hvað
ég var að fara út í þegar ég fór þetta.
Ég bara skellti mér með,“ sagði
þessi hressa kona.
Aðspurð sagðist hún mæla ein-
dregið með slíkum ferðum fyrir fólk
á sínum aldri ef það væri sæmilega
hraust og svolítið vant að hreyfa
sig. „Við vorum tvær þarna á þess-
um aldri því ég dró nágrannakonu
mína með mér í gönguna. Ef maður
bara fer þetta rólega og er ekki að
æsa sig neitt þá getur þetta hver
sem er, ég tala nú ekki um ef veðr-
ið er gott,“ sagði Sigríður. Hún
bætti við að maður gæti að visu
alltaf búist við að það kæmi eitt-
hvað upp á „en maður bara tekur
því“.
Hún sagðist ekki hafa fengið
neinar harðsperrur eftir ferðina og
var ekkert þreytt. Aðspurð hvort
hún ætlaði að endurtaka slíka ferð
svaraði hún að bragði: „Það er
aldrei að vita en kannski ekki í
sumar!“
-ingo
Það var mikið vatn í ánum og dáiítið
„basl“ að komast yfir, að sögn Sig-
ríðar.
kL
•s.-.
w
L
Frjáls samkeppni út í heim
Brottför 30. júlí 1996 1 Fyrsta heimkoma Síðasta heimkoma
02 KEF-AMS Kr. 49.06C 6.ÁGÚST 30. ÁGÚST
HV7652 KEF-AMS Kr. 24.870 31. JÚLÍ
208 KEF-CPH Kr. 99.300 31. JULI
I 30. SEPT. I
30. JULI ‘97
Fl 452 KEF-LHR | Kr. 47.160 | 6. ÁGÚST | 30. ÁGÚST |
Bb
306 KEF-STO Kr. 109.670 31. JULI
30. JULI '97
Fl 320 KEF-0SL Kr. 96.980 31. JÚLÍ 30. JÚLÍ'97
I 632 KEF-LUX Kr. 49.000 4. AGUST 30. AGUST
Fl 526 KEF-BER | Kr. 58.800 | 06. ÁGÚST | 30. OKT. |
Eins og staðan er 27. júlí 1996 FI=FLUGLEIÐIR HV=TRANSAVIA
Öll flugfargjöld með flugvallaskatti
KEF=KEFLAVÍK - AMS=AMSTERDAM - CPH=KAUPMANNAHÖFN
0SL=ÓSLÓLHR=L0ND0N, HEATHR0W - ST0=ST0KKHÓLMUR
LUX=LUXEMB0RG - BER=BERLÍN
Gnoðarvogi 44, Sími: 568 6255
FAX: 568 8518.