Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Síða 13
JÉU^’V LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 1996
13
Islensk stúlka giftist inn í norsku konungsfjölskylduna:
Brúðkaupið fer
fram í dag
- eignuðust í lok mars son sem er prins
„Ég get staðfest að við ætlum að
gifta okkur á laugardaginn (í dag) í
Holmenkollenkapellunni. Annað hef
ég ekki um málið að segja. Við vilj-
um hafa einkalíf okkar út af fyrir
okkur og forðumst alla umfjöllun í
fjölmiðlum," sagði Margrét Guð-
mundsdóttir, íslensk stúlka sem býr
með systursyni Haralds Noregskon-
ungs í Noregi.
Við sögðum frá sambandi Mar-
grétar og tilvonandi eiginmanns
hennar, Alexanders Ferners, í Helg-
arblaði DV í október í fyrra en þau
byrjuðu að vera saman fyrir rúmu
ári. Þau kynntust á mjög rómantísk-
an hátt í skíðaferðalagi og byrjuðu
fljótlega að búa saman. Þann 28.
mars síðastliðinn eignuðust þau síð-
an son og þar sem hann er barna-
bam Astrid Ferner, prinsessu í Nor-
egi, systur Haralds Noregskonungs,
er hann lítill prins.
Kirkjan brann
Kapellan sem þau gifta sig í er,
eins og nafnið gefur til kynna, við
Holmenkollenhæðina fyrir norðan
Ósló en hún er þekkt fyrir skíða-
mannvirki. Kapellan brann fyrir
nokkrum árum og það er því nýbú-
ið að endurbyggja hana.
Ættingjar Margrétar hafa streymt
utan til að vera viðstaddir brúð-
kaupið og þegar blaðamaður
hringdi til hennar var þar fullt hús
af fólki. Eiginmannsefni Margrétar
hefur þó bara komið einu sinni til
íslands með henni og talar að henn-
ar sögn enga íslensku.
Hjónakornin eru nýbúin að
kaupa sér einbýlishús á bamvæn-
um stað í nágrenni höfuðborgarinn-
ar, í sveitarfélaginu Bærum, og
reyna að lifa sem eðlilegustu lífi.
Áður en Margrét eignaðist soninn
starfaði hún við sölustörf og hann
einnig. Hún er þrítug en hann þrjá-
tíu og eins.
Á föður í Svíþjóð
Margrét er fædd í Reykjavík og
uppalin í Breiðholtinu. Hún dvald-
ist þó töluvert á Akureyri á sínum
uppvaxtarárum á meðan móðir
hennar bjó þar. Faðir hennar hefur
búið í Svíþjóð í mörg ár og rekur
þar bakarí en hún á jafnframt einn
bróður sem búsettur er hér á landi.
Margrét var í Fjölbrautaskólan-
um í Breiðholti og fór á tímabili
sem au pair til Kaliforníu eins og
margar aðrar islenskar stúlkur.
Hún starfaði nokkur ár í tískuvöru-
verslun í Kringlunni og var þar sið-
ast verslunarstjóri.
Síðar vann hún skrifstofuvinnu
um nokkurt skeið og flutti svo til
fóður síns i Svíþjóð. Hún starfaði í
bakaríinu hjá honum i fjögur ár,
fékk þá atvinnutilboð frá Noregi og
fluttist þangað. Hún vann fyrst á
hóteli í Ósló og hóf síðan störf í
tískuvöruverslun í miðborg Óslóar.
Kallaður Alex
Alexander Femer er sonur frú
Astrid Ferner, prinsessu í Noregi,
og eiginmanns hennar, Johans
Martins Femers kaupsýslumanns.
Hann er kallaður Alex og er eitt af
fimm börnum Astrid. Hann á tvo
bræður og tvær systur en er sjálfur
aSæxtm iir
Margrét Guðmundsdóttir, þrítug íslensk kona, gengur í það heilaga í dag
með systursyni Haralds Noregskonungs, Aiexander Ferner. DV sagði frá
sambandi þeirra á síðasta ári en síðan hafa þau eignast son.
í miðið. Astrid er önnur tveggja
systra Haralds konungs. Elst er frú
Ragnhild Alexandra prinsessa sem
giftist norskum skipajöfri og býr í
Rio de Janeiro, konungurinn er
yngstur og Astrid í miðið. Áður en
litli prinsinn þeirra Margrétar og
Alexanders fæddist átti Astrid bara
tvö barnabörn, fjögurra og sex ára.
-ingo
Geymið matseðilinn
sem þið fáið sendan,
það gæti komlð sór
vel að hafa hann
við hendinal
í hvert skipti sem pöntuð er pizza af matseðli Domino’s Pizza þá er hægt að 909^909
skilainn þátttökuseðlinum í PizzaPizzaleik Domino’s. Dregið verðurmánaðar- aðalstöðin
lega í sumar á Aðalstöðinni og X-inu og þeim heppnu tilkynnt um vinningana í beinni útsendingu.
1. vinningur x 3: Sólarlandaferð fyrir tvo með Heimsferðum
2. vinningur x 3: Fullkomið myndbandstæki frá Hljómco
3. vinningur x 3: Fataúttekt frá Levi’s búðinni
4. vinningur x 3: Fjallahjól frá Bræðurnir Ólafsson
5-20. vinningur: Pizzaveisla fyrir3-5 frá Domino’s Pizza
3 x 90.000 kr.
3 x 60.000 kr.
3 x 40.000 kr.
3 x 35.000 kr.
15 x 2.000 kr.
DOMINO'S
PIZZA
HIJOMCO
mBRÆÐURNIR
ÖLAFSSON
DOMINO’S PIZZA • GRENSÁSVEGI 11 • HÖFÐABAKKA 1 • GARÐATORGI 7 • SÍMI 58-12345