Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Blaðsíða 14
14
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aöstoöarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111,
blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270
Stafræn útgáfa: Heimasiða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins i stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Hafnhann haft að engu
Hafnbann þaö sem norsk stjórnvöld hafa sett á íslensk
fiskveiðiskip er óþolandi. Að sæta slíku af hálfu þjóðar
sem á að kallast bræðraþjóð er með ólíkindum. Þessi að-
gerð sýnir hroka og yfirgang norskra stjórnvalda. Af
reynslu okkar í samskiptum við Norðmenn, undanfarin
misseri, er þó einskis annars að vænta og ekkert annað
en aumingjaskapur íslenskra stjórnvalda að láta þau
mál ekki ganga lengra. Norðmenn brjóta freklega á ís-
lenskum þegnum og komast upp með það.
Nýjasta dæmið um fruntaskaþ Norðmanna er að út-
hýsa togaranum Klakki úr norskri höfn. Togarinn var
kominn til veiða í Smugunni þegar spil bilaði. Varahlut-
ir voru ekki um borð. Skipstjórinn sótti því um leyfi til
að koma til hafnar í Tromsö til að gera við spilið. Því var
hafnað og varð skipið því að bíða utan flögurra mílna
lögsögu Noregs meðan leitað var liðsinnis íslenskra
stjórnvalda í málinu. Þær viðræður urðu þó til einskis.
Það var því sérlega gleðilegt þegar það fréttist að
starfsmenn Fiskiðjunnar-Skagfirðings, útgerðar skips-
ins, hefðu snúið á Norðmenn og gert við skipið eftir
þaulskipulagða aðgerð sem líktist helst vel lukkaðri
hernaðaraðgerð. Áhöfn togarans og starfsmenn útgerð-
arinnar samræmdu aðgerðir, greindu bilunina og fundu
út hvaða varahluti þurfti. Viðgerðarmenn flugu utan,
leigðu sér bát og gerðu við hið bilaða spil togarans fyrir
framan nefið á Norðmönnunum.
Hafnbann Norðmanna var þannig haft að engu og
stjórnvöldum þar sent langt nef eins og þau áttu skilið.
Þetta er áfall fyrir Norðmenn en að sama skapi sigur fyr-
ir áhöfn Klakks og útgerð skipsins og um leið fyrir alla
íslenska úthafsveiðasjómenn.
Það er því skiljanlegt að meðal sjómanna og útgerðar-
manna úthafsveiðaskipa ríki ánægja með aðgerðina sem
gekk algerlega upp. Þeir hinir sömu vonast til þess að
stjórnvöld dragi lærdóm af þessari aðgerð og hún verði
til þess að ýta við þeim. Hafnbann það sem Norðmenn
hafa sett á íslensk úthafsveiðaskip er með öllu óþolandi.
Skipin eru við veiðar á alþjóðlegu hafsvæði og Norð-
menn því réttlausir í fautaskap sínum.
Klakksmálið nú er endurtekning á því er togaranum
Má var meinað að leita hafnar í Noregi í fyrra. Þá var
um það rætt að leita með málið til Alþjóðadómstólsins í
Haag og láta reyna á rétt Norðmanna. Svo varð ekki, því
miður. Reynslan hefur hins vegar kennt okkur að Norð-
menn beita hörku í samskiptum við okkur og skilja þá
væntanlega ekki annað af okkar hálfu. Norðmenn hafa
sýnt það að þeir vilja deila og drottna á norðurhöfum og
komast upp með það ef þeim er ekki svarað með viðeig-
andi hætti.
Á meðan norsk stjórnvöld sýna íslenskum sjómönnum
sífelldan fjandskap sendi Landhelgisgæslan umsvifa-
laust varðskip til Jan Mayen til þess að aðstoða norskan
rækjutogara i vanda eftir að net hafði flækst í skrúfu
skipsins. íslenskir sjómenn fylgjast með þessu og hafa
sent DV skeyti þar sem spurt er hvort norska skipið hafi
verið í neyð. Norsk yfirvöld aðstoða íslensk skip ekki
nema þau séu sannanlega í neyð. í áðurnefndu skeyti til
blaðsins er líka spurt hvort íslensk stjórnvöld þurfi að
endurnýja varðskipin til þess að geta þjónustað norska
skipaflotann.
Snilldaraðgerð útgerðar Klakks og áhafnar skipsins
ætti að verða til þess að íslensk stjórnvöld rumski. Eng-
inn efi er á að Norðmenn halda áfram fantaskapnum.
Jónas Haraldsson
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 1996 JLlV
Einkavæðing Samaranch
á ÓL hefnir sín
í sextán ár hefur Juan Antonio
Samaranch, áður erindreki ein-
ræðisstjórnar Francos í fæðingar-
héraði sinu, Katalóníu, stjórnað
Alþjóða ólympíunefndinni með
harðri hendi og ærnu yfirlæti.
Meginkeppikefli hans inn á við
hefur verið að ráða sjálfur vali
sem flestra af nefndarmönnunum
93.
Út á við hefur Samaranch lagt
megináherslu á að kaupsýsluvæða
Ólympíuleikana sjálfa i stórum
stíl þótt enn sé haldið í hann við
auglýsingar á leikvöngum og bún-
ingum keppenda. Að hans dómi er
skrautfjöðrin í eigin hatti og
Ólympíunefndarinnar í aðdrag-
anda yfirstandandi leika í Atlanta
samningur við bandaríska sjón-
varpsfyrirtækið NBC um dreifing-
arrétt ljósvakamiðla frá ÓL fram
til 2008 um Ameríku, Ástralíu og
Evrópu og á heildargreiðsla NBC
fyrir einkaréttinn að nema fimm
og hálfum milljarði dollara.
Engin launung er á að meginá-
stæðan til að Samaranch og hans
menn beittu sér fyrir því fyrir sex
árum að færa bandarísku suður-
ríkjahorginni Atlanta réttinn til
að sjá um leikana á aldarafmæli
þeirra endurvakinna voru gylli-
boð kunnasta fyrirtækis þar um
slóðir, Kókakóla. Framleiðendur
óhollustudrykkjarins hafa haft að-
setur í Atlanta frá því löngu áður
en þeir fjarlægðu kókaínið úr öllu
nema nafninu.
Samruninn við Kókakóla vegna
leikjanna í Atlanta er svo náinn
um þessar mundir að fyrirtækinu
og gripum tengdum því er helgað-
ur mikill hluti efri hæðar Ólymp-
íusafnsins í Lausanne, heimaborg
Ólympíunefndarinnar. Afleiðin-
garnar af því að láta fjársterka
auglýsingakaupendur sitja í fyrir-
rúmi en íþróttirnar sjálfar og
áhorfendur þeirra á hakanum
hafa verið að koma í ljós í Atlanta
þá daga sem liðnir eru frá því
Muhammad Ali var leiddur fram
farlama af parkinsonveiki til að
kveikja af veikum burðum Ólymp-
íueldinn á leikvanginum í Atl-
anta.
Berlegast hefur ófarnaðurinn,
sem hlýst af ráðslagi Samaranch
og félaga, birst í frammistöðu
tölvufyrirtækisins IBM sem
keypti auglýsingaaðstöðuna sem
fylgir því að koma upp tölvukerfi
fyrir leikana í Atlanta. Það reynd-
ist svo seinvirkt að gagnsemin fyr-
ir fréttamenn og aðra aðila fór að
verulegu leyti forgörðum af þeim
sökum einum. Þar á ofan reyndust
upplýsingarnar í tölvukerfmu svo
rangar eða villandi að þar má
engu treysta. Þyngd keppenda og
hæð, í þeim greinum sem slíkt
skiptir máli, er einatt tilgreind
helmingi meiri eða minni en rétt
tala.
Fregnir af ófremdarástandinu
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
við framkvæmd ÓL í Atlanta hafa
tekið álíka rúm í fréttamiðlum um
víða veröld það sem af er og af úr-
slitum í íþróttagreinum. Ringul-
reiðin hefur meira að segja haft
merkjanleg áhrif á úrslit þar sem
keppendur hafa fallið úr keppni
vegna þess að í umferðaröngþveit-
inu komust þeir ekki í tæka tíð á
skráningarstaði eða var beint
ókunnugum á ranga staði.
Billy Paine, sem stjórna átti
skipulagningu leikanna í Atlanta,
var búinn að stæra sig af að þar
færi fram „mesti friðsamlegi stór-
viðburður frá seinni heimsstyrj-
öld“. Nú velkist enginn i vafa um
að Atlantamenn hafa notað undir-
búningsárin sex lakar en dæmi
eru til.
Samgöngur eru í algerum
ólestri vegna þess að sjálfboðalið-
ar sem fengnir voru til að sjá um
leiðsögn og akstur hafa ekki feng-
ið þjálfun að gagni. Þar við bætist
að leiðamerkingar eru ýmist ófull-
nægjandi eða beinlínis villandi
fyrir aðkomufólk og finnst útlend-
ingum ljóst að um þær hafi vélt
fólk sem aldrei hefur komið út fyr-
ir landsteina Bandaríkjanna,
kannski ekki einu sinni rikis-
mörk Georgíu.
Um aðbúnað áhorfenda er
gjarnan vitnað til hreinlætisað-
stöðu á aðalsundstaðnum þar sem
gert var ráð fyrir 13.500 gestum,
þar af um 1000 frá fjölmiðlum.
Þarna var komið upp tveim laus-
um salernum sem' stífluðust að
sjálfsögðu fljótlega. Lofthiti í Atl-
anta hefur verið um 35 stig á sels-
íus og rakastig í lofti nálægt 90%.
Vandræðagangurinn setti veru-
legan svip á setningarathöfnina.
Vagnar með sveitir þátttökulanda
urðu svo seinir vegna umferðar-
öngþveitis að fólkið varð að
hlaupa langa leið upp skábraut og
komu þá hóparnir mjög slitrótt
inn á leikvanginn. Að athöfn lok-
inni var bandaríska hópnum ekið
rakleitt til búða sinna en keppend-
ur frá öðrum löndum urðu að bíða
klukkutímum saman eftir flutn-
ingi þegar verst lét.
Samaranch á fréttamannafundi í aðalstöðvum Alþjóða ólympíunefndar-
innar í Lausanne.
skoðanir annarra____________________r>v
Mikilvægí friáls markaöar
„Nútima kapítalismi virkar ekki ef markaðsöflin
| fá ekki að leika lausum hala. Bandaríkjamenn hlíta
Iþeirri grundvallarreglu enda er þar að finna afar
öflugan markað fyrir ný störf. En Evrópubúar
| hundsa regluna og hefur ekki tekist að skapa eins
mörg störf. Undarlegt er hve fáir hagfræðingar
I skilja ástæður þess mismunar sem er á atvinnu-
; sköpun í Bandaríkjunum og Evrópu.“
R.J. Samuclson í Hcrald Tribune 24. júlí
E Meira réttaröryggi
Lögmenn hafa fyrir Jongu sent frá sér áætlun um
betrumbætur á réttaröryggi. Leggja þeir til að
gæsluvarðhald vari lengst sex mánuði nema í alger-
um undantekningartilvikum. Virða ber þá reglu að
| hinir handteknu og menn í gæsluvarðhaldi séu sak-
| lausir þar til annað sannast. Aðstæður í Danmörku
bjóða beinlínis upp á ranglæti með löngum biðtíma
MNMiMMMMiMMMMMMttMmaMmMmimMKMaaiMiMiMstMttMmwHKMmMMMimMMtmmtMmMinMmmMtMSittii
við dómstólana, seinagangi í rannsókn réttarlækna
auk kæruleysis dómstóla varðandi rökstuðning
gæslu varðhaldsúr skurða. “
Úr forustugrein Politiken 23. júlí
Ólympíumet í heimsku
„Alþjoða ólympiunefndin, sem hugsar fyrst og
fremst um peninga, með mikilmennskubrjálæðing-
inn Samanarach fremstan í flokki, hafnaði Aþenu á
100 ára afmæli leikanna, að sögn vegna lélegs sam-
göngunets og mengunar. Með græðgina að leiðar-
ljósi vildu menn þjónka Coca Cola sem aðalkostun-
araðila og bandarísku sjónvarpsstöðvunum. í Atl-
anta felst mengunin hins vegar í skipulagslegri van-
hæfni og alþekktum tviskinnungi Bandaríkja-
manna sem birtist í reykingabanni, velþóknun á
augljósu svartamarkaðsbraski og ömurlegum
skemmtigörðum kostunaraðila. Hlutir sem hafá for-
gang í aðbúnaði íþróttafólksins. Þetta virðist ólymp-
íumet í heimsku." Úr forustugrcin Jylkinds-Postcn 24. júli