Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Qupperneq 17
Finnur Þór Friðriksson, sem til margra ára var rafvirki Sjúkrahúss Skagfirðinga, lét flughakteríuna ná yfirhöndinni fyrir nokkrum árum og starfar nú sem þotuflugmaður hjá Atlanta flugfélaginu. Finnur var einn þeirra Króksara sem tóku sig saman í lok áttunda áratugarins og fóru að læra að fljúga með tilkomu nýja flugvallarins á Sauðárkróki sem nú nefnist Alexandersflugvöll- ur. Keyptar voru litlar vélar af nokkrum hópum og á skömmum tima voru komnar 5 einkaflugvélar á staðinn. Með auknum álögum ríkisins á flugvéla- og varahlutakaup minnk- aði flugáhugi manna og Sauðár- krókur, líkt og önnur sveitarfélög, varð fyrir barðinu á þeirri þróun. Nú hefur Finnur áhuga á því að rífa upp áhugann á Króknum og hefur fengið nokkra „gamla flugkappa“ til að taka skírteinið af hillunni, ef svo má að orði komast. í því skyni hafa, auk Finns, nokkrir tekið sig saman um að reka tveggja sæta vél af gerð- inni Sky Hawk. Rifist um að komast á loft! „Það var mikill drifkraftur í þessu í kringum árið 1978. Þá minn- ir mig að 18 manns hafi komið í flugkennslu og áhuginn blundað lengi í mönnum. Fyrst var bara ein vél á staðnum og það var bókstaf- lega rifist um að komast á loft,“ sagði Finnur þegar hann rifjaði um gamla tíma. Þegar hann byrjaði að Finnur Þór Friðriksson, þotuflugmaður hjá Atlanta, er hér til hægri á mynd- inni fyrir utan flugstöðina á Sauðárkróksflugvelli ásamt Árna Blöndal sem hætti sem flugvallarstjóri og umboðsmaður Flugleiða um síðustu áramót eftir áratuga starf í áætlunarfluginu. Finnur og Árni voru sammála um aö rífa þyrfti upp einkaflugið á Króknum eftir margra ára lægð, ekki síst í tilefni þess að nýi flugvöllurinn fagnar 20 ára afmæli á árinu. DV-mynd bjb læra að fljúga hafði hann uppi áform um að gerast flugkennari og starfa sem slíkur á Sauðárkróki. Síðan reyndist áhuginn á fluginu ekki nægur á Króknum og Finnur „datt inn í áframhaldið," eins og hann orðaði það, þ.e. hann gerðist fljótlega atvinnuflugmaður hjá Atl- anta. „Ég hef enn mjög gaman af því að gripa í þessar litlu vélar. Það er skemmtileg og i rauninni nauðsyn- leg tilbreyting frá þotunum. Maður fær meiri tilfinningu fyrir því að fljúga," sagði Finnur. Skattmann bað um áhafnarlista Til marks um auknar álögur rík- isins á flugið sagði Finnur að það hefði verið orðið meiriháttar mál að reka flugvél. Flugrekstarleyfi hefði þurft til að því tilskildu að hlutafé- lag væri til staðar. Um leið og hluta- félag var stofnað hefði skatturinn komið tvíefldur til sögunnar. „Þeir héldu að þetta væri þvílíkt batterí að einu sinni fékk ég bréf frá skattinum þar sem ég var sérstak- lega beðinn um áhafnarlista," sagði Finnur og gat ekki annað en hlegið að vitleysunni í kerfinu. Þegar gróskan var sem mest í fluginu á Króknum voru haldnir svokallaðir flugdagar með þátttöku einkaflugmanna af öllu landinu. Flugdagarnir vöktu mikla athygli og einn stærsti viðburðurinn í 20 ára sögu Sauðárkróksflugvallar hins nýja, sem nú nefnist Alexand- ersflugvöllur. Svo vel bar í veiði að þegar DV- menn voru á ferðinni á flugvellin- um ásamt Finni hittum við á Árna Blöndal, sem í um 30 ár var flugum- sjónarmaður á vellinum og umboðs- maður Flugleiða, þar til um síðustu áramót að hann hætti formlega störfum. í þetta sinn var hann í af- leysingum en arftaki hans í flugum- sjón er Sigurður Frostason en um- boðsmaður Flugleiða er nú Kristján Blöndal. Góð samleið með áætlunarfluginu Árni, eða Addi, eins og hann er gjarnan kallaður, sagðist vera sam- mála Finni um að rífa þyrfti upp einkaflugið á Króknum. Það hefði á sínum tíma átt góða samleið með áætlunarfluginu og skapað þó- nokkra „traffik" á vellinum. Árni er samtvinnaður sögu áætl- unarflugs til Sauðárkróks og hóf ungur störf hjá föður sínum, Val- garð Blöndal, sem var flugvallar- stjóri gamla vallarins. Árni sagði byltingu hafa átt sér stað í aðstöðu til að taka á móti áætlunarvélum en ný flugstöð var tekin í notkun árið 1989. Til marks um breytta tima þá þurfti hann á gamla vellinum að ganga út með vindmæli og „gá til veðurs". Vindáttina urðu menn að segja til um sjálfir en mælirinn gaf upp styrkinn. Mannshöndin kemur hvergi nærri þessu í dag. -bjb Eina almannatengslastofan utan Reykjavíkur á Króknum: Skagfirðingar eru opnir og skemmtilegir - segir Deborah Júlía Robinson frá Suður-Afríku Líklega er eina alvöru almennatengslafyrirtækið utan Reykjavikur rekið á Sauðárkróki. Þá eru ekki taldar með auglýsinga- stofur sem hafa almanna- tengsl sem hliðargrein. Fyrirtækið nefnist PR- stofan og eigandinn er Deborah Júlía Robinson frá Suður-Afríku, lærður almannatengill og kenn- ari. Deborah kom frá Flat- eyri til Sauðárkróks árið 1991 ásamt manni sínum, Rögnvaldi Guðmunds- syni, sem tók við stjóm á fyrirtækinu RKS- skynjaratækni. Hún byrj- aði á því að kenna í Gagnfræðaskólanum og einnig heima hjá sér með einkakennslu. Þá tók hún að sér þýðingar á fimm bókum fyrir Gísla Páls- son á Hofi og smátt og smátt fékk hún fleiri verkefni sem tengdust hennar fagi, almanna- tengslum. Þetta endaði með því að hún stofnaði fyrirtækið PR-stofuna fyr- ir tveimur árum og fékk aðstöðu í Stjórnsýsluhús- inu. Hún er með 15-20 fyrir- tæki í Skagafirði og víðar í sinni þjónustu. Eitt af þeim er Fiskiðjan-Skag- firðingur en Deborah hef- ur séð um fréttabréf fyrir það öfluga útgerðarfyrir- tæki. Aðspurð hvemig Skag- firðingar kæmu henni fyrir sjónir sagði De- borah í samtali við DV að þeir væm opnir og skemmtilegir en að vísu mætti skilningur á henn- ar fagi vera meiri. Að- eins einn maður á Sauð- árkróki, Einar Svansson hjá Fiskiðjunni Skagfirð- ingi, skildi hennar fag fullkomlega. „Við Einar tölum sama tungumál en aðra þarf ég að fræða meira um mitt starf. Alls staðar hef ég þó mætt jákvæðu hugar- fari gagnvart faginu,“ sagði Deborah. -bjb Deborah Júlía Robinson almannatengill starfar í sumar í móttökunni á Hótel Áningu en aðalvertíð PR-stofunnar er yfir vetrartímann. Hún segir Skagfirðinga opið og skemmtilegt fólk en aö skilningur á hennar fagi mætti vera meiri. DV-mynd ÞÖK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.