Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Side 23
23
Er húsið með fiötu þaki?
Þú gerir það vatnshelt
með einni yfirferð af
ROOF KOTE. Efniðsem
limist við næstum öll
þakefni, t.d. tjöru og
asfalt. Auðvelt í notkun
og endist 10 sinnum
lengur en tjara og asfalt.
Taktu á málinu og
kynntu þér möguleikana á viðgerð-
um með ROOF KOTE, TUFF KOTE
og TUFFGLASS viðgerðarefnun-
um. Efnin voru þróuð 1954 og hafa
staðist tímans raun.
Heildsala:
G.K. Vilhjálmsson
Smyrlahrauni 60 - S. 565 1297
Margaret Thatcher, fyrrverandi
forsætisráðherra Bretlands, var
einu sinni spurð að því hvers vegna
frægðarferill hennar hefði hafist
svo seint á lífsleiðinni. „Ég var
snemma með réttu hugmyndirnar í
kollinum en ég var ekki með réttu
röddina," á forsætisráðherrann að
hafa svarað, að því er greint er frá í
þýska tímaritinu Ftir Sie.
Rödd Thatcher var áður skræk og
skjálfandi. Hún fór í raddþjálfun og
þá varð breyting á. Eftir þjálfunina
gat hún ekki aðeins flutt kjarnmikl-
ar ræður með ákveðinni rödd held-
ur einnig veitt viðtöl með svo hlýj-
um og tilfinningaríkum raddblæ að
fréttamenn gleymdu að spyrja gagn-
rýninna spurninga.
í endurminningum sínum segir
Margaret djúpa öndun skipta máli.
„Hjá stjórnmálamönnum verður
röddin að koma frá öllum líkaman-
um til þess að menn skynji að við-
komandi standi við það sem hann
segir.“
En þetta á ekki bara við um
stjórnmálamenn. Hljómmikil rödd
er miklu meira sannfærandi en
rödd sem hljómar eins og hún sé
brotin eða kreist upp úr barkanum.
Andvarp Madonnu
Söngkonan Madonna hefur lýst
því yfir að hún hafi verið óþreytt
við að leita eftir sérstökum kyn-
Madonna hefur komið sér upp sér-
stökum kynþokkafulium raddblæ.
Eftir að hafa farið í raddþjálfun gat Margaret Thatcher farið að láta til sín
taka.
þokkafullum raddblæ. Hún fann
loks það sem hún leitaði að: and-
varp. „Poppsöngkona verður að
hafa dillandi mýkt uppgjafar í rödd
sinni.“
Greinarhöfundur í þýska tímarit-
inu leggur til að konur æfi sig í
tvenns konar raddblæ, raddblæ
Margaretar Thatcher og Madonnu.
Allar aðrar tónhæðir séu þar á milli
og þróist af sjálfu sér þegar hinar
tvær eru þjálfaðar. Hér á eftir fylgja
leiðbeiningar tímaritsins sem vitn-
ar í ráðleggingar talþjálfa:
Kynþokkafull rödd
Góð æfing fyrir spennta rödd er
að liggja á bakinu og andvarpa í
hvert skipti sem maður andar frá
sér. Fullyrt er að hlýja komi í rödd-
ina með því að ímynda sér að mað-
ur sé að borða uppáhaldsréttinn og
gefi frá sér ánægjuhljóð í leiðinni.
Þekkt ráð er að hlæja í síma. Það
er sagt gera röddina vingjarnlegri.
Talþjálfar vara þó við þvinguðum
hlátri. Betra er að ímynda sér að
maður sé að tala af hjartans ein-
lægni og ekki bara 1 síma. Það vek-
ur sjálfstraust og röddin verður
hlýrri.
Ákveðin rödd
Þegar við höldum að við séum
ekki nógu sterk verður röddin
óstyrk. Gott ráð við þvi er að ganga
um gólf og láta streituna líða burt.
Hinn frægi forstjóri, Lee Iacocca,
ráðleggur mönnum að standa þegar
þeir þurfa að tala um mikilvæg mál-
efni í síma.
Áður en farið er til samningavið-
ræðna eða haldin er hátíðarræða er
ágætt að tala upphátt við sjálfan sig
heima. Ef aðstæður leyfa það ekki
er hægt að raula lágt. Gott er að
drekka heitt vatn. Það er í raun
smyrsl fyrir raddböndin og vinnur
gegn streitu.
Þeir sem eru með hljómmikla
rödd anda djúpt. Geispi er góð æf-
ing. Og þegar forstjórinn heldur
„ræðu“ er gott að rúlla tungunni eft-
ir gómnum á meðan maður hlustar,
anda síðan djúpt - og rödd manns
verður ákveðnari þegar maður svar-
ar.
Hægt að læra
af börnum
Frægur þýskur talþjálfi segir að
hjá litlum bömum sé líkami, sál og
rödd ein heild. Hljóðin sem þau búa
til við leik eru til eftirbreytni þegar
æfa á röddina. Talþjálfar taka hins
vegar fé fyrir að láta fullorðna gera
hið sama.
VAKA-HELCAFELL
» Lifandi útgáfa - í 15 ár »
mdí
Gei
BOKASUMAR
ZuricH
Brottför aðfaranótt laugardaga
Síðasta heimflug 24. ágúst
^®iin
kr.
Frankfurt
Brottförá laugardögum
Síðasta heimflug31. ágúst
24.750 kr.
Berlín
Brottförá laugardögum
Síðasta heimflug 31. ágúst
24.330 kr.
Köln
Brottför aðfaranótt laugardaga
Síðasta heimflug 31. ágúst
.370 kr.
Munchen
Brottför á sunnudögum
Síðasta heimflug 1. sept.
*Innifalið: Flug, innritunargjald ogflugvallarskattar.
Bamaafsláttur 5.000 kr„ bömyngri en 2 árafáfrítt.
ATLAS-korthafar, munið 4.000 kr. ferðaávísunina!
London
Brottförá þriðjudagskvöldum
Síðasta heimflug 20. sept.
&
FLUGFEL4GIÐ
AliAHW
/f-yzríföí ■jyu't' -jþip ■
Ssmi/lnniilepíipLaiiisfii
Reykjavflc: Austurstræti 12 • S. 5691010 • Símbréf 552 7796 og 5691095 Telex 2241 • Innanlandsferðir S. 569 1070
Hótel Sðgu viö Hagatorg • S. 562 2277 • Slmbréf 562 2460 Hafnarfjörður: Bæjarhrauni 14 • S. 5651155 • Slmbréf 565 5355 QATLAS P
Keflawfk: Hafnargðtu 35 • S. 421 3400 • Slmbréf 421 3490 Akranes: Brelðargötu 1 • S. 431 3386 • Slmbréf 431 1195 EUPOCARO
Akureyrl: Ráðhústorgi 1 • S. 462 7200 • Slmbréf 461 1035 Vestmannaey|ar Vestmannabraut 38 • S. 481 1271 • Slmbréf 481 2792
Einnig umboðsmenn um iand allt
Flogið vikulega í breiðþotu: